Dagur - 13.03.1987, Síða 11
10 - DAGUR - 13. mars 1987
13. mars 1987 - DAGUR - 11
Skautafélag Akureyrar
50
Skautafélag Akureyrar var stofn-
að 1. janúar árið 1937 og varð
félagið því 50 ára á nýársdag.
Stofnfundurinn fór fram í
Skjaldborg og voru stofnfélag-
arnir 18. Það hafa skipst á skin
og skúrir í þessari 50 ára sögu
félagsins og áhugi fyrir skauta-
íþróttinni verið mismikill.
íþróttin hefur átt undir högg að
sækja á allra síðustu árum en nú
er farið að birta til á ný. Félag-
inu hefur verið úthlutað svæði á
Krókeyri, vonandi til frambúðar
og eru framkvæmdir við það
þegar hafnar. Búið er að steypa
plötu og leggja frystilagnir og í
sumar stefna skautafélagsmenn
að því að kaupa vélfrystibúnað.
Enn vantar þó búningí-rg bað-
aðstöðu. Með batnandi æfinga-
og keppnisaðstöðu vonast for-
svarsmenn félagsins til þess að
skautaíþróttin vinni sér aftur
vinsældir í bænum, eins og hún
átti að fagna fyrir 50 árum.
Texti: KK.
„Framtídín er
nokkuð björt“
- segir Guðmundur Pétursson
formaður Skautafélags Akureyrar
„I’etta hefur verið frekar erfitt
í vetur og það sem hefur háð
okkur fyrst og fremst er að
hafa ekki við neina að keppa.
En hvað framtíðina varðar,
sýnist mér vera bjart framund-
an,“ sagði Guðmundur Péturs-
son formaður Skautafélags
Akureyrar er hann var inntur
eftir stöðu félagsins á þessum
merku tímamótum.
„Við höfum att kappi við lið
Reykjavíkur í gegnum tíðina í
íshokkíinu. í fyrra æfðu þeir lítið
og komust ekki í neina æfingu.
Þeir komu að vísu hingað norður
í eitt hraðmót en það var nú
meira í gríni en alvöru. Þeir eru
þó ekkert að hætta að iðka þessa
íþrótt. Reykjavíkurborg hefur
ákveðið að verja dágóðri pen-
ingaupphæð í uppbyggingu íþrótt-
arinnar í borginni. Og er stefnt
að því að koma þar upp vélfrystu
svelli, vonandi fyrir næsta haust.
Þegar hægt verður að fara að æfa
við betri aðstöðu, bæði hér og í
Reykjavík, gerbreytist þetta
aftur. Þetta byggist á því að
menn æfi við góðar aðstæður og
fái einnig leiki öðru hvoru.
Ahorfendur hafa líka haft mjög
gaman af því að sjá alvöru leiki á
milli Akureyrar og Reykjavík-
fyrir
- Hvað með aðstöðu
félagið hér á Akureyri?
„Við fengum úthlutað svæði
við Krókeyrina og þar verður
framtíðarsvæði félagsins. Planið
hefur þegar verið lagt með frysti-
lögnum og við stefnum að því að
kaupa frystivélarnar í sumar en
þær kosta um 4 milljónir. Nú og
þarna vantar líka búninga- og
snyrtiaðstöðu. Við höfum hug á
Guðmundur Pétursson formaður Skautafélags Akureyrar.
Mynd: KK.
því að næsta vetrarhátíð verði
haldin á Akureyri árið 1990, þar
sem keppt verður bæði á skíðum
og skautum og að þá verðum við
komnir með almennilega
aðstöðu.“
- Hvað stunda margir þessa
íþrótt hér á Akureyri?
„Ætli það séu ekki á milli 50 og
60 manns og í vetur hefur veriö
æft í tveimur aldurshópum."
- Hafa ríki og bær stutt ykkur
vel við uppbygginguna?
„Við erum að reyna að herja á
gamalt loforð frá ÍSÍ um pening í
þessa framkvæmd, þar sem viö
erum fyrstir af stað með vélfryst-
ingu. Bærinn hefur ekki komið
nógu vel til móts við okkur. Akur-
eyri sem er vetraríþróttamiðstöð
íslands, hefur alls ekki náð að
standa undir því nafni. Það er
eins með ríkið, við fengum 250
þúsund krónur frá ríkinu upp í
framkvæmd upp á 5 milljónir.
Hvað sem öllu líður munum
við kljúfa kaupin á vélfrystibún-
aðinum á einhvern hátt, það er
ekki hægt að hætta héðan af. Við
stefnum að því að geta tekið
svæðið í notkun með vélfrysting-
unni næsta haust og þá yrði hald-
in einhver afmælishátíð þó
afmælisdagurinn hafi verið 1.
janúar síðastliðinn," sagði Guð-
mundur Pétursson.
Skautafélag Akureyrar var
formlega stofnað 1. janúar árið
1937 eða fyrir réttum 50 árum.
Aður en félagið var stofnað
höfðu nokkrir Eyfirðingar
stundað bæði skautahlaup og
íshokkí að einhverju marki.
