Dagur - 13.03.1987, Blaðsíða 3
13. mars 1987- DAGUR-3
Rafland hf:
Því ekkiað bregða sér
til Húsavíkur
um helgina?
Nýtt fyrirtæki í verslunar-
miðstöðinni Sunnuhlíð
Ari Baldursson, rafeinda- I hf., í verslunarmiðstöðinni
fræðingur, og Jón Berg hafa Sunnuhlíð á Akureyri. Raf-
stofnað nýtt fyrirtæki, Rafland land hf. er bæði raftækjaversl-
Sauðárkrókur:
Skemmdir unnar
á leikvelli
Þegar starfsfólk leikskólans
Glaðheima á Sauðárkróki kom
til vinnu sinnar í vikunni
var allt á tjá og tundri á leik-
vcllinum. Hafði öllu lauslegu
verið hent til og sumt af því
brotið, kaðlar í göngubraut
skornir sundur og greinilegt að
eldur hafði verið kveiktur á
lóðinni.
Helga Sigurbjörnsdóttir for-
stöðumaður Glaðheima sagði
mjög algengt að stærri krakkar
og unglingar yllu skemmdum á
tækjum á leikvellinum og slíkt
hefði því miður alltaf verið að
gerast gegnum tíðina. Berserks-
gangurinn sem þarna hefði verið
genginn í þetta skiptið keyrði þó
algjörlega um þverbak. Vildi hún
beina þeim tilmælum til þeirra
sem kynnu að hafa orðið
skemmdavarganna varir eða
byggju yfir upplýsingum sem
gætu varpað ljósi á rannsókn
málsins að hafa samband við lög-
reglu og eins að foreldrar gerðu
börnum sínum grein fyrir því
tjóni sem slíkir verknaðir sem
þessi yllu. -þá
Ríkisútvarpið á Akureyri:
Þátttaka í nætur-
útvarpi ósennileg
Talsverðar breytingar hafa
verið boðaðar á dagskrá Rásar
2 og meðal annars er fyrirhug-
að að hefja útsendingar allan
sólarhringinn frá og með 18.
þessa mánaðar.
Að sögn Ernu Indriðadóttur
forstöðumanns Ríkisútvarpsins á
Akureyri er ekki alveg ljóst hver
hlutur deildarinnar verður í
auknum útsendingum Rásar 2 en
þó verður þáttum að norðan
sennilega fjölgað úr einum í þrjá
í viku hverri. Þátturinn „Á
mörkunum" sem verið hefur á
dagskrá Rásar 1 á sunnudags-
kvöldum verður framvegis send-
ur út á Rás 2 á laugardagskvöld-
um.
Þátttaka Rúvak í næturútsend-
ingum er ekki líkleg. Þar verður
eingöngu um að ræða tónlistar-
þætti og þar sem hér er ekki bún-
aður fyrir steríósendingar suður
um heiðar, mun vera takmarkað-
ur áhugi á að fá slíka þætti
héðan. Einhverjar athuganir fara
nú fram á möguleikum á að fá
slíkan búnað og að sögn Ernu er
þetta efst á óskalistanum.
Útsendingartími svæðisút-
varpsins verður að öllum líkind-
um óbreyttur, milli 18 og 19 síð-
degis og á þeim tíma verður öðr-
um svæðum sinnt á Rás 2. ET
Leiðrétting
I frétt af góðu gengi Freyvangs-
leikhússins í blaðinu á miðviku-
dag var sagt að nemendur Verk-
menntaskólans hefðu fjölmennt á
sýningu og væri það í fyrsta sinn
sem hópur skólanemenda kæmi á
sýningu, að því er vitað væri.
Rétt er að þetta er í fyrsta sinn
sem nemendahópur kemur frá
Akureyri á sýningu í Freyvangi.
Hins vegar hafa nemendahópar
framan úr Eyjafirði sótt sýningar
vel á undanförnum árum.
un og rafeindavinnustofa þar
sem gert er viö rafeindatæki
s.s. sjónvarpstæki og mynd-
bandstæki. Pálmi Stefánsson í
Tónabúðinni er einnig hluthafi
í Raflandi hf.
Ari Baldursson rak áður raf-
eindavinnustofu sem hét Bilun sf.
Það fyrirtæki sameinast nú ásamt
versluninni í Rafland hf. í versl-
uninni eru seld öll algeng raf-
magnstæki til heimilisnota, ljósa-
perur, lampar, tenglar og annað
sem lýtur að rafmagnsvörum og
raflögnum.
Þegar Ari var spurður að því
hvernig honum litist á framtíð
fyrirtækisins sagði hann: „Þessu
er tekíð vel og það er mikið skoð-
að hjá okkur. Það er einmitt tal-
að um að það hafi vantað raf-
tækjaverslun í Glerárhverfi síðan
raftækjaverslunin sem var hérna í
húsinu hætti.“ EHB
Hótelið býður upp á:
Helgarmatseðil:
Reykt þorskhrogn m/kavíarsósu
Glóöaður hörpuskelfiskur m/rækjum og sveppum
Unghænur í rauðvínssósu
Turnbauti að hætti hússins
Appelsínuundur
Auk þess:
* Lifandi músík í Hlíðskjálf föstudags- og
laugardagskvöld
* Dögurður í hádeginu laugardag og sunnudag
frá kl. 11-13
* Kaffihlaðborð sunnudag frá 15-17
Hötel
Husavik sími 41220.
Jt_ .
!0. W "
Norðlendingar ★ Norðlendingar ★ Norðlendingar
BOKA
M /1 K K rl Ð U K
FÉLAGS ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA
Bókamarkaður á Akureyri
Markaðurinn hefst fimmtudaginn 19. mars að Óseyri 6
(húsi Karlakórs Akureyrar). Sími 25002.
Opið alla daga frá kl. 13-19.
Heilu raðirnar af bókum á ótrúlega hagstæðu verði.
Stórar, litlar, þunnar, þykkar, sjaldséðar, sígildar, nýlegar og
gamlar bækur fyrir alla aldurshópa á gjafverði.
Greiðslukortaþjónusta.