Dagur - 13.03.1987, Blaðsíða 14

Dagur - 13.03.1987, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 13. mars 1987 Kór Barnaskóla Akureyrar: Söngskemmtun á sunnudaginn Kór Barnaskóla Akureyrar heldur tónleika í Alþýðuhús- inu á sunnudaginn milli kl. 15 og 17. Ýmislegt fleira verður á boðstólum svo sem kaffihlað- borð, happdrætti og einnig verður efnt til fjöldasöngs. Kórinn er að safna fyrir söng- ferðalagi til Færeyja og er þessi skemmtun á sunnudaginn liður í þeirri söfnun. Vonandi er að sem flestir sjái sér fært að mæta og leggja þannig sitt af mörkum til að af þessu ferðalagi geti orðið. Stjórnandi kórsins er Birgir Helgason og undirleikari verður Ingimar Eydal. SS Borgarbíó Föstudag kl. 9.00: Fjórir á fullu Föstud. kl. 11.00, laugard. og sunnud. kl. 5.00: Aliens Laugard. og sunnud. kl. 9.00: Oxford Blues Sunnud. kl. 3.00: E.T. Síðasta sinn. Sunnud. kl. 11.00: Fool for Love Höfundar: Joe Masterotf og Red Ebb Tónlist: John Kander Leikstjóri: Bríet Héöinsdóttir Koreograf: Ken Oldfield Leikmynd og búningar: Karl Asperlund Hljómsveitarstjóri: Roar Kwam Lýsing: Ingvar Björnsson Frumsýning laugard. 14. mars. Uppselt. 2. sýning sunnud. 15. mars kl. 20.30. # Æ MIÐASALA Mg Æm Æmm 96-24073 Leikfélag akureyrar Umsjón: Úlfar Hauksson i heldur lægra en það var fyrir rúmlega einu ári. Á sama tíma hafa tollar af bílum lækkað og kaupmáttur í landinu aukist lítillega. Þetta allt hefur valdið því að bandarískir bílar eru nú fáanlegir á viðráðanlegra verði en þeir hafa verið um langt skeið. Einn af þeim er þessi nýi Bronco, sem reyndar kom á markað fyrir nokkru, en hefur lítið sést hérlendis fram til þessa vegna óhagstæðs verðs. Bronco II er jeppi af milli- stærð (e.t.v. rétt rúmlega það) og ber merki hins nýja tíma í bílasmíði Bandaríkjamanna. Bíllinn er að mörgu leyti líkari japönskum jeppum en hinum stærri bróður sínum. Hann virð- ist minni utanfrá en hann er í raun og veru. Að innan er bíll- inn vel búinn og frágangur virð- ist góður og betri en oft hefur verið í bandarískum bílum. Mælar eru góðir og stjórntæki nokkuð vel staðsett. Stýrið er lítið og klætt kvoðu og fer vel í hendi. Framsætin eru nokkuð góð, e.t.v. heldur mjúk fyrir minn smekk. Aftursætið er miklu betra en það h'tur út fyrir að vera, en er tæplega nema fyr- ir tvo fullorðna. Farangursrým- ið aftan við aftursætið er nokk- uð gott og mun stærra en í mörgum öðrum jeppum. Aftur- hurðin opnast upp og auðvelt er að ganga um farangursrýmið. Rétt er að taka fram að Broncoinn fæst í nokkrum út- færslum og fáanlegur er mjög fjölbreyttur búnaður í flestar gerðirnar. Þegar að akstri kemur er margt sem gleður, ekki síst þegar horft er til baka til tíma gamla Broncosins. Vélin er 6 strokka með rafeindastýrðri innspýtingu, 2,9 lítrar að slag- rými og virðist afbragðsgóð. Bíllinn er snaggaralegur, vélin vinnur prýðilega og skilar hon- um vel áfram. Auðvitað hefur þessi vél ekki sama togkraftinn og stóru 8 strokka vélarnar, sem höfðu nærri tvöfalt stærra slag- rými. Eyðslan er líka verulega minni í samræmi við þetta og gætu fyrrum Broncoeigendur sem best fengið fráhvarfsein- <kenni vegna mun færri lieim- sókna til olíufélaganna. Ekki treysti ég mér til að fara með tölur um þetta en hér munar þó miklu. Ekki gladdi gírkassinn hjarta mitt minna en vélin, 5 gíra (ásamt overdrive), skipting- arnar auðveldar og nákvæmar og gírhlutföllin heppileg, þó ekki væru aðstæður til að reyna reglulega á lága drifið eða raun- verulega torfærueiginleika vélar og drifbúnaðar. Langt er nú komið frá stýrisskiptingunni í gamla Bronco, þar sem færa þurfti stöngina kvarthring um