Dagur - 05.01.1987, Blaðsíða 12
Akureyri, mánudagur 5. janúar 1987
Stórbætt þjónusta
Getum smíðað alla vega púströr.
Eigum til beygjur 45° og 90°
Stóraukið úrval af kútum, pakkningum og
festingum í flesta bíla.
ísetning á staðnum
CM
CM
o>
Varahlutaverslun
Húsavík:
Á fundi Bæjarráðs Húsavíkur
þann 30. des. lagði Bjarni
Aðalgeirsson bæjarstjóri fram
uppsagnarbréf sitt. I bréfinu
tók hann fram að uppsögnin
stafaði ekki af neinni óánægju
heldur teldi hann nú æskilegan
tíma til að breyta til í starfi.
í viðauka við ráðningarsamn-
ing Bjarna kemur fram að hann
hafi ekki hug á að starfa út kjör-
tímabilið. Ekki er kveðið á um
uppsagnarfrest í ráðningarsamn-
ingnum en Bjarni telur af sinni
hálfu æskilegast að hætta störfum
um mánaðamótin apríl/maí.
í samtali við Dag ítrekaði
Bjarni að ekki væri um neina
óánægju að ræða. Hann rekur
útgerðarfyrirtæki og sagði að
ekki gengi öllu lengur að sinna
þeint störfum samhliða bæjar-
stjórastarfinu, það væri skamm-
tímastarf en starfið við útgerðina
væri langtímastarf sem hann vildi
ekki fórna.
Hörður Þórhallsson hafnar-
vörður hefur einnig sagt lausu
starfi sínu hjá Húsavíkurbæ og
verðurstaðan auglýst á næstunni.
IM
Himinninn leiftraði í blíðskaparveðri á gamlarskvöld, enda var miklu magni af flugeldum skotið upp. Hjálparsvcit
skáta scldi meira en nokkru sinni fyrr. Mynd: KGA
veiðiferð hins nýja rækjuskips
Oddeyrar EA.
Oddeyrin sem er eitt rað-
smíðaskipanna í eigu Samherja
hf., K. Jónssonar hf. Akureyrar-
bæjar ög fleiri, fór í s'ína' fyrstu
veiðit'erð um miðjan desember
og kom til lands eftir 10 daga úti-
veru. Kom Oddeyrin með 30
tonn af rækju til hafnar.
..Miðað við veðrið á þessum
tíma, sem var mjög slæmt, erum
\ið fyllilega sáttir við útkomuna.
Skipiö rcyndist bctur cn við átt-
um von á. Það tekur alltaf tíma
að aðlagast nýjum skiputn og
vandamálin sem upp koma eru
minni háttar, sem auðvelt verður
aó leysa,“ sagði Þorsteinn Már.
gej-
Itjarni Aðalgeirsson.
„Aö mínu áliti gekk fyrsta
veiðiferöin vel. Það koma allt-
af upp ýmis vandamál á nýjum
skipum, en með góðum vilja
verða þau leyst á næstu mán-
uðum,“ sagði Þorsteinn Már
Baldvinsson framkvæmda-
stjóri Samherja hf. um fyrstu
Oddeyrin EA-210
Mynd: EHB
Flugeldasala:
Aldrei
gengið
jafn vel
„Þetta hefur sennilega aldrei
gengið jafn vel. Það verður
hins vegar að taka það með í
dæmið að við vorum einir um
hituna að þessu sinni,“ sagði
Hilmar Aðalsteinsson gjald-
keri Hjálparsveitar skáta á
Akureyri aðspurður um það
hvernig flugeldasalan hefði
gengið fyrir nýliðin áramót.
Hilmar vildi ekki gefa upp
neinar tölur um söluna en gat
þess að aðfaranótt gamlársdags
hefði reynst nauðsynlegt að
sækja aukaskammt suður til
Reykjavíkur.
Meðlimir sveitarinnar eru um
70 og sagði Hilmar að þeir sem
hefðu staðið í flugeldasölunni
hefðu nánast lagt nótt við dag í
þeirri vinnu.
„Við höfum undanfarin ár
staðið í miklum fjárfestingum í
sambandi við nýtt húsnæði og
sennilega fer allur ágóðinn í að
klára það á árinu. Það er því eins
víst að ekki verði um nein tækja-
kaup að ræða í ár,“ sagði Hilmar
og vildi koma á framfæri þökkum
til bæjarbúa fyrir veitta aðstoð.
