Dagur - 11.03.1986, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 11. mars 1986
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík), YNGVI KJARTANSSON,
KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Jeiðari.____________________________
Missa samning-
amir matte?
Blekið var vart þornað á nýju kjarasamning-
unum og ákvarðanir þeim tengdar höfðu
varla tekið gildi, þegar gífurleg holskefla
auglýsinga um verðlækkun á bílum, heimilis-
tækjum o.fl. skall á landsmönnum. „Stórkost-
leg verðlækkun, stórkostleg verðlækkun"
skall á hlustum útvarpsnotenda og bílasala í
landinu tók mikinn fjörkipp, vafalaust með
stórauknum innflutningi nýrra bifreiða í kjöl-
farið. Ástæða var til að óttast að þetta myndi
gerast, en stórfelldur innflutningur með vax-
andi viðskiptahalla við útlönd gæti einmitt
orðið til þess, ásamt með öðru, að kjarasamn-
ingarnir og ráðstafanir ríkisstjórnarinnar
misstu marks.
Raunar höfðu sumir óttast það að þessir
samningar og þær ráðstafanir sem gerðar
yrðu í tengslum við þá kæmu þeim best sem
væru í innflutningi og verslun. Því miður virð-
ast sumir þeir sem í viðskiptum standa með
vörur, sem tollar voru lækkaðir á, hafa ætlað
sér aukinn hlut vegna þessara aðgerða. Kom-
ið hefur í ljós að t.d. bifreiðar lækkuðu ekki
eins mikið í verði og til stóð vegna tollalækk-
ana. Sumir innflytjendur höfðu sem sagt
freistast til þess að hækka álagninguna. Sem
betur fer voru starfsmenn Verðlagsstofnunar
vel á verði og virðast jafnvel hafa gert ráð fyr-
ir að þetta yrði reynt. Þeir gerðu verðkönnun
eftir tollalækkun og geta borið hana saman
við könnun sem gerð var fyrir lækkunina. Ef í
ljós kemur að innflytjendur hafa hækkað
álagningarprósentu sína þá verða nöfn þeirra
birt. Til álita hlýtur að koma að lögbinda
álagningarprósentuna, ef mikil brögð eru að
því að menn misnoti það frelsi sem fyrir er.
Gróðafíkn nokkurra aðila má ekki verða til
þess að draga úr áhrifamætti samninganna
og þeirra aðgerða sem þeim fylgdu.
Það er alfarið í höndum opinberra aðila að
sjá til þess að forsendur kjarasáttmálans,
sem svo hefur verið nefndur, standist. Að
vísu geta stjórnvöld ekki ráðið þróun erlendra
gjaldmiðla, olíuverði, fiskverði erlendis og
fleiru sem úrslitaáhrif hefur um það hvort til
tekst eða ekki. En hægt er að beita ýmsum
aðferðum til þess að beina málunum inn á
réttar brautir t.d. að reyna af fremsta megni
að koma í veg fyrir hallarekstur ríkissjóðs
með lækkuðum útgjöldum og sparnaði.
_viðtal dagsins.
,Ég hef varla opnað bók í heilan mánuð.
segir Axel Pétur m.a. í viðtalinu
KGA
„Ég vona að við
fáum góða aðsókn“
- segir Axel Pétur Ásgeirsson, formaður Listadaganefndar M.A.
í viðtalið dagsins
„Listadagar eru viðburður sem
framtakssamir menn í Mennta-
skólanum á Akureyri komu á
fyrir 9 árum, að ég held og til-
gangurinn var að efla menn-
ingu og listir í Menntaskólan-
um og á Akureyri. Listadagar
eru samþjöppuð dagskrá með
þekktum listamönnum, jafnvel
heimsþekktum, og óþekktum
listamönnum innan skólans, í
bland.“ Þannig lýsir Axel Pét-
ur Ásgeirsson Listadögum
Menntaskólans á Akureyri
sem hófust í gær og lýkur þann
20. mars n.k. Axel er formað-
ur Listadaganefndar og ég
spurði hvernig hann hefði ver-
ið valinn í það hlutverk.
„Ég varð forseti Hagsmuna-
ráðs í fyrra og samkvæmt hefð
fékk ég sem slíkur það hlutverk
að vera formaður Listadaga-
nefndar."
- Hvernig er dagskrá Lista-
daga?
