Dagur - 07.01.1987, Page 6

Dagur - 07.01.1987, Page 6
6 - DAGUR - 7. janúar 1987 Jóhann Gunnar Halldórsson er skólastjóri Tónlistarskóla Austur-Húnvetn- inga, sem hefur höfuðstöðvar sínar á Blönduósi en er jafnframt með kennslu á Skagaströnd og í Húnavallaskóla. Það er óhætt að fullyrða að uppgangur sé í starfsemi tónlistarskólans, nemendum fer fjölgandi frá ári til árs, skólinn er að smá eignast meira af hljóðfærum og 1983 eignaðist skólinn eigið húsnæði á Blönduósi. Orgd og píanó eru vinsælustu hljóðfærin - segir Jóhann Halldórsson, skólastjóri tónlistarskólans í Austur-Húnavatnssýslu Jóhann Gunnar leiðbeinir nemanda í píanóleik - Mér leikur forvitni á að vita Jóhann hvernig tónlistarskóli á ekki fjölmennara svæði en hér er, getur verið kominn í eigið hús- næði? „Það var þannig að eftir að hjónin Jónas Tryggvason og Þor- björg Bergþórsdóttir féllu frá, þá ákváðu erfingjar þeirra að gefa Tónlistarfélagi Austur-Húnvetn- inga húsið og það sem því fylgir. Síðan afhenti tónlistarfélagið skólanum þetta til urnsjár og notkunar. Jónas Tryggvason var einn af aðalhvatamönnum að stofnun tónlistarfélags og tónlist- arskóla hér á staðnum.” - Hvernig getur tónlistarskól- inn staðið undir svo miklum kostnaði sem það hlýtur að vera að reka húsnæðið, greiða kenn- urum laun og svo framvegis? „í lögum um tónlistarskóla er gert ráð fyrir því að ríkið og sveitarfélög skipta launakostnaði á milli sín, en skólinn stendur straum af öðrum kostnaði með skólagjöldum.“ - Hvað ert þú búinn að vera lengi skólastjóri við skólann? „Þetta er fjórða árið mitt sem skólastjóri, en ég hafði verið kennari við skólann í tvo vetur áður og þar áður var ég lítið eitt við kennslu í aukavinnu.“ - Segðu mér nú svolítið af sjálfum þér, eins og tónlistar- menntun og reynslu o.þ.h. „Ég byrjaði að læra á hljóðfæri hjá Fritch Weishappel þegar ég var tólf ára og þá á harmoniku, en svo snéri ég mér að saxófón sem var lengi mitt aðal hljóðfæri. Svo var ég í Tónlistarskólanum í Reykjavík í tónfræði og hljónt- fræöi. Á þessum tíma var ekki um svo auðugan garð að gresja í tónlistarnámi, það fór eiginlega allt nám fram í einkatímum og það kom ekki fyrr en seinna að tónlistarskólinn færi að útskrifa tónlistarkennara. En þegar að því kom var maður kominn út í lífsbaráttuna. Reyndar var á þessum tíma gerð krafa um að menn tækju próf inn í F.Í.H. og það var ansi strembið próf. Svo var það nú aflagt seinna, eða þeg- ar gítaröldin kom, bítlatímabilið, þá voru allir teknir inn í félagið, jafnvel þó að þeir kynnu ekki að lesa nótur.“ - Hvenær byrjar þú svo að kenna? „Það geri ég ekki fyrr en ég kem hingað norður. Þá vantaði þau einhvern til að kenna á harntoniku og saxófón, og ég tók það að mér í aukavinnu svona eftir því sem tíminn leyfði - Hvað eru margir kennarar við skólann og hvar kennið þið? „Það eru fimm kennarar, þrír í fullu starfi og tveir í hálfu starfi. Við kennum hérna í okkar hús- næði á Blönduósi og svo í grunn- skólanum á Skagaströnd og í Húnavallaskóla, en á Skaga- strönd er líka kennt í heima- húsi. “ - Hverjir eru það nú helst sem stunda nám í Tónlistarskólanum? „Það er ákaflega blandað. Það má segja að krakkar