Dagur - 12.03.1987, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - 12. mars 1987
Nú fer í hönd sá tími þegar nemendur í 9. bekk fara að hugsa
um og huga að framhaldsnámi. Við munum á næstu ALLT-
síðum kynna það nám sem boðið er upp á á Akureyri. Hafa ber
í huga að næsta vetur tekur gildi ný námsskrá fyrir alla
framhaldsskóla og hefur hún í för með sér einhverjar
breytingar á námsframboði. Einnig mun nýja námsskráin gera
nemendum kleift að færa sig milli skóla án þess að verða fyrir
árekstrum, þ.e. að tímar rekist á og ekki er hægt að stunda fullt
nám í sumum fögum. Við byrjum á að kynna nám í
Verkmenntaskólanum (VMA) sem er yngsti skóli á Akureyri,
hóf störf haustið 1984. Vonandi nýtist námskynning sem þessi
þeim sem augastað hafa á framhaldsnámi, hvort sem þeir hafa
nýlokið grunnskólaprófi eða eru lengra komnirá lífsbrautinni.
HaukurJónsson,
kennslustjóri tæknisviðs
- Hvaða brautir eru það sem eru
undir tæknisviði VMA?
„Við getum þrí- eða fjórskipt
þessu. Það eru verklegar deildir
þar sem fer fram verkleg kennsla
í iðngreinum eins og í málmiðn-
aði, tréiðnaði, húsasmíði og
slíku, ásamt rafvirkjun og raf-
eindavirkjun og hárgreiðslu. Þar
eiga nemendur að ná verklegri
færni án þess að þurfa að fara út
á vinnumarkaðinn. Á móti kem-
ur svo að það er líka samnings-
bundið iðnnám, þar sem nem-
endur fara út á vinnumarkaðinn,
fá þar samning í hendurnar hjá
meisturum í einhverri ákveðinni
iðngrein og læra allt handverkið
þar en koma í skólann og læra
bóklega þáttinn. T.d. maður sem
er að læra húsasmíði hann á
þessa tvo möguleika, að fara til
húsasmíðameistara úti í atvinnu-
lífinu og fá hjá honum náms-
samning og læra hjá honum
handverksþættina í húsasmíði og
kemur þá í skólann til að læra
bóklegu greinarnar. Eða þá að
hann getur komið í skólann og
lært hluta af þessu verklega hjá
okkur.“
- Er það eins með rafvirkjun
og rafeindavirkjun?
„Rafeindavirkjun er eingöngu
lærð í skóla og síðan enda þeir
sitt nám með því að fara út í
atvinnulífið. Um rafvirkjun gildir
það sama, allir sem ætla í raf-
einda- eða rafvirkjun verða að
byrja í verklegu hjá okkur. Allir
nemendur sem ætla á iðnbraut
hverju nafni sem hún nefnist
verða að taka það verklega í
skólanum í framtíðinni. Þetta er
orðið svona í rafiðnaðargreinum
og að hluta til hjá húsasmiðum og
tré- og málmiðnaðardeildum.
Það er um þessar tvær leiðir að
velja en í sumum fámennari iðn-
greinum er ekkert um það að
ræða að fara í verklegt. Ef við
tökum dæmi, nú er hérna innrit-
aður skósmiður og einn sem er í
gler- og speglagerð. Þeir verða að
fara á þennan hefðbundna samn-
ing hjá meistara og læra hand-
verkið þar og koma svo í skólann
í bóklega þáttinn.“
- Það er þá hægt að læra allar
mögulegar iðngreinar við skól-
ann?
„Já og nei, í sumum tilfellum
bara þessar almennu greinar sem
allir þurfa að taka, grunnteikn-
ingu, stærðfræði, íslensku, ensku
og dönsku. I iðnnámi eiga allir að
taka 25 einingar í almennu bók-
legu námi. Sú faggrein sem er
sameiginleg með öllum er grunn-
teikning en það er líka allt og
sumt. Fyrir speglagerðarmenn og
skósmiði getum við ekkert annað
gert en að kenna þeim almennu
greinarnar."
