Dagur - 11.06.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR — 11. júní 1987
íslandsmót grunnskóla í skák:
Sveit GA varð
í öðru sæti
uþróttic
„Blessaður reyndu að hugsa um boltann maður“ gæti hann verið að hugsa KA-maðurinn sem varð undir Þórsaran-
um í leik c-liða 6. flokks á vormóti KRA. KA-maðurinn varð ofan á í lcikslok því lið hans sigraði í leiknum.
_ Mynd: RÞB
Vormot KRA:
KA-menn sterkari í
6. og 5. flokki
Mótið fór fram í félagsheimili
Taflfélags Reykjavíkur dagana
28.-30. maí. 19 sveitir voru
skráðar til leiks og tefldar voru
9 umferðir eftir Monradkerfi.
Frá Akureyri fóru 2 sveitir,
sveit Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar sem hafnaði í öðru sæti á
þessu móti í fyrra og sveit
Lundarskóla.
Ýmsir töldu að slagurinn um
sigurinn á mótinu stæði á milli
Gagnfræðaskóla Akureyrar og
íslandsmeistaranna frá því í
fyrra, þ.e. Seljaskóla úr Reykja-
vfk enda kom það á daginn að
þessar sveitir voru í sérflokki og
bitust grimmt um sigurinn.
Gagnfræðaskólanum gekk vel í
upphafi mótsins og leiddi mótið
eftir fyrsta daginn (3 umferðir)
og höfðu þá aðeins misst niður
einn vinning en það var þegar
hinn kornungi Helgi Áss Grétars-
son lagði Rúnar Sigurpálsson að
velli á 3ja borði. Seljaskóli hafði
þá þegar tapað l'A vinningi.
í 4. umferð tefldu Gagnfræða-
skólinn og Seljaskólinn saman og
urðu úrslitin mikið áfall fyrir
norðanmenn því Seljaskóli vann
3Vi-Vi aðeins 1. borðs maðurinn
Bogi Pálsson náði jöfnu við Þröst
Árnason. Segja má að þessi
viðureign hafi verið vendipunkt-
urinn á mótinu því að bilið sem
þarna myndaðist milli sveitanna
(2}A vinningur) var of stórt til að
það yrði brúað.
í 5. umferð vann G.A. 4-0 en
Seljaskóli 3-1 og var nú bilið VA
vinningur.
í 6. umferð styttist bilið svo
enn þegar G.A. vann Hagaskóla
3-1 en þar tapaði Bogi fyrir
nýkrýndum heimsmeistara
Hannesi Hlífari Stefánssyni, sem
Bogi hafði unnið á minningar-
móti um Halldór Jónsson á
Akureyri nú í vor. Seljaskóli
vann Bolungarvík 2lA-llA svo
munurinn var kominn niður í
einn vinning.
Framan af 7. umferð voru
norðanmenn bjartsýnir á að tak-
ast mætti að brúa bilið því G.A.
vann 4-0 en Seljaskóli átti einni
skák ólokið á mótið Breiðholts-
skóla en þar stóð Helgi Áss Grét-
arsson til vinnings á 3ja borði en
í tímahraki lék hann sig í mát svo
Seljaskóli vann 4-0 og í 8. og 9.
umferð unnu bæði Seljaskóli og
G.A. 4-0 svo að úrslitin urðu þau
að Seljaskóli hafnaði í 1. sæti
með 31 Vi vinning af 36 en G.A. í
2. sæti með 30lA vinning og
Breiðholtsskóli í 3. sæti með
22 vinninga.
Árangur einstakra manna í
sveit G.A var þessi:
1. borð Bogi Pálsson 7Ví af 9.
2. borð Tómas Hermannsson 8 af 9.
3. borð Rúnar Sigurpálsson 7 af 9.
4. Skafti Ingimarsson 7 af 8.
4. Magnús Teitsson 1 af 1.
Hæstur 1. borðsmanna var
Hannes Hlífar Stefánsson með 8
vinninga af 9 og annar varð Bogi
Pálsson með 1XA.
Fyrirhuguð mót í júní hjá
Skákfélagi Akureyrar verða:
10 mín. mót fimmtud. 11. júníkl.
20.00.
15 mín. mót fimmtud. 18. júní kl.
20.00.
Hraðskákmót fimmtud. 25. júní
kl. 20.00.
