Dagur - 13.05.1986, Side 9
13. maí 1986 - DAGUR - 9
íþróttic
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Öiyggisgæsla
í Belgíu
Eins og flestum er kunnugt
um þá fer íslenska landsliðið
í körfuknattleik út til Belgíu
þann 15. maí nk. til þátttöku
í B-keppni Evrópukeppn-
innar.
Par kemur íslenska landslið-
ið m.a. til með að spila gegn
landsliði ísraels. Þar sem mik-
ið hefur verið um hryðjuverk
að undanförnu þá hefur KKÍ
kannað sérstaklega öryggis-
gæslu í Belgíu. Þegar KKÍ
hafði samband við belgíska
körfuknattleikssambandið þá
var okkur tjáð að öryggisgæsla
yrði mjög öflug. Belgar eru
minnugir harmleiksins á Basel
leikvanginum og hafa því gert
allar mögulegar ráðstafanir til
þess að tryggja það að ekkert
hendi keppendur á meðan
keppni stendur yfir.
Hópurinn sem hefur tekið þátt í undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir b-kcppnina í Belgíu.
Körfubolti:
Mynd: AE
Eftiiiitsdómara-
námskeið
Evrópumeistara-
mót landsliða
íslenska landsliðið í körfu-
knattleik tekur þátt í B-keppni
Evrópumeistaramótsins, sem
fram fer í Liege í Belgíu dag-
ana 16. til 20. maí. I B-keppn-
inni taka þátt, auk Islendinga,
lið frá Ungverjalandi, ísrael,
Póllandi, Svíþjóð og Tyrk-
landi. Þau lið sem skipa fjögur
efstu sætin munu síðan, ásamt
fjórum efstu liðum A-keppn-
innar, taka þátt í undanúrslita-
keppninni sem fram fer í Ant-
werpen og hefst 22. maí.
íslenska liðið á vissulega góða
möguleika í þessari keppni, og
má t.d. geta þess að í fyrra töp-
uðu íslendingar naumlegá fyrir
liðum Tyrklands og Ungverja-
lands. Síðar sigraði íslenska liðið
Norðmenn, en þá hafði norska
liðið nýlega unnið bæði Ungverja
og Pólverja með talsverðum
mun.
Það getur því allt gerst á þessu
móti í Liege, og er körfuknatt-
leiksáhugafólki boðið að koma
með til Belgíu og fylgjast með og
hvetja íslenska liðið. Ferðin kost-
ar aðeins kr. 16.688 á mann, mið-
að við að gist sé í tveggja manna
herbergi. Aukagjald fyrir eins
manns herbergi er kr. 6.140.
Innifalið í þessu verði er flug,
gisting, morgunmatur, ferðir
fram og til baka frá Luxemburg
til Liege og ferðir frá hóteli á
leikina. Flugvallarskattur er ekki
innifalinn í þessu verði.
Ferðin hefst 15. maí. Flogið
verður til Luxemborgar, þaðan
farið með rútu til Liege. í Liege
verður gist á Holiday Inn hótel-
inu. Heimflug verður síðan frá
Luxemburg 21. maí. Gunnar
Gunnarsson, fyrrverandi lands-
liðsmaður, verður fararstjóri í
ferðinni. Aðgöngumiðar á leik-
ina fást við inngang íþróttahallar-
innar í Liege og kosta kr. 200
hver miði. Þeir sem hafa áhuga á
að fylgja íslenska liðinu til Belgíu
og hvetja það til dáða skulu hafa
samband við söluskrifstofur Flug-
leiða sem fyrst, því aðeins er tak-
markaður sætafjöldi í boði.
Um helgina var haldið hér á
Akureyri eftirlitsdómaranám-
skeið fyrir þá knattspyrnudóm-
ara á Noröurlandi sem koma
til með að sjá um eftirlitsdóm-
gæslu á leikjum sumarsins.
Það vita það e.t.v. ekki allir að
á öllum leikjum 1. og 2. deildar
eru eftirlitsdómarar meðal áhorf-
enda og hafa það hlutverk að
dæma dómarann, þ.e. gefa hon-
um einkunn fyrir hina ýmsu þætti
dómgæslunnar s.s. undirbúning
leiks, samstarf við línuverði o.fl.
í sumar er ætlunin að efla eftir-
litsdómarakerfið stórlega og
stuðla að því að eftirlitsdómarar
verði á eins mörgum leikjum og
mögulegt er, ekki bara í I. og 2.
deild. Jafnframt á að samræma
störf eftirlitsdómaranna.
Tveir menn komu að sunnan,
þeir Magnús Gíslason úr hæfnis-
nefnd KDSÍ og Halldór Gunn-
laugsson frá fræðslunefnd. Þeir
félagar héldu fyrirlestra um það
hvernig eigi að meta störf dóm-
ara á velli. Þá var þátttakendum
kynnt hvaða atriði það væru sem
dómurum væri uppálagt að gera í
sumar. Er það gert til að sam-
ræma störf beggja aðila.
Á námskeiðið mættu dómarar
frá Húsavík, Grenivík, Dalvík og
frá Akureyri. Einnig var von á
dómurum frá Siglufirði og Ólafs-
firði en þeir komust ekki og þurfa
þeir að fara á svona námskeið
áður en þeir geta hafið störf sem
eftirlitsdómarar.
Vormót sundfélagsins Óðins:
lllugi og Bima unnu
flestar greinar
Eyjafjörður:
Knattspymudómarar
stofna félag
Stofnfundur Knattspyrnudóm-
arafélags Eyjafjarðar (utan
Akureyrar), KDE, verður
haldinn í húsakynnum UMSE
að Óseyri 2 Akureyri n.k. mið-
vikudagskvöld klukkan 20.30.
