Dagur - 07.01.1987, Blaðsíða 12
Bæjarráð um húsnæðisvanda bæjarskrifstofa:
Byggt verði við
Geislagötu 9
- Áætlaður kostnaður með byggingu
slökkvistöðvar tæpar 99 milljónir
A fundi bæjarráðs 18. desemb-
er síðastliðinn var lögð fram
greinargerð frá starfshópi sem
bæjarráð skipaði í október um
framtíðarskipan skrifstofu-
húsnæðis hjá Akureyrarbæ. I
greinargerð þessari er bent á
tvær leiðir sem til greina koma
til þess að leysa húsnæðis-
vanda bæjarins.
Annars vegar er sá möguleiki
að byggja við núverandi húsnæði
bæjarins og slökkvistöðvarinnar
að Geislagötu 9 en hins vegar að
kaupa húsnæði að Glerárgötu 26
af Norðurverki hf. Bæjarráð
samþykkti að stefna að hinu fyrr-
nefnda og var starfshópnum falið
að vinna að frekari útfærslu til-
lagnanna fyrir gerð fjárhagsáætl-
unar ársins 1987.
Báðar tillögurnar gera ráð fyrir
að ný slökkvistöð verði byggð og
er áætlaður kostnaður við það
verk rúmar 28 milljónir. Miðað
Leiruvegur
skal hann
heita
Þótt mörg stórmál væru á
dagskrá fundar bæjarstjórnar
Akureyrar í gær, svo sem
hækkun gjaldskrár hitaveitu
og rafveitu, álagning fasteigna-
gjalda og hækkun dagvistar-
gjalda, hlaut nafnið á nýja veg-
inum yfir Eyjafjörð norðan
flugbrautar mesta umræðu.
Svo sem kunnugt er lagði
Bygginganefnd Akureyrar til að
vegurinn yrði nefndur Vaðla-
braut, þó svo nafnið Leiruvegur
hafi fest við hann manna á meðal
síðustu mánuði. Bygginganefnd
taldi inálfræðilega rangt að nefna
veginn Leiruveg. þar sem leirur í
fleirtölu eignarfalli væru
„leirna“.
Mál þetta var rætt fram og aft-
ur í bæjarstjórn í gær og alls
kvöddu 8 af 11 bæjarfulltrúum
sér hljóðs. Þeir lögðu fram ýmis
gögn máli sínu til stuðnings, svo
sem Sögu Akureyrar og Árbók
Ferðafélags íslands. Utkoman
varð sú að sýnt þótti að orðið
leira væri ýmist notað í eintölu
eða fleirtölu og að bæði leirur og
vaðlar færðust úr stað í tímans
rás. Nafnið væri því hvorki bund-
ið af landfræðilegum forsendum
né málfræðireglum, heldur væri
það smekksatriði.
Endirinn varð sá að gengið var
til leynilegrar atkvæðagreiðslu
um nafngiftina og lágu þrjár til-
lögur fyrir: Leiruvegur, Vaðla-
braut og Vaðlavegur. Leiruvegur
hlaut átta atkvæði og Vaðlavegur
þrjú.
Hreppsnefnd Ongulsstaða-
hrepps fær nú mál þetta til
umfjöllunar og verður fróðlegt
að sjá hvert nafnanna nýtur
mestrar hylli þar um slóðir. BB.
er við að þetta verk verði unnið á
árunum 1990-1991.
í áðurnefndri tillögu er gert
ráð fyrir tveimur nýbyggingum
við Geislagötu 9. Gert er ráð fyr-
ir að vinna hefjist á þessu ári með
því að byggð vcrði viöbygging og
tengibygging til suðurs, alls um
1000 fermetrar á þremur hæðum.
Áætlaður kostnaður við þennan
hluta er um 45,5 milljónir.
Þegar lokið væri við byggingu
nýrrar slökkvistöðvar yrði steypt
upp viðbygging til vesturs á einni
hæð, um 270 fermetrar, og að því
loknu öll jarðhæðin innréttuð.
Kostnaður við þessa tvo þætti er
áætlaður rúmar 25 milljónir og er
niiðað við að þeim verði lokið
árið 1993.
Heildarkostnaður vegna við-
byggingar og byggingar slökkvi-
stöðvar er því áætlaður tæpar 99
milljónir. Kostnaður við kaup á
Glerárgötu 26 og byggingu
slökkvistöðvar er áætlaður rúmar
123 milljónir.
í niðurstöðum nefndarinnar
kemur fram að síðarnefnda tii-
lagan er stærri í sniðum hvað
húsnæði snertir en þó fljótvirk-
ari. Með henni fengist lausn á
vandanum í byrjun árs 1988 en í
tillögunni sem valin var ekki fyrr
en á árinu 1989. Einnig eru lána-
möguleikar við síðarnefndu til-
löguna betri.
