Dagur - 31.03.1987, Qupperneq 1
70. árgangur Akureyri, þriðjudagur 31. mars 1987 62. tölublað
LACOSTE
Peysur • Bolir
Frönsk úrvalsvara
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Sýnataka á rækju:
Þrjár verksmiðjur
skera sig úr með gæði
- þar af tvær á Norðurlandi
Á vegum Ríkismats sjávar-
afurða, Rannsóknarstofnunar
fískiðnaðarins, framleiðenda
og utflytjenda á rækju, hafa
frá því í juní 1985 farið fram
reglulegar sýnatökur á pillaðri
rækju hér á landi. AIls voru
tekin sýni hjá 37 verksmiðjum
um allt land og fór sýnatakan
að jafnaði fram vikulega.
í sýnatökunni var kannað
gerlainnihald hráefnisins svo og
magn Trimetylamin, TMA, en
Ólafsfjörður:
Mánaberg
kemur heim
Frystitogarinn Mánaberg frá
Ólafsfírði er í dag væntanlegur
heim, frá Brattvog í Noregi þar
sem umfangsmiklar breytingar
hafa farið fram á skipinu.
Togarinn lagði af stað á laugar-
daginn.
Mánaberg hét Merkúr þar til
nú fyrir helgina að hann var
skírður upp að viðstöddum full-
trúum útgerðarfyrirtækisins
Sæbergs hf. sem gerir skipið út.
Mánaberg er næst stærsti tog-
ari íslenska fiskiskipaflotans, 969
brúttólestir að stærð. Aðeins
Venus frá Hafnarfirði er stærri en
hann er rúmlega þúsund rúmlest-
ir. Vegna stærðar og hve djúpt
það ristir er fyrirsjáanlegt að það
getur ekki lagst við löndunar-
kantinn á Ólafsfirði fyrr en dýpk-
un hafnarinnar er lokið. Pangað
til verður skipið að leggjast að
hafskipabryggjunni. Vegna þessa
má búast við að farið verði til
Akureyrar eða Dalvíkur þegar
togarinn verður búinn í sína
fyrstu veiðiferð. ET
það er niðurbrotsefni eggjahvítu
og gefur því vísbendingu um ald-
ur rækjunnar. Einnig var aldur-
inn kannaður.
Að sögn Skarphéðins Óskars-
sonar sem hafði yfirumsjón með
verkefninu má á heildina segja að
gerlafræðilegt ástand íslenskrar
rækju sé mjög gott. Á því finnast
þó sláandi undantekningar því
hjá einni verksmiðju dæmdust öll
sýni slæm hvað þetta varðar. Að
sögn Skarphéðins var þar um að
kenna sóðaskap.
Á Norðurlandi voru tekin sýni
hjá níu verksmiðjum, 6 á
Norðurlandi vestra og þremur á
Norðurlandi eystra. Ef á heildina
er litið má segja að þrjár verk-
smiðjur skeri sig nokkuð úr, þar
af tvær á Norðurlandi. Þessar
verksmiöjur eru Söltunarfélag
Dalvíkur, Rækjuverksmiðjan
Skagaströnd og HDD á Drangs-
nesi. Auk þeirra voru fimm verk-
smiðjur með 100% gallalaus sýni.
Á Norðurlandi vestra var tek-
ið 181 sýni. Af þeim voru 91%
gallalaus, 7% gölluð og 2% slæm
með tilliti til geriainnihalds. Til
samanburðar má geta þess að af
775 sýnum sem tekin voru á land-
inu voru 76,9% gallalaus, 18,6%
gölluð og 4,5% slæm. Af 88 sýn-
um sem tekin voru á Norðurlandi
eystra reyndust 88% vera galla-
laus, 9% gölluð og 3% slæm.
Hráefni hjá norðlenskum verk-
smiðjum var einnig með TMA
innihald undir landsmeðaltali.
Á Norðurlandi eystrá voru
15% sýnanna eldri en 4 sólar-
hringa en 53% á Norðurlandi
eystra. Skarphéðinn sagðist ekki
hafa neina eina skýringu á þessu
háa hlutfalli en sagði að vel hefði
verið gengið frá hráefninu.
Að sögn Skarphéðins verður
tillit tekið til þessara niðurstaðna
við sýnatöku í framtíðinni. ET
Akureyri:
Skutu á bíla
- Unglingar handteknir
með byssur undir höndum
Á fímintudaginn í síðustu viku
voru tveir ungir piltar grunaðir
um að skjóta úr ril'fli út um
glugga á heimili annars þeirra.
Sannanir fcngust í málinu og
fór lögreglan á staðinn á laug-
ardag og afvopnaði piltana.
Piltarnir sem eru 16 ára höfðu
tekið riffílinn ófrjálsri hendi og
skutu á það sem í kringum þá
var.
