Dagur - 18.12.1986, Blaðsíða 3

Dagur - 18.12.1986, Blaðsíða 3
18. desember 1986 - DAGUR - 3 Ólafsfjörður: Jólairé frá vinabæ „Við erum búnir að fá stórt og fallegt jólatré að gjöf frá Hille- röd sem er vinabær okkar í Danmörku,“ sagði Valtýr Sig- urbjarnarson bæjarstjóri í Óiafsfirði. Jólatréð sem Ólafsfirðingar fengu sent frá Danmörku er um 10 metrar á hæð. „Við ætlum að tendra ljós á þessu tré núna í vik- unni og hafa örlitla viðhöfn í sambandi við það,“ sagði Valtýr. gej- Skagafjörður: Sýslunefnd ályktar um flugvallarmálið A föstudag og laugardag var haldin Luciu-hátíð í Akureyrarkirkju. Karlakór Akureyrar söng undir stjórn Atla Guð- laugssonar, sem stjórnaði einnig Lúðrasveit Akureyrar á hátíðinni. Sigrún Hjálmtýsdóttir söng við mikla hrifningu áheyrenda. Sérstaka athygli vakti kór Barnaskóla Akureyrar, en Birgir Helgason hefur stjórnað kórnum síðan 1959. Hér sést kórinn syngja lag Birgis Helgasonar, „Kom blíða tíð“, við ljóð Valdimars V. Snævarr. Mvnd: ehb Landsvirkjun hækkar rafmagn um 7,5%: A fundi sýslunefndar Skaga- fjarðar fyrr í vikunni var gerð ályktun þess efnis að sýslu- nefndin muni vinna með Sauð- árkróksbæ að því mikla hags- munamáli fyrir bæ og sýslu, að við Sauðárkrók komi varaflug- völlur fyrir millilandaflug. Var ályktunin samþykkt sam- hljóða. Á fundi bæjarstjórnar Sauðár- króks á þriðjudag lýsti Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri yfir ánægju sinni með ályktun sýslu- nefndar og afstöðu hennar í þessu máli. Fyrir dyrum standa nú viðræður milli aðila frá Sauð- árkróksbæ og landeigenda á Sjávarborg um kaup á landi sem þarf undir lengingu vallarins til suðurs, eins og áformað er að gera. -þá Blönduós: „Búðin“ flutt í nýtt húsnæði Nýlega flutti „Búðin“ á Blönduósi ■ nýtt og rúmbetra húsnæði að Húnabraut 13. „Búðin er sérverslun með fatnað, garn og skartgripi. Versl- unin var áður til húsa í bílskúr, en við flutninginn fæst mun meira rými og hefur vöruúrvalið aukist talsvert, ekki síst í leðurfatnaði. Hið nýja húsnæði er mjög bjart og vistíegt og Dagur óskar eig- andanum Kristínu Mogensen til hamingju með nýja húsnæðið. G.Kr. Á laugardaginn voru nemendatónleikar Tónlistarskólans á Akureyri haldnir í Akureyrarkirkju. Fjölmenni var á tónleikunum sem voru mjög skemmtiiegir. Hér sjást börn leika á blokkflautur undir stjórn kennara síns, Lilju Hall- grímsdóttur. Mynd: EHB Knútur Karlsson framkvæmda- stjóri Kaldbaks sagði þessi síldar- kaup áætlaða beituþörf fram á vorið. „Við keyptum síld til að frysta í beitu af Árnþóri, Hauga- nesi og Hring. Það verður ekki áframhald á þessum síldarkaup- um því við teljum okkur vera komnar með það sem við þurfum fram á næstu síldarvertíð, enda held ég að það séu flestir hættir á síld fyrir austan og komnir suður fyrir land,“ sagði Knútur. Nokkru meiri afli hefur borist á land á Grenivík miðað við sama tíma f fyrra. Knútur sagði að sumarið hefði verið gott og alveg fram á haust, en síðustu mánuðir hefðu ekki gefið eins vel og reiknað hafði verið með vegna