Dagur - 05.01.1987, Síða 8

Dagur - 05.01.1987, Síða 8
8 - DAGUR - 5. janúar 1987 FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI —leiklist____________________________________ Leikklúbburinn Saga sýnir Pæld’í’ðí: óskar að taka á leigu 2ja-4ra herbergja íbúðir sem fyrst. Vinsamlegast hafiö samband við skrifstofustjóra í síma 22100. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. RAFMAGNSEFTIRUT RlKISINS Orðsending til rafvirkja Nám til löggildingar í rafvirkjun sam- kvæmt nýjum reglum er fyrirhugað í fyrsta sinn á vorönn 1987. Umsækjandur skulu hafa svainspróf í rafvirkjun eða rafvélavirkjun og lokapróf frá íðnfræðslu- skóla og auk þess uppfylla inntökuskilyrði sam- kvæmt Stjórnartíðindum nr. 372, 31. júlí 1986. Nánari upplýsingar um námið fást hjá Rafmagns- eftiriiti ríkisins í síma 91-84133. Rahnagnsmftlrilt riklalna í tilefni af 70 ára afmæli Brunabótafélags íslands bjóðum við viðskiptavinum og vel- unnurum félagsins að líta inn til okkar, mánudaginn 5. janúar n.k., og þiggja hjá okkur kaffisopa. Bn«v«ðnváflG ísunos Akureyrarumboð Þórður Gunnarsson Auglýsing frá ríkisskattstjóra. Vísitala jöfnunarhlutabréfa Samkvæmt ákvæöum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknaö út vísitölu almennrar verö- hækkunar í sambandi viö útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1987 og er þá miðað viö að vísitala 1. janúar 1979 sé 100. 1. janúar 1980 vísitala 156 1. janúar 1981 vísitala 247 1. janúar 1982 vísitala 351 1. janúar 1983 vísitala 557 1. janúar 1984 vísitala 953 1. janúar 1985 vísitala 1.109 1. janúar 1986 vísitala 1.527 1. janúar 1987 vísitala 1.761 Viö útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miöa við vísitölu frá 1. janúar 1979 eöa frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgunar hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar viö vísitölu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveöin. Reykjavík 2. janúai 1987. Ríkisskattstjóri. Kynlíf unglinga og skelfing foreldra Leikklúbburinn Saga sýnir um þessar mundir leikritið Pældíðí og fara sýningar fram í Dyn- heimum. Meiningin er að sýna verkið víðar á Norðurlandi og vonandi rætist það því hér er um fróðlegt og skemmtilegt verk að ræða. Sumir minnast þess kannski að Alþýðu- leikhúsið sýndi þetta verk fyrir nokkrum árum við góðar undirtektir. Leikritið er þýskt að uppruna en þýðandi er Jór- unn Sigurðardóttir. Ljóð og söngtextar eru eftir Ólaf Hauk Símonarson, Arna Valsdóttir sá um búninga og leikmynd en leikstjórn er í höndum Skúla Gautasonar. Leikritið fjallar um unglinga, samskipti kynjanna og samskipti þeirra við foreldra. Aðalpersón- urnar eru Páll og Pála, fimmtán ára unglingar sem kynnast í skólanum og fara að pæla hvort í öðru. Þau eru ósköp feimin og eiga það sameiginlegt að kunn- ingjar þeirra eru miklu hressari, Haddi og Hanna. Eftir kunnug- lega byrjunarörðugleika byrja Páll og Pála saman, foreldrum þeirra til mikillar skelfingar. Fað- ir Pálu er hortugur heildsali og vill hafa stjórn á hlutunum, þar með teljast Pála og móðir hennar. Páll býr hins vegar hjá móður sinni og afa. Móðirin hef- ur þungar áhyggjur af framferði Páls en afinn hvetur hann til dáða og fylgist spenntur með. Við fylgjumst með áhyggjum foreldr- anna sem líta alvarlegum augum á samband Páls og Pálu og upp- reisn þeirra gegn foreldravald- inu. Flestir unglingar kannast við yfirheyrslurnar, skipanir um að koma si.emma heim, útivistar- bann, predikanir um óléttu, rifr- ildi og sambandsleysi kynslóð- anna. í leikritinu er þetta sett fram á kómískan hátt með ádeilubroddi þó. Þetta eru aðalpersónurnar í leikritinu sjálfu, en ekki er allt sem sýnist. Hefðbundið form er brotið upp. Tveir sögumenn, karlkyns og kvenkyns, gegna veigamiklu hlutverki í leikritinu, fræðsluhlutverki. Þetta er öðrum þræði fræðsluleikrit fyrir ungl- inga um kynlíf og getnaðarvarn- ir. Sögumenn