Dagur - 15.09.1986, Blaðsíða 3
15. september 1986 - DAGUR - 3
Sérkennsla í Stórutjarnaskóla:
Niðurskurður úr tuttugu
tímum í fimm
Á miðvikudag funduðu kenn-
arar Stórutjarnaskóla í Ljósa-
vatnsskarði. Á fundinum var
niðurskurður á sérkennslu í
umdæminu ræddur og settu
kennarar skólans saman álykt-
un sem verður send Sverri
Hermannssyni, menntamála-
jráöherra.
í ályktuninni segir að kennarar
skólans mótmæli eindregið þeim
a Blönduós:
Öm ráðinn
útibússtjórí
Alþýöubankans
Nýlega var gengið frá ráðningu
útibústjóra fyrir nýtt útibú
Alþýðubankans á Blönduósi
sem opnað verður í nóvember.
Útibússtjóri var ráðinn Örn
Björnsson bóndi á Gauksmýri
V estur-Húna vatnssýslu.
Örn starfaði í 16 ár hjá Sam-
vinnutryggingum/Andvöku, en
hefur búið á Gauksmýri síðastlið-
in 10 ár. -G.Kr.
niðurskurði sem menntamála-
ráðuneytið hefur beitt varðandi
sérkennslu. Þeir telja að með
þessu sé vegið að þeim einstakl-
ingum sem erfiðast eiga með nám
og þroska. Fyrir marga þessa
nemendur getur sérkennsla og
aukahjálp skipt sköpum um það
gagn sem þeir yfirleitt hafa af
skólagöngu sinni. Nærtækasta
úrræðið fyrir þau börn sem hér
eru borin út væri vafalaust að
flytja með fjölskyldu sinni til
höfuðborgarinnar, þar virðist
niðurskurði síður beitt. Spyrja má
hvort ráðamenn menntamála hafi
þá lausn í huga.
Ennfremur segir að möguleik-
ar þeirra sveitarfélaga er standa
að Stórutjarnaskóla, að bera
aukinn kostnað við skólahald séu
nánast engir og nú þegar fer fast
að helmingur skatttekna þeirra til
skólahaldsins. Þeir leyfa sér að
fullyrða að ekki sé um bruðl að
ræða, hvorki hvað varðar skóla-
akstur né annað.
Að sögn Sverris Thorstensen,
skólastjóra á Stórutjörnum, eru
þrír nemendur í skólanum sem
þurfa á sérkennslu að halda.
I
Tveir af þessum þremur nemend-
um hafa verið í skólanum í nokk-
ur ár. Annar er kominn í 3. bekk
og hinn í 5. bekk. Hafa þeir haft
5 kennslustundir á viku í 3 ár.
„Það er mat okkar og sérfræð-
inga á fræðsluskrifstofunni að
þeim veiti ekkert af að fá þessa
sérkennslu áfram. Síðan erum
við að taka inn nemanda í 7.
bekk sem er nokkuð mikið á
eftir, bæði andlega og líkamlega.
Hann átti rétt á 10 tímum. En öll
þessi sérkennsla er skorin niður í
5 tíma samtals fyrir þessa 3
nemendur, úr 20 tímurn," sagði
Sverrir.
Sagði Sverrir að ekki væri
leyfilegt að ráða sérstaka
kennara til sérkennslu heldur
væri reynt að skipta þessu niður á
kennarana. I vor leit út fyrir að
þeir fengju 20 sérkennslutíma og
10 stuðningskennslutíma og var
gengið út frá því við manna-
ráðningar. „Þessi niðurskurður
gerir það að verkum að menn rétt
fá stöðugildi sín. Það virðist líka
vera einhver tregða eða niður-
skurður á stuðningskennslu og
þar töpum við líklega 7 tímum í
viðbót,“ sagði Sverrir. -HJS
IBM á islandi:
Fyrirtæki
stuðli
að list-
sköpun
í febrúar á næsta ári hyggst
IBM á íslandi standa fyrir sýn-
ingu á verkum ungra myndlist-
armanna, 35 ára og yngri.
Tengist sýningin 20 ára starfs-
afmæli IBM hérlendis á árinu
1987.
í tengslum við sýninguna
hyggst fyrirtækið veita verðlaun
einum listamanni að upphæð kr.
100.000 og jafnframt áskilja sér
rétt til kaupa á listaverkum.
í frétt frá IBM segir, að fyrir-
tækið vilji með þessum hætti sýna
í verki viljann til að styðja við
bakið á ungum myndlistarmönn-
um. Forsvarsmenn IBM á íslandi
telja að stuðningur einstaklinga
og fyrirtækja með þessum hætti
sé til þess fallinn að efla listir og
menningu, - auka sjálfstæði og
sköpunargleði listamanna. Er
það von fyrirtækisins að stuðn-
ingur af þessu tagi fylgi í kjölfarið
úr fleiri áttum.
