Dagur - 12.03.1987, Page 1
70. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 12. mars 1987
49. tölublað
Namm, súkkulaðiö er gott en maður verður að muna að bursta tennurnar á eftir
Mynd: RÞB
Loðdýrarækt:
„Viðhorfin að snúast
landbúnaði í hag“
- segir Ketill Hannesson, landbúnaðarhagfræðingur Akureyri:
A tímabilinu 1986-’90 verður
1,5 milljarði varið til endur-
skipulagningar í landbúnaði,
sem hefði annars verið varið til
útflutningsbóta. „Nú er það
spurning hvernig bændur spila
úr þessari fjárveitingu. Það er
Slippstöðin:
Samninga-
umleitanir
í gangi
Kjarasamningar milli Slipp-
stöðvarinnar og iðnaðarmanna
hjá fyrirtækinu eru enn á
umræðustigi og ekkert hægt að
tala um samkomulag á næst-
unni. Eins og kunnugt er hafa
rafvirkjar staðið lengi í kjara-
deilum og lyktaði þeim málum
með því að flestir þeirra sögðu
upp.
„Við erum búnir að vinna í
þessu síðan um áramót og við
erum að því ennþá,“ sagði Gunn-
ar Ragnars forstjóri. Hann sagð-
ist að öðru leyti ekki vilja tjá sig
um málið á þessu stigi. „Petta er
ákveðið verk sem samkomulag
varð um að vinna og reyna að
finna einhvern grundvöll,“ sagði
Gunnar um samningaviðræðurn-
ar hjá Slippstöðinni. SS
Ijóst að mikill áhugi er meðal
bænda fyrir loðdýrarækt og
flskeldi. Eg held að þetta stefni
allt í rétta átt. Það eru vissu-
lega mörg vandamál óleyst, en
viðhorfin eru að snúast land-
búnaði í hag,“ sagði Ketill
Hannesson, búnaðarhagfræði-
ráðunautur.
Uppbygging loðdýraræktar
nær hámarki nú í ár og á því
næsta. Árið 1986 var áætlað að
600 milljónir færu til fram-
kvæmda við loðdýrarækt hér á
landi og var talið að hún myndi
skila um 1 milljarði króna í gjald-
eyri á ári þegar þessu 5 ára tíma-
bili lýkur. Þegar markmiðum
búvörulaganna frá 1985 er náð
má ætla að 724 ársverk í hefð-
bundnum búskap hafi horfið, sé
miðað við framleiðslu áranna
1976-78. Að sögn Ketils mun
loðdýraræktin skapa um 700 ný
störf í landbúnaði þegar rekstur-
inn er kominn í fullan gang. Þessi
störf verða öll í dreifbýli.
Ketill sagði að frá upphafi loð-
dýraræktar hafi íslendingar haft
sérstöðu hvað markaðsmál
varðar, en þeir gátu gengið inn í
kerfi sem til var og stóðu því
jafnfætis öðrum sem stunda þessa
grein erlendis. „Nú er það dugn-
aður, þekking og útsjónarsemi
bænda sem ræður því hver fram-
vinda loðdýraræktar verður á ís-
landi,“ sagði Ketill. -mþþ
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Norðurland:
Gífurleg loðnuveiði
Loðnubræðslu á Raufarhöfn, á
yflrstandandi vertíð, var hætt
um síðustu mánaðamót. Alls
voru brædd 74.747 tonn af
loðnu á vertíðinni og er það
nokkru minna en í fyrra þegar
brædd voru um 82 þúsund
tonn. Bræðsla hófst síðari
hluta júlímánaðar og landanir
á vertíðinni voru 132.
Að sögn Árna Sörenssonar
verksmiðjustjóra stafaði þessi
samdráttur eingöngu af miklum
ógæftum í október og nóvember
meðan loðnan var hér fyrir norð-
an land. „Þetta var alltaf að slitna
sundur vegna þess að við fengum
ekki loðnu,“ sagði Árni í samtali
við Dag.
Nú er unnið að miklum endur-
bótum á verksmiðjunni á Raufar-
höfn, en hún er í eigu Síldarverk-
smiðja ríkisins. í fyrsta lagi verð-
ur skipt um svokallaðan soð-
kjarnaofn en í nonum er megnið
af vatni eimað úr loðnusoðinu.
Gamli ofninn var orðinn ónýtur
enda var hann mjög kominn til
ára sinna, smíðaður á Siglufiröi á
síldarárunum.