Markmiðið með stofnun þessa
félags er að dómarar á Eyjafjarð-
arsvæðinu myndi með sér öflugan
félagsskap sem vinni að fram-
gangi ýmissa hagsmunamála
knattspyrnudómara. í dag er ein-
ungis eitt dómarafélag á Eyja-
fjarðarsvæðinu, Knattspyrnu-
dómarafélag Akureyrar, og eins
og nafnið bendir til eru meðlimir
KDA þeir dómarar sem dæma
fyrir Akureyrarfélögin KA, Þór
og Vask. Dómarar utan Akur-
eyrar telja mjög brýnt að koma á
fót virkum félagsskap til að vinna
að ýmsum hagsmunamálum
dómara, s.s. búninga- og fræðslu-
málum.
Sem fyrr segir verður fundur-
inn haldinn á miðvikudagskvöld
klukkan 20.30. Gestur fundarins
verður Ingi Jónsson formaður
Knattspyrnudómarasambands
íslands. Allir knattspyrnudómar-
ar á Eyjafjarðarsvæðinu eru hvatt-
ir til að mæta.
Vormót sundfélagsins Óðins
var haldið fyrir skömmu.
Keppt var í tveimur flokkum
stúlkna og drengja og voru
keppendur um 60 talsins.
Nokkur fjöldi keppenda kom
frá stöðum hér í kring, frá
Húsavík, Mývatnssveit, Sauð-
árkróki og Hvammstanga.
Úrslit í einstökum flokkum og
greinum urðu þessi:
100 m bringusund drengja:
1. Sölvi M. Sveinsson HSÞ, 1.23,4
2. Þorvaldur Hermannss. Kormákur, 1.23,9
3. Otto K. Tuliníus Ó, 1.26,0
100 m bringusund telpna:
1. Birna Björnsdóttir Ó, 1.26,2
2. Elsa Guðmundsdóttir Ó, 1.28,2
3. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ, 1.31,3
50 m bringusund sveina:
1. Illugi F. Birkisson HSÞ, 42,7
2. Kristján Gestsson Ó, 47,4
3. Kristján Sævarsson HSÞ, 48,3
50 m bringusund meyja:
1. Heba Guðmundsdcitir UMSS, 41,9
2. Ingibjörg Gunnarsdóttir HSÞ, 42,7
3. Fjóla M. Ágústsdóttir HSÞ, 44,9
200 m fjórsund telpna:
1. Birna Björnsdóttir Ó, 2.52,2
2. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ, 2.55,0
3. Unnur Hallgrímsdóttir UMSS, 3.01,9
200 m fjórsund drengja:
1. OttoK. TuiiníusÓ, 2.50,7
2. Þorvaldur Hermannss. Kormákur, 2.50,9
3. Hilmar Ágústsson HSÞ, 2.53,7
50 m skriðsund meyja:
1. Elísabet Sigurðardóttir UMSS, 35,9
2. Heba Guðmundsdóttir UMSS, 36,5
3. lngibjörg Gunnarsdóttir HSÞ, 37,6
100 m skriðsund telpna:
1. Birna Björnsdóttir Ó, 1.07,9
2. Þórhaila Gunnarsdóttir HSÞ, 1.09,2
3. Elsa Guðmundsdóttir Ó, 1.13,5
50 m skriðsund sveina:
1. Illugi F. Birkisson HSÞ, 33,5
2. Hlynur Tuiiníus Ó, 36,7
3. Gísli Pálsson Ó, 37,2
100 m skriðsund drengja:
1. Þorvaldur Hermannss. Kormákur, 1.05,5
2. Kristján Magnússon Ó, 1.07,0
3. Otto K. Tuliníus.Ó, 1.07,4
50 m flugsund meyja:
1. Elísabet Sigurðardóttir UMSS, 43,9
2. Heba Guðmundsdóttir UMSS, 46,5
3. Gunnur B. Hlöðversdóttir UMSS, 46,5
100 m flugsund telpna:
1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ, 1.26,1
2. Birna Björnsdóttir Ó, 1.26,4
3. Unnur Hallgrímsdóttir UMSS, 1.31,1
50 m flugsund sveina:
1. Illugi F. Birkisson HSÞ, 40,8
2. Ómar Árnason Ó, 47,3
3. Kristján Gestsson Ó, 51,5
100 m flugsund drengja:
1. Hilmar Ágústsson HSÞ, 1.20,9
2. Gunnar Ellcrts Ó, 1.31,0
3. Kristján Magnússon Ó, 1.31,6
50 m baksund meyja:
1. Ingibjörg Gunnarsdótt'ir HSÞ, 42,9
2. Elísabet Sigurðardóttir UMSS, 44,6
3. Heba Guðmundsdóttir UMSS, 45,6
50 m baksund sveina:
1. IllugiF. Birkisson HSÞ, 39,5
2. Hlynur Tuliníus Ó, 47,2
3. Ómar Árnason Ó, 47,4
100 m baksund telpna:
1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ, 1.19,5
2. Birna Björnsdóttir Ó, 1.19,9
3. Erla Gunnarsdóttir HSÞ, 1.28,9
100 m baksund drengja:
1. Þorvaldur Hermannss. Kormákur, 1.21,7
2. Hilmar Ágústsson HSÞ, 1.26,5
3. Otto K. Tuliníus Ó, 1.27,6
Það skal tekið fram að Unnur
Hallgrímsdóttir UMSS er gestur
á mótinu og reiknast hennar
árangur ekki til stiga.