á grunn- skólaaldri séu í meirihluta, en ég er ákaflega ánægður með hvað það hefur aukist að fullorðnir drífi sig af stað og láti gamlan draum um að læra á hljóðfæri, rætast. Mér finnst ekki að aðal- málið hjá okkur sé að vera að leita að séníum, heldur að hjálpa fólki til að bjarga sér sjálft og að það geti haft gaman af tónlist- inni. Það er auðvitað voða gaman þegar séníin birtast það er engin spurning, en það er ekki aðal inálið að leita að þeim. Það er kannski rétt að segja að til- gangurinn sé ekki síst að kenna fólki að hlusta á tónlist, kenna því að hlusta öðruvísi en það hef- ur gert. Svo er annað vandamál sem tónlistarskólarnir úti á landi eiga við að glíma. Það er að þeg- ar krakkarnir eru orðnir sextán ára, þá missir maður þau í burtu, og það er voða sárt. En svona er þetta nú. Hér eru engir mögu- leikar til framhaldsnáms og það er því eðlilegt að þau fari, en eins og ég segi, það er sárt að þurfa að horfa á eftir þeim.“ - Nú er það svo að ýmsir sjá fyrir sér eitthvað alveg hund- leiðinlegt þegar minnst er á tón- listarskóla. T.d. alveg sérstakar týpur af fólki með fiðlur og flaut- ur búandi til leiðinda hávaða sem aðeins fáir útvaldir hafa gaman af. Er þetta svona eða getur verið gaman fyrir hvern og einn í tón- listarskóla? „Þetta fer alveg eftir einstakl- ingnum. Við förum hægt af stað og svo smá eykst þetta svona eftir getu og eftir því hvað nemand- ann langar þegar hann fer að ná einhverjum tökum á því sem hann er að fást við. Kennslan hjá okkur fer öll fram í einkatímum nema tónfræðin, og það eru engir tveir eins þannig að þetta er ákaf- lega einstaklingsbundið.“ - Þú sagðir áðan að það væri gaman þegar séníin kæmu fram á sjónarsviðið, hafa komið fram hér einstaklingar sem greinilega skara fram úr? „Já það hafa komið hingað nemendur sem hafa reynst mjög efnilegir og eru nú við frekara nám annars staðar, og ég bind miklar vonir við þá.“ - Hvað þurfa krakkarnir að vera orðnir gamlir til að geta byrjað að læra í tónlistarskólan- um? „Við höfum miðað við sex ára eða grunnskólaaldur. Þau þurfa helst að vera aðeins farin að geta stautað, minnsta kosti farin að þekkja eitthvað af stöfum. Þá setjum við þau venjulega fyrst á blokkflautuna en þó er það ekki algilt, t.d. ef það er til hljóðfæri á heimilinu þá er oft tekið mið af því.“ - Getur sex ára krakki spilað á píanó? „Já, já. Það er oft að eftir viss- an tíma er blokkflautan þeim ekki nóg og þau verða að fá eitthvað meira. Viljinn verður að koma frá krakkanum og hann verður að finna það að þetta sé fyrir hann sjálfan gert en hvorki fyrir kennarann né foreldrana. Við þvingum enga til að vera með það hljóðfæri sem hann ekki vill, þannig að vilji þau losna við flautuna og læra á orgel eða eitthvað annað þá er það þeirra val. Það er gott að ýta á, en ekki að skikka þau til neins. Þá er þetta orðin skylda og hætt við að ánægjan fari af náminu, en ánægja er nánast skilyrði til að vel takist." - En þú varst í hljómsveita- bransanum hér áður fyrr, varstu lengi í því? „Ég byrjaði 15 ára að spila í gamla Gúttó, var fyrst með nikk- una en snéri mér svo að saxófón- inum og ég verð nú að segja að maður var orðinn ansi þreyttur á þessari vinnu eftir hátt í þrjátíu ár.