Dagur - 13.06.1986, Page 4

Dagur - 13.06.1986, Page 4
4 - DAGUR - 13. júní 1986 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI 24222 ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI ■ LAUSASÖLUVERÐ 40 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi sími 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (HÚSAVlK), KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÓGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. UeiðarL Kaldar kveðjur Alþýðubandalags Það hefur lengi tíðkast ' að senda fyrirtækjum og einstakl- ingum árnaðaróskir og sýna þeim einhvern sæmdarvott þegar merkum áfanga er náð. Kaupfélag Eyfirðinga á aldar- afmæli þann 19. júní n.k. Á þeim hundrað árum sem liðin eru frá stofnun kaupfélagsins hefur það átt stærri hlut í að byggja upp atvinnu og efla atvinnuöryggi á Eyjafjarðar- svæðinu en nokkurt fyrirtæki annað. Kaupfélag Eyfirðinga var stofnað af hugsjón og hefur ávallt verið rekið í þeim anda. Þar er félagshyggjan sett ofar auðhyggju. Kaupfélagið fær kaldar kveðj- ur frá Alþýðubandalaginu á afmælisárinu. í Þjóðviljanum á- miðvikudaginn er viðtal við Svan- fríði Jónasdóttur, efsta mann Alþýðubandalagsins á Dalvík. Þar heldur hún því fram að aðalkosningamálið í nýafstöðn- um sveitarstjórnakosningum hafi verið tengslin milli Fram- sóknarflokksins og Kaupfélags Eyfirðinga og eitt af því sem nýi meirihlutinn í bæjarstjórn Dalvíkur þurfi að fást við sé að endurskoða samstarf bæjarins og KEA. Valur Arnþórsson kaupfé- lagsstjóri svaraði þessum ummælum Svanfríðar í Degi í gær. Þar bendir hann á að engin tengsl séu á milli Framsóknarflokksins á Dalvík og kaupfélagsins önnur en hugsjónatengsl en ganga megi út frá því að hugsjónatengsl séu milli samvinnumanna og félagshyggjufólks í ýmsum pólitískum flokkum. Hins vegar hafi framsóknarmenn verið lang einarðastir í stuðningi sín- um við kaupfélögin, ekki bara á Dalvík heldur um land allt. Val- ur segir ennfremur: „Það er furðulegt að kommar á Dalvík séu að mynda meiri- hluta gegn atvinnuuppbygg- ingu og atvinnuöryggi fólksins. Samvinnufélag fólksins í Eyja- firði, Kaupfélag Eyfirðinga, hef- ur átt afar góða samleið með Dalvíkingum um áratugaskeið. Samvinnufélagið hefur byggt upp hlutfallslega einna mest á Dalvík af öllum þeim stöðum þar sem félagið er með starf- semi sína. Það er alltaf litið á Dalvík sem eina af höfuðstöðv- um samvinnustarfsins. At- vinnureksturinn hefur gengið vel og fólk búið þar við atvinnu- öryggi á sama tíma og ýmislegt hefur bjátað á víðs vegar um landið." Kaupfélag Eyfirðinga hefur í marga áratugi starfað með Dal- víkurbæ í Útgerðarfélagi Dal- víkinga og þess er skemmst að minnast að á síðasta kjörtíma- bili tók kaupfélagið að sér í samvinnu við Dalvíkurbæ að rétta hag Söltunarfélags Dal- víkur sem var um það bil að sigla í strand. Ef það fyrirtæki hefði lagt upp laupana hefði það haft mjög alvarlegar afleiðingar 1 för með sér fyrir Dalvíkinga. Þessar kveðjur sem KEA fær nú frá Alþýðu- bandalaginu eru ekki bara kaldar, heldur mjög svo óverð- skuldaðar. Á íslandi er ekki til nema einn raunverulegur