Dagur - 12.03.1987, Blaðsíða 6

Dagur - 12.03.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 12. mars 1987 Salur saumadeildar er rúmgóður og þrifalcgur. Allir Akureyringar þekkja verksmiðjur SIS á Gleráreyr- um enda ekki nema von því þær hafa verið svo snar þáttur í atvinnulífi bæjarins um ára- tugaskeið. En hversu mikið vita bæjarbúar í raun um þessi fyrirtæki? Nú á dögum eru e.t.v. ekki margir sem gera sér grein fyrir því hvern þátt Sam- band íslenskra samvinnufé- laga átti á sínum tíma í að leggja grundvöll að innlendum iðnaði og skapa þær efnahags- legu forsendur sem síðar gerðu landsmönnum kleift að öðlast sjálfstæði sem fullvalda ríki með eigin iðnað og fram- leiðslugreinar. Enn í dag er talað um gömlu heiti verksmiðjanna: Gefjun, Iðunn og Hekla. Gefjun var elsta og fyrsta verksmiðjan sem var stofnuð til að vinna band úr íslenskri ull. Síðar kom Iðunn til sögunnar en þar var fyrsta sútun- in utan Reykjavíkur stofnuð á landsmenn. Pegar gengið er gegnum verksmiðjurnar sést starfsfólkið vinna við afkasta- miklar og nýtískulegar vélar í þrifalegu umhverfi. Það er því margt breytt frá þeim tíma þegar einn öxull gekk gegnum loft Gefjunarverksmiðjunnar og knúði spunavélarnar með kraft- inum frá Glerá. Hvernig skyldi það vera að vinna á verksmiðjunum? Guðfinna Sölvadóttir, saumakona: „Ég afgreiddi áður í verslun Kaupfélags verkamanna en varð að hætta þar þegar verslunin var lögð niður. Ég sótti um vinnu í saumaskap og við höfðum vissan tíma til að þjálfa okkur upp en þetta kom mjög fljótlega.“ - Hvaða hugmyhdir hefur fólk um þessa vinnu? „Þeir sem ekki vinna hérna halda að það sé eitthvað voðalegt að fara í saumaskap, þetta sé erf- og ég sé ekki eftir því að hafa byrjað að vinna hér." Stefán Pálsson, deildarstjóri: - Hvernig vildi það til að þú hófst störf hérna á prjóna- og saumadeildinni? „Ég rakst á auglýsingu um þetta starf í Degi í októbermán- uði í fyrra en þá var ég við nám í rekstrartæknifræði í Danmörku. Ég sótti um starfið og fékk það og hef unnið hér frá því í janú- ar.“ - Hvaða hugmynd hafðir þú gert þér um starfið og þessa verk- smiðju áður en þú byrjaðir? „Ég hafði frekar óljósar hug- myndir um þetta en ég var stein- hissa þegar ég kom hingað því ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að fyrirtækið væri svona vel í stakk búið til að sinna sínu verki og þetta mikið tæknilega þróað. Þær vörur sem við framleiðum eru í hæsta gæðaflokki.“ vaktaálag ofan á öll laun. Ef fólk- ið vill yfirvinnu þá getur það fengið að vinna eins og það vill en við förum þess ekki á leit við fólk að fyrra bragði að vinna meira en átta tímana.“ - Er mikið af verkefnum fram- undan? „Já, það er óhætt að segja það. Við sjáum t.d. fram á að það þarf að fara að vinna við sauma á laugardögum um tíma.“ - Hvaða hlunnindi fylgja því að vera starfsmaður SÍS? „Starfsmenn hér fá allar vörur sem við framleiðum á kostnaðar- verði að viðbættum söluskatti. Pá fylgja ýmsir kostir því að vera meðlimur í Starfsmannafélagi SÍS og er of langt mál að telja það allt upp hér en ég get t.d. nefnt ódýr- ar utanlandsferðir og afslátt í verslunum." - Hvernig eru vélarnar og vinnuaðstaða hér í húsinu? „Vélarnar eru af fullkomnustu gerð og vel er fylgst með nýjung- um á þeim vettvangi. Við leggj- um mikla áherslu á að vel fari um fólkið þegar það vinnur við þess- ar vélar sem margar hverjar, t.d. prjónavélarnar, eru tölvustýrðar og þær eru sífellt að verða sjálf- virkari. Hér situr fólk við sauma- vélarnar en stendur ekki í bleytu og ísköldum vatnsgangi allan daginn eins og í frystihúsunum. Hér er alltaf hlýtt og fullkomið loftræstikerfi sér um að ferskt loft leikur um salina. Þá megum við ekki gleyma mötuneytinu sem er vinsælt af starfsfólkinu." - Er mikið spurt eftir vinnu hérna? „Það er alltaf eitthvað um það en fólk gerir sér svo rangar hug- myndir um þennan vinnustað. Það kom t.d. stúlka hingað fyrir tilviljun um daginn og það kom upp úr kafinu að hún vinnur hjá Útgerðarfélaginu. Þegar við fór- um að tala við hana og sýna henni það sem við framleiðum þá varð hún steinhissa. Hún varð svo hrifin af aðstöðunni hérna og laununum að hún ákvað að ráða sig í vinnu hérna því þetta væru betri laun en hún hefði í fiskin- um.