Dagur - 15.07.1986, Page 12
Akureyri, þriðjudagur 15. júlí 1986
Heklu lokað:
Allar vörur a
kostnaöarverði
- í kjallara Hrísalundar
í dag hefst stórútsala í kjallara
Kjörmarkaðarins í Hrísalundi.
Útsala þessi er til komin vegna
lokunar fataverksmiðjunnar
Hcklu. Verða allar fram-
leiðsluvörur verksmiðjunnar,
sem nú eru til á lager, seldar á
kostnaðarverði.
Verksmiðjuútsala sem þessi
hefur verið árlegur viðburður í
Reykjavík undanfarin ár, en nú
verður Norðlendingum í fyrsta
sinn gefinn kostur á að gera góð
kaup fyrst.
Á útsölunni verður eitthvað
fyrir alla fjölskylduna. Jogging-
gallar og joggingpeysur, dömu-,
herra-, og barnabuxur, úlpur og
jakkar. -HJS
Norðurgata:
Hraðahindrun
ekki sett upp
„Það er ekki fyrirhugað að
setja upp hraðahindrun í
Norðurgötunni núna, en það
er auðvitað möguleiki sem
væntanlega verður tekinn til
athugunar,“ sagði Gunnar
Jóhannesson verkfræðingur hjá
Breytingar
á Stálvík
- lengd um 6 metra
AHgóð aflabrögð hafa verið
hjá togurum frá Siglufirði,
Sauðárkróki og Ólafsfirði upp
á síðkastið. Siglufjarðartogar-
ar komu inn um síðustu helgi
með góðan afla, Stálvíkin með
130 tonn eftir fjögurra daga
veiðiferð og Sigluvíkin með
190 tonn.
Ólafsfjarðartogararnir lönd-
uðu fyrir helgina. Sigurbjörgin
var með 281 tonn og Ólafur
bekkur með 155 tonn. Verið var
að landa úr Sólberginu frá Ólafs-
firði á mánudag, um 180 tonnum.
Einnig var þá verið að landa úr
Hegranesinu hátt í 200 tonnum
og var mikill hluti aflans karfi og
ufsi. Afli hinna skipanna var að
mestum hluta þorskur, en einnig
var mikið af karfa og eitthvað af
grálúðu. -þá
Akureyrarbæ í samtali við
Dag.
Eins og Akureyringar hafa lík-
lega tekið eftir er nú unnið að
viðgerðum á Norðurgötunni.
íbúar við götuna hafa kvartað
yfir of hröðum akstri í götunni og
einnig að lélegar gangstéttir hafa
verið við götuna. Gunnar sagði
að leggja ætti góða gangstétt
vestan megin götunnar. „Ef
leggja ætti gangstétt báðum meg-
in götunnar þýddi það að bannað
yrði að leggja í götunni og mögu-
leikar á að gera bílastæði heima
við húsin eru engir sökum
þrengsla,“ sagði Gunnar.
Gunnar sagði að sá möguleiki
hefði verið athugaður að gera
Norðurgötuna að einstefnugötu,
en horfið hefði verið frá því þar
sem mikið er af slíkum götum á
Eyrinni.
Aðspurður um hvort komið
hefði til greina að lækka há-
markshraða um götuna, sagði
Gunnar að ef takmarka ætti há-
markshraða í einu hverfi þyrfti
að setja upp skilti þar sem ekið er
inn í hverfið og út úr því, „slíkar
framkvæmdir eru dýrar og hafa
því miður ekki skilað árangri þar
sem þær hafa verið prófaðar,"
sagði Gunnar. „Eini möguleikinn
á að halda hraðanum niðri er að
setja upp hindranir og það er
hlutur sem vissulega er til
umræðu,“ sagði Gunnar. -mþþ
Mynd: KGA
Framkvæmdum við Leirubrúna miðar vel. Reiknað er með að lokið verði við brúna í lok september. Þegar er búið
að steypa fyrsta brúardekkið og eru þá tvö eftir. Fyrir verslunarmannahelgi á að vera búið að steypa annað brú-
ardekkið, en hið þriðja, síðasti áfanginn, verður tekið í september. Mynd: KGA
Unooifíl/1
Landbrot stöðvað
- Bakkarnir að brotna og eyðast
„Það er unnið eftir samþykkt
fjárhagsáætlunar svo verk eru
yfirleitt mótuð fyrirfram,“
sagði Bjarni Aðalgeirsson,
bæjarstjóri á Húsavík, þegar
Dagur spurðist fyrir um fram-
kvæmdir á vegum bæjarins í
sumar.