- Þið eruð ekki að hugsa um
að fara að kenna þær greinar?
„Nei, þetta eru svo fáir. Það er
hugsanlegt að einn skóli geti
kennt þetta. Skósmiðurinn er sá
fyrsti sem kemur hingað í 20 ár,
mér skilst það séu álíka fáir í
Reykjavík. Þeir komi þetta á 5
ára fresti. Þessir menn ásamt
netagerðarmönnum og fleirum
eru það fáir að skólinn gæti aldrei
boðið upp á þetta nám. En aftur
í þessum stærstu iðngreinum eins
og húsasmíði, vélvirkjun, málm-
smíði og rafvirkjun, ennþá kenn-
um við reyndar bara eitt ár verk-
legt í rafvirkjun en tvö ár í húsa-
og húsgagnasmíði og vélvirkjun
og stálsmíði. f þessar greinar
fáum við milli 10 og 20 nemendur
á ári á hverju ári. í rafvirkjun
tökum við hámarkið 36. Þetta er
á hverju ári svo það er stór mun-
ur þarna á milli.“
- Hver er munurinn á raf-
eindavirkjun og rafvirkjun?
„Rafvirkjar fást við lagnir í
hús, háspennukerfi og eru frekar
með það sem kallaður er sterkur
straumur. Rafeindavirkjar fást
við útvarpstæki, sjónvörp og það
sem kallað er lágspenna. Einnig
kennum við líka tækniteiknun
sem er eins árs nám. Tækniteikn-
arar eru síðan aðstoðarmenn
verkfræðinga, hjálpa þeim að
ljúka við og hreinrita teikningar
svo hægt sé að vinna eftir þeim.
Síðan höfum við hérna vélstjórn-
arnám, það er eiginlega ekki
beint iðnnám en veitir mönnum
réttindi til að hafa stjórn á vélum
í ákveöinni stærð. Þessu námi er
skipt upp í 4 stig. Við kennum
hérna I. og 2. stig. 1. stigið er ein
önn og 2. stigið eru 4 annir. Ef
þeir ætla að læra meira þá verða
þeir að fara í Vélskóla íslands í
Reykjavík. Til viðbótar höfum
við að iðnaðarmenn sem hafa
lokið sveinsprófi og búnir með
allan skólann sem iðnaðarmenn
þurfa að fara í gegnum geti farið
í aðfaranám fyrir tækniskólann.
Það köllum við undirbúnings-
deild og raungreinadeild. Það er
tveggja ára nám til að ljúka raun-
greinadeildinni og þá eru þeir
komnir með það sem við köllum
tæknistúdentspróf. Það veitir
þeim rétt til náms í verkfræði-
deild Háskólans, við Tækniskóla
íslands og nám erlendis í tækni-
skólum.“
- Hvaða rétt veitir þá sveins-
próf?
„Það veitir rétt til að kallast
sveinn í viðkomandi iðngrein og
vinna í henni.“
- Hver eru inntökuskilyrðin?
„Þau eru engin önnur en próf
úr 9. bekk grunnskóla. Það gildir
um allar brautir.“
- En í hárgreiðsluna?
„Þar urðum við að setja stopp
einhvers staðar og nemi verður
því að hafa samning eftir námið
hjá okkur. Það var mjög mikil
aðsókn í hárgreiðslunám hjá
okkur, við fengum þrefalt fleiri
umsóknir en við gátum sinnt, en
við tökum bara 12 nemendur inn
í það nám, þvf að allir nemendur
þurfa starfsþjálfun á vinnumark-
aði með bóklega náminu."
- Hafið þið ekki þurft að gera
þannig á fleiri sviðum?