Jón Dalmann Ármannsson
starfsmaður á Skattstofu
Norðurlands var einn þeirra er
voru á stofnfundinum, þó hann
hafi ekki gerst stofnfélagi. Jón
gerðist síðar félagi og hann var
einmitt formaður félagsins á 25
ári afmæli þess. Dagur fékk
Jón til þess að skýra frá því
hverjir hafi staðið að stofnun
félagsins og hver þróunin hafi
verið í gegnum árin.
tímabil í kringum 1950, þegar
fyrstu hraðhlaupsmótin fóru af
stað og fyrsta íslandsmótið í
greininni var haldið. En fljótlega
upp úr 1960 fór að koma í þetta
afturkippur á ný. Nú ástæðan er
sennilega fyrst og fremst
aðstöðuleysi. Þáð þurfti að færa
svæðið og peningar til þeirra
verkefna voru af skornum
skammti. Á þessum tíma urðum
við að sætta okkur við það að
bíða meðan unnið var við fram-
kvæmdir í Hlíðarfjalli. Það má
segja að valið hafi staðið á milli
þessara íþrótta, við urðum undir
og þurftum að horfa á eftir mann-
skap frá okkur.“
- Hvernig líst þér á framtíð
félagsins?
T.v. Ottó Ryel, Magnús Brynjólfsson, Kristján Geirmundsson, Ágúst
Ásgrímsson, Hektor Sigurðsson, Gunnar og Eggert Steinsen og Þórir
Sigurðsson. Þeir Kristján og Ágúst voru í fyrstu stjórn Skautafélags
Akureyrar. Myndina tók Gunnar Thorarensen árið 1935-’36.
Þessa mynd tók Eðvarð Sigurgeirsson á skautamótinu mikla sem fram fór
í Stórhólma árið 1941. Þar var keppt í hraðhlaupi, listhlaupi og íshokkí.
Jón Dalmann Ármannsson á fleygiferð í skautahlaupi á Pollinum 22.
febrúar 1969. Mynd: Ágúst B. Karlsson.
................................................................. -
Það hafa verið miklar sveiflur
í fþróttímii í gegnum tíðina“
- segir Jón Dalmann Ármannsson en hann var á stofnfundi SA
fyrir 50 árum og var formaður félagsins á 25 ára afmæli þess
„Það má segja að frumkvöðlar
félagsins séu þeir sem skipuðu
tyrstu stjórnina. Þar var fremstur
í flokki formaðurinn, Gunnar
Thorarenson og með honum
voru Kristján Geirmundsson og
Ágúst Ásgrímsson en Ágúst er sá
eini af þeim sem er lifandi í dag.
Þá skildist mér á Gunnari að fað-
ir minn, Ármann Dalmannsson
hafi unnið með þeim þre-
menningum við undirbúning að
stofnun félagsins en hann var ein-
mitt fundarstjóri og frummælandi
á stofnfundinum. Fundurinn fór
fram í Skjaldborg og voru stofn-
félagarnir 18.“
— Hafði félagið eitthvert fé-
lagssvæði í upphafi?
„Pélagið hafði ekkert sérstakt
svæði í upphafi. En þessir menn
höfðu allir stundað skautaæfingar
alllengi áður en félagið var stofn-
að og þá aðallega á Pollinum, inn
á Leirum og inn í Hólmum. Á
þeim tíma voru allt önnur skil-
yrði á þessum stöðum og þá sér-
staklega á Leirunum en þar var
alltaf miklu meiri ís, alveg þang-
að til flugvöllurinn kom. I Hólm-
,unum var haldið fyrsta skauta-
mótið sem haldið hefur verið hér.
Það var árið 1941 og var keppt í
öllum greinum, í nokkrum flokk-
um í hraðhlaupi, íshokkí og list-
hlaupi, bæði í einstaklings- og
parakeppni.“
- En hvenær var félaginu út-
hlutað eigin svæðP?
„Fyrsti fasti samastaður félags-
ins var á Krókeyri, rétt sunnan
við núverandi svæði en því var
félaginu úthlutað árið 1949.
Þegar Krókeyrarstöðin var byggð
vorum við færðir á svæðið á móts
við Höepfner og þar vorum við þar
til í fyrra að við fengum núver-
andi svæði sem er rétt norðan við
Krókeyrarstöðina. Það er von
okkar að þarna verði framtíðar-
svæði félagsins.“
- Hefur ekki skautaíþróttin
átt undir högg að sækja á undan-
förnum árum?
„Það hafa verið miklar sveiflur
í þessu í gegnum tíðina og það
má hiklaust segja að íþróttin hafi
átt undir högg að sækja á undan-
förnum árum. Eftir að félagið var
stofnað og fyrstu árin þar á eftir
var mikill uppgangstími í íþrótt-
inni. Síðan kom annað uppgangs-
„Ég held að þetta eigi eftir að
koma upp á ný en spurningin er
bara hvenær. Þessi íþrótt er
stunduð svo mikið í löndum hér í
kring og mikill uppgangur í þeim.
