Dagur - 07.01.1987, Blaðsíða 8

Dagur - 07.01.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 7. janúar 1987 Gert að sárum Palla, sem Einar Jón Briem leikur. Aðrir á myndinni eru Inga Hildur Haraldsdóttir, Marino Þor- steinsson og María Arnadóttir. Mynd: rþb Leikfélag Akureyrar: leikhúsinu. Ég spurðu Skúla hvort þau væru í sömu hlutverk- um nú: „Já, við erum bæði í sömu hlutverkum í þessari uppfærslu. Það er þó ekki þar með sagt að við getum gengið fyrirhafnarlaust inn í þau hlutverk. Leikstjórinn er annar, uppfærslan ekki sú sama. Þá kalla ólíkir leikarar í öðrum hlutverkum á önnur við- brögð hjá okkur.“ Pétur Einarsson sagðist ekki víkja mikið frá stórkostlegri upp- færslu Stefáns Baldurssonar með Nemendaleikhúsinu. Helstu breytingar sem hann gerir eru varðandi persónurnar, aðrar áherslur. En fyrir utan Skúla og Ingu Hiidi leika Guðjón Peders- en, María Árnadóttir, Einar Jón Briem, Marinó Þorsteinsson, Þráinn Karisson og Guðrún Mar- inósdóttir í Rauðhærða riddaran- um. Guðrún lauk námi frá leik- listarskóla í Bretlandi í vor. Eftir að hafa séð æfingu hjá leikfélaginu er mér tregt tungu að hræra. En lítum á hvað höfundurinn hefur sjálfur um verkið að segja: „Svo kom Víet- nam stríðið. Eg hataði þetta stríð af ástríðu og það kom mér í vanda í háskólanum af því ég mótmælti stríðinu kröftuglega í kennslustundum. Tveir sam- kennarar mínir kröfðust þess að ég yrði rekinn. Þeir fullyrtu að ég kenndi marxístískan hugsunar- hátt. Ég fann persónu Teddys þegar ég var þrítugur, en þá upp- götvaði ég að hin mikla herför þeirra Kennedys og Johnsons var tilgangslaus. Kosning Nixons í embætti forseta færði okkur þriðja falsmessíasinn, mesta öf- uguggann, og í Rauðhærða ridd- aranum er ég sjálfur samtímis tvær persónur, ungi maðurinn sem enn vill eitthvað og hinn sem brátt hefur kvatt allt og alla. Ein- hvern veginn þannig sé ég sjálfan mig.“ Stríðið í Víetnam kemur þó ekki skýrt fram í verkinu, enda er hann ekki beinlínis að fjalla um það, „heldur manneskju sem er búin að vera,“ eins og Pétur Ein- arsson orðaði það. Leikhúsgestir mega því ekki búast við að sjá Rambó á fjölum Leikfélags Akureyrar, en margt á örugglega eftir að koma þeim á óvart. Vert er að taka fram að sýningin er ekki ætluð börnum. SS Guðjón Pedersen, Teddy, fer hér illa með „rauðhærða riddarann,“ Skúla Gautason. Mynd: RÞB Næstkomandi föstudagskvöld frumsýnir Leikfélag Akureyrar leikritið Hvenær kemurðu aft- ur rauðhærði riddari?, eftir bandaríska leikskáldið Mark Medoff. Þýðandi er Stefán Baldursson og leikstjóri Pétur Einarsson. Ingvar Björnsson annast lýsingu, leikmynd er í höndum Arnar Inga og Frey- gerður Magnúsdóttir hannar búninga. En hvernig verk er hér um að ræða? Að sögn Péturs Einarssonar eiga atburðir leikritsins að gerast á litlum veitingastað, „diner,“ í Nýju Mexíkó í lok 7. áratugarins. Lífið gengur þar sinn vanagang uns gesti ber að garði. Þar má nefna manneskju sem hefur verið í Víetnam stríðinu. „Einu hetj- urnar í stríðinu voru þeir sem voru dauðir.“ Verkið endur- speglar líka togstreitu milli draums og veruleika. Pétur staðfesti að með Rauð- hærða riddaranum ætti að ná til yngra fólksins „upp að fimm- tugu.“ Sýningin er spennandi, gróf og hrottaleg. Niðurlægingin virðist takmarkalaus. Höfundur- inn fékk fjölda verðlauna fyrir verkið í Bandaríkjunum á árun- um ’75-’76. Fyrir nokkrum árum var annað verk eftir sama höfund sýnt í Reykjavík, Guð gaf mér eyra. Að sögn Péturs er Mark Medoff meðal þekktustu leik- skálda í Bandaríkjunum. Inga Hildur Haraldsdóttir og Skúli Gautason útskrifuðust úr Leiklistarskólanum síðastliðið vor. Þau léku bæði í Rauðhærða riddaranum hjá Nemenda- Hvenær kemurðu aftur rauðhærði riddari? Jþróttic________________ Desembermót Óðins: Svavar Þór setti 8 Akur- eyrarmet - Elsa setti 3 met og Ómar 1 Desembermóti sundfélagsins Óðins lauk skömmu fyrir jól. Sem fyrr voru Óðinsfélagar iðnir við að bæta Akureyrar- metin í hinum einstöku grein- um. Svavar Þór Guðmundsson setti 8 Ak.