Stunduðu piltarnir þessa iðju
sína um hábjartan dag. Skutu
þeir m.a. á tvo bíla sem voru fyrir
framan húsið sem þeir voru í.
Fundust 12 skotgöt á bílunum.
Einnig skutu þeir á ýmsa hluti
sem á vegi þeirra urðu. Fólk var á
ferli á skotstaðnum þegar piltarn-
ir voru við iðju sína og má því
telja mildi að ekki urðu stórslys
af þessu háttalagi. Lögreglan tók
skotvopnið af piltunum og mun
hafa það í sinni vörslu. Piltar
þessir hafa áður komið við sögu
hjá lögreglunni.
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri hefur einnig upplýst annað
mál sem tengist skotgleði ungl-
inga. Það voru þrír 17 ára piltar
sem skutu á vélskóflu í eigu
Akureyrarbæjar. Var vélskóflan
í malarnámi bæjarins á Glerár-
dal. Skutu þeir á rúður vélarinnar
og brutu þær. Viðurkenndu þeir
líka að hafa skotið á bíl sem stóð
á Óseyri. Þar skutu þeir rúður úr
bílnum. Einnig viðurkenndu þeir
að hafa skotið á skilti JC hreyf-
ingarinnar sem staðsett er við
bæjarmörkin. Er því um tölu-
verðar skemmdir að ræða, af
völdum þessara , skotglöðu
manna. gej-
I gær voru kennarar þungir á brún þar sem þeir ræddu stöðu mála í „kcnnaraathvarfinu“ á Akureyri. Nú ætti að
vera léttara yfir því í gærkvöld var samþykkt aö ganga til sanminga og líklega er búið að fresta verkfallinu.
Kennaradeilan:
Verkfallið leyst?
Fulltrúaráð Hins íslenska
kennarafélags samþykkti í gær
að gengið yrði frá kjarasamn-
ingum HÍK og ríkisins á grund-
velli þeirra samningsdraga sem
þá lágu fyrir, enda takist sam-
komulag um þau atriði sem
enn voru ófrágengin. „Þegar
samkomulag hefur tekist felur
fulltrúaráðið samninganefnd
félagsins að fresta yfírstand-
andi verkfalli þar til allsherjar-
atkvæðagreiðsla hefur farið
fram um nýjan kjarasamning,“
segir í bókun ráðsins.
Ekki var búið að fresta verk-
fallinu þegar þetta var skrifað í
gær en búist var við því að það
yrði gert síðar í gærkvöld. Full-
trúar kennara virtust a.m.k.
ánægðir með þessi samningsdrög
og allt benti til þess að ríkið hefði
gefið nokkuð eftir.
Ekki voru nefndar neinar tölur
varðandi þennan kjarasamning
og sögðu þeir Kristján Thorlacius
og Indriði H. Þorláksson að það
væri hægt að fá ýmsar tölur út úr
þessum drögum, þetta væri flók-
inn samningur. Kennarar fá mis-
munandi hækkanir, en byrjenda-
launin hækka þó meira en önnur
og er það í samræmi við aðal-
kröfu kennara.
í gær könnuðum við það hjá
MA og VMA hvort margir
nemendur hefðu gefist upp og
hætt námi. Ekki höfðu skrifstof-
um skólanna borist tilkynningar
þar að lútandi en þó var vitað um
nokkra sem voru hættir. Það
kæmi ekki í Ijós fyrr en kennsla
hæfist að nýju hve margir hefðu
í rauninni hætt. Og eftir öllu að
dæma ætti kennsla aö vera hafin í
dag. SS
Þessi bíll varð fyrir barðinu á hinum skotglöðu piltum. Ef grannt er skoðað
má sjá a.m.k. 7 kúlnagöt á bílnum. Mynd: rþb
112 milljónir
á næstu 3 árum
í vor hefst vinna við nýja
fískihöfn á Akureyri. Verður
hún staðsett milli viðlcgukants
Slippstöðvarinnar og bryggj-
unnar hjá Útgeröarlelagi
Akureyringa.
Búið er að gera 4 ára áætlun
um gerð hafnarinnar og mun verk-
inu verða flýtt, þannig að það
verður unnið á 3 árum.
Það sem gert verður á þessum
tfma er aö viðlegukantur Slipps-
ins verður lengdur til að skýla
höfninni íyrir norðanöldunni.
Grjötgarður verður gerður norð*
ur úr togarabryggjunni. Einnig
verður þar rekið niöur mikið
stálþii og það sem dælt verður úr
höfninni verður notað sem fyll-
ing á milli þilsins og grjótgarðs-
ins. Þar myndast um lÓ þúsund
fermetra athafnasvæöi. Sam-
kvæmt áætluri mun þetta verk
kosta um 112 miUjónir króna.
Nánar er sagt frá þessu á bls. 3,
en þar ereinnig kort af svæðinu.