Dagur - 07.10.1986, Side 2
2 - DAGUR - 7. október 1986
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGILL BRAGASON, EGGERT TRYGGVASON,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
rJeiðari
Gífurleg landkynning
Segja má að höfuðborgin sé á öðrum endan-
um þessa dagana og ástæðan er að sjálf-
sögðu fyrirhugaður fundur leiðtoga risaveld-
anna, þeirra Reagans og Gorbatsjovs, um
næstu helgi. Að sjálfsögðu vona menn að
þessi fundur verði árangursríkur, enda ekki á
hverjum degi sem þessir tveir valdamestu
menn heimsins hittast. Það eitt að taka
ákvörðun um að hittast er stórmál og þá ekki
síður hvar fundir af þessu tagi eru haldnir.
Reykjavík varð fyrir valinu að þessu sinni
og það er rétt að segja hvern hlut eins og
hann er: Þetta er stórkostlegt tækifæri fyrir
þjóðina að kynna sig fyrir umheiminum. Vik-
una sem framundan er verður ísland í sviðs-
ljósinu, augu alls heimsins munu beinast að
þessari eyju í norðurhöfum. Að sjálfsögðu er
athyglin fyrst og fremst bundin við leiðtog-
ana tvo og það sem hugsanlega gæti komið
út úr viðræðum þeirra. Hins vegar er óhjá-
kvæmilegt að annað fylgi með og reyndar hef-
ur það þegar komið fram í erlendum fjölmiðl-
um að landið, þjóðin og menning hennar eru
þar til umfjöllunar.
Aðilar í útflutningsiðnaði hafa þegar séð
sér leik á borði og ákveðið hefur verið að efna
til kynningar á útflutningsvörum okkar fyrir
þann stóra hóp erlendra fréttamanna sem hér
verður í tengslum við leiðtogafundinn. Þá
gera menn sér miklar vonir um að þetta geti
orðið til þess að auka mjög verulega áhuga
erlendra ferðamanna á landinu. Ferðaþjón-
usta er mjög vaxandi atvinnugrein hér á landi
og vafalaust mætti hafa enn meiri tekjur af
þjónustu við erlenda ferðamenn en nú er. Það
er þó rétt að taka fram, að ekki er hættulaust
með öllu að stefna til landsins gífurlegum
fjölda ferðamanna yfir sumartímann.
Mesti ávinningurinn af þessari miklu kynn-
ingu á landinu erlendis gæti orðið sá, að
ísland yrði þekkt og vinsælt ráðstefnuland.
Það sem fyrst og fremst vantar hvað varðar
komu erlendra ferðamanna til landsins er
lenging á ferðamannatímabilinu. Stærstur
straumur ferðamanna kemur á þremur til fjór-
um mánuðum yfir hásumarið. Ef unnt væri að
efla ferðaþjónustuna á öðrum tímum ársins,
einkum yfir vetrartímann, þá væri ávinning-
urinn af þessari miklu landkynningu, í tengsl-
um við fund leiðtoga stórveldanna, mikill og
góður. Á þetta þarf að leggja megináherslu.
HS
-viðtal dagsins.
Einn besti
staður á landinu
Pétur Þorsteinsson skóiastjóri
á Kópaskeri í viðtali dagsins:
Blaðamaður Dags kom við í
grunnskólanum á Kópaskeri
fyrir nokkrum dögum, það var
skömmu áður en kennsla átti
að hefjast við skólann og
starfsliðið var á fullu við að
undirbúa komu barnanna, þvo
og þrífa húsnæðið frá gólfi til
lofts. Skólastjórinn, Pétur
Þorsteinsson var á þönum en
gaf sér þó tíma til að setjast
niður í nokkrar mínútur.
- Hvað eru margar bekkjar-
deildir við skólann?
„Það er forskóli og sex bekkir,
í vetur mun 31 nemandi stunda
nám við skólann en börnin fara
héðan og í skólann í Lundi þegar
þau byrja í sjöunda bekk. Við
erum fimm sem kennum bókleg
fög í vetur, að vísu er þar um
hlutastörf að ræða að töluverðu
leyti.“
- Var erfitt að fá kennara til
starfa og eru þeir allir með rétt-
indi?
„Við erum öll réttindalaus,
þetta er einn réttindalausasti
skóli sem um getur, hins vegar er
þetta allt saman fólk sem hefur
töluvert mikla kennslureynslu og
ég tel mig vera með mjög gott
starfshð."
- Skólinn er í nýlegu húsnæði,
mjög sérstæðu að útliti, hvernig
nýtist það ykkur?
„Þetta verður fimmti veturinn
sem við kennum í húsinu, það er
550 fm að stærð og það sem gerir
það sérstakt er þríhyrningslögun-
in. Hún veldur því að húsið nýtist
geysilega vel, allt húsið nýtist en
ekkert fer í ganga eða dauð rými.
Hér eru þrjár almennar kennslu-
stofur og auk þess salur sem við
notum fyrir leikfimi, söng, mat-
reiðslu, kaffisölu og annað sem
rýmra húsnæði þarf til og síðan er
smíða- og handavinnustofa.
Vinnuaðstaðan er góð í húsinu.
Hér vinna saman börn á ólíkum
aldri og alls ekki er ætlast til að
allir fari í gegn um allt það sama.