ótíðar. Aðspurður kvaðst hann ekki sjá fram á góða afkomu því skipið sem þeir gera út er með lágan kvóta og hefur verið bund- ið við að sjá Kaldbak fyrir hrá- efni og er fyrirsjáanlegur halli á þeirri útgerð. SS Smásöluverðið hækkar um Stjórn Landsvirkjunar fjallaði á fundi sínum í fyrradag um rekstraráætlun og gjaldskrá Landsvirkjunar fyrir árið 1987, en áætlunin hefur nú verið endurskoðuð með hliðsjón af nýgerðum kjarasamningum og þeim verðlagsspám, sem gerð- ar hafa verið í kjölfar þeirra, þ.e.a.s. að verðbólga verði ekki meiri en 7-8% á árinu og gengi verði stöðugt. Hin endurskoðaða rekstrar- áætlun ber með sér að óhjá- kvæmilegt er að hækka gjaldskrá Landsvirkjunar til að vega upp á móti almennum verðlagshækkun- um á næsta ári miðað við þá 7- 8% verðbólgu, sem núverandi efnahagsspár gera ráð fyrir, auk þess sem viðbótarhækkun gjald- skrárinnar væri æskileg vegna meiri lækkunar hennar að raun- gildi á árinu 1986 en stefnt var að fyrr á árinu. Að fengnum tilmælum stjórn- valda um að stilla hækkun gjaldskrár fyrirtækisins eins mik- ið í hóf og unnt er samþykkti stjórn Landsvirkjunar að ganga ekki lengra í hækkun gjaldskrár fyrirtækisins en svo að hún yrði innan marka almennrar verðlags- þróunar á næsta ári miðað við þá 7-8% verðbólgu, sem hinir nýgerðu kjarasamningar gera ráð fyrir. í samræmi við þetta sjón- armið samþykkti stjórnin hækk- un á gjaldskránni um 7,5% frá 1. janúar nk. og verður gjaldskráin því aðeins tekin til endurskoðun- ar á næsta ári að verulegar breyt- ingar verði á þessum verðlags- forsendum og núverandi gengi. Hækkar því verð á rafmagni frá Landsvirkjun til almenningsraf- veitna um 7,5% um nk. áramót, sem svarar til um 4,5% hækkunar á smásöluverði. Sú gjaldskrárhækkun, sem nú Á Grenivík var mjög góður afli í nóvember, 208 tonn á móti 73 4,5% hefur verið ákveðin felur það í sér að gjaldskrárverð Lands- virkjunar helst óbreytt að raun- gildi út næsta ár frá því sem það er nú. Hins vegar hefur raunverð raforku frá Landsvirkjun lækkað um 10% á því ári, sem nú er að líða og alls um 40% frá 1. ágúst 1983 að telja. Stjórn Landsvirkjunar er þeirr- ar skoðunar að með því að tak- marka gjaldskrárhækkunina við 7,5% sé henni stillt eins mikið í hóf og unnt er, enda mundi minni hækkun óhjákvæmilega leiða til erlendrar skuldasöfnunar um- fram forsendur lánsfjáráætlunar ríkisins. tonnum í sama mánuði í fyrra. Skýringuna er að finna í 115 tonnum af sfld, en engin síld kom að landi í nóvember ’85. Raunar var þetta mesta magn af síld sem barst á land í norð- lenskum höfnum þennan mánuð. Grenivík: Mikil síldarkaup hjá Kaldbak Ódýr skíðavesti. Verð kr. 1.290.- Hvítir sokkar. Verð frá kr. 50.- Húfur. Verð frá kr. 190.- Stígvél kr. 1.250.- Hestavörur í úrvali Beisli * Hnakkar, ódýrir * Úrval af stöngum ★ Múlar ★ Taumar og margt fleira. Hestasport Helgamagrastræti 30 Sími 21872 Opið frá kl. 14-19. Laugard. frá kl. 10-12. AEG ryksugur Alveg einstök gæði Heimilistæki í úrvali.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.