félags- hyggjuflokkur en það er Fram- sóknarflokkurinn. Alþýðu- bandalagið reyndi að höfða til félagshyggjufólks fyrir nýaf- staðnar sveitarstjórnakosning- ar með því að kenna sig við fé- ^lagshyggju. Flokksforystunni hefur ef til vill fundist sem farið væri að slá í slagorðin um sósíalisma og viljað fara inn á nýjar brautir. Árásir forystu- manns Alþýðubandalagsins á Dalvík á Kaupfélag Eyfirðinga og samvinnuhreyfinguna sýna hug flokksins til samvinnu- stefnunnar. Ummælin sýna svo ekki verður um villst að allt tal um félagshyggju í þeim flokki eru orðin tóm. Verkin sýna merkin. BB. , ^Myndlistarskúffan er opnuð á uokkurra ára frestí“ - þrír myndlistarmenn segja álit sitt á myndlistarsýningunni sem opnuð verður í kvöld í kvöld verður opnuð í íþrótta- skemmunni á Akureyri mynd- listarsýning á verkum í eigu Akureyrarbæjar og einstakl- inga svo og myndum starfandi listamanna á Akureyri. Sýning þessi er á vegum menntamála- ráðuneytisins og Akureyrar- bæjar. Þótt auglýst sé að þarna verði sýndar myndir starfandi listamanna á Akureyri taka ekki allir myndlistarmenn á Akureyri þátt í sýningunni og telja sumir sig hafa til þess góðar og gildar ástæður og hafa ýmislegt við framkvæmd sýningarinnar að athuga. I hópi óánægðra eru m.a. Oli G. Jóhannsson, Ragnar Lár og Örn Ingi. Blaðamaður Dags átti við þá spjall um þessa sýn- ingu, stöðu myndlistar á Akur- eyri o.fl. fyrir skömmu og fer það hér á eftir. Ragnar Lár: „Það var skipuð nefnd til að undirbúa þessa sýn- ingu sem opnuð verður í íþrótta- skemmunni í kvöld. Mennta- málaráðuneytið skipaði einn mann í nefndina, Akureyrarbær einn og Menningarsamtök Norð- lendinga einn. Þessari nefnd var svo falið að velja úr hverjir væru myndlistarmenn og hverjir ekki. Hún valdi 16 aðila og bauð þeim að sýna. Við höfum ýmislegt við þetta val að athuga. Til dæmis var a.m.k. einum manni ekki skrifað sem þó gerir ekkert ann- að en að starfa að myndlist og hefur numið myndlist bæði hér á landi og erlendis. Það er Gunnar Dúi Júlíusson." Óli G: „Ég frétti af því að þessi sýning væri í undirbúningi og ég sagði nefndarmönnum að þeir þyrftu ekki að senda mér bréf því ég kæmi aldrei til með að sýna á þessum forsendum. Ég hef meira en 20 ára reynsiu í myndlist að baki og það er mín skoðun að það þýði ekki af hálfu bæjaryfir- valda að draga menn upp úr skúffu á 4 ára fresti og segja: „Nú skulum við hafa gaman og skemmta okkur og sýna hvað er gert í myndlist hér í bænum." Þess á milli er ekkert gert fyrir mynd- listarmenn á Akureyri. Myndlist- arskúffan er opnuð á nokkurra ára fresti. Ég er engin mella í myndlist sem hægt er að gamna sér við þegar yfirvöldum þóknast.“ Ragnar Lár: „Bréfið er dagsett 27. maí s.l. og menn fengu bréfið almennt síðdegis 28. maí. Svar um það hvort menn hygðust taka þátt í sýningunni átti síðan að berast eigi síðar en 30. maí! Verkunum átti síðan að skila 7 dögum síðar. Það er dónaskapur að bjóða upp á þennan frest.“ Örn Ingi: „Þetta er hrein „lax- erolíuframkvæmd“ og menn fengu engan undirbúningstíma.