Dagur - 15.09.1986, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 15. september 1986
15. september 1986 - DAGUR - 7
Jþróttir_
Umsjón: Kristján Kristjánsson
ingar björguðu báðum í horn.
Lið KA lék langt undir getu í
þessum leik og olli miklum von-
brigðum. Leikmenn virtist skorta
allan metnað í að standa sig á
lokasprettinum og tryggja sér sig-
ur í annarri deild. Hjá Víkingum
var Andri Marteinsson langbest-
ur í fremur slöku liði. Töluvert
bar á þeim leiða ávana að rífast í
dómaranum og á það við bæði
lið. Bragi Bergmann dómari
hefði gjarnan mátt taka harðar á
þessu en þó gaf hann sex gul
spjöld í leiknum. ET
Islandsmótið 1. deild:
Loksins Þórssigur
- Höfðu ekki sigrað síðan í 12. umf. - Halldór skoraði
Á laugardaginn léku á Akureyrar-
velli Þór og ÍBK í síðustu umferð
fyrstu deildar íslandsmótsins. Þór
sigraði með þremur mörkum gegn
tveimur eftir að hafa verið yfir 2:0 í
hálfleik.
Keflvíkingar hófu leikinn gegn vindi
og baráttuglöðum Þórsurum sem nú
ætluðu greinilega að sýna sitt rétta
andlit. Yfirburðir Þórs voru nokkrir í
fyrri hálfleik. Fyrstu tíu mínúturnar
áttu þeir tvo skalla rétt yfir mark Kefl-
víkinga en aðeins einu sinni á fyrstu 15
mínútunum náðu Keflvíkingar að
sækja að marki.
Á 22. mínútu voru Þórsarar aðeins
hársbreidd frá því að skora. Halldór
lék þá inn í teig og eftir skot í varnar-
mann barst boltinn til Hlyns sem skaut
rétt framhjá vinklinum.
Það var svo á 24. mínútu sem Þórs-
arar skoruðu fyrsta mark leiksins. Sig-
uróli gaf boltann fyrir markið þar sem
Kristján missti af honum en Halldór,
besti maður vallarins í fyrri hálfleik,
skoraði af öryggi sitt fyrsta mark í
deildinni í sumar. Fáum mínútum síð-
ar var Hlynur klaufi að bæta ekki öðru
marki við en skot hans fór í stöng.
Á 32. mínútu skoraði Jónas annað
mark Þórsara úr víti eftir að Þorsteinn
markvörður Keflvíkinga felldi Halldór
sem ætlaði að leika á hann.
Það sem eftir var af fyrri hálfleik ein-
kenndist leikurinn af miðjuþófi og
nokkurri hörku en hvorugt liðið skap-
aði sér umtalsverð færi.
Þórsarar hófu síðari hálfleik af sama
krafti og þann fyrri og strax á 50. mín-
útu skoraði Hlynur þriðja markið eftir
góðan undirbúning Jónasar. Eftir þetta
mark var sem eldmóðurinn rynni af
Þórsurum og Keflvíkingar áttu síst
minna í leiknum.
Á 60. mínútu skoruðu Keflvíkingar
sitt fyrra mark. Vörn Þórsara sem
hafði verið mjög traust sofnaði þá á
verðinum og Freyr Sverrisson skoraði.
Eftir þetta mark færðist enn aukin
harka í leikinn og eftir að gulu spjöldin
voru orðin 5 fékk Jóhann Magnússon
að sjá það rauða fyrir að sparka í
leikmann Þórs.
Skömmu síðar felldi Árni Stefánsson
Keflvíking inni í teig og Eyjólfur
Ólafsson dæmdi vítaspyrnu sem Einar
Ásbjörn Ólafsson skoraði úr.
Það sem eftir var skiptust liðin á að
sækja og áttu hvort eitt marktækifæri.
Hjá Þór voru Halldór, Hlynur og
Nói bestir í fyrri hálfleik en liðið jafnt
í þeim síðari. Keflvíkingar sem léku án
nokkurra fastamanna voru jafnir.
ET
Hlynur Birgissun skorar hér fyrir Þór, en markmaðurinn horfir á eftir boltanum í netið.