“ - Svo hefurðu verið tónlistar- stjórnandi hjá Leikfélagi Blöndu- óss undanfarin ár. Er ekki leiðin- legt fyrir mann með góðan tón- listarsmekk að vera að reyna að kenna fólki með takmarkaða getu og kannski lítið annað en viljann, að syngja t.d. í leikriti? „Það er bara gaman að þessu, virkilega gaman, og t.d. var alveg sérstaklega gaman að Norður- landaferðinni sem við fórum með Skugga-Svein. Auðvitað er stundum nauðsynlegt að byrsta sig svolítið, og það er alveg ótrú- legt hvað hægt er að ná góðum árangri. Ég hef haft ákaflega gaman af að starfa með leikfélag- inu, í þessi skipti sem ég hef verið með þeim hefur þetta verið ákaf- Jóhann Gunnar Halldórssun, skólastjóri. 7. janúar 1987 - DAGUR - 7 lega jákvæður hópur og ég hef gaman af því.“ - En aftur að tónlistarskólan- um. Hvað eru margir nemendur í skólanum í vetur? „Á fyrri önninni sem lauk núna fyrir jól voru eitt hundrað og ellefu nemendur og mér sýnist að þeir fari yfir eitt hundrað og tuttugu á seinni önninni sem hefst núna 17. janúar.“ - Hafa kennsluaðferðir breyst mikið frá því sem áður var? „Já, þá var maður látinn spila æfingar út og inn, það voru fingraæfingar aftur og aftur, en núna eru krakkarnir eiginlega strax látnir fara að spila lagstúfa eða það sem við getum sagt að séu svona útþynnt eða einfölduð lög, og svo eru æfingarnar svona inn á milli. En svona var þetta ekki áður, maður spilaði æfingar og æfingar og varð að vera búinn að fara yfir ansi mikið áður en maður fékk að fara út í eitthvað melódískt.“ - Hefur eftirsóknin í tónlistar- nám verið að aukast á undan- förnum árum? „Já þetta hefur aukist svona hægt og sígandi, það jókst t.d. á Skagaströnd í haust vegna þess að við fengum þangað enska stúlku í haust og hún kennir bæði á blásturshljóðfæri og píanó. Við höfum ekki almennilega getað annað kennslunni á Húnavöllum undanfarna vetur en í vetur kennum við þar fjóra daga vik- unnar og þannig getum við annað þörfinni þar.“ - Þú segir að þið hafið fengið enska stúlku til kennslu á Skaga- strönd. Af hverju enska, en ekki innlendan kennara? „Það var mikið búið að reyna til að fá innlendan kennara en það var engan að fá. Tónmennta- kennarar útskrifast ákaflega fáir á hverju ári og obbinn af þeim fer til útlanda í sérnám eða þá í störf á Reykjavíkursvæðinu. Ég veit ekki af hverju það er, en ef það er nefnt að fara norður yfir heiði þá er eins og fólk sjái einhvejum ofsjónum yfir því, og þó erum við hér í þjóðbraut." - Flvernig er hljóðfæraeign tónlistarskólans? „Ég þarf núna að panta tvo gít- ara, en þetta hefur lagast töluvert mikið á þessum seinustu árum, við eigum tvö orgel annað stað- sett á Húnavöllum og hitt hérna, við erum með eitt píanó hér og annað á Skagaströnd og við fáum afnot af píanóinu sem er á Húnavöllum, annað eigum við ekki. Reyndar var hérna starf- andi lúðrasveit og Blönduós- hreppur keypti sett fyrir hana sem ég hef haft afnot af.