Dagur - 11.03.1986, Page 5
11. mars 1986 - DAGUR - 5
land tók þátt í. Pá lentu „strák-
arnir“ í sterkum riðli, með
Tékkum, Ungverjum og Rúmen-
um. Peir töpuðu fyrir Tékkum og
Ungverjum en, unnu Rúmena.
Slík undur hafa ekki gerst síðan,
fyrr en í Sviss á dögunum. En
þessi sigur dugði ekki til að kom-
ast áfram í milliriðil. Okkar
menn féllu út á óhagstæðara
markahlutfalli og fóru heim, því
þá var ekki keppt um 12.-16.
sæti.
Biggi var einnig með landslið-
inu 1964 í heimsmeistarakeppn-
inni í Tékkóslóvakíu. Þá sigruðu
„strákarnir okkar“ Svía með
tveim mörkum og Egypta unnu
þeir stórt. Þeir máttu því tapa
fyrir Ungverjum með nokkrum
mun, en hefðu samt komist
áfram. Gallinn var bara sá, að
þeir töpuðu fyrir þeim með mikl-
um mun og voru þar með úr leik!
Síðasta heimsmeistarakeppnin
sem Biggi tók þátt í var 1967. Pá
lenti íslenska landsliðið í auka-
leikjum við Dani og Pólverja um
sæti í keppninni. Þeirri viðureign
tapaði landinn, en Danir náðu
öðru sæti á HM, sem þá var hald-
ið í Svíþjóð.
Það er margs að minnast frá
handboltaferli Birgis. Hann var
t.d. þjálfari landsliðsins þegar við
unnum Dani 15-10 hér heima í
eftirminnilegum leik. Hann var
einnig með landsliðið okkar þeg-
ar ísland vann fyrst sigur yfir
Þjóðverjum. Það var á móti úti í
Sviss, þar sem ísland lenti í 2.
sæti. Loks var Birgir aðstoðar-
þjálfari hjá Pólverjanum Janusi
Czerwinski sem var með liðið fyr-
ir heimsmeistarakeppnina í Dan-
mörku 1978. Sá undirbúningur
lenti þó meira og minna á Birgi,
því það var undir hælinn lagt
hvort Janus fékk að yfirgefa
heimahagana. Og það muna víst
flestir eftir stóra skellinum í Dan-
mörku.
„Eflaust hefur flöktið með Jan-
us skemmt fyrir okkur en þó held
ég að það hafi munað mest um að
missa aðalmarkaskorarann
okkar, Ólaf Einarsson, sem
handarbrotnaði á móti í Noregi
skömmu fyrir keppnina. Það var
meiri blóðtaka en við þoldum.
Og HM í Danmörku var martröð
fyrir okkur. En ég mótmæli því
algerlega, að við höfum ekki spil-
að sæmilegan bolta. Þjóðirnar
sem við töpuðum fyrir í undan-
keppninni röðuðu sér í þrjú af
sex efstu sætunum.“
- Ertu ánægður með frammi-
stöðu „strákanna okkar“ í mót-
inu núna?
„Já, ég held það, þetta er mjög
góð útkoma. Tapið fyrir Kóreu-
mönnunum; ég held að strákarnir
hafi vanmetið þá undir niðri. Þeir
áttuðu sig hreinlega ekki á styrk-
leika þeirra. Fleiri þjóðir hafa
fallið í sömu gryfju. Þessir kapp-
Sjö FH-ingar voru í landsliðinu 1961. í fremri röðinni eru f.v. Pétur Antons-
son, framkvæmdastjóri í Krossanesi, Hjalti Einarsson og Einar Sigurðsson, í
aftari röðinni f.v. eru Ragnar Jónsson, Örn Hallsteinsson, Kristján Stefáns-
son og Birgir Björnsson.
íslendingarnir fagna jafntefli, 15-15, í Iciknum gegn Tékkum.
ar eru ekki auðunnir, með allri
sinni leikni og snerpu. Við áttum
ágætan leik gegn Ungverjum og
sigurinn gat dottið hvorum megin
sem var. Sömu sögu er að segja
um leikinn við Rúmena, en þá
höfðum við lánið með okkur í
lokin. Það var stórkostlegt að
vinna Dani og sá leikur var mjög
góður. Þreyta og meiðsli lykil-
leikmanna háðu okkur á móti
Svíum. Við máttum ekki við
slíku, þar sem Svíarnir náðu
toppleik. Þar við bættist, að dóm-
gæslan var „ediótisk" fyrstu tíu
mínútur leiksins og það bitnaði
nær eingöngu á okkar mönnum.
