Dagur - 11.03.1986, Page 4
4 - DAGUR - 11. mars 1986
—á Ijósvakanum
Isjónvarpi
ÞRIÐJUDAGUR
11. mars
19.00 Aftanstund.
Endursýndur þáttur frá 3.
mars.
19.20 Ævintýri Olivers
Sögulok.
Franskur brúðu- og teikni-
myndaflokkur um víðförl-
an bangsa og vini hans.
Þýðandi: Guðni Kolbeins-
son, lesari með honum
Bergdís Björt Guðnadóttir.
19.50 Fréttaágrip á tákn-
máli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og
dagskrá.
20.35 Sjónvarpid.
(Television).
10. Áhrif til góðs og ills.
Breskur heimildamynda-
flokkur í þrettán þáttum
um sögu sjónvarpsins,
áhrif þess og umsvif um
viða veröld og einstaka
efnisflokka.
í þessum þætti er rakið
hvernig sjónvarpið getur
bæði verið mannskemm-
andi og til menningar-
auka.
Þýðandi: Kristmann Eiðs-
Þulur: Guðmundur Ingi
Kristjánsson.
21.35 Söngvakeppni sjón-
varpsstöðva í Evrópu
1986.
íslensku lögin kynnt - 4.
þáttur.
Stórsveit Sjónvarpsins
leikur tvö lög.
Söngvarar: Eiríkur Hauks-
son og Pálmi Gunnarsson.
Útsetning og hljómsveitar-
stjórn: Gunnar Þórðarson
og Þórir Baldursson.
Kynnir: Jónas R. Jónsson.
Stjóm upptöku: Egill Eð-
varðsson.
21.50 í vargaklóm.
(Bird of Prey II).
Breskur sakamálamynda-
flokkur í fjómm þáttum.
Framhald fyrri þátta sem
sýndir vom 1983.
Aðalhlutverk: Richard
Griffiths.
Tölvufræðingurinn Henry
Jay á enn í vök að verjast
vegna baráttu sinnar við
alþjóðlegan glæpahring
sem hann fékk veður af í
tölvugögnum sínum.
Þýðandi: Bogi Arnar Finn-
bogason.
22.40 Kastljós.
Þáttur um erlend málefni.
23.10 Fréttir i dagskrárlok.
\útvarpM
ÞRIÐJUDAGUR
11. mars
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Tónleikar.
13.30 í dagsins önn -
Heilsuvernd.
Umsjón: Jónína Bene-
diktsdóttir.
14.00 Miðdegissagan:
„Opiö hús" eftir Marie
Cardinal.
Guðrún Finnbogadóttir
þýddi. Ragnheiður Gyða
Jónsdóttir les (8).
14.30 Middegistónleikar.
15.15 Barid ad dyrum.
Inga Rósa Þórðardóttir sér
um þátt frá Austurlandi.
15.45 Tilkynningar • Tón-
leikar.
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustadu með mér.
- Edvard Fredriksen. (Frá
Akureyri).
17.00 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.40 Úr atvinnulifinu -
Iðnaður.
Umsjón: Sverrir Alberts-
son og Vilborg Harðardótt-
ir.
18.00 Neytendamál.
Umsjón: Sturla Sigurjóns-
son.
18.15 Tónleikar • Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir
Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál.
Sigurður G. Tómasson flyt-
ur þáttinn.
19.50 Fjölmiðlarabb.
Margrét S. Björnsdóttir
talar.
20.00 Vissirðu það? - Þáttur
í léttum dúr fyrir börn á
öllum aldri.
Fjallað er um staðreyndir
og leitað svara við mörg-
um skrýtnum spurningum.
Stjórnandi: Guðbjörg Þór-
isdóttir. Lesari: Árni
Blandon.
20.30 Að tafli.
Jón Þ. Þór flytur þáttinn.
20.55 „Eins og grasið."
