Dagur - 31.10.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur
Akureyri, föstudagur 31. október 1986
205. tölublað
Ogsvokom
solin upp
Stefna bæjarstjórnar
byggð á viðhorfum
bæjarbúa
10
Hólmgeir
Valde-
marsson
- á línunni
gr
D
Meðan hjartað
dældi blóðinu
í ruslið...
- 5já kafla úr bókinni
Verksmiðjustörf:
Heildarlaun karla tuttugu
þús. krónum hærri en kvenna
- á mánuði samkvæmt launamálakönnun Kjararannsóknanefndar
Á dögunum voru birtar niður-
stöður úr launamálakönnun
Kjararannsóknanefndar. Eins
og skýrt hefur verið frá í Degi
kom fram mikill munur á laun-
um þeirra sem starfa á höfuð-
borgarsvæðinu annars vegar
og þeirra sem starfa á lands-
byggðinni hins vegar. Jafn-
framt var umtalsverður munur
á launum kvenna og karla sem
stunda sömu atvinnu.
Athyglisvert er að skoða niður-
stöðurnar úr einstaka starfsgrein-
um. í verksmiðjuvinnu eru mán-
aðarlaun á höfuðborgarsvæðinu
24.953 krónur; með álögum eru
launin 32.664 krónur og heild-
armánaðarlaun með yfirvinnu
39.909 krónur. Utan höfuðborg-
arsvæðisins eru þessar tölur mjög
svipaðar, munurinn er 500 krón-
ur á fyrri tölunum og 1000 krónur
á heildarmánaðarlaunum.
Þegar hins vegar munur á milli
kynja er skoðaður kemur annað í
Ijós. Ef litið er á landið allt hafa
karlar 27.650 krónur í grunnlaun
á mánuði en konur einungis
20.904 krónur. Munurinn því tæp
7 þúsund. Með föstum álögum,
svo sem bónusi, vaktaálagi og
fastri óunninni yfirvinnu o.fl.,
hækka karlarnir í 38.077 krónur á
mánuði en konurnar fá hins veg-
ar 24.795. Munurinn er 13.282
krónur. Þegar unnin yfirvinna
bætist ofan á eykst munurinn
enn. Þá eru heildarlaun karla að
meðaltali 48.346 en kvenna ein-
ungis 27.862. Þar munar orðið
20.484 krónum, sem er nánast
sama upphæð og fiskvinnslufólk
fær greitt í grunnlaun á mánuði!
Á dögunum ákvað stjórn
Byggðastofnunar að stofna
stjórnsýslumiðstöðvar í kjör-
dæmum landsins og jafnframt
að hin fyrsta yrði staðsett á
Akureyri. Á fundi bæjarráðs
Siglufjarðar í gærmorgun var
samþykkt samhljóða svohljóð-
andi tillaga frá Kristjáni
Möller og Brynju Svafarsdótt-
ur.
„Bæjarráð fagnar samþykkt
stjórnar Byggðastofnunar um að
koma upp stjórnsýslumiðstöðv-
um í kjördæmum landsins.
Bæjarráð vill um leið óska eftir
því við stjórn Byggðastofnunar
að þegar stjórnsýslumiðstöð fyrir
Norðurland vestra verði staðsett
Eina hugsanlega skýringin á
þessum mikla launamun milli
kynja er sú að karlarnir hafi
almennt meiri starfsreynslu en
konur og gegni auk þess ábyrgð-
armeiri störfum. En sú skýring
dugar varla til að skýra þennan
mun að öllu leyti. BB.
þá verði hún staðsett á Siglufirði
og telur bæjarráð að með því sé
stuðlað að byggðajafnvægi í kjör-
dæminu. Bæjarráð leggur ríka
áherslu á þetta mál og samþykkir
því að bjóða Byggðastofnun
skrifstofuaðstöðu undir stjórn-
sýslumiðstöð í ráðhúsi bæjarins.“
Nokkur umræða er um þetta
mál á Siglufirði og mikill áhugi
fyrir því að fá þessu framgengt.
Viðmælandi blaðsins sagði að
Siglfirðingum þættu Sauðárkrók-
ur og Blönduós hafa setið einir
að þeim embættum sem hafa ver-
ið sett í kjördæmið á vegum ríkis-
ins og Siglfirðingar hefðu orðið
nokkuð afskiptir hvað þetta varð-
aði og þeirra tími væri kominn.
ET
Siglfirðingar vilja
stjómsýslumiðstöð
- Bæjarráð býður húsnæði í ráðhúsinu