Kostir fyrrnefndu tillögunnar
sem urðu til þess að hún var valin
eru, að með því móti verða skrif-
stofur bæjarins allar á einum stað
auk þess sem bílastæði eru stærri
en við Glerárgötu. ET
Vio notnina.
Mynu: kPö
Bílstjórafélagiö Valur:
Samningarnir kolfelldir
- með öllum greiddum atkvæöum
„Við getum ómögulega sætt
okkur við að okkur sé meinað
að gera tilboð í verk, þá vær-
um við eina stéttin á landinu
sem það mætti ekki. Þessir
samningar voru kolfelldir fyrir
sunnan hjá bílstjórafélaginu
Þrótti,“ sagði Víkingur Guð-
mundsson á Grænhóli um
samninga sem Valur, félag
vörubflstjóra á Akureyri og
nágrenni, felldi á laugardag.
Víkingur, sem er formaður
Vals, sagði að samningarnir milli
VSI og Landssambands vörubif-
reiðastjóra hefðu verið felldir
með öllum greiddum atkvæðum á
almennum félagsfundi í félaginu
á laugardag. Aðalástæðan fyrir
því að svo fór var það ákvæði
samningsins að vörubílstjórar
megi ekki gera tilboð í verk eða
verkþætti, en slík tilboð hafa ver-
ið ríkur þáttur í starfsemi vöru-
bílstjóra sem reka eigin bíla
undanfarin ár.
Þá mótmæla bílstjórar einnig
því atriði samningsins að þeir eigi
ekki lengur að hafa forgang um
leiguakstur. Verktakar fá sam-
kvæmt þessum samningi leyfi til
að stunda leiguakstur hvor hjá
öðrum. „Þetta þýðir að bílstjóra-
félögin munu líða undir lok, því
öll stærri verk eru boðin út og ef
samningurinn væri samþykktur
hefðum við ekkert nema snattið.
Á þingi Landssambands vöru-
bifreiðastjóra í des. var útboðs-
stefnu ríkisins mótinælt því
heimamenn sætu engan veginn
að verkefnum í heimahéruðum
sínum. Við viljum vernda þessa
stétt fyrir of lágum tilboðum sem
leiða til gjaldþrots viðkomandi
verktaka," sagði Víkingur að
lokum. EHB
■*r
WSÍlÍi* '
Hún var örugglega ekki að hugsa um
sem hún sat í snjónuin og lét hugann
*&£§ * . , ■■■
***:.
fasteignagjöldin þessi litla stúlka þar
reika. Mynd: RÞB
Ólafsfjörður:
Atvinnuleysi og
ótiyggt ástand
- Lagast vart fyrr en með vorinu
„Svona truflun í sjávarútvegi
er fljót að segja til sín í sjávar-
plássi eins og Olafsfirði,“ sagði
Valtýr Sigurbjarnarson bæjar-
stjóri í Ólafsfirði er við rædd-
um við hann um áhrif sjó-
mannaverkfallsins.
Togarinn Sólberg fór út fyrir
áramótin og mun sigla með
aflann. Hins vegar er Ólafur
bekkur bundinn við bryggju en
hann er einn af japönsku togur-
unum svokölluðu og á að fara í
miklar breytingar í Póllandi um
næstu mánaðamót. Valtýr sagði
að ætlunin hefði verið að nota
ferðina út til þess að selja fisk
erlendis en sennilega gæti ekkert
orðið af því.
„Það hefur ekki orðið til þess
að bæta ástandið hérna upp á síð-
kastið að viðgerðin á Sigurbjörg-
inni hefur tafist. Skipið kemur þó
frá Noregi þar sem það er í við-
gerð undir lok mánaðarins og
vonandi verður þá búið að leysa
þetta verkfall þannig að ekki
þurfi að binda skipið við
bryggju."
Valtýr sagði að reiknað væri
með að hinn nýi togari Ólafsfirð-
inga, Merkúr, komi til Ólafs-
fjarðar í mars. Ólafur bekkur á
svo að koma úr breytingunum í
maí. „Ég reikna með að þá fari
hjólin að snúast fyrir alvöru
hérna og vonandi mala þau okk-
ur gull,“ sagði Valtýr Sigur-
bjarnarson. - Atvinnuleysi er nú
að sjálfsögðu hjá fiskverkafólki í
Ólafsfirði og varla von á því að
hjólin fari að snúast fyrir alvöru á
næstunni þótt verkfaílið leysist.
gk--