Jón frá Pálmholti les les úr
óprentuðum ljóðum
sínum.
21.05 Islensk tónlist.
21.30 Útvarpssagan: „ífjall-
skugganum" eftir Guö-
mund Daníelsson.
Höfundur les (7).
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma
(38).
22.30 „Ég var skilinn eftir á
bryggjunni."
Pétur Pétursson ræðir við
Svein Ásmundsson um
vertíðir í Vestmannaeyjum
og leigubílaakstur í
Reykjavík.
(Hljóðritað skömmu fyrir
lát Sveins.)
23.00 Kvöldstund í dúr og
moll
með Knúti R. Magnússyni.
24.00 Fréttir • Dagskrár-
lok.
MIÐVIKUDAGUR
12. mars
7.00 Veðurfregnir • Fréttir •
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir • Tilkynningar.
8.00 Fréttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Dagný og engill-
inn Dúi" eftir Jónínu S.
Guðmundsdóttur.
Jónína H. Jónsdóttir les
(5).
9.20 Morguntrimm • Til-
kynningar • Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Sigurð-
ur G. Tómasson flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forystugrein-
um dagblaðanna.
10.40 Hin gömlu kynni.
Valborg Bentsdóttir sér
um þáttinn.
11.10 Norðurlandanótur.
Ólafur Þórðarson kynnir.
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Frá
vettvangi skólans.
Umsjón: Kristín H.
Tryggvadóttir.
Irás 21
ÞRIÐJUDAGUR
11. mars
10.00 Kátir krakkar.
Dagskrá fyrir yngstu
hlustendurna í umsjá Guð-
laugar Mariu Bjarnadótt-
ur.
10.30 Morgunþáttur.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
12.00 Hlé.
14.00 Blöndun á staðnum.
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00 Sögur af sviðinu.
Þorsteinn G. Gunnarsson
kynnir tónlist úr söngleikj-
um og kvikmyndum.
17.00 Hringiðan.
Þáttur í umsjá Ingibjargar
Ingadóttur.
18.00 Dagskrárlok
3ja mín. fréttir kl. 11, 15, 16
og 17.
17.03-18.00 Ríkisútvarpið
á Akureyri - Svæðisút-
varp.
RI KISLnVARPI D
A AKURhYRI
17.03 18.30 Ríkisútvarpið á
Akureyri - Svæðisútvarp.
hér og þar
„Eins og að vera sjálfiir
mættur i slaginn í Sviss“
- Rætt við Birgi Bjömsson, fyrmm fyrirliða landsliðsins og landsliðsþjálfara
í handbolta, en hann var í HM-liði íslands 1961, sem náði þá 6. sæti
„Jú, það hefur verið óskaplega
gaman að fylgjast með leikjun-
um hjá strákunum og sjón-
varpið hefur fært mann nær
því sem hefur verið að gerast
úti í Sviss. Það hefur stundum
leitt til óviðráðanlegra við-
bragða handa og fóta þegar
spenningurinn hefur verið sem
mestur, rétt eins og maður
væri sjálfur mættur í slaginn.“
Þetta sagði Birgir Björnsson,
hinn gamalkunni handbolta-
kappi, þegar við slógum á þráð-
inn til hans fyrir helgina. Birgir
var fyrirliði landsliðsins 1961,
þegar íslendingar náðu 6. sæti í
heimsmeistarakeppninni í Vest-
ur-Þýskalandi. Þá léku „okkar
menn“ til úrslita við Dani um 5.
sætið. Hvernig fór?
„Ó, danskurinn vann okkur
með einu marki, eftir að við
í upphafi leiksins á móti Tékkum á HM í Þýskalandi 1961. Birgir Björnsson
heilsar Vica, fyrirliða Tékka, en hann var síðar lengi þjálfari hjá landsliði
Tékka.
