Dagur - 20.03.1987, Blaðsíða 1

Dagur - 20.03.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur Akureyri, föstudagur 20. mars 1987 55. tölublað Qullið raeður meira en graenir shógar SJá bts. 18-19 ligtverð átrpnu- krabbanum 5já bls. Skoðanakönnun Dags og Félagsvísindastofnunar HÍ á Norðurlandi Fleiri vilja núverandi stjórn en „viðreisn“ - aðeins 5% kjósenda vilja vinstri stjórn - mjög fáir vilja Alþýðubandalagið í stjórn Núverandi stjórnarmynstur nýtur mestra vinsælda meðal kjósenda á Norðurlandi, sam- kvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskól- ans gerði fyrir Dag. Þannig vilja 27% kjósenda í báðum Norðurlandskjördæmunum áframhaldandi ríkisstjórn Framsóknarllokks og Sjálf- stæðisfTokks, þegar tekið er vegið meðaltal úr báðum kjör- dæmum. Hins vegar nýtur ríkisstjórnin meiri vinsælda meðal kjósenda í Norðurlands- kjördæmi vestra, þar sem 36% kjósenda vilja hana áfram, en 23% í Norðurlandskjördæmi eystra. Þeir sem vilja viðreisn- arstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks eru 17%, þegar tekið er vegið hlutfall úr báðum kjördæmum. Kjósend- ur í Norðurlandi vestra eru þó ekki hrifnir af viðreisn, eða 12% aðspurðra og 20% í TAFLA 1 Hvaða flokka viltu í ríkisstjórn? „ ., Norðurl. Norðurl. Stj ornarmynstur: vestra e.Vstra Bæði kjörd. Vej;in lilutföll Núverandi stjóm (B+D) 36% 23% 27% Viðreisn (A+D) 12% 20% 17% Vinstri stjóm (A+B+G) 6% 5% 5% Jafhaðarstjóm (A+G+V) 1% 5% 4% A-flokka stjóm (A+G) 1% 3% 2% Nýsköpunarstjóm (A+D+G) 2% 2% 2% B+G+V 3% 1% 2% D+G 2% 1% 2% önnur stjómarmynstur 2% 6% 5% Neitar að svara 3% 3% 3% Veit ekki 32% 31% 32% Alls 100% 100% 101% Fjöldi svarenda (270) (234) (504) Norðurlandskjördæmi vestra. Vinstri stjórn Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og Alþýðu- bandalags nýtur ekki mikilla vinsælda á Norðurlandi. Aðeins 5% kjósenda vilja þetta stjórn- armynstur. Stjórn Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Kvennalista vilja 4% og síðan vilja 2% eftir- farandi stjórnarmynstur: A- flokka stjórn, nýsköpunarstjórn með Alþýðuflokki, Sjálfstæðis- flokki og Alþýðubandalagi, stjórn Framsóknar, Alþýðu- bandalags og Kvennalista og 2% vilja einnig stjórn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðubandalags. Þegar litið er á þessar tölur í samhengi kemur það í ljós að alltaf þegar Alþýðubandalagið kemur við sögu eru fylgjendur fáir, frá 2% upp í 5%. Þá er nokkuð augljóst að kjósendur í Norðurlandi eystra og vestra eru nokkuð mismunandi skoðunar varðandi æskilegt ríkisstjónar- mynstur. Þessi könnun var.gerð 10,- 13. mars og svarendur í báðum kjördæmum voru 504. Aðeins 3% neituðu að svara, en 32% aðspurðra voru óákveðnir. HS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.