„Hún verður svipuð og verið
hefur á undanförnum árum. Það
verða kvikmyndasýningar, bók-
menntakynningar, tónleikar og
myndlistarsýningar. Ef allt fer
sem horfir verða Stuðmenn í
íþróttahöliinni á föstudagskvöld-
ið. Við erum að vísu ekki búnir
að ganga endanlega frá samning-
um við þá en við getum sagt að
það sé samt orðið 99% öruggt að
þeir koma.
Annar stórviðburður verður á
fimmtudaginn en þá opnar Balt-
asar málverkasýningu í Möðru-
vallakjallara klukkan 16:00.
Einar Kárason rithöfundur
kemur og les upp úr verkum sín-
um á laugardaginn klukkan
15:30. Hann hlaut nýlega Menn-
ingarverðlaun DV fyrir skáldsög-
ur sínar og er einn af bestu skáld-
um yngri kynslóðarinnar á ís-
landi.
Hamrahlíðarkórinn kemur og
syngur á sunnudaginn klukkan
17:00 í Akureyrarkirkju.
Tvær kvikmyndir verða á
dagskrá Listadaga og verða þær
báðar sýndar í Borgarbíói þriðju-
dagana 11. og 18. mars klukkan
17:00. Sú fyrri er Síðasta lestin
eftir Truffaut og síðari myndin er
Nútíminn með Chaplin, hvort
tveggja sígild meistaraverk.
Þetta er nú svona það helsta af
aðfengnu efni en auk þess verða
nemendur sjálfir með uppákom-
ur og má þar nefna Listakvöld
sem var í gærkvöld. Þar lásu
nemendur skáldskap eftir sjálfa
sig og aðrir léku á hljóðfæri og
var það upphafsatriði Listadaga.
Annað kvöld verður Djass-
kynning í Möðruvallakjallara. Þá
verða leikin af plötum, verk
kunnra djassleikara. Á mánu-
dagskvöldið verður Setustofu-
djass í setustofu Heimavistar
M.A. Þar koma saman nokkrir
djassleikarar úr bænum og leika
nokkra létta „standarda".
Laugardaginn 15. mars verður
opnuð Ljósmyndasýning fram-
haldsskólanna. Það er farandsýn-
ing sem gengur á milli skóla og á
henni eru ljósmyndir eftir nem-
endur ýmissa framhaldsskóla á
landinu. Hún verður á göngum
Möðruvalla, raunvísindahúss
M.A. Þriðjudaginn 18. mars
verður svo önnur ljósmyndasýn-
ing opnuð í kjallara Möðruvalla
og þar verða eingöngu myndir
teknar af nemendum Mennta-
skólans.
Miðvikudaginn 19. mars verð-
ur kvöldvaka í Möðruvallakjall-
ara þar sem nemendur verða með
blandaða skemmtidagskrá og
Listadögum lýkur svo fimmtu-
daginn 20. mars. Þá verður kaffi-
kvöld í Möðruvallakjallara þar
sem veitt verða verðlaun fyrir
ljóð, sögur, tónverk, ljósmyndir
og plakat en Listadaganefnd
efndi til samkeppni um ofantalið,
líkt og gert hefur verið á undan-
förnum árum. Höfundar verð-
launaverkanna munu kynna þau
við þetta tækifæri.“
- Er þá allt talið?
„Ætli það ekki. Við ætluðum
að hafa útvarpsstöð í gangi í
tengslum við Listadagana og von-
um búin að fá leyfi til þess en
gekk eitthvað illa að fá sendi og
því verður líklega ekkert af út-
varpssendingum að þessu sinni.
- Er ekki mikið verk að koma
saman svo veglegri dagskrá?
„Jú, þetta er búið að vera
brjáluð vinna. Ég hef varla opn-
að bók í mánuð og verð bara að
viðurkenna að ég er orðinn hálf-
taugaveiklaður. Það þýðir ekkert
að ætla að reyna að leyna því því
það sjá það allir í kring um mig.“
Ekki gat ég nú séð að Axel væri
illa farinn af álaginu, enda glotti
hann þegar hann sagði þetta.
- Viltu segja eitthvað að
lokum?
„Ég vona bara að við fáum
góða aðsókn því við erum búin
að leggja mikið undir til að koma
saman vandaðri dagskrá. Það
mega allir koma á öll dagskrár-
atriði, jafnt nemendur sem aðrir
og aðgangseyri er stillt mjög í
hóf. Reyndar er frítt þar sem því
verður við komið, enda er mark-
miðið ekki að græða heldur er
ætlunin að leyfa fólki að kynnast
sem flestu í listum.“ -yk.