Dagur - 26.05.1987, Blaðsíða 7

Dagur - 26.05.1987, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 26. maí 1987 Stundum getur verið gaman að vera blaðamaður. Eitt af því allra skemmtilegasta við vinnu blaðamanns finnst undirrituð- um þegar hann fær tíma til að sveima um í góðu veðri og leita einhvers efnis. Einn svoleiðis dagur kom einmitt í síðustu viku. Þá gat ég keyrt um í rólegheitum og skoðað lífíð og tilveruna í glaða sólskini og fímmtán stiga hita. Alls staðar sáust merki þess að nú er kom- ið sumar, lítil lömb voru hreint alls staðar, fullt af nýköstuðum folöldum og fuglasöngur mikill. Og svo var það auðvit- að mannfólkið. Hvarvetna var fólk að fást við eitthvað sem tengist vor- og sumarkomu,, sumir voru að dútla í garðinum aðrir dyttuðu að bátum og svo var unglingavinnan komin af stað við að hreinsa bæinn sinn, Skagaströnd. Eftir að hafa þegið kaffi hjá Sigrúnu og Helgu í Höfðaútibú- inu ók ég rólega um bæinn og þegar ég ók framhjá Lundi sá ég fólk vera að vinna í garðinum og ákvað að vita hvort þarna væru ekki á ferð foreldrar hans Þor- valdar Skaftasonar sem ég vissi að var grásleppukarl. Og mikið rétt, þetta voru hjónin Skafti Fanndal Jónasson og Jóna Vilhjálms. Skafti Fanndal Jónasson, Jóna Vilhjálms og Sindri Fanndal Júlíusson voru í garðinum við Lund. Langamma og afi að vinna en Sindri fylgdist með. Litið á fólk lítill samgangur á milli þessara staða. „En það er ekki að marka það sem ég segi, ég er svo félagslynd að mér hefur aldrei líkað þetta. En þetta var nú alveg ömurlegt með samgöngur hérna áður. f*á fór hann hérna á milli hann Gústi heitinn á Blönduósi. Hann fór að minnsta kosti eina ferð í viku.“ - Og var það eina leiðin fyrir ykkur með aðföng? „Já, þá pantaði maður og fékk sent. Það var nú komið hérna kaupfélag þegar þetta er. Fyrsta kaupfélagið sem sett var upp hér var hérna í gamla skólanum og hann er byggður 1912, þetta var náttúrlega búið að vera hérna áður en ég kom hingað. Við gift- um okkur ’39 og fluttum hingað 1941. Þá komum við með dótið okkar og tvö börn á einni kerru.“ - Ert þú héðan úr nágreninu? „Ég er að mestu leyti alin upp í Ásbúðum á Skaga, fór þangað níu ára hnáta. Fór svo heim um haustið til móður minnar til að fara á skóla því að hún var í Reykjavík. Þá þvældist ég á togara frá Kálfhamarsvík til Hafnarfjarðar, það var togarinn Rán. Það byrjaði snemma hjá manni veraldarvolkið." - Hvernig var hérna þegar þið komuð hingað fyrst? „Þetta voru sárafáir bæir, þeir eru mikið til farnir. Þetta var nú svo ömurlegt. Ég get til dæmis að myndast á sínum tíma og ég held að niðurstaðan úr þeirri umræðu sé ekki Ijós enn. „En þetta er afskaplega indæll staður og ég held að ég hefði ekki getað hugsað mér að vera annars staðar,“ segir Jóna. Ég nota nú tækifærið sem áhugamaður um trilluútgerð og fer að pumpa Þorvald svolítið meira um útgerðina. - Er trilluútgerð að vaxa hérna? „Já það eru sennilega að bæt- ast þrír við á næstunni.“ - En út á hvað vex hún, er ekki lítið um fisk og langt að sækja héðan? „Veistu það að þetta hefur ver- ið svo lítið reynt, það má segja að ég sé sá eini sem hefur verið eitthvað að gutla á trillu og reyna að hafa þetta fyrir atvinnu. Það er voðalega erfitt fyrir einn bát bæði að finna fisk og annað. Ég er viss um að þetta getur orðíð betra ef það koma fleiri.“ - Þeir sem eru að bætast við, eru það menn sem ætla að vinna alveg við þetta eða eru þetta tóm- stundaveiðimenn? „Þetta eru menn sem ætla alfarið að vinna við þetta. Það er t.d. orðin þessi breyting með þorskinn sem er farinn að koma hér á vorin, að það veit raunveru- lega enginn hvað þetta er búið að vera lengi. Það var ekkert hugsað um nema rækju og það reyndi Víða voru folöld á ferð og þetta stillti sér upp á haug, kannski til að reyna að sjá víðar um þessa nýju veröld. Feðgarnir Skafti og Þorvaldur notuðu tímann á meðan hann liggur í sunnanáttinni til að dytta að bátnum. Víða má sjá að nú er veturinn óðum að láta undan sumrinu. Örn frá Stykkishólmi var við bryggjuna á Skagaströnd og eftir hádegið var Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 komin að bryggju og löndun hafin. „Og þetta er þriðji ættliður- inn,“ sagði Jóna og benti á barna- vagn þar sem svaf lítill fulltrúi framtíðarinnar. Ég sagði þeim að ég væri að leita að honum Þor- valdi vegna þess að mig iangaði að hitta grásleppukarl. „Þú getur talað við þennan, þetta er pabbi hans og hann er nú búinn að vera við þetta í fjölda mörg ár,“ sagði Jóna og benti á Skafta. - Af hverju eruð þið ekki að vitja um netin í svona góðu veðri? „Það þýðir ekkert þegar hann stendur svona að sunnan þá er straumurinn svo mikill hérna út með.