„Nei, ekki ennþá. Það eru til
dæmis bara 4 nemendur núna á
grunndeild tréiðna en það borgar
sig ekki að hætta með þá braut þó
eitt ár sé magurt. Við höfum
góða kennara og ég hef trú á að
það sé að lifna yfir tréiðn og þá
húsasmíðinni aftur svo við bíðum
bara og sjáum til.“
- Hvaða deild er fjölmennust
hjá ykkur núna?
„Ef ég tek 1. bekkinn þá er það
grunndeild rafiðna. Við höfum
36 pláss og þau voru fullskipuð á
fyrri önninni en núna eru 28.
Einnig er hárgreiðsludeildin
mjög vinsæl en við höfum ekki
aðstöðu til að taka fleiri en 12
nemendur inn á hana.“
- Hvaðan eru þessir nemend-
ur?
„Þetta er mest af Norðurlandi,
ekki eingöngu úr bænum heldur
frá Ólafsfirði og Dalvík. Við
fáum fáa austan að, þeir fara
frekar til Húsavíkur en þó alltaf
einhverja, sérstaklega í nám sem
ekki er í boði þar. Við höfum
fengið nemendur frá Reykjavík
og Snæfellsnesi og víðar.“
- Hvað með kynskiptinguna?
„Hún er mjög einhliða, nema
tvær deildir skera sig úr. í grunn-
deild rafiðna byrjuðu tvær stúlk-
ur af 36 manna hóp. í grunndeild
tréiðna byrjaði engin stúlka í ár
en það er ein í framhaldsdeild. í
grunndeild eða framhaldsdeild
málmiðna er engin stúlka. í
samningsbundnu iðnnámi er eng-
in stúlka utan ein sem er skó-
smiðurinn sem kemur á 20 ára
fresti. f hársnyrtideildinni snýst
þetta akkúrat við, þar eru 2
strákar af 12 nemendum. Og í
tækniteiknun skulum við segja að
séu 12 stúlkur en 2 strákar og
annar þeirra er kennari sem er í
hálfu námi.“
HaukurJónsson.
- Er engin stúlka í tækni-
skólanum?
„Þær byrjuðu tvær en önnur
heltist úr lestinni en hin heldur
áfram og stendur sig vel, eins og
flestar þessar stúlkur sem eru
innan um strákana. Þær sem
hætta sér inn í þessar deildir og
strákaveldin þær þurfa að hafa
bein í nefinu að standa í þessu og
þær gera það yfirleitt og standa
sig mjög vel. En síðan eins og í
tækniteiknuninni þar er það
strákurinn sem stendur sig af-
bragðs vel, stelpurnar eru jafn-
ari.“
- Eru engir fordómar í strák-
unum að stúlkur séu að læra þess-
ar „hefðbundnu“ karlagreinar?
„Nei, alls ekki. Það er ekki al-
gengt að stúlkur fari í þessar
„hefðbundnu" karlagreinar eins
og vélstjórn og húsasmíði. Það
var hér stúlka í grunndeild málm-
iðna fyrir tveim árum en hún
Baldvin Jóh. Bjarnason.
stefndi á gullsmíðanám svo hún
lenti ekki í þessu grófa sem fylgir
gjarnan málmiðn. Þær eru bara
hluti af heildinni og ekki litnar
hornauga á neinn hátt, enda hafa
þær staðið sig svo afburða vel og
eru fremstar meðal jafningja.“
- Hvað er þetta oftastnær
langt nám?
„Þegar menn hafa lokið iðn-
námi sem venjulega tekur 4 ár og
tekið sveinspróf, þá geta menn
komið hingað í aðfaranám fyrir
tækniskóla, eru hérna í tvö ár og
ljúka tæknistúdentsprófi eftir það
sem veitir þeim rétt inn í tækni-
háskóla. Yfirleitt er nám til stúd-
entsprófs 4 ár en þarna er það 2
ár, þá eru þau 4 ár sem þeir hafa
verið á námssamningi metin sem
2 ár. Að því leytinu eru þessir
stúdentar betur settir en aðrir,
þeir hafa atvinnuréttindi líka.