Við teljum að það skipti meira
máli að vinna vel og af áhuga
heldur en að börnin þvælist nauð-
ug viljug í gegnum allan pakk-
ann. Hugtakið opinn skóli er í
raun villandi því flestir skólar eru
eitthvað að reyna að brjóta upp
sitt skipulag og þá hlýtur skipu-
lagið í hverjum skóla að ráðast af
þeim aðstæðum sem þar eru og
nánast af þeirri sérvisku sem er í
þeim kennarahópi sem þar
vinnur. í raun er ekki hægt að
tala um þetta sem eitthvert
ákveðið form eða fyrirkomulag,
það er ákveðin hugmynd á bak
við en síðan er útfærslan það ólík
að tæpast er hægt að tala um
þetta með einu yfirheiti. Síðan
við fluttum í þetta hús höfum við
verið að þreifa okkur áfram með
þetta kennslufyrirkomulag og
gert skipulagsbreytingar einu
sinni til tvisvar á ári. Þetta hefur
verið mjög skemmtilegt starf,
skemmtilegra er að brasa svolítið
úti á hálum ís heldur en að hafa
allt á þurru. Það er mikið auð-
veldara að henda bekkjunum í
kennarana og segja: „Þú sérð um
11 ára börnin og þú sérð um 10
ára börnin.“ En þessi aldurs-
blöndun er mjög gefandi bæði
fyrir krakkana og kennarana og
kennararnir einangrast ekki hver
í sínu skoti heldur verða þeir að
vinna saman og kennslan verður
miklu félagslegra verkefni heldur
en að annars væri.“
- Starfar ekki tónlistarskóli
samhliða grunnskólanum hérna?
„Hann er ekki í beinum form-
legum tengslum en hefur haft
aðstöðu hér inni og við höfum
haft mikið samstarf um stunda-
skrárgerð og annað slíkt, svo
ekkert stangaðist á, þetta er mjög
góð samvinna.“
- Eru mörg börn í tónlistar-
skólanum?
„Það hefur verið mjög mikil
aðsókn, mig minnir að um þrjá-
tíu manns hafi sótt skólann. Við
höfum verið að reyna að fá hing-
að tónlistarmenn, bæði til að
flytja tónlist af léttara taginu og
klassíska tónlist. Tæpast er dæmi
um að aðsókn fari niður fyrir
þrjátíu manns og þegar flest var
komu 160 manns á eina tónleika.
Ég er viss um að þetta þætti gott
í bæ þar sem væru fimm til tíu
þúsund íbúar. Við getum reiknað
með að fá þrjátíu til fimmtíu
manns á hverja tónleika, eða um
fjórða hvert mannsbarn á staðn-
um og þetta er dæmi um ákveðið
viðhorf til tilverunnar sem ég er
mjög sáttur við.“
- Hvernig eru börnin á Kópa-
skeri?
„Börn á Kópaskeri eru framúr-
skarandi sjálfstæð og dugleg, þau
gera miklar kröfur en eru ákaf-
lega virk og jákvæð. Til dæmis
hafa þau haft mikinn aðgang að
húsnæði skólans, við opnum hús-
ið kl. 8 á morgnana og lokum því
kl. 7 á kvöldin og allan þennan
tíma hafa börnin frjálsan aðgang
að húsinu. Eftir að kennslu og
undirbúningsvinnu kennara lýkur
eru þau kóngar í ríki sínu hér því
enginn situr yfir þeim og til dæm-
is um hve börnin eru ábyrgðarfull
má nefna að ég held að þau gangi
betur um eftir að við kennararnir
erum hættir og ástæða er til að
hæla börnunum fyrir þetta.“
- Er Kópasker góður staður til
að alast upp á?
„Ég hef haldið því fram alveg í
fúlustu alvöru að Kópasker sé
einn besti staður á landinu og að
hér sé alveg óvenju jákvætt og
gott mannlíf. Kópasker er komið
til með svolítið öðrum hætti en
flest þorp, hér hefur aldrei skap-
ast gullgrafarastemmning. Við
höfum alveg sloppið við síldar-
bölið og hér er mikið rólegra og
samheldnara samfélag heldur en
í öðrum þorpum þar sem ég
þekki til. Það má orða þetta svo
að það éti allir sama grautinn úr
sömu skál hérna, það er enginn
afgerandi munur á afkomu
manna, ekki þessi himinhrópandi
munur sem sums staðar þekkist.
Umhirða á börnum er afar góð
og mikill skilningur ríkjandi á að
búa vel að æskulýðsmálum. Þó
að við höfum ekki haft peninga
til að byggja íþróttahús og gera
allt sem okkur langar til má segja
að skólarnir hafi fengið alla þá
peninga sem hægt er að reikna
með að eitt svona lítið sveitarfé-
lag geti útvegað. Ég tel að það
hafi verið tekið sem forgangs-
verkefni að búa vel að börnum
hérna.“
- Eitthvað sérstakt sem þú
vildir koma að að lókum Pétur?
„Mér stendur mikill stuggur af
þessum niðurskurðaráformum
bæði á skólaakstri og sérkennslu
og sé ekki annað brýnna en að
reyna að koma þeim málum í
skynsamlegra horf. Það er aldeil-
is alveg óþolandi að fagleg vinna
sérfræðinga, eins og sálfræðinga
og námsráðgjafa á Fræðsluskrif-
stofunni á Akureyri sé gerð dauð
og ómerk með einu pennastriki
suður í Reykjavík.“ IM