Mynd: -gej
íslandsmótið 2. deiid:
cthrk nctlpnnr pnr lir
OIUI w ■ ■ r Hir UollvUUI Clll Wnkiinnnm III
- sigruðu í annarri deild - sigruðu Selfoss 2:1 f spennandi leik
Norðurlandamótið í kraftlyftingum:
Kári í öðru sæti
- Finninn Tuomo sigraði
Mikið var um dýrðir á Húsavíkur-
velli er lið Selfoss kom í heimsókn
til að leika síðasta leik Völsungs í
annarri deild á þessu keppnistíma-
bili. Fánar, veifur, lúðrar og trumb-
ur settu skemmtilega umgjörð um
leikinn.
Leikurinn fór fremur rólega af stað
en fljótlega kom í ljós að Selfyssingar
ætluðu að selja sig dýrt. Þeir börðust
vel og náðu betri tökum á leik sínum
en Völsungar sem virkuðu fremur
taugaspenntir og óöruggir. Það kom
því ekki á óvart að Selfoss náði foryst-
unni með marki Jóns Gunnars Bergs
eftir 20 mín. leik. Var vel að þessu
marki staðið og skoraði Jón það af
stuttu færi, óverjandi fyrir góðan
markvörð Völsunga.
Er um það bil 10 mín. lifðu af fyrri
hálfleik hresstust Völsungar heldur og
vonuðu áhorfendur sem voru milli sex
og sjö hundruð að framhald yrði á betri
leik sinna manna í seinni hálfleik. Sem
sagt 1:0 fyrir Selfoss í hléi.
Völsungar byrjuðu seinni hálfleik
með miklum látum og strax á 47. mín
skoraði Jónas Hallgrímsson mark með
skalla. Hann skallaði boltann aftur fyr-
ir sig af markteig og misreiknaði Anton
markvörður Selfyssinga boltann alveg
herfilega. Hélt að hann færi framhjá en
í netið lak hann og Völsungar búnir að
jafna leikinn. Færðust þeir nú allir í
aukana og réðu að mestu gangi leiksins.
Á 65. mín. átti Kristján Olgeirsson
sannkallaðan þrumufleyg af 20 m færi
eftir frábæra sendingu frá Jónasi en
rétt framhjá. Áfram hélt sóknarþungi
Völsungs en Selfoss beitti skyndisókn-
um sem gengu ekki upp.
Sóknarþungi Völsungs hlaut að skila
þeim marki sem og varð. Björn Ol-
geirsson var felldur í vítateignum og
góður dómari leiksins Guðmundur
Maríelsson dæmdi umsvifalaust víta-
spyrnu sem Jónas Hallgrímsson skor-
aði úr af miklu öryggi.
Síðustu mínútur þessa leiks voru
feykispennandi og er dómarinn flaut-
aði til leiksloka var fögnuður Völsunga
meiri en orð fá lýst. Sigur í höfn og
efsta sæti annarrar deildar.
Að lokum má geta þess að þjálfari
Völsunga Guðmundur Ólafsson hefur
verið endurráðinn fyrir næsta keppnis-
tímabil og Ómar Rafnsson sem verið
hefur meiddur í nær allt sumar mun
leika með.
Eins og áöur hefur komiö fram
í blaðinu keppti Kári Elíson
kraftlyftingamaður frá Akur-
eyri á Norðurlandamótinu í
Finnlandi sem fram fór um
hclgina. Kári keppti í 67,5 kg
flokki en hann hefur orðið
Norðurlandameistari í þessum
llokki síðustu þrjú ár. Kári
sagði það fyrir mótið að hann
byggist við harðri keppni frá
ákveðnum fínnskum kepp-
anda. Kári reyndist sannspár
því hann þurfti að Iúta lægra
haldi fyrir Finnanum Tuomo
Kesalahgi eftir mjög harða
keppni.
Kári lyfti 220 kg í hnébeygju,
160 kg í bekkpressu og 260 í rétt-
stöðulyftu, samtals 640 kg. Finn-
inn lyfti hins vegar 230 kg í hné-
beygju, 157,5 í bekkpressu og
255 í réttstöðulyftu, samtals
642.5 kg. Finninn sigraði því með
2.5 kg eða sama mun og Kári
lagði hann að velli á Evrópumót-
inu í fyrra. Þessir tveir voru í
nokkrum sérflokki því næsti
maður lyfti 610 kg í samanlögðu.