stýrisásinn til að skipta um gír. Millikassinn er einnig auðveld- ur viðureignar og hægt að skipta í og úr framdrifi á ferð án fyrir- hafnar. Á hinn bóginn getur glöggt eyra greint lítilsháttar gírkassasöng í honum. Fjöðrunin er e.t.v. það sem vakti hjá mér minnsta hrifn- ingu. Ekki fyrir það að hún væri ekki ágæt heldur fyrir það að mér þótti hún heldur mjúk í bíl sem þessum. Það er á hinn bóg- inn svolítið smekksatriði hvernig fjöðrun fellur fólki í geð og mín sérviska er ekki endilega rétt- hærri en hver önnur. Undir- vagninn á Bronco II er miniút- gáfa af undirvagninum í stærri Bronconum, þ.e. með stífan afturás og blaðfjaðrir en afar sérkennilegan skiptan ás og gorma að framan. Bíllinn liggur ágætlega og er í rauninni stöðugur og rásfastur, en þessi mjúka fjöðrun veldur stundum þeirri tilfinningu að bíllinn ætli að fara að dansa á veginum. Vafalaust geta þeir sem vilja breytt þessu með stífari demp- urum. Bremsurnar eru góðar, diskar að framan og skálar að aftan, sem eru búnar rafeindastýringu til að koma í veg fyrir að aftur- hjólin læsist við hemlun. Þessi búnaður virtist vinna sitt verk, en þó aðeins ef bíllinn er ekki í fjórhjóladrifi. Stýrið er nokkuð gott og verulega betra en hefur verið í fyrri gerðum af Bronco, mætti þó að skaðlausu vera ná- kvæmara. Ford Bronco II er að flestu leyti afbragðs bíll, vel búinn og ef að líkum lætur, sterkur og traustur. Stærstu kostir þessa bíls finnst mér vera vélin og gírkassarnir. Ennfremur er greinilegt að Bandaríkjamenn hafa á síðustu árum náð betri árangri í frágangi bíla sinna, sem um tíma var ekki til að hrópa húrra yfir. Það er því þess virði að skoða Broncoinn vel ef menn eru á þeim bux- unum að kaupa sér „fullorðinn“ jeppa og ef gengi á dollar helst svipað og nú er verður að telja verðið hagstætt. Ford Bronco II er nýjasta af- sprengið af Bronco-ættkvíslinni sem fyrst sást hér á landi á miðj- um 7. áratugnum. Nokkurt Bronco-æði greip þá fljótlega um sig því „gamli Broncoinn“ var fyrsta jeppanýjungin sem þá hafði borist hingað til lands um langt skeið. f þá daga voru jeppar af Willys eða Land- Rover gerð - „punktur og basta“. Broncoinn gamli lifði í liðlega áratug án verulegra breytinga. Síðan hóf Ford smíði á nýjum Bronco, sem verður víst að telja fullvaxinn, rúmlega tveggja tonna dreka í sama stærðarflokki og Blazer frá GM. Sá stóri náði aldrei sömu vinsældum hér á landi og sá gamli enda þótt um talsvert betri bíl væri að ræða. Ástæð- urnar eru vafalaust stærðin og verðið ásamt talsvert meiri bensíneyðslu á tímum síhækk- andi eldsneytis. Gengi Bandaríkjadals er nú Gerð: Ford Bronco II XL 3 dyra, 4-5 nianna jeppa- bifreið, vél að framan, drif á öllum hjólum. Yél og undirvagn: V 6 strokka, vatnskæld, fjórgengis-bensín- vél mið lægur knastás; bein rafeindastýrð inn- spýting; borvídd 93,0 mm; slaglengd 71,9 mm; slagrými 2930 cm; þjöppun 9:1; 142 hö. við 4600/mín.; 231 Nm við 2600/mín.; Gírkassi 5 gíra, sjálfstæð fjöðrun að framan með tvískiptum ás, gormum, dempurum og jafnvægisstöng. Stífur afturás með blað- fjöðrum, dempurum og jafnvægisstöng. Aflbremsur, diskar að framan, skálar að aftan með læsingarvörn; handbremsa á aftur- hjólum. Hjólbarðar 205/75 R 15; eldsneytisgeymir 871. Mál og þyngd: Lengd 402,5 cm, breidd 172,5 cm, hæð 173,0 cm, hjólahaf 239,0 cm, sporvídd 144,5/144,5 cm, fríhæð ca. 20 cm; þyngd 1435 kg- Hámarkshraði ea. 155 km/klst. Framleiðandi: Ford Motor Company, U.S.A. Innllytjandi: Sveinn Egilsson h.f., Reykjavík. Umboð: Bílasalan h.f. Akureyri Verð: Kr. 995.000 Ford Bronco II

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.