Akureyri:
Rafveitan fær
nýjan körfubíl
„Þetta er geysilega góður bfll
og er nauðsynlegur fyrir Raf-
veituna, því mikið er að gera í
Dalvík:
Dröfn rifin
- húsnæðið orðið heilsuspillandi
Bæjarstarfsmenn á Dalvík
vinna þessa vikuna við að rífa
Dröfn, en það er hús sem bær-
inn á og notað hefur verið und-
ir leiguíbúðir á vegum bæjar-
ins.
„Við vonumst til að húsið verði
horfið í lok vikunnar. Þetta hús-
næði var orðið heilsuspillandi og
lélegt. Við viljum fyrir alla muni
losna við það,“ sagði Kristján
Þór Júlíusson bæjarstjóri á Dal-
vík í samtali við Dag.
Kristján sagði ekki tilfinnan-
legan skort á húsnæði á Dalvík.
„Okkur vantar fólk í vinnu, bæði
vantar fólk í fiskvinnsluna og eins
iðnaðarmenn. Ef fólk vill koma
hingað, þá yrðum við ekki í
vandræðum með að bjarga því
um húsnæði,“ sagði Kristján og
bætti því við að Dalvík væri besti
bærinn á landinu. -mþþ
viðgerðum á Ijósastaurum og
öðru sem illvinnanlegt er ef
ekki er til slíkur bíll,“ sagði
Haukur Ingimarsson starfs-
maður Rafveitu Akureyrar er
hann sýndi okkur nýjan körfu-
bíl sem Rafveitan var að fá í
sína þjónustu.
Þetta er glæsilegur bíil af
Volvo gerð með Turbovél.
„Þetta er 4. körfubíllinn sem
Rafveitan eignast og hefur orðið
mikil þróun síðan fyrsti bíllinn
kom. Hann var með handsnún-
um útbúnaði sem var smíðaður
hér heima. Yfirbygging þessa bíls
er smíðuð hjá Þórshamri og er
karfan af eldri bílnum notuð á
þennan. „Hún var það góð að
óþarfi þótti að fá nýja körfu, auk
þess sem það var mjög mikið dýr-
ara,“ sagði Haukur.
Köfunni á bílnum er hægt að
lyfta í 13 metra hæð og getur hún
borði 2 menn eða 200 kíló. gej-
Firmakeppni
í knattspyrnu
Knattspyrnuráð Akureyrar auglýsir eftir
þátttöku í firmakeppni utanhúss 1986.
Þátttökurétt hafa öll fyrirtæki/starfshópar á Akureyri og í ná-
grenni. Heimilt er fyrir tvo aðila að sameinast um lið í keppn-
ina, ef þeir vegna fámennis hafa ekki í lið. Með þátttökutil-
kynningum skal fylgja nafnalisti yfir þá leikmenn er þátt taka
og er óheimilt að breyta þeim lista eftir að keppnin er hafin.
Þátttökurétt hafa þeir starfsmenn sem eru á launaskrá 1.
ágúst og skólafólk er starfað hefur hjá fyrirtækinu í tvo mán-
uði, þó svo aðeins að það hafi ekki hafið 'iörf annars staðar.
Hverju liði er heimilt að nota leikmenn úr 1. og 2. deild, þó
ekki fleiri en tvo í leik.
Með þátttökutilkynningum skal fylgja staðfesting yfirmanns á
því að þátttakendur uppfylli ofangreind skilyrði til þátttöku.
Frestur til að skila inn þátttökutilkynningum, ásamt þátttöku-
gjaldi kr. 5000 er til 16. sept. Skal því skilað til Sveins Björns-
sonar, Plastiðjunni Bjargi, sími: 26888 eða til Davíðs
Jóhannssonar, NT umboði, sími 21844 milli kl. 9.00 og
17.00.
Ofangreindir veita allar nánari upplýsingar um keppnina.
K.R.A.
re- '■/*.
ys'.vVf
Gaddf reðið í
Fngor
Góðan mat þarf að geyma vel. Ef fjölskyldan á frystikistu
getur hún gert hagkvæm matarinnkaup. En það er líka
hagkvæmni að velja Frigor, ekki aðeins vegna hins lága
verðs, heldur einnig þar sem Frigor hefur með áralangri
reynslu hér á landi sýnt og sannað ágæti sitt.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
B 200 B 275 B 380 B 460
Hæö 89 cm 89 cm 89 cm 89 cm.
Breidd 73cm 98 cm i28cm 150 cm
Dýpt 65 cm 85 cm 65 cm 65’cm
Rafbúð Sambandsins tryggir örugga þjónustu
Járn og
glervörudeild
SÍMI
(96) 21400