Að sögn Flosa Jónssonar sem
fór með Kára til aðstoðar var
Kári nokkuð frá sínu besta og
taldi hann að rekja mætti það að
nokkru til jöklaævintýrisins svo-
kallaða. Þeir félagar eru væntan-
legir heim á morgun. ET
Fjögur golfmót um helgina
Um helgina voru fjögur golfmót
haldin að Jaðri. Á laugardaginn
var keppt um Sjóvábikarinn auk
þess sem fram fóru Öldungamót og
Nýliðamót. Þátttaka var góð í
tveimur þeim fyrrnefndu en í
Nýliðamótinu voru aðeins átta
keppendur.
I keppninni um Sjóvábikarinn var
spilað með fullri forgjöf og þar sigraði
Ragnar Sigurðsson á 67 höggum.
Annar varð Þórhallur Pálsson á 68 og
þriðji Sólveig Birgisdóttir á 71 höggi.
Á Öldungamótinu var spilað með
og án forgjafar. Guðjón Jónsson sigi-
aði í keppni með forgjöf á 64höggum,
annar varð Guðjón E. Jónsson á 65
höggum og þriðji Árni B. Árnason. í
keppni án forgjafar sigraði Guðjón
E. Jónsson á 81 höggi, annar varð
Hörður Steinbergsson á 82 og þriðji
Árni B. Árnason einnig á 82 höggum.
í Nýliðamótinu höfðu þeir nýliðar
einir þátttökurétt sem ekkert höfðu
lækkað sig í forgjöf. Þetta var annað
mótið af þessu tagi í sumar og í því
var þátttaka góð, .keppt í þremur
flokkum. Haraldur Júlíusson sigraði
að þessu sinni á 96 höggum, annar
varð Erlendur Hermannsson á 102 og
þriðji Guðjón Guðmundsson á 105.
í gær var síðan keppt um Nafnlausa
bikarinn og var það keppni með 3/4
forgjöf. Þar sigraði Guðjón Sigurðs-
son á 71 höggi, annar varð Smári
Garðarsson á 73 og þriðji Eiríkur
Haraldsson á 74 höggum.
Nú fer golfvertíðinni senn að ljúka
en um næstu helgi verða tvö mót hjá
G.A. Á laugardag verður firma-
keppni og á sunnudag verður síðan
loksins haldin parakeppni sem margir
hafa beðið eftir með óþreyju. ET
Mikið var um að vera í golfi um helgina og var veðrið með eindæmum gott.
Lokastaðan
Úrslit leikja í 18. umferö 1.
deildar urðu þessi:
KR-FRAM 0:0
IA-VALUR 2:3
FH-UBK 2:2
VIÐIR-IBV 1:2
ÞOR-IBK 3:2
Lokastaðan í 1. deild varð þessi:
Fram 18 11 5 2 39:13 38
Valur 18 12 2 4 31:11 38
ÍA 18 9 3 6 33:22 30
KR 18 7 8 3 21:10 29
ÍBK 18 9 1 8 25:27 28
Þór 18 6 4 8 21:31 22
Víöir 18 5 4 9 21:25 19
FH 18 5 4 9 24:36 19
UBK 18 4 4 10 18:35 16
ÍBV 18 3 3 12 26:43 12
Úrslit leikja í 18. uinferð 2. deild-
ar urðu þessi: Völsungur-Selfoss 2:1
KS-Einherji 3:2
KA-Víkingur 1:2
Þróttur-UMFN 8:0
ÍBÍ-Skallagrímur 0-0
Lokastaðan í 2. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu varð þessi:
Völsungur 18 12 2 4 38:16 38
KA 18 11 4 3 54:15 37
Víkingur 18 10 4 4 47:20 34
Selfoss 18 9 4 5 33:16 31
Einherji 18 9 2 7 28:24 29
KS 18 8 4 6 32:23 28
Þróttur 18 8 2 8 43:29 26
ÍBÍ 18 4 6 8 27:35 18
UMFN 18 4 2 12 27:57 14
Skallagrimur 18 0 0 18 4:99 0
Víkingarnir sækja hart að Tryggva Gunnarssyni markakóngi KA-manna. Honum tókst þó að skora eitt mark í leiknum.
Mynd: RÞB
Islandsmótið 2. deild:
KA klúðraði sigri í annarri deild
Það var mikil steminning ríkj-
andi fyrir leik KA og Víkings í
síðustu umferð Islandsmótsins.
Studningsmenn KA fylktu liði
á völlinn og hvöttu liðið dyggi-
lega í upphafí leiksins með
lúðruni og tilheyrandi. KA-
mönnum dugði jafntefli í þess-
um leik til þess að sigra í ann-
arri deild og voru menn bjart-
sýnir á að það tækist. En margt
fer öðruvísi en ætlað og með
slökum leik auðvelduðu KA-
inenn Völsungum sigur í deild-
inni.