skyggnast í hug aðalpersóna og miðla upplýsing- um til áhorfenda. „Ákjósanlegri“ kynlífshegðun unglinga er lýst og fróðleikur um getnaðarvarnir er áberandi. Ekki vil ég lýsa efni verksins nánar en bendi á að Pældíðí er ekki síður vel fallið til þess að opna augu fullorðinna. Hver hefur ekki þörf fyrir að rifja upp fyrstu kynnin af ástinni og kynlífinu? Þá hafa foreldrar gott af því að sjá lífsmynstur ungling- anna og hvernig ekki á að bregð- ast við gagnvart þeim. Þetta er skemmtilegt verk og sýningin síðastliðinn þriðjudag tókst vel enda var klappað lengi og innilega. Tónlistin skipar veg- legan sess og hana fluttu Sigfús Örn Óttarsson á trommur og Friðþjófur í. Sigurðsson á bassa og tókst óaðfinnanlega. Skúli Gautason og Arnar Kristinsson sáu um lýsingu og gekk þeim ágætlega að hemja ljósin. Ólöf Sigríður Valsdóttir lék móður Páls og rassinn á Pálu! Hún hefur greinilega öðlast reynslu á sviði og átti stórgóðan leik í báðum hlutverkum. Hinn eftirsóknarverði samfarablossi var líka persónugerður og var Magnús S. Sigurólason eftir- minnilegur Blossi. Hann var þó enn betri sem afi Páls og góður í hlutverki töffarans Hadda. Kraft- mikill leikari sem komst vel frá erfiðum hlutverkum. Gunnar Ingi Gunnsteinsson og Lilja Jóns- dóttir voru góðir sögumenn en ekki var ég hrifinn af búningum þeirra. Annars voru búningarnir góðir hjá Örnu. Gunnar sýndi líka mikil tilþrif sem heildsalinn, faðir Pálu, og Lilja túlkaði móð- ur hennar vel. Garðar Á. Árna- son og Þóra A. Jósefsdóttir voru Páll og Pála. Einstaklega trú- verðugt par um 15 ára aldurinn. Þau eru auðvitað ung og reynslu- lítil sem leikarar en stóðu sig mjög vel. Raunar var furða hvað leikararnir voru markvissir mið- að við aldur og reynslu. Þeir gefa mikið af sér í leikinn og Skúla virðist hafa gengið vel að ná til þeirra. Það mátti meira að segja sjá mikið af Skúla í leik Gunnars Inga. Þeir sem voru í smærri hlut- verkum skiluðu sínu vel líka og í heild var sýningin afskaplega skemmtileg og er vonandi að fleiri fái að njóta hennar en þeir sem þegar hafa gert það. SS Gunnlaugur og Magnús sigruðu með yfirburðum Jólamót í bridds: Magnús Aðalbjörnsson og Gunnlaugur Guömundsson, sigurvegarar í jóla- móti Bridgcfélags Akureyrar í Vín. Hið árlega Jólamót Bridgefé- lags Akureyrar var haldið í blómaskálanum Vín við Hrafnagil laugardaginn 27. desember sl. 52 pör tóku þátt í mótinu en spiíað var eftir Mitchell-fyrirkomulagi. Þeir Gunnlaugur Guðmundsson og Magnús Aðalbjörnsson Akur- eyri, tóku forystu strax í upp- hafi og héldu henni allt til loka og sigruðu reyndar með nokkr- um yfirburðum. Lokastaða efstu para varð þessi: Stig 1. Gunnlaugur Guðmundss. - Magnús Aðalbjörnss., Ak. 812 2. Murad Serdar - Þorbergur Ólafsson, Rvík 763 3. Hörður Blöndal - Grettir Frímannsson, Ak. 731 4. Halldór Árnason - Jón V. Jónmundss., Ak. 724 5. Stefán Sveinbjörnsson - Sigurður Víglundsson, Ak. 716 6. Kristinn Kristinsson - Hákon Sigmundsson, Ak. 714 7. Örn Einarsson - Gunnar Berg, Ak. 701 8.-9. Þórarinn B. Jónsson - Jakob Kristinsson, Ak. 677 8.-9. Rögnvaldur Ólafsson - Gísli Pálsson, Ak. 677 10. Máni Laxdal - Sigurður Búason, Svalb.eyri 674 Meðalskor var 624 stig. Albert Sigurðsson var keppnis- stjóri en tölvuútreikning annaðist Margrét Þórðardóttir. Stigin voru reiknuð út með jöfnu milli- bili og staðan birt jafnóðum og jók það mjög á spennuna. Sparisjóður Glæsibæjarhrepps gaf eignarbikara í þrjú efstu sætin, bókaútgáfan Skjaldborg gaf bókaverðlaun í fimm næstu sæti, en auk þess var keppt um bikar sem eigendur blómaskálans Vín gáfu til mótsins. Á bikar þennan eru nöfn sigurvegaranna greypt og hann síðan geymdur í blómaskálanum, gestum til augnayndis. Ein umferð í sveitakeppni Bridgefélagsins, Akureyrarmóti, verður spiluð þriðjudaginn 6. janúar í Félagsborg og hefst keppnin klukkan 21.30. BB.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.