Dagur - 19.02.1986, Qupperneq 3
19. febrúar 1986 - DAGUR - 3
_/' dagsljósinLL
Þrálátur orðrómur hefur verið á
kreiki undanfarnar vikur og mán-
uði um að ýmis lögbrot séu, eða
hafí verið, stunduð af starfsmönn-
um og/eða stjórnendum Sjallans á
Akureyri. Stórfelldur stuldur und-
an söluskatti, sala á smygluðu
áfengi og brot á lögum um hluta-
félög er allt meðal þess sem nefnt
hefur verið. Einn af dyravörðum
hússins hefur fullyrt það í samtali
við blaðamann Dags að honum
hafí verið uppálagt að taka þátt í
því að tvíselja aðgöngumiða.
Hvernig það er gert verður útskýrt
nánar í greininni hér á eftir. Ann-
ar fyrrverandi starfsmaður Sjall-
ans segir að á meðan verkfall op-
inberra starfsmanna stóð yfir
haustið 1984 hafí verið selt smygl-
að áfengi í húsinu. Arið 1984 var
enginn aðalfundur haldinn í hluta-
félaginu Akri og annar af tveimur
endurskoðendum félagsins sem
kjörnir voru á aðalfundi 1982 fékk
að eigin sögn aldrei að sjá staf um
reikninga félagsins.
Tvíseldir miðar
Hér skal skýrt nánar hvernig farið er
að því að tvíselja miða, eins og dyra-
vörðurinn fyrrverandi lýsti því.
Hann sagði að dyravörðunum væri
uppálagt að leitast við að ná miðun-
um heilum af gestum hússins og
safna þeim saman. Miðana lögðu
þeir síðan inn í miðaafgreiðslu, við
hliðina á kassanum sem peningarnir
og óseldu miðarnir eru geymdir í.
Miðarnir koma númeraðir í rúllum
frá embætti bæjarfógeta sem sér um
innheimtu gjalda, s.s. söluskatts og
skemmtanskatts, af aðgöngumiðum.
Þarf þá bókfærð miðasala að passa
við númer á miðunum og þannig er
hægt að hafa eftirlit með að inn-
heimtur sé skattur af hverjum seld-
um aðgöngumiða af rúllunni. Með
því að taka miðana í heilu lagi af
gesíum og selja sömu miðana tvisvar
er hægt að fara fram hjá þessu eftir-
liti og ná þannig umtalsverðum auka-
tekjum sem fógetaembættið fær enga
vitneskju um.
Að vísu sagði einn starfsmaður
bæjarfógeta í samtali við Dag að það
væri „opinbert leyndarmál" að þetta
svindl hefði tíðkast í Sjallanum.
Bæjarfógetaembættið hefur hins veg-
ar ekki gert neitt til að koma upp um
„svindlið“ og t.d. má nefna að lög-
reglan hefur ekki talið út úr Sjallan-
um árum saman.
„Við vorum nokkrir sem vorum á
móti því að taka þátt í þessu en okk-
ur var eiginlega bara skipað að gera
það og það tóku allir þátt í því,“
sagði dyravörðurinn fyrrverandi.
„Eg vissi hins vegar aldrei hvaðan
skipanirnar komu eða hvert pening-
arriir runnu sem komu inn fyrir mið-
ana sem voru seldir aftur.“
Hann bætti því við að ef hljóm-
sveitir komu og léku í húsinu gegn
hlutdeild í innkomu hafi stundum
verið maður frá viðkomandi hljóm-
svéit niðri í anddyri til að fylgjast
með því sem þar fór fram. Þá gættu
dyraverðirnir þess vandlega að út-
sendari hljómsveitarinnar sæi ekki að
þeir færu með miða aftur inn í miða-
sölu. Oft er það að fólk leggur mið-
ana í heilu lagi í lófa dyravarða en
heldur ekki á móti þegar dyravörður-
inn ætlar að rífa af. Þá miða sem
þannig komu í lófa dyravarðanna
áttu þeir frekar að setja í rusladall en
láta umboðsmann hljómsveitarinnar
sjá að miðarnir færu aftur í sölu.
Þegar þessi saga dyravarðarins
fyrrverandi var borin undir Hannes
Fréttaskýring
Yngvi
Kjartansson
skrifar
Þrálátur orðrómur um sölu-
skattssvik og sölu á smygli
- auk þess sem lögum um hlutafélag hafi ekki verið framfylgt
Haraldsson, yfirdyravörð, og Sigurð
Sigurðsson, framkvæmdstjóra, þver-
tóku þeir fyrir að það hefði nokkurn-
tíma gerst með þeirra vitneskju að
miðar væru tvíseldir með þeim hætti
sem að ofan er lýst.
Föstudagskvöldið 17. janúar próf-
aði blaðamaður Dags að telja þá
gesti sem komu út úr Sjallanum frá
klukkan 00:45 þar til allir gestir voru
komnir út úr húsinu.
