Dagur - 13.05.1986, Side 8
8 - DAGUR - 13. maí 1986
Sundnámskeið
fyrir 6 ára börn og eldri hefjast í Sundlaug Akureyrar
27. maí og 18. júní n.k.
Innritun í síma 23260.
Herrafatnaður
Frábær hönnun og frískleiki.
Kíktu á
okkar verð.
Frá grunnskólum Akureyrar
Innritun 6 ára barna (fædd 1980), sem ætlað er
að sækja forskólanám á næsta skólaári fer fram í
skólum bæjarins miðvikudaginn 14. maí nk. kl.
9-12 f.h. og 1-3 e.h. Innrita má með símtali við
viðkomandi skóla.
Oddeyrarskóla ........... í síma 22886
Glerárskóla ............. í síma 22253
Barnaskóla Akureyrar .... ísíma 24172
Lundarskóla ............. í síma 24888
Síðuskóla ............... í síma 22588
Skólastjórarnir.
Nýtt húsnæði
í Miðbænum
Til sölu er um 300 m2 skrifstofu- eða þjónust-
uhúsnæði á einni hæð í 4ra hæða húsi sem
byggja á í Miðbæ Akureyrar. Selst í einum eða
fleiri hlutum.
Nánari upplýsingar veittar á Verkfræðistofu
Norðurlands, Skipagötu 18, sími 24031.
AKUREYRARBÆR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 14. maí 1986 kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Sigurður Jóhannesson og Jón
G. Sólnes, til viðtals í fundarstofu bæjarráðs í
Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarstjóri.
Eigendur JMJ, Guðný Jónsdóttir og Ragnar Sverrisson, eru hér ásamt
starfsmönnum, þeim Sigþóri Bjarnasyni t.v. og Gunnlaugi Sverrissyni t.h.
Herradeild JMJ:
Versluninni
gjörbreytt
Hvammstangi:
„Vertshúsiö"
opnað
1. maí síðastliðinn var opnað
nýtt hótel á Hvammstanga og
hiaut það nafnið Vertshúsið. I
Vertshúsinu eru sex tveggja
manna herbergi með baði auk
þess er reiknað með að hægt
verði að leigja út svefnpoka-
pláss í skólanum, þá er þar
vistlegur matsalur og seinna í
mánuðinum verður tekinn í
notkun fundarsalur.
Á opnunardaginn bauð Verts-
húsið uppá kaffihlaðborð og voru
veitingar seldar á mjög lágu
verði, opið var frá kl: 14.00 til
18.00 og talsvert á annað hundr-
að manns komu á þeim tima til
að njóta veitinga og skoða
staðinn. Um kvöldið var svo
veisla fyrir þá sem að bygging-
unni unnu og eigendur Verts-
hússins en þeir eru Kaupfélag
Vestur-Húnvetninga, Hvamms-
tangahreppur, Þórhallur Jóns-
son, Ólafur H. Stefánsson, Ingv-
ar H. Jakobsson og Ólafur
Jakobsson.
Að sögn Ingvars H. Jakobs-
sonar „Verts“ hefur verið nóg að
gera þesa einu viku sem starfsem-
in hefur verið í gangi og sagði
hann að útlit væri fyrir að svo
myndi verða næstu vikur. Verts-
húsið er opið daglega frá kl: 8.00
til 21.00 og er þá hægt að fá þar
allar almennar veitingar s.s.
morgunverð hádegismat kaffi og
kVpldverð en Ingvar sagði að
opnungrtímanum yrði hugsan-
lega breytt ef þeir fengju vínveit-
ingaleyfi í lok mánaðarins eins
og þeir væru að vona. G.KR.
Hin þekkta fataverslun Herra-
deild JMJ hefur stækkað
athafnasvæði sitt að Gránufé-
lagsgötu 4, Akureyri um
helming. Jafnframt hefur öllu
fyrirkomulagi verið gjörbreytt
og innréttingar endurnýjaðar
að ítrustu kröfum nútíma
verslunarhátta.
Allur undirbúningur og vinna
við þessar umfangsmiklu breyt-
ingar og viðbætur var gerður af
akureyrskum hönnuðum og iðn-
aðarmönnum. Hönnun og skipu-
lagningu annaðist Teiknistofan
Form - Árni Árnason húsgagna-
og innanhúsarkitekt. Allar inn-
réttingar eru smíðaðar hjá Kótó
sf. úr vandaðri eik. Ennfremur
sáu starfsmenn Kótós sf. um upp-
setningu og frágang þeirra. Aðra
trésmíðavinnu önnuðust starfs-
menn trésmiðjunnar Mána sf.
