Dagur - 07.10.1986, Síða 3
7. október 1986 - DAGUR - 3
Mynd: G.Kr.
Hvammstangi:
Grunnskólinn
eignast tölvur
Myfiug: B
Farþegaauknmg
70% á árinu
Er að rofa
til hjá
refabændum?
20% verðhækkun á
síðasta skinnauppboði
Á skinnauppboði í Finnlandi í
síðustu viku hækkuðu skinn af
blárefum sem er algengasta
tegundin á refabúum hér, um
20% frá maíuppboðinu í vor.
Verð á skinnum af öðrum teg-
undum hækkaði einnig tölu-
vert.
Að vísu ber að taka þessa
verðhækkun með svolitlum fyrir-
vara, þar sem að sögn Arna
Magnússonar sölustjóra hjá SÍL
voru færri skinn á þessu uppboði
en venjulega og það því ekki
afskaplega marktækt. Skinnin
450 þúsund sem í boði voru seld-
ust nær öll þó megnið af þeim
væri í lægri gæðaflokkunum og
hækkunin hefði því orðið enn
meiri ef um hærri gæðaflokka
hefði verið að ræða. Blárefa-
skinnin seldust öll og kvað Árni
það góðs viti og gæfi vissulega
tilefni til bjartsýni. Hlutur
íslensku skinnanna á uppboðinu
var 16% af fjöldanum. Margir
kaupendur komu á uppboðið og
mun fleiri skinn hefðu selst ef í
boði hefðu verið. Hvað þessi
uppsveifla entist langt fram á vet-
urinn kvað Árni ómögulegt að
segja um. Bjartara sé yfir minkn-
um í augnablikinu eins og verð á
uppboðinu í Danmörku á dögun-
um sýndi. Verð á refaskinnum
væri miklu viðkvæmara en á
minknum, meira háð tískunni og
veðurfarinu. Pví geti tíðarfar
fyrripart vetrar í Evrópu haft
mikið að segja um sölu á refa-
skinnum. En vissulega hlytu refa-
bændur að vera bjartsýnni eftir
þetta uppboð en áður og útlit fyr-
ir að heldur sé að rofa til í loð-
dýrabúskapnum. Næsta uppboð
sem íslensk refaskinn verða til
sölu á er í Danmörku í febrúar.
-þá
Fyrir skömmu voru grunn-
skólanum á Hvammstanga
færðar að gjöf tvær tölvur af
gerðinni BBC Master, ásamt
skjám og prentara. Það var
kvenfélagið Björk sem færði
skólanum þessa höfðinglegu
gjöf sem kostaði um eitt
hundrað og ellefu þúsund
krónur.
Það var formaður kvenfélags-
ins, Tryggva Eggertsdóttir, sem
afhenti formanni skólanefndar,
Guðrúnu Hauksdóttur, tölvurn-
ar. Við það tækifæri kom fram í
máli Tryggvu að það væri von
þeirra kvenfélagskvenna að gjöf-
in mætti verða skólanum og starfi
hans til góðs. Ekki er að efa að
svo verði því það gerist nú æ al-
gengara að tölvukennsla sé val-
grein í eldri bekkjardeildum
grunnskólanna. Enda kom það í
ljós að nær allir nemendur
níunda bekkjar skólans hefðu
valið tölvur sem valgrein í vetur.
Kvenfélagið Björk hefur áður
gefið skólanum hljómflutnings-
tæki og auk þess staðið að margs
konar annarri aðstoð við stofnan-
ir á staðnum svo sem sjúkrahúsið
o.fl. G.Kr.
„Þaö er búiö að vera mjög gott
að gera í sumar og farþega-
Qöldi aldrei verið meiri,“ sagði
Leifur Hallgrímsson flugmað-
ur og einn eigandi Mýflugs í
Mývatnssveit, er hann var
spurður um flug með ferða-
menn yfir Mývatnssveit og
nágrenni.