“ - Ég tek eftir að þú nefnir ekki fiðlu eða önnur strengjahljóðfæri nema tvo gítara sem á að fara að panta, hvað veldur? „Það er nú þannig með strengjahljóðfærin að það var hér kennari sem gat kennt á fiðlu, og það komu tveir nemendur, en þeir gáfust fljótt upp. Ég hefði gjarnan viljað að það væri hægt að kenna hér á strengjahljóðfæri en áhuginn virðist ekki vera nógur, þannig að þótt það fengist til þess kennari þá er hætt við að hann fengi ansi fáa nemendur, því miður.“ - Hvað er vinsælasta hljóðfær- ið hjá ykkur? „Það er orgelið og píanóið. Krakkarnir fara, svona flest, fljótlega frá flautunni yfir á orgel- ið eða píanóið.“ - Fá nemendurnir einhver tækifæri til að koma fram og sýna getu sína? „Við erum alltaf með jólatón- leika og vortónleika að lokinni önn. Þessir tónleikar voru núna haldnir á þeim stöðum þar sem kennslan fer fram, og svo förum við á milli með þá nemendur sem eru komnir svolítið lengra og lát- um þá koma fram á fleiri en ein- um stað. Draumurinn minn er sá að við getum haft hérna á Blönduósi svona litla stofutón- leika, af því hér höfum við þessa aðstöðu, en það hefur staðið á því, við höfum ekki haft efni á að kaupa stóla í stofuna. Þetta væru einhvers konar foreldratónleikar sem yrðu haldnir svona mánaðar- lega. Staðreyndin er sú að það er stórmál hjá blessuðum börnun- um, bæði að fá tækifæri til að koma fram og eins að æfa sig við það. Því það getur verið sjoKker- andi að eiga allt í einu að fara að spila fyrir troðfullu félagsheimili, og þurfa að standa uppi á sviði, það getur hreinlega orðið of mik- ið fyrir þau. Það væri því gaman og nauðsynlegt ef við gætum nýtt þetta húsnæði hér þannig, að við gætum þjálfað krakkana í að koma fram.“ - Komu margir á jólatónleik- ana? „Já, hérna á Biönduósi komu á milli 40 og 50 manns, svo það var þröngt setinn bekkurinn. Við höfum gert svolítið af því á Húnavöllum að hafa tónleika á milli þessara hefðbundnu tón- leika og við erum að vonast til að geta gert þetta út á Skagaströnd. Þannig að þetta er allt svona í átt- ina.“ - Eru það frekar krakkar frá heimilum þar sem hljóðfæri er til eða einhver úr fjölskyldunni leik- ur á hljóðfæri, sem koma til að læra? „Nei, ekkert frekar. Það má jafnvel segja að þetta sé smit- andi. Þannig lagað að einn byrjar, og ef honum líkar vel þá er það nú svo að hann fer að koma með félaga sína og spyrja hvort þeir megi ekki vera inni og fylgjast með. Þá er verið að athuga hvernig þetta fari nú fram og hvort þetta sé ekki óhætt, eða hvort karlinn sé ekki algert skass. Svona vill þetta nú þróast.“ - Sex ára krakki sem byrjar að læra í tónlistarskólanum, hvað er hann oft í viku og hvað lengi? „Hann á að fá tvisvar sinnum fimmtán mínútur í viku. En það hefur ekki reynst mér nógu vel, ég reyni að velja saman krakka og hafa þau tvö saman í hálftíma í einu. Þetta korter sem þeim er ætlað er varla nema til að segja halló og veriði bless.“ - Geta nemendur lokið ein- hverjum prófum frá Tónlistar- skóla A.-Hún.? „Já, menntamálaráðuneytið gefur út námsskrá fyrir hvert hljóðfæri, síðan eru tekin svo- kölluð stigapróf og það hefur aukist að fólk þreyti þau. Stiga- prófin eru samræmd, þannig að þau eiga að vera eins alls staðar. Ég kom því á þegar ég tók við hér, að við fáum utanaðkomandi prófdómara og reynum að forð- ast að þurfa að dæma sjálf.