Einnig höfum við meistaraskóla
byggingamanna sem er ennþá
bara hjá byggingamönnum. Það
er þriggja anna nám yfirleitt á
Kristín Thorberg.
kvöldin. Þeir byrja klukkan 5 á
daginn til 10 eða 11 á kvöldin."
Krlstín Torberg
kennslustjóri
heilbrigðissviðs
- Hvað er kennt á heilbrigðis-
sviði?
„Það er hægt að fara í tveggja
ára nám á heilsugæslubraut og
þar er kennt á fyrsta vetrinum:
Danska, efnafræði, enska, ís-
lenska, líffræði, stærðfræði,
félagsfræði og skyndihjálp. Á
öðru ári er kennt: Heilbrigðis-
fræði, hjúkrunarfræði, líkams-
beiting, sálarfræði og áframhald
af grunngreinunum. Eftir þetta
nám geta þær farið beint inn í
Sjúkraliðaskóla íslands í Reykja-
vík. Það eru þrír skólar sem
kenna sjúkraliðum á landinu:
VMA, Fjölbraut í Breiðholti og
Fjölbraut á Sauðárkróki."
- Hvenær byrjar verkleg
kennsla?
„Hún hefst á haustönn á öðru
ári og er líka á vorönn.“
- Eru engin önnur réttindi úr
þessu námi en að fara í Sjúkra-
liðaskóla íslands?
IÐNNAM OG TÆKNINAM
AÐ LOKNUM GRUNNSKÓLA
KAI VIRKJI ’N RAFI INDA-
RALVI l AVIRKJl N VIRKJUN
STÁI.SMÍDI
RF.NNISMÍDI
VF.I.SMÍDI
IIUSASMIDI
SAMNINGSBUNDIÐ IÐNNAM:
BIFRF.IDASMÍÐI
VFI.VIRKJUN
IIÚSASMÍDI
IIÚSC.ACiNASMÍDI
MÚRSMÍDI
PÍPUI.AGNIR
STÁI.SKIPASMÍDI
STÁI.VIRKJUN
BIFVFI.AVIRKJUN
BI.IKKSMÍDI
BAKARAIDN
BÓKAGFRD
MÁI.ARAIDN
□
■
□
□
Vr.RKMIiNN I ASKOI.INN
A AKURI YRI
IDNSKOI.INN
I RFYKJAV'ÍK
VF.I.SKOI.I ISI.ANDS
IIUSCiACiNASMIDI RFNNISMÍDI o.f.l.
VFRKI.FCi ÞJAI.FUN
Á VINNIJS'FAD
IIÁRSKURDUR
IlÁRCiRLIDSI A (samningur)
Tafla yfir iðnnám i VMA. Á myndina vantar 1 ár í tækniteiknun.
12. mars 1987 - DAGUR - 9
viðurkenningu um að starfa sem
sjúkraliði frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu. Það
eru þeir sem gefa út réttindi
sjúkraliða því þetta er lögvernd-
uð stétt. Og ég vil vekja athygli á
að eftir tvö ár þá verður nemandi
að sækja um áframhald, hann
gengur ekki sjálfkrafa áfram í
kerfinu. Ef aðsóknin er mikil þá
komast þeir að sem hafa staðið
sig best, nemi verður líka að vera
orðinn 18 ára fyrir sjúkraliða-
nám.“
Baldvin Jóh. Bjarnason
kennslustjóri
viðskiptasviðs
- Hvað er kennt á viðskipta-
sviði?
„Það eru kenndar hefðbundn-
ar verslunargreinar en með
breyttri námsskrá mun viðskipta-
svið bera það nafn fyrstu tvö árin
eða fram að almennu verslunar-
prófi en næstu tvö árin fram að
stúdentsprófi heitir það hagfræði-
braut.“
- Hver er aðalbreytingin fyrir
viðskiptasvið eftir að nýja náms-
skráin tekur gildi?