Félagið sem hefur haft 2 flug-
vélar til afnota varð fyrir því
óhappi að önnur vélin fauk um
koll í vor og skemmdist mjög
mikið. Ný vél í hennar stað
fékkst ekki fyrr en um mánaða-
mót júlí-ágúst. „Við urðum af
talsvert miklum viðskiptum fyrir
vikið. Þrátt fyrir það varð um
70% aukning í farþegum frá því í
fyrra,“ sagði Leifur.
Mýflug hefur boðið upp á 6
mismunandi flugferðir, frá 20
mínútum og upp í 2ja tíma
ferðir. Styttri ferðirnar eru um
nágrenni Mývatns, en þær
lengstu eru allt suður yfir Vatna-
jökul, yfir Kverkfjöll og norður
með Jökulsá, allt niður að sjó og
til baka til Mývatns.
Þær vélar sem Mýflug á núna
eru eins og tveggja hreyfla. Hug-
myndin er að selja stærri vélina
og kaupa enn stærri og burðar-:
meiri vél í liennar stað.
Leifur sagði að farþegar væru
nánast allir erlendir ferðamenn.
„Það er talið til viðburðar ef
íslendingar fljúga með okkur,“
sagði Leifur. gej-
Aðalfundur
Knattspyrnudeildar Þórs
verður haldinn fimmtudaginn 9. október kl. 20.00 í
Glerárskóla.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Flugbjörgunarsveitin,
Akureyri, heldur
almennan félagsfund
að Galtalæk fimmtudaginn 9. október kl. 20.00.
Fundarefni:
1. Vetrarstarfið.
2. Endurnýjun á tækjum og öðrum búnaði.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Iðntækni í deiglunni
Nokkrar vangaveltur hafa ver-
ið undanfarið vegna hugsan-
legra breytinga á lögum um
iðnráðgjafa og iðnráðgjöf.
Nefnd, sem átti að fjalla um
iðnráðgjöf hefur nú skilað inn
áliti, þar sem talið er heppilegt
að lögum um iðnráðgjöf verði
lítið breytt frá því sem nú er.
Fjárveiting er á fjárlögum til
iðnráðgjafar, en eftir áramót
falla núgildandi lög úr gildi, og
ef ekki verður þá lokið við að
semja ný lög þá hefur iðnaðar-
ráðherra frjálsan ráðstöfunar-
rétt með það fé sem veitt hefur
verið í þetta á tjárlögum. Dag-
ur hafði samband við þá Inga
Björnsson hjá Iðnþróunarfé-
lagi Eyjafjarðar h.f. og Áskel
Einarsson, framkvæmdastjóra
Fjórðungssambands Norð-
lendinga, vegna þessa.
Áskell taldi, að ýmsar blikur
væru nú á lofti hvað varðaði
framtíð iðnþróunar á lands-
byggðinni. Vissir aðilar stefndu
að því að skerða þá þjónustu sem
væri fyrir hendi, eða leggja hana
jafnvel alveg niður í núverandi
mynd. Nefndi hann einkum
þrennt, sem verkaði í þessa átt.
1) Sparnaðarsjónarmið hjá ríkis-
sjóði. 2) Vilja Iðntæknistofnun-
ar til að vera eini opinberi aðilinn
sem veitti ráðgjöf á þessu sviði,
og: 3) Þá stefnu að sveitarfélög og
einstaklingar yfirtækju sjálf iðn-
ráðgjöf eða sæju um sig sjálf í
þessum efnum. Þá taldi Áskell,
Bakkafjörður:
Lífið er saltfiskur
Útgerð á Bakkafirði hefur
gengið þokkalega í sumar að
sögn framkvæmdastjórans hjá
Útveri hf. Þetta er trilluútgerð
og aflinn að langmestu leyti
þorskur sem verkaður er í
saltfisk. Auk Útvers eru tvær
aðrar verkunarstöðvar á
staðnum, hjá Elíasi Helgasyni
og Njáli Halldórssyni.