Einnig er ætlunin að setja upp
búnað við tæki og niðurföll til að
koma í veg fyrir að grútur berist
með afrennsli í sjóinn. Talsverð-
ar endurbætur verða einnig gerð-
ar til að koma í veg fyrir grútar-
mengun við löndun. ET
Bóluefni á þrotum
- Margir hafa verið bólusettir gegn flensu
væri að ræða nýja stofna sem
þennan þá væri gert ráð fyrir því
að þetta gengi tiltölulega fljótt
yfir. ET
Samningamál trésmiöa:
Sáttasemjari
norður um
helgina
„Félagsfundur er búinn að
veila stjórn og trúnaöar-
mannaráði félagsins heiniild til
verkfallsboðunar. Heimildin
er ekki tímasett og ekki hefur
verið tekin nein ákvörðun um
að beita henni ennþá,“ sagði
Guðmundur O. Guðmunds-
son, formaður Trésmiðafélags
Akureyrar, þegar hann var
inntur eftir hugsanlegu verk-
falli trésmiða í gær.
I þessum mánuði er áætlað að
funda með vinnuveitendum og
sáttasemjari hefur boðað komu
sína til Akureyrar um helgina
vegna samningamála trésmiða.
Trésmiðir og aðrir byggingamenn
voru ekki aðilar að jólaföstu-
samningunum og hafa samningar
þeirra verið lausir síðan um ára-
mót. í gærkvöldi var fundað í
Trésmiðafélaginu og átti þá að
taka ákvörðun um verkfallsboð-
un og var reiknað með að fundur-
inn stæði langt fram á kvöld.
EHB
Flest ár gerist það að einhvers
konar umgangspestir eða
flensur heimsækja Akureyri og
aðra þéttbýlisstaði. Að undan-
förnu hafa fréttir borist frá
Reykjavík af svokallaðri
Singapore-inflúensu og mun
þar vera um að ræða nýjan
stofn. Grunur leikur á að þessi
flensa sé nú komin til Akureyr-
ar.
í haust birtist auglýsing frá
Heilsugæslustöðinni á Akureyri
þar sem fólki var bent á að panta
með fyrirvara bólusetningu gegn
inflúensu. Sérstaklega var full-
orðnu fólki og sjúklingum ráðlagt
að verða sér úti um slíka ónæmis-
aðgerð.
Töluverður fjöldi fólks not-
færði sér þetta og að undanförnu
hafa farið fram bólusetningar.
Að sögn Hjálmars Freysteinsson-
ar yfirlæknis á Heilsugæslustöð-
inni hafa yfir 1000 manns látið
sprauta sig.
Ekki heíur enn verið staðfest
að Singapore-vírusinn hafa tek-
ið sér bólfestu á Akureyri en það
er þó talið fullvíst þar sem frést
hefur af grunsamlegum tilfellum.
Sýni hafa verið tekin og er nú
beðið eftir niðurstöðum úr grein-
ingu. Bóluefni er á þrotum og að
sögn Hjálmars er of seint að fá
bólusetningu ef flensan hefur
numið land, ef svo má segja. Því
er ekki ráðgert að panta meira
bóluefni.
Hjálmar sagði að þegar um
Hólar í Hjaltadal:
700 refalæður sæddar í vetur
Um miðjan mánuðinn munu
hefjast rcfasæðingar á Hólum í
Hjaltadal. Á Hólum er högna-
stöð og verður sæði tekið úr 30
högnum. Búið er að panta
sæðingar á 700 læðum og er
reiknað með að þær standi yfir
í mánaðartíma. Með sæð-
ingunum er stefnt að tvennu,
að kynbótum á blárefastofnin-
um og að ná litablendingum
með því að sæða blárefalæður.
Með sæði úr silfurrefum, fást
svokölluð „blue frost“ skinn
sem eru miklu verðmætari en
venjuleg blárefaskinn.
Að sögn Úlfars Sveinssonar á
Ingveldarstöðum, stjórnarmanns
í Samtökum loðdýrabænda í
Skagafirði, fóru sæðingar í fyrsta
sinn fram í fyrra og voru þá sædd-
ar 176 læður. Hélt tæpur helm-
ingur þeirra og er það talinn
ágætur árangur miðað við fyrsta
skipti. Hluti af læðunum var
sæddur með sæði úr silfurref og
var hluti þeirra „blue frost“
skinna sem fékkst út úr sæð-
ingunum síðasta vetur seldur á
uppboðinu í Danmörku á dögun-
um. Verðið sem fékkst fyrir
skinnin var að meðaltali 900
krónur danskar og fór allt upp í
1100. Til samanburðar má geta
að meðalverðið á blárefaskinnum
var 354 krónur danskar.
Nýlokið er á Hólum námskeiði
í sæðingum refa þar sem dýra-
læknarnir Kjartan Hreinsson og
Eggert Gunnarsson leiðbeindu.
Fyrst var tveggja daga upprifjun-
arnámskeið fyrir þá 10 sem sóttu
sams konar námskeið á sama stað
í fyrra. Síðan var haldið 8 daga
námskeið fyrir byrjendur. Þátt-
takendur voru 11 hvaðanæva af
landinu. -þá