Dagur - 01.04.1986, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 1. apríl 1986
Knattspyrna:
Naumt tap KA
gegn a-liði KR
Á föstudaginn ianga léku síðan
KA og a-lið KR. KR-ingar
sigruðu naumlega með 3 mörk-
um gegn 2.
Fyrrum leikmaður KA
Ásbjörn Björnsson skoraði fyrsta
mark leiksins á 17. mín. með
hörkuskoti af stuttu færi. Stein-
grímur Birgisson jafnaði stuttu
síðar fyrir KA eftir að markvörð-
ur KR hafði misst knöttinn fyrir
fætur Steingríms á mjög klaufa-
legan hátt.
KA-menn náðu svo forystunni
10 mín. síðar er Bjarni Jónsson
skorar mark eftir góðan undir-
búning Porvaldar Örlygssonar. Á
lokamínútu fyrri hálfleiks bjarga
KR-ingar á marklínu skoti frá
Steingrími. Boltinn berst fram
völlinn og Ásbjörn nær að skora
sitt annað mark fyrir KR á síð-
ustu sek. hálfleiksins.
í hálfleik 2:2. En Ásbjörn
Björnsson átti eftir að gera fyrr-
um félögum sínum lífið leitt og
snemma í síðari hálfleik skoraði
Ásbjörn sitt þriðja mark fyrir KR
og reyndist það vera úrslitamark
leiksins.
KA-menn spiluðu vel í fyrri
hálfleik og réðu þá algerlega
gangi leiksins. Leikurinn jafnað-
ist í sfðari hálfleik og áttu KA-
menn allavega skilið jafntefli í
þessum leik.
Steingrímur Birgisson rennir boltanum í tómt mark KR eftir mistök mark-
varðar. Mynd: - KK
Björn Olgcirsson.
Knattspyrna:
Völsungur
sigraði KR
Völsungar komu til Akureyrar
og léku gegn b-Iiði KR á laug-
ardaginn. Var greinilegt að
Völsungar ætluðu að selja sig
dýrt enda fór svo að þeir sigr-
uðu með einu marki gegn
engu.
Völsungar voru mjög frískir í
fyrri hálfleik og spiluðu þeir oft
ágætlega. í hálfleik var þó staðan
jöfn 0:0. í síðari hálfleik náði
hinn eitilharði leikmaður Völs-
ungs Björn Olgeirsson að skora
mark með föstu skoti frá vítateig
og reyndist það verða eina mark
leiksins. Er það altalað nú á
Húsavík að þar með sé marka-
kvóti Björns fylltur en hann hef-
ur yfirleitt náð að skora eitt mark
á hverju tímabili, þó ekki í fyrra.
Knattspyrna:
Öruggur
KA-sigur
gegn KR
KA-menn léku gegn b-liði KR
á skírdag og sigruðu örugglega
2:0.
Hinrik Þórhallsson skoraði
fyrsta mark KA með skalla í fyrri
hálfleik. Helgi Jóhannsson sem
nú hefur gengið til liðs við KA frá
Leiftri skoraði síðara mark KA
með góðu skoti frá vítateig í blá-
hornið.
KA-menn voru betra liðið í
þessum leik, sérstaklega í fyrri
hálfleik og framan af þeim seinni.
Bjarni kominn á
skotskóna á ný
- skoraði 2 mörk fyrir Þór gegn KR *
íUm páskana var eins konar
páskamót í knattspyrnu hér á
Akureyri. Liðin sem léku voru
KA, Þór og KR. Einnig voru
Þór og KR með b-lið. Fyrsti
jeikurinn var á milli Þórs og
KR.
Leikurinn var nokkuð jafn en
var þó ekki mikið fyrir augað.
Þórsarar náðu forystunni á 35.
mín. fvrri hálfleiks. Þar var að
verki Oskar Gunnarsson beint úr
aukaspyrnu. Gunnar Gíslason
jafnaði fyrir KR mínútu síðar eft-
ir hrikaleg varnarmistök Óskars.