Blaðamaður taldi þá yfir 600
manns, þar af komu um 300 út úr
húsinu fyrir klukkan 3 þegar dansleik
lauk. Það skal tekið fram að þessa
talningu verður að taka með nokkr-
um fyrirvara því þegar straumurinn
var sem mestur út úr húsinu eftir
klukkan 3:00 kann talningin að hafa
brenglast nokkuð þar sem mikið er
um að fólk gangi út og inn aftur og
straumurinn er svo mikill að talning-
in getur ekki orðið örugg þó að
blaðamaður hefi reynt að gæta sín á
því að telja ekki sama fólkið tvisvar.
Hins vegar telur blaðamaður sig hafa
nokkuð örugga vissu fyrir því að
talningin fram ti! klukkan 3:00 sé
mjög nálægt því að vera rétt enda
smátíndist fólk út á þessum tíma og
auðvelt var að draga þá frá sem skut-
ust inn í anddyrið og fóru strax út
aftur.
Samkvæmt bókum Sjallans voru
seldir miðar þetta kvöld 379. Blaða-
maður telur að með því að taka ýtr-
ustu skekkjumörk inn í dæmið hafi
verið a.m.k. 100 gestir í húsinu þetta
kvöld, umfram það sem miðarúllan
gefur til kynna. Þetta gerir frekar að
staðfesta sögu dyravarðarins en hitt.
Hér má einnig geta þess að einn af
fyrrverandi dyravörðum H-100 hefur
sagt blaðamanni Dags frá því að
þessi vinnubrögð hefðu verið stund-
uð í H-100 um árabil. Hann segist
hafa gert sér það að leik, þegar hann
var gestur í Sjallanum að fylgjast
með vinnubrögðum dyravarða þar og
þeir hefðu greinilega haft sama liátt-
inn á.
Líklegt má telja að þessa hluti sé
ákaflega erfitt að sanna og stendur
því eftir staðhæfing gegn staðhæf-
ingu.
Sala á smygluðu áfengi
Dagur hefur einnig fengið þær upp-
lýsingar frá fyrrverandi starfsmanni
Sjallans að selt hafi verið smyglað
áfengi í Sjallanunt í verkfalli opin-
berra starfsmanna haustið 1984.
Hann segir að síðustu helgina áður
en verkfalli lauk hafi vínbirgðir húss-
ins verið á þrotum, þrátt fyrir að hús-
ið hefði birgt sig vel upp þegar sýnt
þótti að verkfall brysti á. Þessa síð-
ustu helgi hafi verið gripið til smygl-
aðs áfengis og giskaði hann á að það
hefðu verið á milli 10 og 20 kassar af
smygluðu áfengi sem seldir voru á
börum hússins þessa umræddu helgi.
Kjörinn endurskoðandi
sá aldrei reikninga
Hlutafélagið Akur var upphaflega
stofnað árið 1955 og voru það 46 ein-
staklingar sem stóðu að stofnuninni.
Á næstu árum bættust við nýir hlut-
hafar og munaði þar mest um Sjálf-
stæðisflokkinn og ýmis sjálfstæðisfé-
lög á Norðurlandi. Akur hf. hóf
rekstur Sjálfstæðishússins um eða
upp úr 1960 og þá var flokkurinn og
sjálfstæðisfélögin á svæðinu komin
með meirihlutaeign í félaginu.
Engar meiriháttar breytingar urðu
á valdahlutföllum í félaginu fyrr en
árið 1982. í desember 1981 brann
Sjálfstæðishúsið og fljótlega var tek-
in ákvörðun um að byggja húsið upp
og um leið tóku nokkrir einstaklingar
sig saman um að kaupa hlut Sjálf-
stæðisflokksins og sjálfstæðisfélag-
anna á svæðinu.
Að sögn Sveinbjörns Vigfússonar
bóksala, sem var einn þessara
manna, voru það upphaflega milli 10
og 14 menn sem ætluðu að kaupa
þennan meirihluta í félaginu en þeim
fækkaði eitthvað strax áður en kom
að því að greiða skyldi fyrstu greiðslu
í umræddum hlutabréfum. Þegar að
því kom segist Sveinbjörn telja að
þeir hafi verið urn 8 talsins. í þeim
hópi voru, auk hans, núverandi
stjórnarmenn Akurs hf, þeir Jón Kr.
Sólnes, Aðalgeir Finnsson og Þórður
Gunnarsson sem er formaður
stjórnar. Þórarinn B. Jónsson var
einnig í þessum nópi en hann seldi
stjórnarmönnum sinn hlut aftur um
ári síðar.
eignuðust meirihluta hlutafjár og þá
tóku núverandi stjórnarmenn við
taumunum. Á þeim stjórnarfundi var
Sveinbjörn Vigfússon kjörinn annar
endurskoðenda félagsins, hinn var
Gunnar Sólnes, bróðir Jóns. Svein-
björn segist hafa komið að máli við
stjórnármenn fljótlega eftir þennan
fund og óskað eftir því að öll hlutbréf
félagsins yrðu innkölluð og gefin út
ný, vegna þess að þá var ekki ná-
kvæmiega ljóst hvað mikið væri til af
hlutabréfum eða hverjir væru raun-
verulégir éigendur ntargra þeirrá.'
