Dagur - 15.07.1986, Side 10
10 - DAGUR - 15. júlí 1986
Þrítugur maður óskar eftir
vinnu strax. Er vanur sjó-
mennsku og annarri erfiðisvinnu.
Allt kemur til greina. Til sölu á
sama stað tæplega 2ja tonna trilla
og myndsegulband. Uppl. í síma
26683 á milli kl. 18 og 20.
Vantar afgreiðslustulku frá kl.
1-6. Þarf að byrja í ágúst.
Bókabúðin Huld.
Ekki svarað í síma.
Kaup___________________
Óska eftir að kaupa súg-
þurrkunarmótor, 1 fasa, 10 hö.
Uppl. í síma 26838.
Óska eftir að kaupa gamalt mót-
orhjól. Má vera bilað. Uppl. I síma
22813.
Vantar til kaups Austin Mini. Má
vera ógangfær. Uppl. í síma
24307.
VaraMutir
Til sölu varahlutir í Saab 99, árg.
‘73. Uppl. í síma 43564 á kvöldin.
Ómar.
Úrval varahluta í Range Rover
og Subaru ‘83. Uppl. í síma 96-
23141 og 96-26512.
Ferðaþjónusta bænda Blá-
hvammi, Reykjahverfi, S.-Þing.
býður ykkur velkomin til dvalar,
sumar, vetur, vor og haust. Frá
okkur er tilvalið að aka á fegurstu
staði í Þingeyjarsýslum. Einka-
sundlaug á staðnum. Nánari uppl.
í síma 96-43901.
Ungur og reglusamur maður
óskar eftir 2ja herb. íbúð eða her-
bergi með eldunaraðstöðu og baði
sem fyrst. Uppl. í síma 26060 á
kvöldin og 26024 á daginn.
Ungt par í Hrísey óskar eftir 2-
3ja herb. íbúð á Akureyri næsta
vetur. Getum tekið hana strax eða
frá og með 1. ágúst. Góðri
umgengni og skilvísum greiðslum
heitið. Fyrirframgreiðsla ef óskað
er. Uppl. í síma 96-61744 eftir kl.
20. (Bjarni).
Vil taka sumarbústað á leigu í
eina viku. Uppl. í síma 24881.
Hfjóðfæri
Til sölu lítið rafmagnsorgel.
Yamaha. Uppl. í síma 21277 í
hádeginu.
Fender gítarar.
Stratocaster og Telecaster.
Verð kr. 41.000 með tösku.
Tónabúðin, sími 22111.
Tölvur -
Til sölu er ársgömul Commo-
dore 64 heimilistölva ásamt lita-
skjá og diskadrifi. Með henni fylgir
mjög mikið úrval forrita, s.s.
íslensk ritvinnsla (ritvísir 64),
mörg smærri ritvinnsluforrit, fjár-
hagsbókhald, heimilisbókhald,
gagnagrunnar, töflureiknir, get-
raunaforrit (enska knattspyrnan),
leikir og nýtiforrit ýmiss konar.
Einnig bækur og blöð. Uppl. gefur
Magnús í síma 23351 eftir kl. 19.
Blý_____________________
Kaupi blý.
Upplýsingar í símum 96-23141 og
96-26512.
mFmmsAœiT
Árveig Aradóttir, Valgerður Guð-
björnsdóttir og Aldís Einarsdóttir
gáfu Dvalaheimilinu Hlíð ágóða
hlutaveltu af kr. 510.-
Með þökkum móttekið.
Forstöðumaður.
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
hefur borist höfðingleg peninga-
gjöf, kr. 458.000,- frá systkinum
og systkinabörnum Snæbjörns
Árnasonar frá Hrísey. Gjöfin er til
minningar um Snæbjörn, sem lést
23. nóventber 1985. Gefendum
cru færðar alúðarþakkir fyrir sýnd-
an hlýhug í garð sjúkrahússins.
Fyrir hönd Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri.
Vignir Sveinsson, skrifstofustjóri.
Hörgá frá hafi til fjalis.