KA-menn hófu leikinn af mikl-
um krafti og náðu oft á tíðum
ágætum samleik sem skapaði
marktækifæri. Strax á 5. mín
skoraði Tryggvi markakóngur
Gunnarsson fyrsta markið. Frið-
finnur gaf þá langa sendingu fram
völlinn og Tryggvi hljóp af sér
alla Víkinga og skoraði örugg-
lega.
Eftir þetta sóttu liðin nokkuð
til skiptis en þó voru KA menn
ívið frískari fram undir miðjan
hálfleikinn. Töluvert var um
marktækifæri hjá báðum lið-
um og voru Víkingar nærri því að
jafna á 36. mín þegar skot Andra
Marteinssonar fór í hliðarnetið.
Síðustu 10 mín hálfleiksins duttu
KA-menn alveg útúr leiknum.
Víkingar voru þá mun ákveðnari
og sóttu nær látlaust en tókst ekki
að skora og staðan því 1:0 í hléi.
Síðari hálfleikur var illa leikinn
af hálfu beggja liða. Samleikur
var lítill sem enginn og hjá KA
bar mikið á því að leikmenn
reyndu að gera allt upp á eigin
spýtur. Á 56. mín. jöfnuðu Vík-
ingar og var þar að verki Andri
Marteinsson.
Á næstu mínútum áttu KA-
menn nokkur skot og skalla að
marki en aldrei var nein veruleg
hætta á ferðum. Á 75. mín náðu
Víkingar síðan forystunni í leikn-
um og var Björn Bjartmarz þar á
ferðinni. Mark þetta má eins og
hið fyrra rekja til mistaka í vörn
KA.
Á 82. mín mátti ekki miklu
muna að Víkingar bættu þriðja
markinu við er Haukur varði skot
frá Trausta Ómarssyni.
Á síðustu fimm mínútum
reyndu KA-menn hvað þeir gátu
að jafna leikinn og sóttu nokkuð
stíft. Bjarni Jónsson, besti maður
KA, var maðurinn á bak við
þennan síðbúna fjörkipp og átti
hann tvö skot að marki en Vík-
íslandsmótið 2. deild:
Sanngjarn KS-sigur á Einheija
Viðureign KS og Einherja á
Siglufírði í gær var hin fjör-
ugasta á að horfa og oft var
hart barist. Það voru Siglfirð-
ingar sem stóðu með pálmann í
höndunum í leikslok og var
sigur þeirra fyllilega
sanngjarn. Mega þeir vel við
una árangur sinn í deildinni í
sumar og var frammistaða
þeirra í seinni hluta mótsins
sérstaklega góð.
Einherjamenn virkuðu mjög
óöruggir framan af leiknum, stíft
pressaðir af heimamönnum.
Fyrsta færið féll KS-ingum í
skaut á 10. mín. Upp úr horn-
spyrnu skapaðist mikil hætta en
rétt áður hafði Gústav einnig
framkvæmt mjög góða auka-
spyrnu sem Hreggviður sló yfir.
Siglfirðingar náðu svo forystunni
á 13. mín. er Hafþór þrykkti
boltanum í netið af markteig upp
úr hornspyrnu Gústavs.
Ekki leið á löngu uns Einherji
hafði jafnað. Markið kom upp úr
rangstöðu sem dómarinn sleppti
en dæmdi þess í stað aukaspyrnu
á Siglfirðinga sem Ólafur
Ármannsson skoraði úr af mark-
teig eftir að Ómar hafði misst
boltann.
Aftur náðu svo KS-ingar for-
ystunni á 33. mín. þegar Frið-
finnur Hauksson skoraði af stuttu
færi upp úr hornspyrnu.
Og heimamenn bættu um bet-
ur í 3:1 stuttu síðar þegar Gústav
þjálfari Björnsson skoraði efst í
bláhornið úr einni af sínum frægu
aukaspyrnum af 25 m færi. Sigl-
firðingar sköpuðu síðan í tvígang
mikla hættu upp við mark Ein-
herja undir lok hálfleiksins þegar
Baldur skallaði utan á skeytin af
stuttu færi og Gústav skaut í
slána úr aukaspyrnu af 30 m færi.
Staðan í hálfleik 3:1 fyrir KS.
