Dagur - 30.01.1986, Qupperneq 12
Akureyri, fímmtudagur 30. janúar 1986
CROWN j
CHICKEN -
AKUREYRI
Skipagötu 12 • Sími 21464
Kjúkftngar
eru gceðafœða
i CROWN j.
CHICKEN '
AKUREYRI
Skipagrttu 12 • Sími 21464
Leikfélag Akureyrar:
Æfingar b'
á „Fóstbræðrum“
Það er stutt á milli stríða hjá Tónlist í verkinu er sú flókn-
Leikfélagi Akureyrar og starfs-
mönnum þess. Nýlega er búið
að frumsýna Silfurtúnglið eftir
Laxness og Jólaævintýri Dick-
ens gengur enn og æfingar að
hefjast á síðasta verkefni
vetrarins. Það heitir á frum-
málinu „Blood Brothers“ og
er eftir Willy Russell. En hann
varð frægur fyrir leikrit sitt
„Educating Rita“. Það leikrit
var síðan kvikmyndað og naut
myndin mikilla vinsælda. Hjá
L. A. mun verkið heita Fóst-
bræður.
Verkið, Blood Brothers, var
frumsýnt í London 1983 og var
kosið besti söngleikur þess árs.
Það þykir mikill heiður í stórborg
þar sem bestu söngleikir heimsins
sjá dagsins Ijós. Magnús Þór
Jónsson eða Megas hefur þýtt
bæði talaðan texta og sunginn.
Leikstjóri er Páll Baldvin Bald-
vinsson sem nýlega leikstýrði
Rauðhóla-Rannsý hjá Hinu
leikhúsinu og fengið hefur lof
gagnrýnenda. Myndlistarmaður-
inn Gylfi Gíslason gerir leikmynd
við Fóstbræður.
Þetta er „magnað, dramatískt
verk,“ eins og Signý Pálsdóttir
leikhússtjóri orðaði það. Hjátrú
er mikil í leiknum og kemur með-
al annars fram að þegar aðskildir
tvíburar uppgötva að þeir eru
bræður munu þeir báðir deyja.
Nafn á
brýrnar
Samtals hafa nú borist 48 til-
lögur í hugmyndasainkeppni
sem svæöisútvarpiö á Akureyri
gekkst fyrir meðal hlustenda
sinna um nafn á nýju brýrnar
yfir Leirurnar.
í síðustu viku hringdu 29
manns með 26 mismunandi til-
lögur. í gær hringdu svo 21 og við
það bættust 22 ný nöfn í hug-
myndabankann, að sögn Finns
M. Gunnlaugssonar, dagskrár-
gerðarmanns. Hann sagði að enn
væri hægt að koma hugmyndum
á framfæri með því að hringja í
síma 26499. Pað verður svo lík-
lega Vegagerðarinnar að meta
það hvort eitthvert af þessum
nöfnum verður notað. - HS
asta sem ráðist hefur verið i hjá
L.A. að sögn Roar Kvam. Er um
að ræða jass, rokk og dægur-
músik. Níu manna hljómsveit
spilar á sýningum. Leikarar eru
Erla B. Skúladóttir og Sunna
Borg sem leika mæðgurnar.
Bræðurnir eru Ellert A. Ingi-
mundarson og Barði Guðmunds-
son. Sögumaður verksins er Þrá-
inn Karlsson. Aðrir leikendur
eru Pétur Eggerz, Kristján Hjart-
arson, Haraldur Hoe Haraldsson
og Sigríður Pétursdóttir. Frum-
sýning er áætluð viku fyrir
páska. gej-
Yfirtekur
Iðnaðar-
deild
reksturinn?
Nær allir starfsmenn fatadeild-
ar Sambandsins á Akureyri
hafa ritað forráðamönnum
Iðnaðardeildar Sambandsins
bréf þar sem farið er fram á að
það verði kannað hvort Iðnað-
ardeildin geti yfírtekið rekstur-
inn, en fatadeildin hefur að
undanförnu verið rekin af
Verslunardeild Sambandsins.
Um 65 starfsmenn fatadeildar
hafa nú fengið uppsagnarbréf í
hendur. Jón Sigurðarson fram-
kvæmdastjóri Iðnaðardeildar
sagði í samtali við Dag að Iðnað-
ardeildin gæti að öllum líkindum
tekið við flestu þessu fólki því
það vantaði fólk til starfa við út-
flutningsframleiðslu Iðnaðar-
deildar.
Starfsfólk það sem hefur unnið
við fatadeildina mun sækja það
fast að látið verði reyna á það
hvort Iðnaðardeildin geti tekið
yfir reksturinn þannig að fólkið
geti sinnt sínum störfum áfram
eins og það hefur gert, en verði
ekki flutt í önnur störf.
Jón Sigurðarson framkvæmda-
stjóri Iðnaðardeildar Sambands-
ins sagði að það yrði kannað
hvort hægt væri að reka fata-
deildina hallalaust. Ef niðurstað-
an verður jákvæð myndi Iðnað-
ardeildin beita sér fyrir því að
það yrði gert. gk-.