Hið íslenska náttúrufræðifélag
efnir til almennrar náttúruskoðun-
arferðar um Hörgárdal, sunnudag-
inn 20. júlí undir leiðsögn náttúru-
fræðinga. Farið verður frá Nátt-
úrugripasafninu kl. 10.00 og kom-
ið aftur síðdegis. Þátttaka tilkynn-
ist þangað í síma 22983 í síðasta
lagi föstudaginn 18. júlí. Kostnað-
ur verður fyrir bílfarinu. Allir
velkomnir ungir sem aldnir. Hafið
nesti með.
Náttúrufræðifélagið.
ATHUGIB
Minningarspjöld N.L.F.A. fást í
Amaro, Blómabúðinni Akri,
Kaupangi og Tónabúðinni Sunnu-
hlíð.
SIGTRYGGUR JÓN HELGASON
gullsmíðameistari
sem lést 9. júlí sl. verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mið-
vikudaginn 16. júlí kl. 13.30.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Sigríður Helgadóttir,
Aðalsteinn Helgason.
Passa-
myndir
Gott úrval
mynda-
ramma
nonðun
mynd
LJÓSMYNDASTOFA
Slmi 96-22807 • Pósthólf 464
Glerárgötu 20 602 Akureyri
Sími 25566
Opið alia virka daga
kl. 14.00-19.00.
Munkaþverárstræti:
5 herb. hæð og kjallari. Góð
eign á góðum stað. laus 1.
sept.
Akurgerði:
Sex herb. raðhús á tveimur
hæðum 149 fm.
Tveggja herb. íbúðir:
Við Tjarnarlund, Skarðshlíð,
Hrísalund, Keilusiðu og
Hjallalund.
Fjögurra herb. íbúðir:
Við Smárahlíð og Skarðshlíð.
Þriggja herb. íbúðir:
Við Hrísalund, Skarðshlið (á
jarðhæð) og Smárahlíð.
Bakkahlíð:
Fimm herb. einbýlishús ca.
140 fm. Ástand mjög gott.
Húsið er ekki fullgert að
utan. Hálfbyggður tvöfaldur
bílskúr. Til greina kemur að
taka minni eign f skiptum
t.d. 3-4 herb. raðhús.
_______________________
Grundargerði:
Raðhús á tveimur hæðum ca.
120 fm.
Einbýlishús:
Við Eyrarlandsveg, i Gerða-
hverfi II, við Lerkilund, f Síðu-
hverfi, parhús við Grenilund,
við Fjólugötu, við Norðurgötu
(laust strax).
Atvinna:
Heildverslun i eigin hús-
næði með góð verslunar-
sambönd. Hentugt fyrir dug-
legan einstakling eða sam-
henta aðila. Fyrirtækið er í
fullum rekstri. Ekki þörf á
mikilli útborgun.
Atvinna:
Lítið atvinnufyrirtæki með
mikla möguleika. Hentugt fyrir
einstakling eða hjón.
Okkur vantar sérstaklega
raðhús og hæðir á skrá
svo og allar aðrar gerðir
eigna.
FASTllGNA&fJ
skipasalaZS&Z
NORÐURLANDS O
Amaro-húsinu 2. hæð.
Sími 25566
Bánediki Oiafsson hdl
Sölustjóri, Pétur Josefsson, er á
skrifstolunni virka daga kl. 14-19.
Heimasími hans er 24485.
Hvenær
byrjaðir þú
-llXra
RDAfl
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, hefur fallist á að gerast verndari
Krabbameinsfélags íslands. Jafnframt hefur hún verið kjörin, fyrst allra, í
heiðursráð Krabbameinsfélagsins. Gunnlaugur Snædal formaður Krabba-
meinsfélagsins afhenti Vigdísi skjal, þessu til staðfestingar, á 35 ára afmæli
félagsins, 27. júní s.l. Fyrir miðri mynd er Almar Grímsson sem á sæti í
stjórn Krabbameinsfélagsins.