Á fundi orku- og veitunefndar
á fimmtudag voru tekin fyrir til-
boð í tvöföldun stofnæðar Hita-
veitu Húsavíkur á þriggja kíló-
metra kafla. Þegar er búið að tvö-
falda stofnæðina frá Hveravöll-
um að Skörðum. í sumar verður
stofnæðin tvöfölduð frá Skörðum
á Laxármýrarleiti og þegar því
verki verður lokið mun helming-
ur stofnæðarinnar hafa verið tvö-
faldaður.
Framundan er framkvæmd til
stöðvunar landbrots neðan við
sláturhúsið, en bakkarnir þar eru
að brotna og eyðast. Vandamálið
er tvíþætt. Annars vegar virðist
jarðvatn ná sér niður á fastaberg-
ið og losa um jarðveginn og hins
vegar vinnur sjórinn á. Þarna eru
mannvirki í hættu ef ekkert verð-
ur að gert. Hitaveitulögnin í
bæinn er á bakkanum norðan
Þorvaldsstaðaár, þjóðvegurinn
að hluta á brúninni og stöðugt
hefur land framan við sláturhúsið
minnkað. Gera á grjótvörn í fjör-
unni og þaðan á að koma jarð-
vegsfylling upp í bakkana og á þá
á að gera meiri fláa til að auð-
velda ræktun og reyna að stöðva
landbrotið. Framkvæmdir við
þetta verkefni hefjast um mán-
aðamót, á kaflanum neðan við
sláturhúsið, en þar er mesta
hættusvæðið og unnið verður við
það eins og fjármagn leyfir.
í fjárlögum var veitt einni
milljón króna til þessa verkefnis,
auk þess sem bærinn hefur safnað
til þess og hefur nú um tvær og
hálfa milljón til ráðstöfunar til
þessara framkvæmda.
Vinna við íþróttahúsið er í full-
um gangi, enda á það að vera til-
búið fyrir landsmót UMSÍ næsta
sumar.
Bjarni sagði að til þess að
áform stæðust reyndi verulega á
að framlög fengjust í fjárlögum
næsta árs. IM.
Fljótalax:
Sléttbakur
fiystitogari
Miklar framkvæmdir í sumar
- Framleiðslugetan tvöfaldast
Miklar framkvæmdir verða í
sumar við laxeldisstöðina
Fljótalax í Fljótum. Borað
verður eftir heitu vatni, stöðin
stækkuð og komið fyrir úti-
kerum. Með stækkuninni á
stöðinni nú tvöfaldast fram-
leiðsluhæfni hennar.
Stöðin mun í ár skila 200.000
gönguseiðum og af þeim hafa
þegar verið seld 130.000 seiði til
írlands, að verðmæti 11,7 millj-
ónir. Önnur seiði sem alin verða
upp í ár fara á innanlandsmark-
að. Framleiðsla stöðvarinnar á
síðasta ári var 90.000 seiði, þann-
ig að Fljótalax færir mjög út kví-
arnar í ár.
Ákveðið hefur verið að bora
eftir heitu vatni í Reykjarhólnum
um miðjan ágúst. Þar mun vera
mikið af heitu vatni og að mati
sérfræðinga frá Orkustofnun eru
góðar líkur á að borunin beri
þann árangur að vatnsmagn muni
fjórfaldast, 3 lítrar/sek. af
80 gráðu heitu vatni. Að sögn
Teits Arnlaugssonar, forstöðu-
manns Fljótalax er þegar hafinn
undirbúningur að stækkun stöðv-
arhússins. Gólfflötur þess, sem er
1000 fermetrar, stækkar um 200
fermetra. Komið verður upp
fjórum útikerum, scm hvert um
sig er 12 m í þvermál.
Samhliða framleiðslu á göngu-
seiðum gerir Fljótalax tilraunir
nteð hafbeit. Gönguseiðin eru þá
sett í lón sem affallsvatn seiða-
eldisstöðvarinnar rennur í. Fyrr í
sumar var hluta af Stafánni veitt í
lónið í þeim tilgangi að fiskurinn
geti betur aðlagast seltubreyting-
unni, þar sem hann gengur upp í
lónið og er fangaður. Að jafnaði
vinna 8 menn í stöðinni og við
byggingaframkvæmdirnar. -þá
Umræður eru nú í gangi á milli
Útgerðarfélags Akureyringa
og Slippstöðvarinnar um
breytingar og endurbætur á
Sléttbak, einum af togurum
ÚA. Fyrirhugað er að þær
breytingar yrðu gerðar um ára-
mótin.
Sléttbakur var keyptur frá Fær-
eyjum árið 1968. „Þetta er mikið
og öflugt skip, en það er ekkert
óeðlilegt að sinna þurfi endurbót-
um á því,“ sagði Sverrir Leósson í
samtali við Dag. Hann bætti því
við að enn væri ekki búið að að
ganga til samninga við Slippstöð-
ina um fyrirhugaðar breytingar,
en umræður þar um væru í gangi.
-mþþ