Dagur


Dagur - 07.10.1986, Qupperneq 1

Dagur - 07.10.1986, Qupperneq 1
69. árgangur Akureyri, þriðjudagur 7. október 1986 187. tölublað Filman þín á skiliö þaö besta / w FILMUHUSIÐ Hafnarstræti 106 Sími 22771 Pósthólf 198 gæðaframköllun Filman inn fyrir kl. 10.45. Myndirnar tilbúnar kl. 16.30. Opið á laugardögum frá kl. 9-12. I Áætlanir um framkvæmdir við Akureyrarhöfn: 32 milljónir á næsta ári - Skuld ríkisins við hafnarsjóð 13,7 milijónir A fundi hafnarstjórnar fimmtudaginn 25. september var samþykkt að stefna að framkvæmdum fyrir 32 millj- ónir króna á árinu 1987. Fram- lag ríkisins til slíkra fram- kvæmda er % hiutar af kostn- aði og var því ákveðið að sækja um ríkisframlag að upp- hæð 24 milljónir króna. Þær framkvæmdir sem hér um ræðir eru allar liður í undirbún- ingi og uppbyggingu nýrrar fiski- hafnar sem staðsett verður norð- an núverandi hafnarsvæðis og sunnan Slippstöðvar. f>að sem hér er um að ræða er eftirfarandi: Slitlag, lagnir og lýsing við Sand- gerðisbót, deiliskipulag svæðis- ins, lenging á slippkanti, grjót- garður norður úr togarabryggj- unni og tæknilegur undirbúning- ur fiskihafnar. Þar er um að ræða kortlagningu hafstrauma og aðra verkfræðilega þætti. Höfnin sem hér um ræðir verð- ur sem fyrr segir staðsett norðan athafnasvæðis Útgerðarfélags Akureyringa og mun Sana-völl- urinn svokallaði fara undir hafn- arsvæði. Kanturinn norður úr togarabryggju mun liggja austan hafnarinnar og þannig myndast mjög gott skjól fyrir öllum áttum. Að sögn Guðmundar Sigur- björnssonar hafnarstjóra vantar nú tilfinnaniega iegupláss fyrir skip að leita í þegar bræla er á miðunum. Sagði hann að þetta hefði glögglega komið í ljós nú fyrir skömmu þegar hátt í tíu loðnuskip lágu við Torfunefs- bryggju sem ekki væri lengur til slíks fallin. Guðmundur nefndi einnig að aukin umsvif í útgerð á Akureyri kölluðu á aukið at- hafnasvæði og nefndi í því sam- bandi Samherja h.f og Oddeyri h.f. sem á næstunni verða með þrjú skip í rekstri. Guðmundur sagði að Samherji hefði þegar fengið vilyrði fyrir lóð á umræddu svæði. Á fundinum var einnig sam- þykkt að ganga eftir greiðslu eldri skuld ríkissjóðs við Hafnar- sjóð Akureyrar að upphæð kr. 13,7 milljónir og að gerð verði langtímaáætlun um framkvæmdir við Akureyrarhöfn. ET Dagsmenn brugðu sér bæjarleið á mánudag í þeim tilgangi að vekja athygli á því að Dagur er eina murgunblaðið sem kemur út á mánudögum. Stilltu þeir sér upp í göngugötunni í Austurstræti í Reykjavík og aflientu árrisulum borgarbúum blaðið, sem flutt hafði verið suður um nóttina, auk þess sem vakin var athygli fleiri aðila á blaðinu. Á myndinni eru frá vinstri talið: Freyja Rögnvaldsdóttir, Sigríður Finnsdóttir, Jóhann Karl Sigurðsson, Ingveldur Jónsdóttir og Berghildur Þóroddsdóttir. Mynd: I.E. „Ekki frekari sala til Sovétmanna á þessu ári - segir Aðalsteinn Helgason forstöðumaður Ullariðnaðardeildar Sambandsins „Það liggur fyrir í dag, að við munum ekki gera frekari samninga við Sovétmenn um sölu á ullarvörum fyrir þetta ár og það eru vonbrigði út af fyrir sig,“ sagði Aðalsteinn Helga- son forstöðumaður ullariðnað- ardeildar Sambandsins í sam- tali við