Rannsóknir, sjúk-
dómsleit og að-
stoð við sjúklinga
Á fundi framkvæmdastjórnar
Krabbameinsfélags íslands á 35
afmæli félagsins, 27. júní, var
samþykkt í meginatriðum ráð-
stöfum þeirra 27 milljóna
króna sem söfnuðust í aprfl á
vegum „Þjóðarátaks gegn
krabbameini“.
í ályktun stjórnarinnar segir að
Krabbameinsfélag íslands vilji af
alhug þakka íslensku þjóðinni
stuðning hennar frá upphafi. Sér-
staklega vill félagið koma á fram-
færi þakklæti fyrir þá rausn sem
þjóðin sýndi við söfnunina í vor,
og þakkað er fórnfúst starf
félagasamtaka og einstaklinga
sem framkvæmd átaksins hvíldi á.
Nú hafa skapast möguleikar til
eflingar á þremur megin þáttum,
sem félagið mun vinna að næstu
fimm árin, en það eru krabba-
meinsrannsóknir, krabbameins-
leit, og aðstoð við krabbameins-
sjúklinga og aðstandendur þeirra.
Komið verður upp aðstöðu til
grunnrannsókna til að afla nýrrar
þekkingar á orsökum og eðli
krabbameina. Á jarðhæð í húsi
Krabbameinsfélagsins verður
innréttuð rannsóknastofa og hún
búin tækjum til söfnunar og
geymslu á lífrænum efnivið og til
rannsókna í frumulíffræði. Á 35
ára starfsferli sínum hefur
Krabbameinsfélagið safnað
mikilvægum upplýsingum sem
leggja munu grunninn að skipu-
lagningu þessarar vísindavinnu.
Krabbameinsfélagið hefur í
rúma tvo áratugi haft forgöngu
um leit að krabbameini og forstig-
um þess. Árangur þessa starfs er
mikill og hefur hann þegar skipað
Islendingum meðal fremstu þjóða
heims á þessu sviði. Aukin þekk-
ing og framfarir þýða það að áður
óþekktar forsendur skapast til
leitar að krabbameini í fleiri líf-
færum en áður. Miklar framfarir á
sviði krabbameinslækninga hafa
orðið nú síðustu ár og í dag lækn-
ast fjórir af hverjum tíu sem sjúk-
dóminn fá.
Fjöldi krabbameina sem greind
eru árlega hér á landi hefur tvö-
faldast sl. 30 ár. Ef þessi þróun
heldur áfram ættu um 1200 manns
að greinast með krabbamein árið
2000. Einnig er talið að um næstu
aldamót verði hlutfallslega um
helmingi fleiri krabbameinssjúkl-
ingar á lífi en í dag. Jafnframt því
sem takmarkið er að fækka
dauðsföllum af völdum krabba-
meins mun Krabbameinsfélagið
vinna að því að bæta hag þeirra
sem ekki verða læknaðir og veita
þeim stuðning. Félagið undirbýr
nú upplýsingaþjónustu fyrir
almenning um krabbamein,
aukna aðstoð við fyrrverandi
krabbameinssjúklinga og aðstoð
við sjúklinga í heimahúsum, í
samvinnu við sveitarfélög og heil-
brigðisyfirvöld.
Akureyri:
Félagsstarf
eldri borgara
Hús aldraðra á Akureyri hefur
verið lokað frá því um miðjan
júní vegna viðgerða svo og
sumarleyfa starfsfólks. Eldri
borgarar Akureyrar hafa því
engan samastað til samkomu-
halda í augnablikinu.
Þeir hafa því gripið til þess
ráðs að hittast endrum og eins á
einhverjum völdum stað og halda
síðan í skoðunarferðir ellegar
tylla sér inn á eitthvert kaffihúsið
og spjalla saman um lífið og til-
veruna.
Á morgun, miðvikudag, er ætl-
unin að hittast klukkan 16 á horni
Hafnarstrætis (við Kaupfélags-
húsið) og fjölmenna síðan í kaffi
á eitthvert af kaffihúsum bæjar-
ins. Eldri borgarar á Akureyri
eru hvattir til að fjölmenna.