“ - Hvaða átt er best hérna? „Austan eða norðaustan. Það væri svo sem hægt að fara út í þessu veðri það tekur því bara' ekki.“ - Hvað eruð þið komnir með margar tunnur? „Það eru komnar tuttugu held ég. Þetta hefur ekkert verið en það hefur gengið heldur betur hjá þeim sem fara vestur yfir.“ Nú barst talið að veðrinu eins og svo oft þegar íslendingar spjalla saman. „Ég man nú ekki eftir svona miklum gróðri hérna áður um 20. maí,“ segir Skafti. „Við erum nú búin að vera hér í næstum fimmtíu ár. Ætli við séum ekki með e|stu íbúunum hér,“ segir Jóna um leið og hún fer að huga að Sindra litla sem nú er vaknaður. - Hvernig var hérna fyrir fimmtíu árum? „Blessaður vertu, þá voru þetta nokkrir bæir. Þetta voru grasbýli hérna í kring, fólk var með svona 40 kindur og belju og svo unnu menn svona eitt og annað." „Skafti var nú mikið við að byggja höfnina hérna,“ skýtur Jóna inn í og heldur áfram að huga að beðunum. - Fóru menn þá suður á vertíð eða kannski á Snæfellsnesið? „Það fóru flestir suður. Menn fóru til Vestmannaeyja, Grinda-. víkur og ég fór t.d. í Garðinn, segir Skafti. „Ég man nú ekki til að þeir færu á Snæfellsnesið en pabbi reri frá Bolungarvík.“ Þetta spjall úti í garði átti sér stað nokkru fyrir hádegi en eftir matinn hitti ég þá feðga þar sem þeir voru að dytta að bátnum hans Þorvaldar. Það er 5,5 tonna plastbátur sem getur gengið ein- hver ósköp. „En ég er nú frekar spar á keyrsluna,“ segir Þorvaldur. - Ég beini spurningunum að Þorvaldi. Hvernig hefur gengið í vor? „Við erum komnir með 20 tunnur en ntaður man nú eftir að það fengust hundrað og þótti ekki mikið. Svo vorum við með 18 tonn í netin, það voru þrjú og hálft tonn í, daginn sem við tók- um upp. Við vorum oft með meira en stóru bátarnir." - Og ferðu svo á skak í sumar? „Já ég ætla að fara austur á Bakkafjörð, reyna það. Ég var í Ólafsvík í fyrra og líkaði það ekki nógu vel.“ - Er borgað sæmilega fyrir hrognin? „Já það er gott verð á þeim, tuttugu og átta þúsund fyrir tunn- una held ég.“ Nú var komið að því að þiggja kaffið sem hún Jóna hafði boðið til og ég var ákveðinn í að verða á undan feðgunum svo ég fengi tækifæri til að rabba svolítið við hana áður en þeir kæmu í kaffi. Ég dreif mig því heim í Lund og settist við eldhúsborðið hjá henni Jónu og kveikti á segulbandinu. Talið berst að samskiptum Skagstrendinga og Blöndósinga og Jóna segir að sér finnist allt of sagt þér það að 1944 þá varð Skafti að fara í burtu til þess að maður gæti bara hreinlega lifað, maður lét bara hverjum degi nægja sína þjáningu, eins og þar stenaur. Við keyptum gamalt hús á Blönduósi, það var eitt her- bergi og eldhús, fyrir sex mann- eskjur og það var flutt hingað." Nú komu feðgarnir í kaffi og talið fór svona hingað og þangað og víða var komið við. T.d velt- um við því fyrir okkur hvernig staðið hefði á því að þorpið fór enginn þorskanet né annað. Þeir áttu ekki einu sinni net.“ - Er ekki dýrt að koma sér upp trilluútgerð? „Jú það er það. Það var t.d. verið að aulýsa núna í blöðunum uppsett þorskanet með flotteini á 8.500 stykkið og við vorum með 32 net núna en það er alveg hægt að hugsa sér að menn séu með 40 net. Og tölvurúllurnar kosta á annað hundrað þúsund stykkið. Svo eru það tækin í bátinn þau kosta sitt. Annars fer þetta mikið eftir því hvað menn sætta sig við.