Dagur - 17.03.1986, Blaðsíða 11

Dagur - 17.03.1986, Blaðsíða 11
17. mars 1986 - DAGUR - 11 Athugasemd við frétt um lokun laxastiga í Laxá: Laxársamningarnir hafa verið þverbrotnir - segir Eysteinn Sigurðsson bóndi á Arnarvatni Vegna fréttar í Degi frá 26. febrúar s.l. þar sem rætt var um að bændur við Laxá og Mývatn vildu loka laxastigan- um við Laxárvirkjun hafði Eysteinn Sigurðsson bóndi á Arnarvatni og formaður Veiði- félags Laxár og Krákár sam- band við blaðið og vildi koma eftirfarandi á framfæri: „Þegar ég las frétt í Degi þann 26. febrúar sl. um lokun laxastiga í Laxá hjá Brúum, fannst mér fréttaflutningurinn minna mig um of á þá blaðamennsku sem kynnast má á síðum DV og HP. Farið er rangt með flestar staðreyndir og ekki hirt um að leita álits þeirra sem málið snertir. Ég tel það lágmarkskurt- eisi að Veiðifélag Laxár og Krákár, en þar er ég formaður, hefði fengið að fylgjast með þessu máli frá upphafi. Ég get nefnt nokkur dæmi þess að rang- lega sé farið með staðreyndir. í fyrirsögn greinarinnar segir að veiðibændur við Laxá og Mývatn vilji loka laxastiganum. Ég spyr, hvaða bændur við Laxá og Mý- vatn hafa farið fram á slíkt. Hér er ruglað staðreyndum, því ein- ungis á þetta við um bændur við Mývatn. Þá er líka farið rangt með, þar sem talað er um spreng- ingu Miðkvíslarstíflu árið 1972. Sagt er að samningar hafi farið fram milli Landeigendafélags Laxár og Mývatns og Laxár- virkjunar, fyrir milligöngu ríkis- valdsins. Það er rétt að það fóru fram samningar, en sprenging Miðkvíslarstíflu var einungis lið- ur í langri baráttu, sem stóð í 4 ár og var kölluð Laxárdeila. Þessari deilu lauk 19. maí 1973. Einn lið- ur í þeim samningum var að ríkisvaldið skyldi byggja laxa- stiga hjá Brúum. í framhaldi af þessum samningum var síðan sett löggjöfin um verndun Laxár og Mývatns. Ein staðreynd er hér enn sem rangt er með farið, en hún er sú að þessi fiskvegur var ekki byggður 1974-6. Staðreyndin er sú að það tók Landeigendafélag Laxár og Mývatns 4 ár að knýja ríkisvaldið til þess að hefja fram- kvæmdir við byggingu Íaxastig- ans, sem var þó eitt af þeim atrið- um samningsins, sem ríkisvaldið átti að uppfylla til þess að létta því lögbanni sem var á vatnstöku úr Laxá til virkjunarinnar. Bygg- ingu laxastigans lauk 1979-80. Eg vil geta þess í þessu sambandi, að Laxársamningarnir hafa verið þverbrotnir hin síðustu ár. Við vitum það að það er geysileg of- framleiðsla á rafmagni og vélar Kröfluvirkjunar hafa staðið ónot- aðar undanfarin sumur í 3-4 mán- uði og hluti véla í Laxárvirkjun hefur líka staðið ónotaður yfir sumarið. Það segir í fyrrgreindum Lax- ársamningi að rekstri virkjana við Laxá skuli hagað þannig á hverjum tíma að sem minnstu tjóni valdi á fiskræktarmöguleik- um árinnar. Fiskvegurinn er hannaður með það fyrir augum að virkjanirnar séu reknar með fullum afköstum. Þegar það svo gerist að 2 vélasamstæður við Laxá eru stöðvaðar, þýðir það einfaldlega að fiskvegurinn verð- ur ófiskgengur og hefur það gerst 2 undanfarin sumur. Það er ýmislegt fleira sem ég hef við þessa frétt að athuga. Ég get sagt það að vísu, að ég úti- loka ekki að það geti verið um sjúkdómshættu að ræða á silungs- stofnunum í Laxá og Mývatni. Hins vegar tel ég hana hverfandi litla af sjógengnum laxi. Einfald- lega vegna þess að sjúkur lax sem gengur til sjávar kemur ekki aftur. Ef um sjúkan lax er að ræða í sjónum, þá kemst hann tæpast upp í Laxá, því áin er ein erfiðasta á sem um getur fyrir lax. Ég tel að meiri hætta stafi af erlendum túristum, sem veiða bæði í Laxá og Mývatni. Það er hugsanlegt