Dagur - 29.04.1986, Page 1
69. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 29. apríl 1986
79. tölublað
Filman þín
á skiliö þaö
besta!
FILMUHÚSIÐ
( Hatnarstræti 106 Síml 22771 Pósthólf 198
gæðaframköllun
Filman inn fyrir
kl. 10.45.
Myndirnar tilbúnar
kl. 16.30.
Opið á '
laugardögum
frá kl. 9-12.
Dagur hefur ráðið til starfa tvo
nýja blaðamenn, sem báðir eru
staðsettir á Norðurlandi
vestra. Gestur Kristinsson,
sem verið hefur fréttaritari
blaðsins á Blönduósi og í
Húnaþingi, byrjar í fullu starfi
upp úr næstu mánaðamótum
og Þórhallur Ásmundsson,
fréttaritari á Sauðárkróki,
byrjar í fullu starfi í júní og
mun annast frétta- og efnisöfl-
un á Króknum og í Skagafirði.
Með þessum ráðningum er
fram haldið framkvæmd þeirrar
stefnu Dags að dreifa starfs-
mönnum ritstjórnar um Norður-
land, en í fyrrahaust var fyrsta
skrefið stigið með ráðningu Ingi-
bjargar Magnúsdóttur á Húsa-
vík. Hefur sú ráðning mælst mjög
vel fyrir meðal Húsvíkinga og
Pingeyinga og er það von að-
standenda Dags að sama verði
uppi á teningnum á Norðurlandi
vestra.
Þess má geta að þeir Gestur og
Þórhallur eru eftir því sem best
er vitað fyrstu blaðamennirnir
sem eru í fullu starfi og staðsettir
á Norðurlandi vestra. HS
Raufarhöfn:
Mokveiði
karla
Dæmi eru um að grásleppu-
veiðimenn frá Raufarhöfn séu
komnir með meiri afla nú þeg-
ar en þeir fengu á allri vertíð-
inni sl. ár.
Alls eru það 12-14 bátar sem
stunda grásleppuveiðar frá Rauf-
arhöfn, og eru yfirleitt tveir
menn á hverjum báti. Byrjað var
að leggja netin 10. mars og síðan
þá hefur veiðin verið stöðug og
góð. Menn hafa fengið allt upp
undir 10 tunnur í róðri og er það
gott þegar tekið er tillit til þess að
tunnan af grásleppuhrognum gef-
ur nú 16.500 krónur samkvæmt
þeim upplýsingum sem Dagur
hefur. gk-.
Vörubíll getur verið fyrirtaks leikfang - ef hann er kyrrstæður og ekki í gangi.
Mynd: KGA.
Útvegsmenn á Norðurlandi:
Vilja olíuverðslækkun
- Hugmyndum um að fiskvinnslufyrirtækin fái umráðarétt
yfir aflakvóta harðlega mótmælt
Á fundi Útvegsmannafélags
Norðurlands sem haldinn var á
Akureyri í síðustu viku kom
fram mikil og almenn óánægja
útgerðarmanna með að olíu-
verð hafí ekki lækkað eins og
um var talað er síðasta físk-
verðsákvörðun var tekin.
„Menn voru að ræða það á
þessum fundi að knýja á um að
þessi lækkun náist fram,“ sagði
Sverrir Leósson formaður útvegs-
mannafélags Norðurlands í sam-
tali við Dag. „Við eigum erfitt
með að skilja það að á sama tíma
og olíuverðið hefur farið stig-
lækkandi hefur það ekki skilað
Húsavík:
Verður kosið um
áfengisútsölu?
Fyrir fundi bæjarstjórnar
Húsavíkur sem haldinn verður
í dag liggur fyrir tillaga frá
Gunnari B. Salómonssyni
bæjarfulltrúa um að kjósendur
á Húsavík greiði um það
atkvæði hvort opnuð verði
áfengisútsala í bænum. Tillag-
an er svohljóðandi:
„Bæjarstjórn Húsavíkur sam-
þykkir að samhliða bæjarstjórn-
arkosningunum 31. maí nk. fari
fram kosning um hvort opna
skuli áfengisútsölu á Húsavík."
„Ég hef verið hvattur til að
Ieggja fram þessa tillögu,“ sagði
Gunnar í samtali við Dag. „Það
er langt síðan kosið var um þetta
Fundur með Alexander
í kvöld verður haldinn
almennur stjórnmálafundur að
Hótel KEA á Akureyri. Gest-
ur fundarins verður Alexander
Stefánsson félagsmálaráð-
herra.
Upphaflega stóð til að fá
einnig Halldór Ásgrímsson sjáv-
arútvegsráðherra á fundinn en
það tókst ekki af óviðráðanlegum
orsökum.
Alexander mun m.a. ræða um
nýja húsnæðisfrumvarpið og er
ekki að efa að marga fýsir að
fræðast um það. Fundurinn verð-
ur sem fyrr segir á Hótel KEA í
kvöld og hefst klukkan 20.30.
síðast og það eru bara mannrétt-
indi að fólk fái að segja álit sitt á
málinu. Ég veit að margir sem
eru fylgjandi áfengisútsölu vilja
hafa sérstakar kosningar um
þetta, en ég held að það komi
fram sannari mynd af vilja fólks-
ins ef allir koma á kjörstað en
ekki bara þeir sem ætla að kjósa
með þessu.“
- Nú eru 1688 manns á kjör-
skrá á Húsavík. Við alþingis-
kosningarnar í apríl 1983 var síð-
ast kosið um opnun áfengisútsölu
í bænum. Þá greiddu 1219
atkvæði, nei sögðu 721 en 498
voru því: meðmæltir að áfengisút-
sala væri opnuð í bænum. Árið
1970 var kosið um opnun áfengis-
útsölu á Húsavík, þá voru 127 því
meðmæltir en 753 voru á móti.
IM/Húsavík
sér í lækkuðu verði til okkar. Ég
skal ekki segja til um það hverjir
eru dragbítar á þetta. Það er
alveg útilokað að á sama tíma og
við getum fengið olíulítrann fyr-
ir 5,40 krónur í Bretlandi skulum
við borga 10,70 krónur fyrir hann
hér heirna."
Á fundinum var einnig rætt um
uppstokkun þá sem gerð hefur
verið á sjóðakerfi sjávarútvegsins
og sagði Sverrir að menn hefðu
verið sammála um að þessar
breytingar væru til góða enda
hefðu þessi mál verið orðin allt of
flókin og viðamikil.
Þá urðu snarpar umræður um
ræðu sem Friðrik Pálsson fram-
kvæmdastjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna flutti á fundi í
Reykjavík í síðustu viku þar sem
hann varpaði fram þeirri hug-
mynd að fiskvinnslan fengi alfar-
ið allan aflakvóta og hefði ráð-
stöfunarrétt yfir honum til
útgerðarinnar.
„Allar umræður um þetta mál
urðu á einn veg, menn voru alfar-
ið á móti þessum hugmyndum
svo ekki sé sterkara til orða
tekið,“ sagði Sverrir Leósson.,
„Mönnum finnst það furðulegt
að fiskvinnslan skuli koma fram
með svona hugmynd á þessum
tíma því mörkuð hefur verið fisk-
veiðistefna í landinu fyrir þetta ár
og það næsta. Svona tillögur eru
ekki til neins nema valda leiðinda-
deilum innan sjávarútvegsins,"
sagði Sverrir Leósson. gk-.
Blaðamenn
ráðnir á
Blönduósi
og Sauðár-
króki