Dagur - 31.10.1986, Blaðsíða 7
31. október 1986 - DAGUR - 7
skipar mér að koma suður í
hvelli rétt eins og ég búi í
miðbæ Reykjavíkur en ekki á
Hvammstanga þar sem nú geis-
aði norðaustan stórhríð, eins og
hún er verst á Noðurlandi.
Þar með var ég settur af.
Ég var búinn að aka fullur um
allt héraðið og velta bílnum, en
héraðsmenn réttu hann við fyrir
lækni sinn. Ég var meira að
segja búinn að aka yfir löppina
á sjálfum mér, og ég hafði sofið
hjá, hvar sem lúra gerði. Konan
mín leit á þetta sem óskaplegan
ósigur fyrir mig, og ég bölvaði
því að hafa aldrei náð að klára
úr flöskunni."
— ★ -
„Það sem gildir í þessu stríði
er að gefast ekki upp en gefast
upp. Þegar þú ert tilbúinn að
fórna öllu til þess að ná árangri
þá gengur það. Þegar þú liggur
marflatur fyrir almættinu,
auðmýktur og veikur, þá geng-
ur það.
Það var erfitt fyrsta árið. Ég
var ákaflega ruglaður. Mig
vantaði vinnu, fjölskyldan
farin, fjárhagur í kaldakoli.
Þá hitti ég ritara þessarar
bókar. Hann spurði:
- Hvernig líður þér? Liggur
vel á þér?
Það liggur ómögulega á
mér.
- Hvernig gengur þér?
Mér gengur andskotann
ekkert. Þetta er allt ómögulegt,
þetta er helvíti.
- Fínt, elsku vinur, það er
fínt. Nú loksins líst mér á þig.
Áður hafði nefnilega allt ver-
ið gott í hverju svari, en ekkert
gengið.
Nú reyni ég að vera sáttur við
sjálfan mig. Ég var orðinn svo
óheiðarlegur. Meðan ég er
heiðarlegur gagnvart lífinu er
ekkert að óttast. En eitt er víst:
Mín brennivínslöngun kemur
ekki fyrr en eftir fyrsta sopann.
Þín ekki heldur.“
tJtvegsbankinn
^.kynnir
nýja, almenna
spamaðaraðferð
-A_Með henni geta allir sem spara stefnt á hina háu vexti bundinna reikninga.
Allir, — ekki bara þeir fjársterku.
maður. Það er hörmuleg upp-
götvun. Ég er illa farinn líkam-
lega og var skorinn upp við
krabbameini og er hættur að
reykja. En ég vil ekki vera að
hugsa um það sem mig vantar,
heldur vera ánægður með það
sem ég hef.
Almannarómurinn hefur
lengi nærst á mér. Nú er ég
þreyttur og hver láir mér það.
Ég er orðinn gleyminn, en ég
man að ég skulda almættinu líf
mitt og ég er að reyna að greiða
þá skuld niður með því að taka
vel neyðarhrópum manna, sem
þarfnast hjálpar og umhyggju.
Ég get alls ekki neitað sumum
þessara manna um fyrirhöfn og
akstur út í nóttina til að hitta þá
þegar þeir eru búnir að drekka
sig úr stiganum sem liggur til
frama og áhrifa. Það er mikið
fall þegar þeir skella á jörðina
og þungur dynkur. Þetta eru
kannski menn sem litu í vork-
unn á Gunnar Huseby þegar
hann setti svip á strætið, en
réttu honum hjálparhönd, gáfu
að borða eða leyfðu honum að
lúra í homi. Nú get ég þakkað
fyrir mig.
Ég hef oft platað dauðann,
stungið hann af á gamla sprett-
inum. Snerpan sagði til sín og
ég hvarf fyrir horn eins og vind-
urinn. Ég var alltaf fljótur úr
startholunum í þá gömlu og
góðu daga á Melavellinum. En
ég veit að sá dagur kemur að
engin startbyssa getur ræst mig
úr sporum. Hver stendur þá á
verðlaunapalli eilífðarinnar? Ég
vona að ég verði ekki neðar-
lega.“
Og þetta getur fólk gert af fullu öryggi, því það hefur góða
baktryggingu: Reynist bindingin því ofviða, getur það komið í
bankann, sótt fé sitt og náð fullri ávöxtun Innlánsreiknings
með Ábót.
SVONA BERÐU ÞIG AÐ
Þú þarft að eiga fé á Innlánsreikningi með Ábót og stefna á að
taka það ekki út í 18 mánuði. Svona einfalt er það. Og þú þarft
ekki að tilkynna bankanum þennan ásetning þinn. Eigirðu
ekki fé á Innlánsreikningi með Ábót þá geturðu auðveldlega
bætt úr því á næsta afgreiðslustað bankans.
OG VEXTIRNIR HLAÐAST UPP
Þessi nýja sparnaðaraðferð er Lotusparnaður.
Fyrsta lotan stendur í 18 mánuði og gefur háa vexti.*
Önnur lota tekur strax við, ef eigandinn lætur féð standa
óhreyft áfram. Hún stendur í 6 mánuði og gefur enn hærri
vexti.*
Þriðja lota stendur í 6 mánuði og enn hækka heildarvextir*
af öllu sparifénu.
Fjórða lotan varir einnig í 6 mánuði og að henni lokinni er
hæstu vöxtum* Lotusparnaðarins náð.
EINSTAKT ÖRYGGI
Hið einstæða við Lotusparnað er að þú getur hafið hann hvenær sem er, alveg
formálalaust, og hætt honum jafn óformlega.
Þurfir þú á hinu sparaða fé að halda, þá tekur þú það út og rýfur þar með
Lotusparnaðinn í það sinn. Þúfcerð vexti á alla uþþbœðina, samkvcemt því
lotustigi sem þú náðir. Og þótt þú náir ekki að Ijúka fyrstu lotu, þáfcerðu
samt fulla Ábótarvexti fyrir allan þann tíma sem uþþhœöin stóð óhreyfð.
ÞETTA ER ÖRYGGI SEM FORSJÁLIR KUNNA AÐ META.
L O T U
SPARNAÐUR
HIN NÝJA, ALMENNA SPARNAÐARAÐFERÐ
* Vaxtatölur verður leyfilegt að kunngera nk. þriöjudag
GYLMIR/SlA