Vallhólmi:
Alvar-
legt
vinnu-
slys
Rétt fyrir áramótin stórslasað-
ist starfsmaöur í grasköggla-
verksmiðjunni Vallhólma í
Skagafirði þar sem hann var
einn við vinnu sína. Náði hann
við illan leik að komast í síma
í vcrksmiðunni og gera
viðvart. Er sjúkrabíll frá Sauð-
árkróki kom á vettvang
skömmu síðar hafði hinum
slasaða blætt mikið og féll
hann í yfírlið í þann mund er
hann var færður í sjúkrabflinn.
Hann var síðan umsvifalaust
fluttur með flugvél suður.
Starfsmaðurinn var að ganga
frá fulllestuðum vörubíl er hann
féll, líklega með höfuðið á undan
niður á pallbrúnina, með þeim
afleiðingum að hann nefbrotnaði,
kinnbeinsbrotnaði báðum megin
og bæði efri og neðri kjálki
brotnuðu. Þá losnuðu tennur, en
taldar eru góðar líkur á að þær
nái festu á ný. Góðar líkur eru á
að andlitsaðgerðin hafi heppnast
vel. Líðan hins slasaða sem liggur
á Borgarspítalanum er eftir
atvikum. -þá
Svæðið milli Héraðsvatna og Blöndu:
Samkomulag um
aðgerðir gegn riðu
„Það telst hafa náðst sam-
komulag milli bænda á svæð-
inu milli Héraðsvatna og
Blöndu og sauðfjárveikivarna
um samræmdar aðgerðir gegn
riðu á þessu svæði. Samkomu-
lagið felst í því að bændur
skuldbinda sig til að skera fjár-
stofninn verði riða staðfest í
þeirra hjörð,“ sagði Siguröur
Sigurðsson oddviti á Brúna-
stöðum í Lýtingsstaðahreppi í
samtali. Nýlega voru haldnir
að tilstuðlan sveitarstjórna og
riðunefnda á þessu svæði fund-
ir með bændum þar sem mikl-
ar umræður urðu um hvernig
bregðast skyldi við riðuveik-
inni sem á síðari árum hefur
gert æ meira vart við sig á
svæðinu.
Sigurður var spurður hvort
hann héldi að þessar aðgerðir
mundu duga. „Eg held að það
detti engum í hug að það sé ráð-
legt að skera allan fjárstofn á
þessu svæði, vegna þess að það
hafa svo margir hér sitt lífsviður-
væri af sauðfjárrækt og mikil
atvinna sem skapast af vinnslu
afurðanna. Og þó að öllu sauðfé
yrði fargað á þessu svæði er von-
lítið að hægt yrði að koma í veg
fyrir að fé af öðrum svæðum
kæmist inn á þetta svæði. Af
þessum sökum held ég að þetta
sé virkasta aðferðin.“ Sigurður
sagði menn nokkuð bjartsýna, að
takast mætti að drepa veiruna í
útihúsum á þeim bæjum sem
veikin hefði komið upp og niður-
skurður farið fram. Bændur eru
skyldugir að taðhreinsa og
skrúbba hús sín vel með klór og
joði, þau efni eiga að drepa
riðuveiruna og eru talin hafa
reynst vel í þessum tilgangi.
Einnig er skylda að skipta um
jarðveg kringum hús. Þá er í
samkomulaginu ákveðið að á
næstu árum verði haft aukið eftir-
lit með fullorðnu fé sérstaklega á
þeim bæjum sem veikinnar hefur
orðið vart einhvern tíma.
Að undanförnu hefur verið
skorið niður vegna riðu á þremur
bæjum í Lýtingsstaðahreppi í
Skagafirði alls um 700 fjár og á
tveimur bæjum úr Vindhælis- og
Engihlíðarhreppi í A.-Húna-
vatnssýslu alls um 800 fjár. Fyrr í
haust var fargað fé af tveimur
bæjum í Seyluhreppi í Skagafirði
um 200 kindum. -þá
Oddeyrin:
Úr fyrstu veiðiferðinni
með 30 tonn af rækju
Bjami
sagði upp