„Það eru valgreinar. Hópurinn
sem útskrifast núna þarf að hafa
8 einingar í vali en næsti ekki
nema 4. Við munum sennilega
gera markaðsfræði að tveim 3ja
eininga áföngum sem hingað til
hefur verið valgrein og við höfum
þegar bætt við einum þýsku-
Nemendur í rafiðn.
„Það er hægt að fara áfram í
stúdentinn sem yrði þá á náttúru-
fræðibraut eða farið í sjúkraliða-
réttindanám. Sjúkraliðaréttinda-
nám byrjar að haustinu þriðja
árið eða fjórðu önnina og þá fara
þær í 17 vikna verklegt nám inni
á sjúkrastofnun, öldrunardeild
eða elliheimili. Hérna á Norður-
landi taka Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri og Kristnes nema og
síðan mega Dalvík, Ólafsfjörður,
Siglufjörður og Húsavík líka taka
nema. Eftir þessar 17 vikur á
haustönninni koma þær inn á
vorönn í bóklegt nám sem er:
Barnahjúkrun, almenn hjúkrun,
handlæknishjúkrun, lyflæknis-
Texti:
Ingibjörg Elfa
Stefánsdóttir.
Myndir:
Kjartan
Þorbjörnsson.
hjúkrun, geðhjúkrun, sýklafræði
og heimspeki. Að þessari önn
lokinni fara þær í seinni hlutann
af verknáminu og eru þar í 17
vikur, sjúkraliðaréttindapróf er
ekki viðurkennt nema þær hafi
lokið starfsnámi í 34 vikur. Þær
byrja seinni 17 vikurnar 10. maí
og eru allt sumarið. Fjórða árið
hefst þá fyrir þær sem vilja halda
áfram í stúdentinn, það er bara
bóklegt með almennum greinum
svo sem ensku, þýsku, félags-
fræði o.þ.h. Sumar ljúka stúd-
entsprófi fyrst og koma svo inn í
sjúkraliðaönnina á eftir, eða
þriðja veturinn, þ.e. það verður
þeirra fimmta ár.“
- Hvað tekur þá við, eftir
stúdentspróf og jafnvel sjúkra-
liðapróf líka?
„Margar hverjar eru að hugsa
Nemendur í málmiðn.
Verkleg hjúkrun.
um hjúkrunarfræði einnig er
iðjuþjálfi, sjúkraþjálfi, fóstrur og
þroskaþjálfi. Það er líka talið
æskilegt að meinatæknar og
röntgentæknar hafi próf af
heilsugæslubraut og ég tala ekki
um sjúkraliðann. Hjúkrunarnám
er fjögur ár í Háskólanum eftir
stúdentsprófið."
- Nú talar þú alltaf um
„sumar“, eru þetta bara stúlkur?
„Já, og það lítur út fyrir að það
verði þannig."
- Hvaðan eru þessar stúlkur?
„Þær eru bæði austan að og
utan að og síðan ein frá Sauðár-
króki og ein frá Tálknafirði.“
- Hvað með aðsóknina?
„Það eru 12 stúlkur í sjúkra-
liðanámi en um 60 á öllum árum.
Þetta hafa verið um og yfir 90
nemendur svo að aðsóknin er að
minnka."
- Áttu von á að það verði eng-
inn nemi á þessu sviði einhvern
tíma?
„Nei, ætli það. En ef ekki væri
sjúkraliðaprófið hér þá væru
mjög fáir nemendur.“
- Hvenær útskrifast sjúkralið-
ar?
„Þær útskrifast að haustinu á 4.
ári, eftir 34ra vikna starfsnámið.
Þó að maður sé búinn að fá þessi
starfsréttindi á heilsugæslubraut
þá verður maður alltaf að fá
áfanga. Einnig er annað sem er
mjög stór og mikill áfangi en það
eru hagnýt skrifstofustörf sem
eiga að fara þannig fram að senda
á nemendur í vinnu hjá að
minnsta kosti tveim fyrirtækjum
á önn, samtals 96 klst. Það á að
gerast fyrir almennt verslunar-
próf sem sagt á öðru ári, og það
kemur út sem 4ra eininga
áfangi."