Jakob Kárason gat svo gert út
um leikinn snemma í síðari hálf-
leik þegar skot hann rétt innan
vítateigs sleikti stöngina utan-
verða. Einherjamenn fóru nú að
hressast mjög og virtust KS-ingar
sakna Gústavs sem skipti sér útaf
í hléi.
Á 60. mín náði svo Hallgrímur
Guðmundsson að minnka mun-
inn fyrir Einherja með skalla af
stuttu færi. Áfram sóttu Einherj-
ar en síðasta þriðjung hálfleiksins
réttu Siglfirðingar sig af aftur og
sýndu að þeir voru sigursins
verðir. Lokatölur leiksins 3:2 fyr-
ir KS.
Bestir í liði KS voru Gústav í
fyrri hálfleik, Jakob Kárason sem
barðist eins og ljón allan leikinn
og varnarmennirnir Colin Thack-
er og Sigurgeir Guðjónsson. I liði
Einherja voru bestir Baldur
Kjartansson og Njáll Eiðsson og
varnarmennirnir Ölafur og Einar
Björn. þá
Knatt-
spymu 1-
úrslit
Úrslit lcikja í 1. og 2. deild
cnsku knattspyrnunnar á laug-
ardag uröu þessi:
1. deild
Coventry-Newcastle 3:0
Liverpool-Charlton 2:0
Luton-Arsenal 0:0
Man. United-Southampton 5:1
Norwich-Watford 1:3
Nottm. Forest-Aston-Villa 6:0
Oxford-Man. City 0:0
QPR-West Ham 2:3
Shef.Wed.-Leicester 2:2
Tottenham-Chelsea 1:3
Wimbledon-Everton 1:2
2. dcild
Birmingham-Huddersfield 1:1
Crystal Pal.-Shef.United 1:2
Grimsby-Derby 0:1
Leeds-Readind 3:2
Millwall-Bradford 1:2
Oldham-Stoke 2:0
Plymouth-Brighton 2:2
Portsmouth-Blackburn 1:0
Shrewsbury-Barnsley 1:0
Sunderland-Hull Gity 1:0
WBA-Ipswich 3:4
•
Staðan
Staöan í 1. og 2. dcild cnsku
knattspyrnunnar er þessi:
1. deild
Liverpool 6 4 1 1 12:5 13
Nottin.Forest 6 4 1 1 16:5 13
Everton 6 3 3 0 10:5 12
Wimbledon 6 4 0 2 8:7 12
Coventry 6 3 2 1 7:3 11
Q.P.R. 6 3 1 2 9:10 10
West Ham 6 3 1 2 10:11 10
Luton 6 2 3 1 7:5 9
Sheff.Wcd. 6 2 3 1 10:9 9
Tottenham 6 2 2 2 6:6 8
Norwich 5 2 2 1 9:10 8
Arsenal 6 2 2 2 5:4 8
Southampt. 6 2 1 3 13:11 7
Watford 5 2 1 2 9:6 7
Man.City 6 1 3 2 5:4 6
Leicester 5 1 3 1 6:6 6
Oxford 6 1 3 2 4:8 6
Chelsea 5 1 3 2 5:6 6
Man.United 5 1 1 3 8:7 4
Charlton 6 1 1 4 3:10 4
Aston Villa 6 1 0 5 5:16 3
Newcastle 6 0 2 4 3:11 2
2. deild
Oldham 6 4 2 0 9:1 14
Portsmouth 5 3 2 0 6:1 11
Sheff.United 6 3 2 1 7:5 11
Leeds 6 3 1 2 8:7 10
Blackhurn 4 3 0 1 9:3 9
C.Palace 5 3 0 2 7:6 9
Birmingham 6 2 3 1 7:6 9
W.B.A. 6 2 2 2 7:8 8
Plvmouth 4 2 2 0 8:4 8
HÚII 6 2 1 3 3:6 7
Derby 4 2 1 1 3:2 7
Sunderland 4 2 1 1 5:7 7
Ipswich 5 2 3 0 8:6 6
Millwall 6 2 0 4 4:7 6
Brighton 5 1 3 1 5:4 6
Grimsby 4 1 2 1 2:2 5
Bradlörd 6 1 2 3 6:10 5
Stokc 6 1 1 4 4:8 4
Shrewsbury 4 0 1 2 2:3 4
Huddcrsficld 4 0 2 2 2:5 2
Reading 4 0 1 3 3:6 1
Barnslev 6 0 0 6 2:10 0