“ - Hvað tekur það nemanda langan tíma að vera tilbúinn til að þreyta próf? „Það er einstaklingsbundið, en þó myndi ég segja að það væri hæpið að hann væri undir það búinn fyrr en að tveim vetrum liðnum, þ.e. eftir fjórar annir. Eftir það er ekki ólíklegt að nemandinn ljúki einu stigi á ári, en svo þyngist þetta auðvitað smátt og smátt þannig að það ræðst bara af því hvað lagt er á sig, hvað hvert stig tekur langan tíma.“ - Er mikið tónlistarlíf í sýsl- unni, og lífvænlegt fyrir skólann í framtíðinni? „Já ég^myndi segja það. Það eru starfandi hérna kórar og tónl- istarfélagið. íslenska óperan hef- ur komið hingað á Blönduós tvisvar og verið vel tekið. Um skólann er það að segja að þetta fer rólega upp á við og það held ég að sé gott, ég er ekki viss um að það væri neitt æskilegt að það væru einhverjar stökkbreytingar í þessu.“ Á nýársnótt sást það fyrst opinberlega, og ætlar að verða varanlegt, en ekki hverfa aftur strax að þessari merkilegu nótt liðinni, eins og ýmislegt annað sem einungis sést þessa einu nótt. Hér að framan er ekki verið að fjalla um neina kynjaveru eða undarlegt fyrirbrigði, heldur hljómsveitina Árbandið sem lék í fyrsta skipti opinberlega á nýárs- dansleiknum í Félagsheimilinu á Blönduósi. Húsvíkingar eiga sína Greifa, Akureyringar Eydal og Skrið- jökla og nú lítur út fyrir að Hún- vetningar hafi eignast hljómsveit sem ætlar sér engu minni frama en þeir sem áður voru nefndir. Þegar undirritaður leit inn á æfingu hjá Árbandinu voru þeir í óða önn að æfa gömul og góð stuðlög, en tóku síðan smá syrpu til að leyfa mér að heyra, upp á hvað yrði boðið þar sem Árband- ið léki. Og það var greinilegt að breiddin var mikil, gömludansa- lögin, rokk af ýmsurn aldurs- skeiðum o.fl. og ekki var frurn- samda efnið af lakara taginu. Þeir fengust til að taka smá hlé og segja svolítið af sjálfum sér. - Hvaða tónlistarsviði verðið þið helst á? „Viö spönnum breitt svið í okkar flutningi, það má segja að það fari alveg eftir verkefnum. Við munum leika á þorrablótum, árshátíðum og þ.h. og svo stefn- um við náttúrlega á sumarmark- aðinn.“ - Er langt síðan þið hófuð æfingar saman? „Við höfurn æft stíft síöustu þrjá mánuðina. Það þýðir ekkert að gera þetta með hangandi hendi.“ - Verðið þið með eitthvaö af frumsömdu efni? „Já eftir Jón, hann semur og við vörpum því svo frant með honum.“ - Og er meiningin að leika eingöngu hér í kring eða ætlið þið ykkur eitthvað meira? „Við einskorðum okkur ekki við neitt ákveðið landsvæði, við spilum bara þar sent við erum beðnir að spila. hvort sem það er úti í Hrísey, á Höfn eða á Wembley." - Er kannski plata væntanleg með Árbandinu? „Já, við stefnum á að gefa út plötu fyrir sumarið, sem við ætl- um síðan að fylgja vel eftir." Þar með voru þeir þotnir að hljóðfærunum aftur. Þeir sem standa að Árbandinu eru engir nýgræðingar í tónlist, sem dæmi unt hljómsveitir sem þeir hafa starfað í má nefna: Seðla, Status, Lexíu, Rop og hljómsveitina Fimrn. G.Kr. Árbandið, f.v. Hannes Guðlaugsson, bassi, Jón Sverrisson, gítar og söngur, Halldór Vilbergsson, trommur, Guðmundur Engilbertsson, gítar og söngur, Indriði Jósafatsson, hljómborð og söngur.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.