Sveinbjörn segir að þessi ósk sín
hafi fengið jákvæðar undirtektir en
efndir hefðu engar orðið, enda hefur
þetta ekki verið gert enn. Sveinbjörn
sagðist einnig hafa farið fram á að fá
að sjá hlutaskrá félagsins, sem sam-
kvæmt lögum um hlutafélög á að
liggja frammi á skrifstofu félagsins.
hluthöfum til sýnis ef þeir óska eftir
því. Þeim óskum hans var einnig tek-
ið vel en efndir urðu engar.
Sveinbirni var ekki kunnugt um að
haldnir hefðu verið aðalfundir frá því
að hann var kjörinn endurskoðandi á
aðalfundinum í ágúst 1982 og hefur
hann aldrei verið kallaður til að líta á
reikninga félagsins.
„Þegar ég sá að þessir menn ætl-
uðu að stjórna þessu og hafa þetta al-
veg eins og þeim sýndist hætti ég að
hafa áhuga á að taka þátt í þessu og
hætti þar með að taka þátt í þessum
kaupum á hlut flokksins." sagði
Sveinbjörn í samtali við Dag.
Hvað eiga stjórnarmenn
Akurs hf. stóran hlut
í félaginu?
í lögum um hlutafélög segir að aðal-
fundi skuli halda árlega. innan 9
inn í árslok árið 1983 og árið 1984 var
enginn aðalfundur haldinn í Akri hf.
í október árið 1985 var svo haldinn
aðalfundur fyrir árin 1983 og 1984.
Þessir fundir voru boðaðir með aug-
lýsingum í Morgunblaðinu en ekki í
bæjarblöðunum eða með tilkynning-
um til hluthafa.
Blaðainaður spurði Þórð Gunnars-
son. formann stjórnar, hvort liann
mætti líta á hlutaskrá félagsins. Þórð-
ur kvaðst ekki sjá því neitt til fvrir-
stöðu en bað blaðamann að snúa sér
til Jóns Kr. Sólnes sem hefði þessa
skrá undir höndum ásamt öðrum
gögnum félagsins þar sem hann væri
lögfræðingur þess. Þegar þessi ósk
var borin undir Jón kvaðst hann
reikna með að þetta ætti að vera
hægt. hann hefði skrána að vísu ekki
undir höndum en gæti nálgast hana.
Hins vegar kvaðst Jón vera upptek-
inn og bað blaðamann að koma
síðar. án þess að segja til um það ná-
kvæmlega hvenær.
Samkvæmt upplýsingum Þórðar
Gunnarsson eiga stjórnarmenn Ak-
urs yfir 70% í félaginu en Sveinbjörn
Vigfússon segist draga það stórlega í
efa. Úr þ\í fæst væntanlega skorið
þegar Jón Kr. Sólnes sýnir blaða-
rnanni hlutaskrá félagsins.
Er Sjallinn gjaldþrota?
í umræðunni um Sjallann. sem verið
hefur töluverð undanfarnar vikur og
mánuði eins og áður sagði. hefur
kotnið til tals að fyrirtækið væri
gjaldþrota. Skuldir þess næmu milli
80 og 90 milljónum króna. að mestu
leyti við Iðnaðarbankann en einnig
við kauptelagið á Svalbarðseyri.
Flestir \ iðskiptavinir Sjallans voru
búnir að loka á öll viðskipti vegna
hráefniskaupa nema gegn stað-
greiðslu. Hvað svo sem hæft er í
þessum sögum um gjaidþrot er ljóst
að fyrirtækið er ákaflega illa statt
fjárhagslega og hefur \erið reynt að
selja það undanfarið. Hefur heyrst
að eigendur vilji fá 110 milljónir
króna fvrir húsið og tilheyrandi.
Að \ onum hefur stærsti lánadrott-
inn Sjallans mikilla hagsntuna að
gæta varðandi sölu fyrirtækisins og
mun hafa krafíst þess að fyrirtækið
yrði selt. Reiknað er með að jafnvel
verði gengið frá því ntáli innan nokk-
urra daga og fyrirtækinu þar með
bjargað frá gjaldþroti.
Sjallinn hefur verið ntjög áberandi
þáttur í bæjarlífinu á Akureyri. af
honum hefur jafnvel verið menning-
arauki að sumra mati. Hvort nýjum
eigetidum tekst að koma fótunum
undir fyrirtækið á nýjan leik er óvissu
háð.
í ágúst 1982 var haldinn fyrsti aðal- mánaða frá því reikningsári lýkur.
fundur félagsins eftir að nýir aðilar Aðalfundur fyrir árið 1982 var hald-
Skiptir Sjallinn um eigendur á næstunni? Mynd: KGA.