Raflagnateikningar voru gerðar
hjá Raftákn hf. og raflögn annað-
ist Ljósgjafinn hf. Finnur Magn-
ússon glerslípunarmeistari skar
og slípaði spegla, sem prýða
verslunina. Fjöldi annarra akur-
eyrskra iðnaðarmanna kom hér
við sögu.
Herradeild JMJ hefur um
árabil lagt áherslu á að hafa á
boðstólum vandaðan og viður-
kenndan fatnað, sem uppfyllir
kröfur neytenda frá einum tíma
til annars. Viðskiptavinir versl:
unarinnar hafa kunnað að meta
hið fjölbreytta vöruúrval, sem
hún hefur á boðstólum og eru
þær viðamiklu breytingar, sem
gerðar hafa verið á verslunar-
húsnæðinu enn einn liður að
koma til móts við þarfir þeirra.
Markmiðið er að bjóða bestu
vörur við bestu aðstæður sem
þekkjast. Endurskipulagning og
stækun Herradeildar JMJ hefur
nú þegar leitt til enn meira vöru-
úrvals en áður og er þess að
vænta að hinn sístækkandi hópur
viðskiptavina njóti góðs af.
Eigendur verslunarinnar eru
hjónin Guðný Jónsdóttir og
Ragnar Sverrisson. Aðrir starfs-
menn eru: Sigþór Bjarnason,
Elsa Jónsdóttir og Gunnlaugur
Sverrisson. Bergljót Jónasdóttir
sér um allar gluggaútstillingar.
Fjórir listar á
Hvammstanga
Fjórir listar verða í kjöri við
hreppsnefndarkosningar á
Hvammstanga í vor. Fimm
efstu sætin á listunum skipa
eftirtaldir:
G-listi. Listi Alþýðubandalags
og óháðra: 1. Matthías Halldórs-
son, 2. Elísabet Bjarnadóttir, 3.
Flemming Jessen, 4. Kolbrún
Karlsdóttir, 5. Örn Guðjónsson.
H-listi. Listi félagshyggju-
fólks: 1. Hilmar Hjartarson,
2. Eðvald Daníelsson, 3. Svava
Magnúsdóttir, 4. Haukur Friðr-1
iksson, 5. Bára Garðarsdóttir.
L-listi. Listi frjálslyndra og
óháðra: 1. Kristján Björnsson, 2.
Páll Sigurðsson, 3. Egill Gunn-
laugsson, 4. Þorvaldur Böðvars-
son, 5. Jóhanna Ágústsdóttir.
M-listi. Flokkur mannsins: 1.
Ágúst Sigurðsson, 2. Laufey
Jóhannesdóttir, 3. Gústaf Dan-
íelsson, 4. Anna Bragadóttir, 5.
Þuríður Þorleifsdóttir. G.Kr.
Tilboð óskast
í leigu á Hrolleifsdalsá í Skagafirði fyrir tímabilið
1. júlí til 20. sept. sumarið 1986.
Réttur er áskilinn að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Tilboðum sé skilað fyrir 1. júní til Magnúsar Pét-
urssonar, Hrauni, sem gefur nánari upplýsingar í
síma 95-6422.
Sérleyfisleiðir
lausar til umsóknar
Sérleyf isleiðirnar
Reykjavík - Grímsnes - Laugarvatn,
Laugardalur - Geysir - Gullfoss,
Reykjavík - Hveragerði - Selfoss,
Reykjavík - Þorlákshöfn,
eru lausar til umsóknar.
Umsóknir skulu sendar Umferðamáladeild,
Vatnsmýrarvegi 10, Reykjavíkfyrir20. maí 1986.
Umferðamáladeild.
Sumarbúðír ÆSK við Vestmannsvatn
Flokkaskipting
1. fl. 2. júní - 9. júní stelpur/strákar 8-11 ára
2. fl. 9. júní -16. júní stelpur/strákar 7-11 ára
3. fl. 19. júní - 26. júní stelpur/strákar 8-11 ára
4. fl. 26. júní - 3. júlí stelpur 7-11 ára
5. fl. 7. júlí -14. júlí stelpur/strákar 12-14 ára
6. fl. 16. júlí - 26. júlí aldraðir, Keflavík (upppantað)
7. fl. 26. júlí - 2. ágúst blindir og aldraðir
8. fl. 5. ágúst-12. ágúst orlofskonur
9. fl. 12. ágúst- 20. ágúst aldraðir Selfossi (upppantað)
10. fl. 20. ágúst- 27. ágúst orlofskonur
Innritun í síma 41668 frá kl. 17-20 alla virka daga.