Dagur - 27.04.1987, Síða 5

Dagur - 27.04.1987, Síða 5
Brynjólfur Brynjólfsson: Og enn eru menn á villigötum Ólafur G. Vagnsson ráðunautur svarar mér í Degi 21. apríl vegna greinar sem ég skrifaði í Dag 15. apríl. Ólafur telur að ég taki full- djúpt í árinni í fyrirsögn. Það sem Ólafur skrifar í þess- ari grein, og það sem ég skrifa hér á eftir, mun réttiæta þessa fyrirsögn og fullyrðingu þá sem í henni felst. Ólafur upplýsir mig um ástæðu þess að þessari fram- leiðslu var að mestu hætt. Ég trúi Ólafi fullkomlega, en get ekki varist þeirri hugsun að eitthvað vanti í þá frásögn viljandi eða óviljandi. Pegar ég hugleiði þá miklu framleiðslu, sem hér var á þessum kartöflum, og þau vand- kvæði sem koma fram í upplýs- ingum Ólafs þá finnst mér þetta ekki stemma fullkomlega. Ég spyr því, hvað gerðist, hvernig og hvenær og hvað þarf að gera til að komast til fyrra horfs í þessari framleiðslu. Ólafur segir í grein sinni að Premíére kartaflan hafi aðeins þann ókost að dökkna við suðu. Mér blöskrar svo þessi fullyrðing að ég veit ekki hvernig á með að fara en þó ætla ég að reyna. Ég ætla að greina frá tveimur algeng- ustu vinnsluaðferðum á kartöfl- um, suðu og djúpsteikingu. Kartöflurnar eru afhýddar í vél, hreinsaðir blettir, skornar í hæfilega bita, settar í pott með yatni, lok á og soðnar. Pú Iendir strax í vandræðum því kartöfl- urnar þola ekki suðu ef um er að ræða Premíére. Kartöflurnar ein- faldlega detta í sundur í pottinum þó nákvæmlega sé soðið og hellt af á réttuin tíma, þær þola ekki Við hvetjum lesendur til að koma úr feluin og láta skoðanir sínar í ljós hér í lesendahorninu. Síminn er 24222 að geymast undir loki f sínum eigin hita hvað þá ef um væri að ræða hitaborð með utanaðkom- andi hita. Þá er komið að djúp- steikingu, þar hefst vinnslan eins, afhýðing, snyrting, skurður. Kartöflurnar eru svo forsteiktar og má segja að þar með séu þær ónýtar ef um er að ræða Premí- ére kartöflur. Ástæðan fyrir þessu ónýti er einfaldlega sú að við næsta stig vinnslunnar verða kartöflurnar mjúkar, flekkóttar og klesstar ef um er að ræða Premíére. Pað sem ég var að segja frá, er vinnsla á frönskum kartöflum í vanalegu eldhúsi. En hvað þá um slíka vinnslu í verk- smiðju hvaða munur er á, það er frystingin. Á milli forsteikingar og fullsteikingar kemur frysting sem reynir mikið á hráefnið, þess vegna er áríðandi að menn átti sig á því að Premíére er jafn frá- leitt hráefni þar sem annars staðar. Ég gat þess í fyrri grein minni að matreiðslumenn hefðu leyst þennan vanda með ýmsu móti hver í sínu eldhúsi. Sumir matreiðslumenn búa svo vel að hafa yfir að ráða gufusuðu- skápum sem gera mögulega meiri nákvæmni í suðu, en þessi tæki eru búin að vera í notkun erlend- is í marga áratugi. Pað virðist ekki hafa breytt neinu um stöðu Bintjé kartöflunnar á vinsælda- listanum, hún er efst eins og alltaf. Ég veit um einn veitingastað sem kaupir innfluttar kartöflur vegna þessa vanda. Þessi veit- ingastaður er með mjög marga nema í matargerð, þessir nemar eru allir á þessum stað í dag. Þessir nemar eru menn framtíð- arinnar í stéttinni þeir munu verða meistarar og innkaupa- stjórar á jafn mörgum stöðum, og þeir eru sjálfir. Hvernig ætla íslenskir kart- öfluframleiðendur að ná við- skiptum við þessa menn framtíð- arinnar, það er íhugunarefni. Ég mun nú láta lokið þessum skrifum mínum um kartöflumál og vona að þau nái tilgangi sínum. Ég hef ekki trú á að rækt- unarvandamál kartöfluframleið- enda eigi að leysa í eldhúsum hótela og mötuneyta. Brynjólfur Brynjólfsson matreiðslumeistari Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga verður haldinn í Samkomuhúsinu á Akureyri dagana 6. og 7. maí nk. og hefst fundurinn kl. 10.00 fyrri daginn. Dagskrá fundarins veröur auglýst síðar. Stjóm Kaupfélags Eyfirðinga. Bifreiðaeigendur Nú er rétti tíminn til að setja sumardekkin undir Úrval af nýjum og soluðum sumarhjólbörðum Athugið! Opið á laugardögum kl. 9-12 f.h. Véladeild Hjólbarðaverkstæði Óseyri 2, símar 23084 og 21400. LACOSTE Peysur - Bolir Jogginggallar Frönsk úrvalsvara HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Mikið úrval af dúkum, teppum, dreglum, mottum. Það borgar sig að líta inn hjá okkur. Byggingavörur Lónsbakka • Sími 96-21400

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.