“ Þá er kaffitíminn liðinn og við röltum út í góða veðrið aftur en ég man þó eftir að þakka henni Jónu fyrir velgjörðirnar áður en ég fer með feðgunum að skoða aðstöðuna þar sem hrognin eru unnin. Eftir að þeir hafa útskýrt þetta allt saman fyrir mér sé ég að þetta er enginn vandi ef mað- ur bara kann það. En sælan er liðin hjá og nú verð ég nauðugur viljugur, að loka mig inni á skrifstofu til að skrifa. Áð sitja við tölvuna og skrifa er ekki alveg það skemmtilegasta sem maður gerir þegar sólin skín fyrir utan glugg- ann dag eftir dag og hitastigið er um og yfir 15 gráðurnar. En það koma líka dagar sem maður er dauðfeginn að fá að vera bara inni og skrifa, svo að fátt er svo með öllu illt og svo framvegis. 26. maí 1987-DAGUR-7 Það var eins gott að ég hef unnið í sjoppu sagði Silla þar sem hún og Hlynur hömuðust við að afgreiða síðustu pyls- urnar af þeim 80 sem krakkarnir borðuðu í ferðalaginu. Blönduós: SkóUnn búlnn og svo eigum við að lesa og svara spurningunum.“ - Og um hvað eru spurningarnar? „Um landnám og Vatnsdalinn og úr ferðalaginu og reikning og svo- leiðis.“ - Og hvemig gengur að svara svona spurningum? „Bara vel.“ - Haldið þið að þið munið svaka- lega mikið af því sem ykkur var sagt í ferðinni? „Jaaaá.“ - En næsta vetur, haldiði að þið munið þá eitthvað um Vatnsdalinn? Eða þegar þið verðið orðin svona fimmtán ára? „Jaaaá. Ég veit það nú ekki. Já, já.“ Þannig lauk sem sagt skólaárinu hjá fjórða bekk. En seinna þennan dag var skólinn svo opinn almenningi og þar gat að líta ýmislegt af því sem nemendurnir hafa verið að vinna að í vetur. En á skólalóðinni fór fram keppni í knattspyrnu á milli kennara og nemenda. Strákarnir tóku karl- kennarana í kennslustund í fótbolta og hreinlega rúlluðu þeim upp, unnu leikinn 4-0. En kvenkennararnir stóðu sig betur og sluppu með 0-0 jafntefli sem sumir krakkarnir vildu nú meina að væri bara af því að þær væru svo breiðar að það væri engin leið að koma boltanum fram hjá þeim. Skólaslit voru svo í grunnskólan- um á Blönduósi laugardaginn 23. maí. G.Kr. „Pulsur, hverjir vilja pulsur?! Með hverju vilt þú, viltu djús? Komiði að fá pulsur." Þessi köll bár- ust að eyrum blaðamanns þegar hann steig út úr bílnum við bæinn Hjalta-. bakka í Torfalækjarhreppi í Austur- Húnavatnssýslu, á föstudaginn rétt fyrir hádegi. Sú sem kallaði var hún Silla kenn- ari sem þarna var á ferð með krakk- ana úr fjórða bekk grunnskólans á Blönduósi, ásamt eiginmanni sínum honum Hlyn sem einnig er kennari og tíkinni Nóru Líndal. En þetta var ekki bara venjulegt pulsupartý, held- ur voru þau að ljúka nær tveggja daga ferð sem þau fóru í um Vatnsdal og víðar. En hvað sögðu krakkarnir um þetta? „Það voru eiginlega Jakob, Sara og nokkrir í viðbót sem föttuðu upp á þessu, og svo var bara valið í fjár- öflunarnefnd." - En hvernig gátuð þið eignast 7080 krónur í bankabók og eitthvað í bauk í viðbót? „Við héldum bekkjarkvöld og seld- um kökur og svo bara ef einhver gleymdi bókunum og svoleiðis." - Var sekt fyrir að gleyma bókun- um heima? „Já, þá þurfti maður að borga tíkall og ef það var ekki borgað þá bættist annar tíkall við. Kennararnir þurftu að borga fyrir að gleyma að raka sig eins og Indriði. Og Silla þurfti að borga fyrir að gleyma gler- augunum. Svo veðjaði hún líka einu sinni við okkur upp á hundraðkall. Ef við myndum koma öll með bæk- urnar þá átti hún að borga hundrað- kall og við mundum öll eftir bókun- um.“ - Og dugði peningurinn sem þið áttuð, fyrir rútunni? „Já, já og við keyptum síðan puls- ur fyrir afganginn.“ - Og hvert fóruð þið svo í ferða- laginu? „Við fórum fyrst í Þingeyrakirkju og svo hringinn í Vatnsdal. En við stoppuðum í Þórdísarlundi, á Gnúpi og síðan fórum við framhjá Brús- stöðum og fórum í Undirfellskirkju, síðan fórum við í Hjallaland og við sáum Hof og svo bara hingað.“ - Og gistuð þið hér? „Já.“ - Elduðuð þið sjálf handa ykkur? „Nei, Silla gerði það. Og svo var varðeldur.“ - Og hvað eruð þið svo búin að vera að gera í morgun? „Við vorum í ratleik. Það er falið svona spýtur sem við eigurn að finna Fjórði bekkur Grunnskóla Blönduóss ásamt Sillu kennara, Hlyn og tíkinni Nóru Líndal, á tröppunum á Hjalta- bakka. Strákarnir tóku kennarana í kennslustund í knattspyrnu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.