Dagur - 31.10.1986, Qupperneq 11
31. október 1986 - DAGUR - 11
Allt
á
hvolfi
Bandaríska sportflugmanninum
Craig Hosking fannst allt of einhæft
að fljúga á venjulegan máta. Þess
vegna kom hann aukasetti af lend-
ingarhjólum fyrir á þaki listflugství-
þekju sinnar. Síðan hefur hann sig til
flugs, flýgur og lendir á hvolfi,
áhorfendum til mikillar skemmtun-
ar. Þær flugsýningar sem Hosking
tekur þátt í eru líka alltaf vel sóttar.
Hann neitar því þó ekki, að það sé
mun þægilegra að stíga út úr vélinni
á réttum kili. Það vefst ekkert fyrir
listflugmanninum að snúa fljúgandi
vélinni létt og leikandi á hvolf og
lenda svo silkimjúkt. En til þess að
komast niður úr flugmannssætinu
notar hann rafknúna vindu. Sömu
aðferð notar hann til að stíga um
borð. f*að er heldur kannski ekkert
undarlegt, þótt Hosking sé illa við
langan biðtíma fyrir flugtaksleyfi.
Honum finnst nefnilega hreint ekki
þægilegt til lengdar að sitja með fæt-
urna upp í loft. <stern 33/1986,
þýd. Magnús Kristinsson)
Hvernig verður komið í veg
fyrir að borpallarnir sökkvi?
Gasi, vatni og köfnunarefni er dælt niður í jarðlögin í stað olíunnar til að
koma I veg fyrir að borpallamir sökkvi I hafið. Á norska Ekofisk-svæðinu
hafa pallarnir sigið þrjá metra niður.
Þegar olíu er dælt upp af hafs-
botni, eins og m.a. á sér stað í
Norðursjónum, mætti ætla, að
hafsbotninn gæti brotnað niður
undan þungum borpöllunum,
þegar olíu- og gashólfin eru
tæmd. Hvernig tryggja menn
sig gegn því, að slíkt geti
gerst? Þessu svarar Jörgen Bo
Nielsen verkfræðingur á þessa
leið:
Pað er engin hætta á skyndi-
legu hruni undan borpöllunum í
Norðursjó, vegna þess að olían
og gasið em ekki í stómm holrúm-
um, sem smátt og smátt tæmast.
Olían og gasið eru í smáholum
í kalklögunum, sem finnast á
mismunandi dýpi undir Norður-
sjónum. Eiginlega má líkja þeim
við töflukrít, sem maður hefur
látið sjúga í sig olíu stundarkorn.
Þegar olíunni og gasinu er dælt úr
þessum jarðlögum, þolir kalkið
að nokkru meiri þunga en áður,
og að hluta til fyllast smáholurnar
af vatni, sem streymir alls staðar
að. Það verða því ekki eftir nein
holrúm, sem hætta er á að falli
skyndilega saman.
Og jafnvel þótt við ímynduð-
um okkur, að það yrðu til
holrúm, þá væri engin hætta á að
hafsbotninn brotnaði. Það kemur
til af því, að þau lög, sem dælt er
úr, eru á miklu dýpi undir botni
Norðursjávarins.
Til dæmis er olíunni og gasinu
á Ekofisk-svæðinu dælt úr tveim-
ur lögum, sem eru 3000 og 3200
metra undir hafsbotninum. Þungi
borpallanna gæti ekki valdið
hruni svo langt niðri.
Engu að síður sýna mælingar,
að Ekofisk-svæðið sígur. Mjög
stórt svæði, 50 ferkílómetrar, síg-
ur um það bil hálfan metra á ári
og hefur gert í nokkur ár. Þetta
kom olíufélögunum á óvart, og
því var ekki veitt eftirtekt fyrr en
menn fóru að undrast hversu
djúpt var orðið á borpöllunum.