Þetta varð til þess að Svíarnir
komust 6 mörk yfir, losnuðu við
stressið, en okkar menn urðu hálf
lamaðir af mótlætinu. En Svíarn-
ir voru betri aðilinn í leiknum og
þeir náðu ótrúlega vel að brjóta
okkar kerfi niður.“
- Þegar þetta viðtal birtist
verður leikurinn við Spán búinn,
en hverju spáir þú um úrslitin?
„Ég held að þetta verði fjörug-
ur leikur og það verða skoruð
mörg mörk. Óskhyggjan segir
mér að ísland sigri, 25-23.“
- Hefur þú verið sáttur við
uppstillinguna hjá Bogdan?
„Já, yfirleitt, af því hann er að
keyra kerfi sem hann er greini-
lega búinn að leggja mikla vinnu
í. Hann hefur mesta trú á þeim
mönnum sem hann byggir allt á
og eflaust gerir hann það sam-
kvæmt tölfræðilegum upplýsing-
um. sem hann hefur eftir langan
tíma með liðið. En það er alltaf
hægt að vera vitur eftir á. Ég er
ekki alveg ánægður með skipting-
ar. Ég hefði t.d. viljað hvíla
Kristján Arason meira frá vörn-
inni, því það er ætlast til þess að
hann sé endahnúturinn á flestum
sóknum liðsins. Ég held líka, að
Bogdan hafi gert mistök með
þeim breytingum sem hann gerði
á liðinu í hálfleik á móti Ungverj-
um. En í heildina hefur Bogdan
farist þetta mjög vel úr hendi."
- Þú varst lengi með Alfreð
Gíslason undir þinni hendi sem
þjálfari hjá KA. Hefðir þú ekki
viljað sjá meira til hans á HM?
„Jú, ég hef saknað hans. En ég
veit að Bogdan hefur sínar ástæð-
ur fyrir því að nota hann ekki.
Hann virðist ekki vera sáttur við
Alfreð."
í landsliði íslands í handbolta.
sem náði 6. sætinu á HM 1961.
voru auk Birgis: Pétur Antons-
son, Ragnar Jónsson. Einar Sig-
urðsson. Örn Hallsteinsson.
Kristján Stefánsson og Hjalti
Einarsson, allir úr FH. Karl
Benediktsson Fram. Karl Jó-
hannsson KR. Guttnlaugur
Hjálmarsson ÍR. Erling Lúðvíks-
son ÍR og Sólmundur Jónsson
Val.
Háskólakórinn í tón-
leikaferð á Norðurlandi
Háskólakórinn mun sækja
Norðlendinga heim og halda
tónleika á ýmsum stöðum nú í
þessari viku. Kórinn heldur
tónleika á fjórum stöðum á
Norðurlandi, á Hvammstanga,
Miðgarði í Skagafírði, á Akur-
eyri og á Dalvík.
Fyrstu tónleikar kórsins verða
á Hvammstanga miðvikudaginn
12. mars og hefjast þeir kl. 20.30.
Fimmtudaginn 13. mars syngur
kórinn í Miðgarði í Skagafirði og
hefjast tónleikarnir kl. 21.00. A
föstudagskvöld, 14. mars verða
síðan tónleikar í Víkurröst á
Dalvík. Síðustu tónleikar kórs-
ins í ferðinni verða laugar-
daginn 15. mars í Borgarbíói á
Akureyri og hefjast þeir kl.
17.00.
Á efnisskrá Háskólakórsins að
þessu sinni verður eingöngu ís-
lensk tónlist. Flutt verður Cant-
ata V. eftir Jónas Tómasson,
Spjótalög eftir stjórnanda
kórsins, Árna Harðarson, auk
nokkurra þekktra íslenskra þjóð-
laga.
Einnig mun kórinn frumflytja í
þessari ferð „Raddir á daghvörf-
um - tilbrigði við tíu þjóðsögur,"
eftir Kjartan Ólafsson við ljóð
Hannesar Péturssonar.