í gærkvöld varð loks flugfært til Akureyrar eftir nokkra töf. Þá höfðu starfsmenn á flugvellinum nög að gera.
Mynd: KGA
Hótel KEA:
Veitingarekstur-
inn leigður út?
- Starfsfólkinu sagt upp um helgina
„Til athugunar er að leigja út
allan veitingarekstur Hótel
KEA frá og með 1. maí n.k. Ef
af því verður mun hótelið ein-
ungis reka gistiaðstöðuna en
leigja út eldhúsið og veislusal-
inn svo og kaffíteríuna Súlna-
berg á jarðhæðinni.
Pessi leið hefur t.d. verið farin
hvað varðar rekstur Hótel Sögu í
Reykjavík. Par rekur hótelið
sjálft gistiaðstöðuna en leigir út
alla veitingaaðstöðu. Þar hefur
þetta fyrirkomulag gefið góða
raun enda er vitað mál að hjá
mörgum stærri hótelanna hefur
reynst erfitt að láta veitingarekst-
urinn standa undir sér með því að
vera að öllu leyti með aðkeypt
vinnuafl í þeim rekstri.
Viðræður hafa staðið yfir við
Kaupfélag Húnvetninga:
Nýr tölvubúnaður í notkun
Skömmu eftir áramót var tekin
í notkun ný tölva hjá Kaupfé-
lagi Húnvetninga en sú sem
fyrir var, var orðin úrelt að
sögn Guðsteins Einarssonar
skrifstofustjóra kaupfélagsins
þrátt fyrir að hún væri ekki
nema fímm ára gömul.
Nýja tölvan er af gerðinni
„IBM-system 36“ og er hægt að
stækka hana þannig að hún
samsvari 120 milljón stafa
diskettu. Til marks um öra þróun
á þessu sviði sagði Guðsteinn að
nýja tölvan hefði kostað 30 þús-
und dollara en kostaði fyrir fimm
árum 77 þúsund dollara.
Um notagildi nýju tölvunnar
sagði hann að þegar væri farið að
vinna í henni bókhald og launa-
bókhald og fljótlega yrði farið að
vinna allt í henni varðandi af-
urðauppgjör bænda og birgða-
bókhald. Vélsmiðja kaupfélags-
ins yrði fyrst deilda tengd tölv-
unni eða strax og snjóa leysti og
síðan hver deildin af annarri, en
framleiðandinn ábyrgist að
vinnuhraði tölvunnar haldist þótt
fjarlægð milli staða sem eru
tengdir henni sé allt að 1500
metrar, og dæmi eru til um allt
að 5000 metra fjarlægð frá móð-
urtölvu.
Sex manns hafa þegar verið
sendir í þjálfun til að læra á tölv-
una, sumir til IBM, aðrir í Sam-
vinnuskólann að Bifröst og enn
aðrir í hugbúnaðarfyrirtæki sem
sér um útbúnað fyrir tölvuna. Þá
sagði Guðsteinn að fyrirhugað
væri að tölvuskermar kæmu á
hvert skrifborð og þættu jafn
sjálfsagðir og reiknivélar eru í
dag. Hver skermur kostar nú um
60 þúsund krónur.
„Við fáum mikið fullkomnara
bókhald," sagði Guðsteinn, en
þess má geta að Kaupfélag Skag-
firðinga er að breyta hjá sér og
með því að þeir og Kaupfélag
Húnvetninga ásamt SÍS stóðu
sameiginlega í samningum varð-
andi kaupin tókst að fá mjög hag-
stætt verð. G.Kr.
tvo einstaklinga, sem sýnt hafa
áhuga á að taka veitingarekstur-
inn að sér. Það eru þeir Þórhallur
Árnason yfirþjónn Hótel KEA
og Sigmundur Einarsson mat-
reiðslumeistari, sem nú annast
mötuneyti heimavistar Mennta-
skólans á Akureyri. Ef samning-
ar nást munu þeir taka við rekstr-
inum þann 1. maí.
Fundur var haldinn með starfs-
fólki Hótel KEA á þriðjudags-
kvöldið þar sem því var skýrt frá
stöðu mála. Þar kom fram að
leigutakar óskuðu eftir því að
hafa frjálsar hendur um ráðningu
starfsfólks. Af þeim sökum yrði
að segja starfsfólkinu upp störf-
um með venjulegum þriggja
mánaða fyrirvara. Starfsfólkið
mun því væntanlega fá uppsagn-
arbréf með launum sínum þann
1. febrúar n.k.
„Ef af þessu verður munum við
setja ákvæði inn í samninginn um
það að leigutakinn leitist við að
endurráða sem mest af því fólki
sem þarna hefur starfað," sagði
Valur Arnþórsson kaupfélags-
stjóri í samtali við Dag.
Sem fyrr segir hefur endanleg
ákvörðun ekki verið tekin en
miklar líkur eru á að samningar
takist. BB.