- Skilyrði til inngöngu verða
áfram þau sömu?
„Já, almennt grunnskólapróf.“
- Hvað með nemanda sem
lokið hefur hluta af náminu í
gamla kerfinu og kemur inn í það
nýja?
„Hann fær það metið, alveg
sama frá hvaða skóla hann
kemur. Almennt verslunarpróf
fær hann metið 66 einingar eins
og þarf til að Ijúka því, þó svo að
hann hafi lokið því fyrir 3-8
árum. Það er ekki hægt að eltast
við gömlu fögin, þessu fólki yrði
gert svo erfitt fyrir ef alltaf væri
verið að rétta það af.“
- Verðið þið varir við kyn-
skiptingu á viðskiptasviði?
„Það er nú ekki mikill munur
þar á, ætli það sé ekki besta
„kynjaástandið" af öllum braut-
um skólans þar.“
- Kanntu einhverja útskýringu
á hvers vegna viðskiptasvið er
fjölmennastí) bóklega sviðið hér?
„Það er nú þannig í fleiri fram-
haldsskólum. Ætli það sé ekki í
og með gamli hugsunarhátturinn
að þeir sem handleiki peningana
fái mest af þeint í hendurnar!!"
(Spurt á Sambandsverksmiðjunum).
Jónas Þór Jónasson:
Ég hef prófað að keyra fjórhjól
og það er gaman að leika sér á
þeim en ég er líka viss um að á
vorin þegar grasrótin er að
jafna sig þá skemmir þetta
rosalega. Menn fara oft óvar-
lega á þessum tækjum og það
þyrfti að vera öryggisbúnaður
eins og veltigrind á þeim.
Magnús Jónsson, rafvirki:
Mér finnst að nú þegar eigi að
setja reglur um notkun þessara
fararækja því þau hafa þegar
skemmt landið þar sem það er
viökvæmt fyrir. Ef þessum tækj-
um fjölgar verða auknar
skemmdir ef ekkert verður aö
gert. Það hefur líka sýnt sig aö
það er slysahætta af þessum
fjórhjólum.
Sæmundur Hrólfsson,
rafvirki:
Ef fjórhjólin eru rétt notuð þá
skemma þau ekki landið. Það
er með þessi tæki eins og önn-
ur að það er enginn vandi að
meiða sig á þeim. Það ætti að
vera skylda að hafa veltigrind á
fjórhjólum. Menn, sem vilja
keyra þessi farartæki í þéttbýli,
þyrftu að hafa einhvers konar
próf, t.d. skellinöðrupróf eða bif-
hjólapróf. Menn tala alltaf um
að þessi farartæki eyðileggi svo
og svo mikið en ég held því
fram að tíu hestar í hópi
skemmi alveg eins mikið.
Jón Árnason:
Þessi farartæki geta valdið
skemmdum á gróðri og náttúru
en það fer þó eftir því hvernig
þau eru notuð. Það er ekki
hætta á skemmdum ef rétt er
með þessi farartæki farið. Menn
valda ekki heldur skemmdum á
jeppum ef þeir halda sig innan
vissra marka.
Skarphéðinn Gunnarsson:
Það er ómögulegt að hafa eng-
ar reglur um þessi farartæki og
mér finnst afleitt að menn keyri
á þessu próflausir í þéttbýli.
Það eiga að gilda svipaðar regl-
ur um þetta og bíla og mótorhjól
og mér finnst ófært að menn
séu upp um fjöll og firnindi
alveg réttindalausir. Ég geri
mér ekki grein fyrir því hvernig
þessi ökutæki eiga að flokkast
en þetta er óviðunandi ástand.
cn j
Hvaða álit hefur þú á
fjórhjólum og hvernig ætti
að nota þau?