að þeir geti borið með sér sjúkdóma með ósótthreinsuð- um veiðarfærum. En ég hef engan heyrt nefna það að eigi að banna þessar veiðar. Þessi frétt minnti mig á það, að á dögum Laxárdeilu voru margir sem hlynntir voru því að byggð yrði 57 metra há stífla og Laxár- dal sökkt undir vatn. Þessir hinir sömu menn ræddu mjög um það að hætta væri því samfara að sleppa laxi upp í efri hluta Laxár og nefndu ýmsa sjúkdóma í því sambandi. Sá grunur læðist að mér að sá, eða þeir, sem á aðal- fundi Veiðifélags Mývatns s.l. sumar beindu því til stjórnar hvort ekki væri rétt að loka fisk- veginum við Brúar, hafi viljað leiða athyglina frá ríkjandi ástandi í Mývatni og orsökum þess. Ég tel það óhjákvæmilegt að for- maður Veiðfélags Mývatns svari eftirfarandi spurningum skýrt og afdráttarlaust. 1. Hvers vegna var ekki haft samband við þá aðila sem laxa- stiginn heyrir undir, það er Land- eigendafélagið, eða Veiðifélag Laxár og Krákár? Síðan var eðli- legt að málið væri sent til stjórnar Rannsóknastöðvarinnar við Mývatn. Ég spyr var það gert? 2. Um álit hvaða manna er rætt, þegar talað er um sýkingar- hættu af samgangi lax og silungs og við hvaða sjúkdóma er átt? Hér vil ég fá nöfn, bæði á mönn- um og sjúkdómum alveg af- dráttarlaust." Arngrímur Geirsson er for- maður Veiðifélags Mývatns. Svar hans er á þessa leið: „Stjórn veiðifélagsins fékk til- lögu þess efnis að athugað skyldi hvort um sýkingarhættu gæti ver- ið að ræða. Jafnframt var tekið fram að leita skyldi álits Náttúru- verndarráðs á málinu. Stjórn veiðifélagsins sendi tillöguna áfram eins og gert var ráð fyrir, til Náttúruverndarráðs í stað þess að senda hana til Rannsókna- stöðvarinnar við Mývatn. Það hefði að ýmsu leyti verið eðlilegt að láta stjórn Veiðifélags Laxár og Krákár vita formlega um þetta. Ég hygg að það sem varð til þess að það var ekki gert, er að einn stjórnarmaður í Veiðifélagi Mývatns er jafnframt stjórnar- maður í Landeigendafélaginu, sem stiginn heyrir undir. Það er því ekki um algert sambandsleysi að ræða þar á millif" Varðandi kröfu um að gefa upp nöfn á mönnum og sjúkdóm- um sem rninnst er á í fyrrgreindri frétt, skal tekið fram að þær upp- lýsingar eru ekki frá Arngrími komnar, heldur eru það upplýs- ingar sem blaðamaður hefur afl- að sér. Telur hann sér ekki skylt að gefa upp nöfn manna í því sambandi. gej- Vinnustígvél St. 40-46. Verð frá kr. 535.- Kvenstígvél St. 36-41. Verð aðeins kr. 295.- Barnastígvél St. 27-31. Verð kr. 295.- Sportskór í miklu úrvali allar stærðir. Verðið alveg frábært. WEyfjörð ® Hjaitayiwgötu 4 simi 22275 Húsvíkingar - Þingeyingar 41585 er símanúmer Ingibjargar Magnúsdóttur blaðamanns Dags. Skrifstofan er að Stóragarði 3. Opið frá kl. 9-11 f.h. Það kemst tilskilaíDegi Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^^ Á að sökkva Laxárdal? MYVflTN ?T? ? ¥ ?? T ? DORGVEIÐIKEPPNI Á ÍS 51L5TAR veiöarfæri fyrir sumariö SPORTVEIÐI- BLAÐIÐ VEIÐIFÉLAG MÝVATNS FLUGLEIDIR Viö bjoöum fjölþætta feröaþjónustu Dorgveiöikeppni fyrir alla fjölskylduna verður haldin á Mývatni laugardaginn 29. mars n.k. Keppnin stendur frá kl. 11.00 til 16.00. Skráningu lýkur kl. 10 sama dag. Margvisleg verölaun. Skráning og allar upplýsingar eru veittar i: Hótel Reynihlið Eldá Ævintýrateröir s. 96-44170 s. 96-44220 s. 91-33050 Feröaskrifstolan Ævintýraferðir og Hótel Reynihlið bjóöa sérstakan páskaafslátl i tilefni keppninnar. KiMMtKH Ánanaustum Stml2SSSS EYFJÖRÐ HEILDVERSLUN FERÐAMÁLAFÉLAG MÝVATNSSVEITAR Venö velkomin ■ Hotel Reynihlið ■'"V'^RnVlHLID

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.