Birgir Björnsson.
höfðum verið þremur mörkum
yfir þegar fáar mínútur voru til
íeiksloka. Þá greip okkur einhver
taugaveiklun og við misstum allt
úr böndum. Þeir skoruðu sigur-
markið á síðustu sekúndunni. En
við gátum vel sætt okkur við 6.
sætið, því íslenskt handknatt-
leikslið hafði aldrei náð svo langt
á heimsmælikvarða. Og í milli-
riðlinum gerðum við jafntefli við
Tékka, sem síðan áttu eftir að
leika til úrslita við Rúmena, en
töpuðu þeim leik eftir að hann
hafði verið framlengdur í
tvígang. Við gátum því borið
höfuðið hátt.“
Fyrsti leikur íslendinga á
heimsmeistaramótinu 1961 var
við Dani og þá fór fyrir landanum
líkt og gegn Kóreumönnunum
nú; strákarnir fengu skell. En
síðan áttu þeir eftir að rétta úr
kútnum, líkt og nú, með sigrum
yfir Svisslendingum, Frökkum og
hápunkturinn var jafnteflið við
Tékka. Okkar menn töpuðu hins
vegar fyrir Svíum þá eins og nú.
Birgir Björnsson var einnig
fyrirliði landsliðsins í fyrstu
heimsmeistarakeppninni sem ís-
# Situr Freyr
áfram.. ?
Um næstu helgi verður
prófkjör Alþýðuflokksins
á Akureyri þar sem valið
verður í efstu sæti lista
krata til bæjarstjórnar-
kosninga. Kratar eiga nú
einn bæjarfulltrúa, Frey
Ófeigsson, og hefur hann
setið í bæjarstjórn i 12 ár
eða þrjú kjörtímabil. Svo
virðist sem sumum félög-
um hans í Alþýðuflokkn-
um þyki sem Freyr hafi
setið nógu lengi og er
uppi hreyfing meðal
þeirra um að velta honum
úr sessi. Þarfer fremstur í
flokki, Gísli Bragi Hjartar-
son og herma fregnir úr
röðum krata að hann sé
með mikla smölun í undir-
búningi. Prófkjör krata
verður opið og geta því
allir tekið þátt sem ekki
eru félagar í öðrum stjórn-
málaflokkum.
# ...eða
veltir Bragi
honum úr
sessi?
Gfsli Bragi er einn af eig-
endum og yfirmönnum
Híbýlis hf. sem hefur eins
og aðrir byggingaverktak-
ar í bænum orðið illa úti
vegna mikils samdráttar í
byggingaframkvæmdum á
siðustu árum. Hann hefur
ekki verið feiminn við að
skella skuldinni á bæjar-
yfirvöld og segir brýnasta
verkefni bæjarstjórnar
vera að stuðla að atvinnu-
uppbyggingu f bænum.
Með þessum málflutningi
hefur hann eflaust aflað
sér einhvers stuðnings og
auk þess er talið að hann
geti sótt sér nokkurt fylgi
inn í ýmis félög sem hann
hefur starfað í, aðallega
innan íþróttahreyfingar-
innar. Hann er m.a. for-
maður Golfklúbbs Akur-
eyrar.
# Spennandi
keppni
Freyr á hins vegar sína
dyggu stuðníngsmenn
sem munu ekki standa
álengdar og horfa á Braga
draga að fylgi. Þeir hyggj-
ast verjast og segja sumir
að Bragi ætli að nota þetta
sem leið til að yfirgefa
sökkvandi skip sitt, nefni-
lega Hfbýli. í annað sætið
ætia þeir svo að velja
konu og hefur helst verið
rætt um Huldu Eggerts-
dóttur í þvf sambandi.
Það þarf ekki að horfa
lengra aftur f tímann en
fjögur ár til að finna dæmi
þess að með hressilegri
smalamennsku er hægt
að komast langt upp eftir
lista Alþýðuflokksins á
Akureyri og Ijóst að þar
stefnir í spennandi
keppni.