Við treystum því að fá vélfryst
svell og það hefði aldeilis komið
sér vel fyrir okkur hafa vélfryst
svell í vetur, tíðarfarið hefur ver-
ið þannig. Þetta byggist þó allt á
því að aðstaðan til æfinga og
keppni sé góð og það horfir til
betri vegar fyrir okkur hjá
Skautafélagi Akureyrar. Nú fjöl-
miðlar koma þar líka inn í. Það
heyrir til undantekninga að skýrt
sé frá því í útvarpi, sjónvarpi eða
blöðum hvað sé að gerast í þess-
um íþróttagreinum,“ sagði Jón
Dalmann að lokum.
Þessir myndarlegu piltar kepptu í drengjatlokki í skautahlaupi á Islandsmótinu 1961. T.v. Ævar Guðmundsson,
Stefán Arnason, Kristján Ármannsson, Sævar Jónatansson, Skúli Lórenzson, Hallgrímur Indriðason, Jóhann Már
Jóhannsson Og Asgrímur Ágústsson._Mynd: Gunnhmgur P. Krislinsson.
„Skautamír skrúfaðir
undir heima í eldhúsi“
- segir Öm Indriðason skautameistari íslands
Skautameistari íslands í karla-
flokki er Örn Indriðason frá
Skautafélagi Akureyrar. Örn
varð íslandsmeistari í öllum
vegalengdum á Islandsmeist-
aramótinu árið 1961 á Akur-
eyri en síðan hefur ekki verið
haldið slíkt mót og titillinn því
enn í höndum Arnar.
Dagur fékk Örn í stutt spjall
og spurði hann fyrst hvenær hann
hafi bvrjað að stunda skauta-i
íþróttina og hvenær hann hafi
keppt í fyrsta skipti.
„Maður byrjaði mjög ungur að
fara á skauta en búnaðurinn var
ekki upp á marga fiska í þá daga.
Ég bjó í Innbænum og það var
hægt að skrúfa skautana neðan á
skóna heima í eldhúsi og síðan
þurfti að fara yfir götuna og þá
var maður kominn á svellið.
Aðstaðan var önnur í þá daga
en hún er í dag og það var miklu
meiri rómantík yfir þessu í gamla
daga.
Ég keppti í fyrsta skipti í lok
desember árið 1951 þá 7 ára
gamall, í 300 m hlaupi í flokki 14
ára og yngri. Árið 1956 eignaðist
ég alvöru hlaupaskauta og þá fór
ég að taka meiri þátt í fþróttinni.
Fyrsta Akureyrarmótið sem ég
tók þátt í fór fram árið 1957 en þá
keppti ég í flokki 12-14 ára.
Skemmtilegasta mótið sem ég
tók þátt í, var íslandsmótið árið
1961 en þá tókst mér að vinna
skautahlaupið í öllum vegalengd-
um, 500 m, 1500 m, 3000 rh og
5000 m. Við vorum þrír Akureyr-
ingarnir í fyrstu sætunum, ég,
Sigfús Erlingsson og Skúli
Ágústsson. Árið eftir fór fram
Akureyrarmót og þá tókst mér
að endurtaka leikinn frá fslands-
mótinu og vinna skautahlaupið í
öllum vegalengdum."
- Æfðir þú íshokkí líka?
„Já, en íshokkíið kom mun
seinna til sögunnar en skauta-
hlaupið. Hokkíið gefur manni
mjög mikið. í því er hægt að slást
og djöflast og er allt öðruvísi
íþrótt eins og gefur að skilja.
Skúli Ágústsson er nú samt sá
leikmaður sem hefur náð hvað
lengst í þeirri íþrótt hér á Akur-
eyri, harður og skemmtilegur
spilari.”
- Ertu enn að æfa?
„Ég hef aðeins verið að leika
mér í vetur en tíðarfarið hefur
ekki verið allt of gott fvrir
skautamenn. Þetta hefði að vísu
verið ákjósanlegt ef vélfrystibún-
aðurinn hefði verið kominn. En
scnnilega verðum við þessir
gömlu hættir að mestu leyti þegar
hann verður kominn upp. Én ég
vona engu að síður að það verði
til þess að glæða áhugann á
skautaíþróttinni aftur. Það er
eins með þessa íþrótt og aðrar að
það þarf að byrja að þjálfa
krakkana mjög snemma svo að
góður árangur náist. Ég þykist
viss um að það þýddi ekki að
bjóða mönnum upp á þá æfinga-
aðstöðu í dag sem við bjuggum
við í gamla dag," sagði Örn lnd-
riðason skautameistari íslands.
Eins og kemur fram í viðtalinu
við Guðmund Pétursson formann
SA er áhugi fyrir því að halda
vetraríþróttahátíð á Akureyri
árið 1990. Þegar liafa tvær slíkar
hátíðir verið haldnar, árið 1970
og 1980 og sigraði Örn Indriða-
son bæði árin í 500 m og 1500 m
skautahlaupi. Hvort Örn verður
með árið 1990 ef hátíðin fer frarn
þá verður bara að koma í ljós.
Örn lndriðason skautameistari íslands á fleygiferð í keppni á vetrarhátíðinni
1980. Mynd: H. Einarsson.