Aðspurður sagði framkvæmda-
stjórinn að þeir væru með einn 75
lesta bát á rækju, en hann land-
aði á Kópaskeri. Lífið hjá þeim
væri saltfiskur, sem þeir selja til
Miðjarðarhafslanda gegnum
Sölusamband íslenskra fiskfram-
leiðenda. Hjá Útveri vinna 10-30
manns, það er minna að gera á
veturna. Eitthvað eiga þeir af
skreiðarbirgðum á Bakkafirði,
eins og raunin er víðast hvar, og
væri óskandi að eins vel gengi að
selja hana og saltfiskinn. Gaman
væri að heyra meira frá þeim
eystra við tækifæri. SS
að ýmislegt væri athugavert við
hvernig að þessum málum hefði
verið staðið, t.d. hefði alltaf
vantað sjóð til að styðja við
grunnrannsóknir á sviði iðnaðar.
Ingi Björnsson var inntur eftir
því hvort breytinga væri að
vænta. Taldi hann að þessi mál
væru öll til athugunar hjá ráðu-
neytinu, en ekki væri neinna stór-
vægilegra breytinga að vænta á
næstunni. Til þess þyrfti, eins og
áður er sagt, lagabreytingu. Ef
vilji væri fyrir því að sveitarfélög-
in önnuðust sjálf rekstur iðnráð-
gjafar þá væri mikilvægt að fram-
lag ríkisins skertist ekki heldur
kæmu framlög sveitarfélaga fram
sem viðbót við það.
Hjá Iðntæknistofnun fékk Dagur
þær upplýsingar, að allt stefndi í
þá átt, að Iðntæknistofnun yrði
sá aðili sem gætti samræmingar í
störfum iðnráðgjafa um allt land,
þannig að eðlileg verkefnaskipt-
ing yrði milli þeirra. Það væri
hagkvæmast að ein stofnun stýrði
þessum málum. Stefna ráðuneyt-
isins væri að gera þjónustu iðn-
ráðgjafarinnar markvissari og
endurskipuleggja hana í því til-
liti. Hlutverk iðnráðgjafa væri að
liðsinna smærri fyrirtækjum, þar
sem þjónusta þeirra og Iðntækni-
stofnunar væri mun ódýrari en
þjónusta sem einkaaðilar eins og
Hagvangur veita. Auk þess
aðstoðaði Iðntæknistofnun ein-
staklinga og lítil fyrirtæki til að
sækja um styrki til Iðnþróunar-
sjóðs. EHB
c§3Húsnæðisstofnun ríkisins
Viðskiptafræðingur óskast
Óskum eftir að ráða viðskiptafræðing til starfa í
lánadeild stofnunarinnar. Um er að ræða vinnu við
verðútreikninga og margvíslegar athuganir á þró-
un húsnæðis- og byggingarmála. í boði eru góð
laun og prýðileg starfsaðstaða. Nánari upplýsingar
veita framkvæmdastjóri stofnunarinnar og for-
stöðumaður Byggingarsjóðs verkamanna.
Þeir, sem áhuga hafa, vinsamlegast sendi nöfn
sín, heimilisföng og símanúmer í lokuðum umslög-
um til framangreindra aðila fyrir 10. október
næstkomandi.
[§oHúsnæðisstofnun ríkisins
___________LÁNADEILD____________
LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVIK
Kjördæmisþing
framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi
eystra verður haldið á Húsavík dagana
31. okt. og 1. nóv.
Dagskrá nánar auglýst síðar.
Aukakjördæmisþing verður haldið sunnudaginn
2. nóv. á sama stað.
Félög eru hvött til að kjósa fulltrúa á kjördæmis-
og aukakjördæmisþing hið fyrsta.
Ennfremur er minnt á kjör fulltrúa á flokksþing.
Stjórn KFNE.