-met, Elsa M. Guðmundsdóttir setti 3 Ak.- met og Ómar Árnason 1. Fimm sundmenn frá HSÞ tóku þátt í mótinu, þær Ingi- björg, Erla og Þórhalla Gunn- arsdætur og þeir Sölvi Már Sveinsson og Hilmar Ágústs- son. Urslitin á mótinu síðustu tvo keppnisdagana urðu þessi: 200 m fjórsund karla: 1. Ottó Karl Tuliníus 2:43,0 2. Kristján G. Magnússon 3:01,5 200 m baksund kvenna: 1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 2:55,7 2. Birna Björnsdóttir 2:57,0 3. Erla Gunnarsdóttir HSÞ 3:05,9 50 m bringusund meyja: 1. Ingibjörg Gunnarsdóttir HSÞ 42,8 2. Heba Finnsdóttir 47,3 3. Kolbrún Magnúsdóttir 47,4 100 m bringusund karla: 1. Svavar Þór Guðmundsson 1:15,6 2. Ottó Karl Tuliníus 1:25,4 3. Kristján G. Magnússon 1:29,0 200 m skriðsund kvenna: 1. Birna Björnsdóttir 2:33,1 2. Elsa M. Guðmundsdóttir 2:36,9 3. Birna H. Sigurjónsdóttir 2:42,9 50 m skriðsund sveina: 1. Hlynur Tuliníus 34,6 2. Ómar Árnason 35,0 3. Kristján Gestsson 37,1 50 m baksund meyja: 1. Ingibjörg Gunnarsdóttir HSÞ 41,5 2. Vala Magnúsdóttir 47,8 3. Hrafnhildur Örlygsdóttir 48,0 100 m flugsund kvenna: 1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 1:23,9 2. Birna Björnsdóttir 1:27,5 3. Elsa M. Guðmundsdóttir 1:39,3 100 in skriðsund karla: 1. Svavar Þór Guðmundsson 59,5 2. Ottó Karl Tuliníus 1:04,0 3. Kristján G. Magnússon 1:07,6 200 m bringusund kvenna: 1. Elsa M. Guðmundsdóttir 3:07,9 2. Birna H. Sigurjónsdóttir 3:35,1 3. íris Thorleifsdóttir 3:39,4 100 m bringusund kvenna: 1. Elsa M. Guðmundsdóttir 1:29,4 2. Ingibjörg Gunnarsdóttir HSÞ 1:33,3 3. íris Thorleifsdóttir 1:37,8 200 m skriðsund karla: 1. Svavar Þór Guðmundsson 2:10,2 2. Ottó Karl Tuliníus 2:27,0 3. Kristján G. Magnússon 2:40,7 50 m skriðsund meyja: 1. Vala Magnúsdóttir 34,4 2. Hrafnhildur Örlygsdóttir 35,7 3. Elísabet Jónsdóttir 38,5 200 m fjórsund kvenna: 1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 2:51,5 2. Elsa M. Guðmundsdóttir 2:58,2 3. Ingibjörg Gunnarsdóttir HSÞ 3:09,0 50 m flugsund sveina: 1. Ómar Arnason 39,8 2. Hlynur Tuliníus 47,2 3. Kristján Gestsson 47,6 100 m flugsund karla: 1. Ottó Karl Tuliníus 1:18,3 2. Gunnar Ellertsson 1:24,8 100 m skriðsund kvenna: 1. Birna Björnsdóttir 1:07,0 2. Elsa M. Guðmundsdóttir 1:12,5 3. Birna H. Sigurjónsdóttir 1:14,8 200 m bringusund karla: 1. Sölvi Sveinsson HSÞ 3:05,0 2. Ottó Karl Tuliníus 3:08,7 3. Kristján G. Magnússon 3:21,0 50 m flugsund meyja: 1. Vala Magnúsdóttir 45,7 2. Hrafnhildur Örlygsdóttir 46,0 3. Heba Finnsdóttir 50,8 50 m baksund karla: 1. Svavar Þór Guðmundsson 32,0 2. Hilmar Ágústsson HSÞ 38,0 3. Ottó Karl Tuliníus 38,6 50 m baksund kvenna: 1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 37,1 2. Birna Björnsdóttir 38,3 3. Ingibjörg Gunnarsdóttir HSÞ 40,7 50 m bringusund karla: 1. Svavar Þór Guðmundsson 34,6 2. Sölvi Már Sveinsson HSÞ 38,2 3. Ottó Karl Tuliníus 38,5 50 m bringusund kvenna: 1. Elsa M. Guðmundsdóttir 40,6 2. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 41,3 3. Ingibjörg Gunnarsdóttir HSÞ 42,6 50 m baksund sveina: 1. Ómar Árnason 42,4 2. Hlynur Tuliníus 43,6 200 m flugsund karla: 1. Svavar Þór Guðmundsson 2:34,6 100 m baksund karla: 1. Svavar Þór Guðmundsson 1:09,2 2. Hilmar Ágústsson HSÞ 1:25,5 100 m baksund kvenna: 1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 1:20,8 2. Birna Björnsdóttir 1:21,1 3. Erla Gunnarsdóttir HSÞ 1:27,0 50 m bringusund sveina: 1. Hlynur Tuliníus 46,3 2. Ómar Árnason 47,9 3. Kristján Gestsson 49,5 50 m skriðsund karla: 1. Svavar Þór Guðmundsson 27,1 2. Ottó Karl Tuliníus 29,5 3. Hilmar Ágústsson HSÞ 29,8 50 m skriðsund kvenna: 1. Bima Björnsdóttir 28,8 2. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 31,7 3. Elsa M. Guðmundsdóttir 32,7 50 m flugsund karla: 1. Svavar Þór Guðmundsson 29,4 2. Hilmar Ágústsson HSÞ 31,5 3. Ottó Karl Tuliníus 33,4 50 III flugsund kvenna: 1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 35,5 2. Birna Björnsdóttir 36,1 3. íris Thorleifsdóttir 41,9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.