“ - Hvað er algengt að fólk hafi í bónus hérna? „Það er reiknað með að starfs- fólk nái um 60% bónus fljótlega eftir að starfsþjálfun lýkur og það nær honum oftast nokkuð fljótt. Svokölluð 100% afköst þýða frá 50 til 70% bónus þannig að fólk getur innan vissra marka ráðið því sjálft hvað það hefur mikinn bónus.“ EHB - Leggur starfsfólkið metnað sinn í framleiðsluna? „Já, það gerir það og við gæt- um ekki boðið upp á vörur í þess- um gæðaflokki nema starfsfólkið væri með á nótunum. Við sækj- umst eftir duglegu og hæfileika-' ríku fólki í störf hjá okkur. Ég vil taka það fram að góður starfsandi ríkir hérna í fyrirtæk- inu og þannig viljum við hafa þetta. Ég held að það sé mjög jákvætt að það sé ungt fólk í ábyrgðar- og stjórnunarstörfum hérna.“ - Hvað er það fyrsta sem ger- ist þegar t.d. kona sækir um vinnu við sauma í verksmiðj- unni? „Við reynum að komast að því hvort viðkomandi hafi saumað áður eða kunni að sauma og meðhöndla saumavélar. Ef stúlk- an hefur ekkert saumað áður fær hún fjögurra vikna þjálfunar- tímabil á launum og 30% bónus. Fyrir þennan fyrsta mánuð sem notaður er til starfsþjálfunar greiðast rúmlega 30 þúsund krónur.“ - Hvernig eru launin eftir að starfsþjálfun lýkur? „Meðal-saumakona hefur 27 þúsund krónur í fastalaun og um 3 þúsund á viku í bónus. Það er því algengt að launin séu um 39 þúsund krónur á mánuði fyrir dagvinnuna. Ef unnið er á kvöld- eða næturvakt greiðist tilsvarandi Einar Eylund framleiðslustjóri t.v. og Stefán Pálsson deildarstjóri t.h. við tölvustýrða prjónavél. öðrum og þriðja áratug aldarinn- ar. Skóverksmiðjan Iðunn er þekkt og sömuleiðis fataverk- smiðjan Hekla, sem raunar er ekki lengur tiÞ undir því nafni frekar en hinar verksmiðjurnar. I dag eru verksmiðjurnar sér- stakar deildir innan Iðnaðar- deildar SÍS og Verkunardeildar Sambandsins. Þannig heitir t.d. fataverksmiðjan Hekla prjóna- og saumadeild Iðnaðardeildar SIS. Þetta breytir þó ekki þeirri hugsjón brautryðjendanna að efla innlendan iðnað og skapa atvinnu og erlendan gjaldeyri á grundvelli samvinnunnar - mætti hinna mörgu. Margt hefur breyst í verk- smiðjunum um dagana. Eftir brunann mikla 1967 var tækja- kostur endurnýjaður að mestu leyti og stjórnarmenn verksmiðj- anna hafa ætíð haft það að stefnumarki að nota nýjustu tækni sem völ er á í heiminum til að .framleiða sem besta vöru. Þetta hefur líka skilað sér vel ti! hagsbóta fyrir fyrirtækin, starfs- fólk þeirra og raunar alla itt o.s.frv. Þessi vinna venst vel og mér finnst ágætt að vinna hérna. Núna erum við að byrja með nýj- ar gerðir af peysum og þá þurfum við að venjast því en þetta geng- ur vel.“ - Hvaða kostir fylgja því fyrir þig að vinna hérna? „Ég vinn hérna m.a. af því að mér finnst það borga sig í sam- bandi við börnin. Eg á tvö börn og þyrfti að greiða fyrir gæslu á þeim en vinnutíminn er þannig að maðurinn minn getur séð um börnin á þessum tíma. Ég vinn frá kl. fimm til tíu á kvöldin." - Hvernig eru launin? „Það er borgað ágætt kaup hérna og ég er ánægð með það. Þetta fer líka eftir því hvað mað- ur kemst vel upp á lag með vél- arnar og í hvaða starfi maður er. Mér finnst að konur sem eru að hugsa um að vinna úti eða vilja breyta um starf ættu að athuga þetta og sjá hvernig þeim líkar. Ég myndi þó ekki ráðleggja þeim konum sem eru veikar í baki að vinna við saumaskap. Hér ríkir ágætur starfsandi meðal fólksins Guðfinna Sölvadóttir saumakona. „Hér rfldr góður starfsandi“ - Spjallað við Stefán Pálsson og Guðfinnu Sölvadóttur um prjóna- og saumadeild Iðnaðardeildar SÍS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.