í byrjun síðari hálfleiks skor-
aði Bjarni Sveinbjörnsson annað
mark Þórs með glæsilegu skoti af
stuttu færi. Gunnar Gíslason
jafnaði aftur fyrir KR 10 mín.
síðar úr vítaspyrnu eftir að Árni
Stefánsson hafði brotið á honum
inn í teig.
Skömmu síðar komst Bjarni
Sveinbjörnsson einn inn fyrir
vörn KR-inga en gott skot hans
fór í stöngina. Seint í síðari hálf-
leik var Sigurbirni Viðarssyni
vikið af leikvelli eftir gróft brot á
einum KR-inganna. Það var svo
Bjarni sem tryggði Þórsurum
sigur. Hann fékk góða sendingu
inn fyrir vörn KR frá Baldri
Guðnasyni og skoraði með góðu
skoti frá vítateig. Úrslit leiksins
3:2 fyrir Þór.
Knattspyrna:
Þór siaraði KR
öruggíega 2-0
Þór og KR reyndu með sér að
nýju á laugardaginn og enn
voru það Þórsarar sem höfðu
betur þeir sigruðu með tveim-
ur mörkum gegn engu.
Fyrra markið kom eftir góðan
undirbúning Bjarna Sveinbjörns-
sonar og það var Hlynur Birgis-
son sem batt endahnútinn á þá
sókn með marki af stuttu færi.
Hlynur var svo aftur á ferðinni er
hann skoraði mark eftir hrikaleg-
an misskilning á milli markvarðar
KR og varnarmanns. Þeir hlupu
saman og boltinn barst til Hlyns
sem var ekki í vandræðum með
að senda hann í tómt markið.
Hlynur Birgisson.
KR-ingar náðu því ekki að
hefna tapsins frá fimmtudeginum
og fóru heim með tvö töp gegn
Þór og einn sigur gegn KA eins
og fram kemur annars staðar á
síðunni._________________
Knattspyrna:
Þór sigr-
aðiKA
Aðalleikur helgarinnar átti að
vera viðureign Þórs og KA á
páskadag. En það verður að
segjast eins og er að lítill glans
var yfir þeim leik. Það voru
KA-menn sem voru öllu frísk-
ari ef eitthvað var þrátt fyrir
sigur Þórs.
Fyrri hálfleikur var tíðindalaus
og jafnt í hálfleik 0:0. í síðari
hálfleik náði Hlynur Birgisson að
pota marki fyrir Þór og reyndist
það vera úrslitamark leiksins.
Þórsarar fengu víti í lok leiksins
en Haukur Bragason hinn nýi
markvörður KA gerði sér lítið
fyrir og varði máttlaust skot Jón-
asar Róbertssonar án mikillar
fyrirhafnar.
Ólafur Hilmarsson.
Mikill
hiti
- í leik Þórs og KR
B-lið Þórs og KR léku mikinn
hasarlcik á föstudaginn langa
og var lítið gefið eftir í þeim
leik.
Þórsarar léku mun betur í fyrri
hálfleik en það voru KR-ingar
sem skoruðu fyrsta mark leiksins
og var það gegn gengi leiksins.
Hlynur Birgisson jafnaði fyrir
Þór seint í fyrri hálfleik og þannig
var staðan í hálfleik.
Ólafur Hilmarsson náði foryst-
unni fyrir Þór með marki af
stuttu færi eftir hornspyrnu
snemma í síðari hálfleik. Kristján
Kristjánsson innsiglaði svo sigur
Þórs með tveimur mörkum úr
vítum í lok leiksins. Lokatölur
því 4:1 fyrir Þór.