“ Óli G: „Málið er það að vinni maður heiðarlega í myndlist þá þarf maður miklu lengri tíma til að undirbúa sitt framlag til svona sýningar. Maður vill tjalda því sem maður telur best og það þarf alls ekki að vera það sem maður hefur á trönunum hverju sinni. Maður vill ef til vill fá lánuð verk hjá einstaklingum eða undirbúa sig á annan hátt og því er lág- mark að gefa 2ja-3ja mánaða aðlögunartíma." Örn Ingi: „Þarna er tækifæri stóru verkanna, sem við fáum yfirleitt aldrei. Ég hefði gjarnan viljað vinna stórt verk sérstak- lega fyrir þessa sýningu. Það geri ég ekki á 7 dögum. Ef þetta á að vera kynning á starfi norðlenskra myndlistarmanna, þá er hún dæmd til að mistakast vegna þess að engir ferðamenn eru komnir til bæjarins á þessum tíma. En það er ekki hægt að hnika þessu til þar sem hátíðin verður að enda á stúdentasöng!" Óli G: „Aðstandendum sýn- ingarinnar er vel kunnugt um það að margir starfandi myndlistar- menn í bænum taka ekki þátt í þessari sýningu en samt er boðs- kortið kórónað með því að segja að sýningin sé á „myndum starf- andi listamanna á Akureyri“. Mynd: KGA Þetta er ekki rétt því margir sem vinna í myndlist og gera ekkert annað eru ekki með, ýmist vegna óánægju með undirbúninginn ellegar vegna þess að þeim var ekki gefinn kostur á því.“ Örn Ingi: „Það er hugsanlegt að ég taki þátt í þessari sýningu með táknrænt verk í tengslum við framkvæmd sýningarinnar, ef ég fæ það tekið inn.“ Óli G: „Það er engin aðstaða fyrir myndlistarmenn hér á Akur- eyri. Við vorum róaðir með því fyrir nokkrum árum að verið væri að teikna menningarmiðstöð fyr- ir Akureyri og þar fengjum við sérstaka sýningaraðstöðu. Þetta hús er risið og er ég þar að tala um íþróttahöllina, en þar er eng- in aðstaða fyrir okkur.“ Ragnar Lár: „Það var fengin sérstök fjárveiting fyrir íþrótta- höllina vegna þess að þar átti að vera sýningaraðstaða fyrir mynd- listarmenn í kjallaranum. Síðan var bara ýmsum íþróttafélögum úthlutað okkar húsnæði.“ Óli G: „En þegar menn svo hugsa sér til hreyfings er ekkert til sparað. Heil íþróttaskemma er innréttuð sérstaklega og mörgum hundruðum þúsunda hent í eina sýningu. Væri ekki nær að setjast niður og huga að því í hvað pen- ingarnir fara? Þessa peninga ætti að nota til að skapa myndlistar- gyðjunni verðugan sess í menn- ingarlífi bæjarins.“ Örn Ingi: „Það væri hægt að leigja góðan sal í heilt ár fyrir þessa peninga." Ragnar Lár: „Það mætti t.d. nota Iþróttaskemmuna fyrir tón- leika og myndlistarsýningar allt heila sumarið. Málið er bara það að Akureyrarbær hefur enga stefnu í myndlistarmálum. Stefn- an er stefnuleysi.“ Örn Ingi: „Ég tala fyrir hönd að Akureyrarbær búi þannig að myndlistarmönnum að það sé bænum til sóma en ekki til háð- ungar." Örn Ingi: „Ég tala fyrir hönd okkar allra þegar ég segi að við gleðjumst yfir því að hafa fengið tækifæri til að ræða þessi mál í tengslum við þessa annars ágætu M-hátíð. Við vonum að þessi myndlistarsýning og það sem við höfum sagt hér að framan verði til þess að opna umræðuna og fá fólk til að hugsa um stöðu mynd- listarinnar og aðstöðu starfandi myndlistarmanna á Akureyri." BB.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.