Dag. „Það hafa ekki tekist samning- Hafnarstræti 105: Bætur vegna eignarnáms rúmar fjórar milljónir Á fundi bæjarráðs þann 25. september sl. var kynnt niður- staða vegna máls um eignar- nám Hafnarstrætis 105 á Akur- eyri. Er húsið og lóðin í eigu Valhallar h/f og er Oddur Thorarensen talinn eigandi húss og lóðar. Mál um sölu eða eignarnám hefir staðið í nokkuð mörg ár án árangurs. Húsið sem um er rætt hefur þótt mikil óprýði á miðbæ Akureyrar. Lögmenn beggja aðila, þ.e. Akureyrarbæjar og Valhallar h/f samþykktu að leggja málið fyrir Matsnefnd eignarnámsbóta, en sú nefnd starf- ar í Reykjavík og fæst við mál af þessu tagi sem upp koma á land- inu. Niðurstöður nefndarinnar eru á þessa leið. „Eignarnemi, Akureyrarbær, skal hafa óskoruð umráð fasteignarinnar Hafnar- strætis 105 frá 1. október 1987. Eignarnemi greiði Valhöll h/f kr. 4.022.894 og krónur 20.000 í málskostnað. Eignarnemi greiði til ríkissjóðs kostnað af starfi matsnefndar- innar kr. 80.000.“ Af þessu sést að bærinn á að borga Valhöll h/f rúmar 4 millj- ónir króna fyrir lóð og hús. Bæjarráð hefur falið Hreini Pálssyni bæjarlögmanni að semja við eigendur Valhallar h/f á grundvelli niðurstöðu matsnefnd- arinnar. gej- ar um meiri viðskipti á árinu og þar af leiðandi náum við ekki að fylla upp í þann kvóta sem gerður var í 5 ára samningi landanna. Salan annars staðar í Evrópu hefur gengið sæmilega og svipað og við áætluðum. Aftur á móti hefur salan gengið treglega í Bandaríkjunum en þar bendir ýmislegt til þess að hún sé að skána en við vitum það í rauninni ekki fyrr en í vor,“ sagði Aðal- steinn. „Við erum að fara af stað með nýja fatalínu og nú er verið að ljúka við gerð auglýsingabækl- inga í því sambandi. Það verður farið með þessar flíkur í sölu nú í desember og svo janúar, febrúar og mars á næsta ári, bæði í Evr- ópu og Bandaríkjunum. í fram- haldi af því komum við síðan til með að sjá hverjar viðtökurnar eru og þá markaðshorfurnar út frá því. Okkur grunar að salan muni aukast verulega í Bandaríkjun- um á næsta ári. Við höfum bætt sölukerfi þar og einnig teljum við okkur vera með betri fatnað.“ - Hvernig hyggst ullariðnaðar- deildin nýta sér heimsókn þeirra Reagans og Gorbachev til ís- lands? „Við tökum þátt í því sem menn gera sameiginlega í gegn- um Útflutningsráð íslands og síð- an verðum við í Reykjavík á meðan á heimsókn þeirra stendur og reynum að vekja athygli á okkar vöru,“ sagði Aðalsteinn Helgason að lokum. -KK Sigurður leigir Húsavíkurbíó Sigurður Arnfínnsson fram- kvæmdastjóri Borgarbíós stendur nú í samningum við Leikfélag Húsavíkur um leigu á Húsavíkurbíói þar sem hann hyggst reka kvikmyndahús. Sigurður sagði í samtali við blaðið að málið væri að mestu frágengið og hygðist hann leigja húsið í 3 mánuði til reynslu fyrst um sinn. Sigurður sagðist vonast til að geta hafið reksturinn um miðjan október og meiningin væri að hafa sýningar þrjú kvöld í viku. Myndir verða fengnar frá Borg- arbíói en hér er þó ekki um að ræða einhvers konar útibú þaðan. Sigurður mun sjá um rekst- urinn sjálfur en verður með þrjá til fjóra starfsmenn á Húsa- vík. ET

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.