Skýringin er sú, að vatnið ryð-
ur sér ekki braut inn í krítarlögin
af sama hraða og olíunni er dælt
upp. Þess vegna dregst hafsbotn-
inn niður. Norðmenn eru að
reyna að leysa þetta vandamál
með því að dæla gasi, vatni og
köfnunarefni niður í undirdjúpin
í staðinn fyrir olíuna.
Borpallarnir mega ekki síga of
mikið, því að þá verður þeim
hættara við áföllum af stórsjóum.
Aðrar hugmyndir um lausn
vandamálsins hafa verið þær að
lyfta þessum feiknaþungu pöllum
upp eða að byggja 1' kringum þá
garða, sem öldurnar brotnuðu á.
Sig þekkist víða annars staðar,
þar sem olía eða gas er unnið úr
lögum, sem liggja nærri yfirborði
jarðar, t.d. í Bandaríkjunum
suðaustanverðum.
Raunar er það alveg sambæri-
legt fyrirbæri, sem veldur því, að
stöðugt dýpkar á Feneyjaborg.
En þar er það vatn, sem unnið er
úr jörðu, ekki olía og gas.
Þýð. Þ.J.
Akureyri:
Dansskóli Sigvalda
í nýjan sal
Uansskóli Sigvalda á 5 ára
starfsafmæli hér á Akureyri og
hann flytur í nýjan sal á laugar-
dag. Búið er að innrétta sal að
Furuvöllum 1 og fær Sigvaldi
loks fast aðsetur eftir flutninga
undanfarin ár. Tímamótanna
verður minnst á laugardags-
kvöld og eru allir núverandi og
fyrrverandi nemendur hans
velkomnir.
Boðið verður upp á kokteil
milli kl. 8.30 og 10 og að sjálf-
sögðu verður boðið upp í dans á
eftir. Þar er um að ræða fyrsta
dansleik vetrarins sem dans-
klúbbur fólks í skólanum stendur
að. Dansklúbburinn mun halda
dansleik einu sinni í mánuði sem
fyrr.
Að sögn Sigvalda er aðsókn að
skólanum góð, sérstaklega hjá
fullorðnum svo og hjá yngri
krökkunum. Hann lýsti yfir
ánægju sinni með nýja salinn,
sem er mjög hentugur fyrir starf-
semina, enda innréttaður með
hana í huga og nemendur hafa
sjálfir lagt hönd á plóginn. SS
Tannlækningastofa
á Akureyri
Hef opnað tannlækningastofu í Kaupangi við Mýrar-
veg, (neðri byggingu). Viðtalstímar eftir samkomu-
lagi. Sími 27073.
Bessi Skírnisson, tannlæknir.
Innilegt þakklæti sendum við öllum þeim
sem minntust okkar á gullbrúðkaupsdegi
okkar 24. okt. sl.
Lifið heil.
SIGRÍÐUR PÁLÍNA JÓNSDÓTTIR,
HARALDUR SIGURGEIRSSON.
Til sölu myndavél
Myndavél Repromaster til sölu. Hentug fyrir auglýs-
ingastofur og smærri prentsmiðjur. Nánari upplýs-
ingar gefa Jóhann Karl Sigurðsson og Guðjón H.
Sigurðsson.
Sími: 96-24222.
„Adressuvél“ til söiu
Hentar mjög vel fyrir landsmálablöð og félög er þurfa
að senda út dreifibréf. Nánari upplýsingar gefa Jó-
hann Karl Sigurðsson og Hafdís Freyja Rögnvalds-
dóttir.
Sími: 96-24222.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Richardshúsi, suöurhl., Hjalteyri, þingl.
eign Sveins Eðvaldssonar o.fl. fer fram eftir kröfu Gunnars
Sólnes hrl. og veðdeildar Landsbanka fslands á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 5. nóvember 1986, kl. 14.00.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 65., 73. og 75. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Sjávargötu 4, Hrísey, þingl. eign Birgis R. Sig-
urjónssonar, fer fram eftir kröfu Byggðastofnunar og inn-
heimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 5.
nóvember 1986, kl. 16.30.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.