íþrÓttÍL
Knatt-
spymu
úrslit
Úrslit leikja í 1. og 2. deild ensku
knattspyrnunnar á laugardag urAu
þessi:
1. deild:
Birmingham-Man.United 1:1
Chelsea-West Ham 0:4 2
Coventry-Nottm.Forest 0:0 x
Everton-Nesvcastle 1:01
Leicester-Luton . 0:0 x
Man.City-Aston VUIa 2:2 x
Oxford-Q.P.R. 3:3 x
Sheff.Wed.-Liverpool 0:0 x
Tottenham-Arsenal 1:0
Watford-Ipswich 0:0 x
W.B.A.-Southampton 1:0 1
2. deild:
Blackburn-Stoke 0:12
CarlLsle-Sheff.U. 1:0
C.Palace-Brighton 1:0 1
Huddersf.-Middlesbro 0:3
Hull-Bamsley 0:1 2
Millwall-Charlton 2:2
Norwich-Fulham 2:1
Portsmouth-Wimbledon 1:1
Shrewsbury-Grimsby 0:2
Sunderland-Bradford 1:1
Oldham-Leeds 3:1
Úrslit leikja í 1. og 2. dcild ensku
knattspyrnunnar ■ gær, annan
páskadag urðu þessi:
1. deild:
Arsenal-Watford 0:2
Aston Villa-Leicester 1:0
Ipswich-Coventry 1:0
Livcrpool-Man.City 2:0
Man.United-Everton 0:0
Newcastle-Sheff.Wed. 4:1
Nottm.Forcst-Birmingham 3:0
Q.P.R.-Chelsea 6:0
West Ham- Tottenham 2:1
2. deUd:
Barnsley-Huddersf. 1:3
Bradford-Oldham 1:0
Brighton-Portsmouth 2:3
Charlton-Norwich 1:0
Fulham-MUIwall 1:2
Leeds-Blackburn 1:1
Middlesbro-Carlisle 1:3
Sheff.U-Sunderland 1:0
Stoke-Shrewsbury 2:2
1. deild
Liverpool 36
Everton 35
Man.United 35
Chelsea 33
West Ham 31
Arsenal 33
Sheff.Wed 35
Luton 35
Newcastle 34
Nottm.Forest 34
Tottenham 34
Watford 31
Q.P.R. 37
Man.City 36
Southampton 34
Ipswich 34
Leicester 35
Coventry 36
Oxford 34
Aston Villa 35
Birmingham 36
W.B.A. 35
20- 10- 6 73:36 70
21- 7- 7 74:39 70
19- 8- 8 57:28 65
18- 8- 7 49:41 62
18- 6- 7 50:28 60
17- 7- 9 42:35 58
16- 8-11 52:51 56
15-10-10 51:38 55
15- 10- 9 53:49 55
16- 6-12 60:47 54
14- 6-14 45:40 48
13- 7-11 50:45 46
13- 6-18 43:49 45
11-10-15 40:49 43
11- 7-16 40:44 40
10- 6-18 27:45 36
8-11-16 48:62 35
8-10-18 43:61 34
8- 9-17 51:69 33
7- 12-16 38:56 33
8- 5-23 29:57 29
4- 9-22 28:76 21
STAÐAN
2. deild
Norwich 34
Portsmouth 35
Charlton 33
Wimbledon 33
Sheff.U. 35
Brighton 34
C.Palace 34
Hull 34
Oldham 33
Stoke 35
Barnsley 35
Grimsby 34
Millwall 34
Huddersf. 35
Blackburn 36
Bradford 31
Shrewsbury 35
Leeds 35
Sunderland 35
Carlisle 34
Middlesbro 35
Fulham 32
21- 7- 6 70:33 70
20- 6- 9 59:32 66
17- 8- 8 59:37 59
16- 9- 8 44:31 57
15- 8-12 56:52 53
15- 7-12 58:49 52
15- 7-12 42:40 52
13- 10-11 54:48 49
14- 6-13 55:52 49
12-13-10 43:44 49
12-11-12 37:38 47
12- 10-12 50:49 46
13- 6-15 50:51 45
11- 10-15 45:57 43
10- 12-14 43:53 42
12- 5-14 39:47 41
11- 8-16 41:52 41
11- 8-16 45:59 41
9-10-16 36:53 37
10- 6-18 37:60 36
8- 9-18 34:47 33
8- 5-19 32:48 29