KA-menn reyndust sterkari en
Þórsarar í 6. og 5. flokki er lið-
in áttust við í vormóti KRA
fyrir skömmu. Þeir sigruðu í
6.a, 6.c, 5.a og 5.c. Þórsarar
sigruðu í 6.b og 5.b. Þá áttust
liðin einnig við í 3. flokki a og
b og varð jafnt í báðum þeim
leikjum.
6. flokkur:
í leik a liða 6. flokks náðu KA-
menn að skora þrjú mörk í fyrri
hálfleik án þess að Þórsarar næðu
að svara fyrir sig. í síðari hálfleik
skoraði Þór þrjú mörk á móti
einu marki KA og því sigruðu
KA-menn 4:3. Mörk KA skor-
uðu þeir Sverrir Björnsson 3 og
Ragnar Már Þorgrímsson 1.
Mörk Þórs skoruðu þeir Heiðmar
Felixson, Orri Stefánsson og
Bjarni Guðmundsson.
Þórsarar höfðu betur í viður-
eign b liðanna og skoraði Arnar
L. Sigurðsson eina mark leiksins
úr vítaspyrnu.
KA-menn sigruðu í leik c lið-
anna með tveimur mörkum gegn
einu. Bjarni M. Jóhannsson og
Magnús Ásbjörnsson skoruðu
mörk KA en Elmar Óskarsson
minnkaði muninn fyrir Þór.
5. flokkur:
KA vann stórsigur á Þór í leik
a liða 5. flokks, úrslitin 6:0. Þor-
leifur Karlsson var atkvæðamest-
ur KA-manna og skoraði 3 mörk,
Gunnlaugur Torfason skoraði 2
mörk og Brynjólfur Sveinsson 1.
Þórsarar unnu nokkuð örugg-
an 3:0 sigur í leik b liðanna. Atli
Samúelsson skoraði 2 marka Þórs
og Sigurður Ragnarsson 1.
í leik c liða 5. flokks unnu KA-
menn góðan sigur. Úrslitin 6:2 og
skoruðu þeir Ómar Árnason,
Björn Gíslason og Ólafur Svan-
bergsson sín tvö mörkin hver fyr-
ir KA. Mörk Þórs skoruðu þeir
Gísli Gíslason og Ólafur Krist-
jánsson.
3. flokkur:
Liðin skildu jöfn í báðum
viðureignunum í 3. flokki. Þórs-
arar komust í 2:0 í fyrri hálfleik í
leik a liðanna en KA-menn jöfn-
uðu 2:2 1' síðari hálfleik. Þórsarar
komust aftur yfir 3:2 en KA-
menn jöfnuðu aftur fyrir leikslok
og úrslitin 3:3. Axel Vatnsdal
skoraði öll mörkin fyrir Þór en
Jón Egill Gíslason skoraði 2
mörk fyrir KA og Skapti Ingi-
marsson 1.
Liðin skildu einnig jöfn í leik b
liðanna, úrslitin 2:2. Þórhallur
Másson og Karl Pálsson skoruðu
mörk KA en þeir Ingólfur
Guðmundsson og Steindór Gísla-
son fyrir Þór.
Bændahlaup UMSE fór fram
að Hrafnagili í síðustu viku.
Keppt var í 8 flokkum, frá 10
ára og yngri og upp úr. Ung-
mennafélag Svarfdæla varð
stigahæst félaga, hlaut 50 stig.
Sigurvegarar í einstökum
flokkum urðu þessir:
10 ára strákar og yngri:
1. Anton Ingvason, UMF Svarfdæla.
2. Jón Þór Baldvinsson, UMF Framt.
3. Hlynur Þór Ólason, UMF Árroðanum.
11-12 ára strákar:
1. Stefán Gunnlaugss., UMF Reyni.
2. Kristinn Benediktss., UMF Árroðanum
3. Sveinn Brynjólfsson, UMF Svarfdæla.
13-15 ára strákar:
1. Guðm. Óskarss., UMF Ároðanum.
2. Baldur Snorrason, UMF Svardæla.
3. Pétur Friðriksson, UMF Æskunni.
Karlar:
1. Páll Jónsson, UMF Svarfdæla.
2. Benedikt Björgvinsson, UMF Dagsbr.
3. Rósberg Óttarsson, UMF Framt.
10 ára stelpur og yngri:
1. Gunnur Ýr Stefánsd., UMFÁrroðanum
2. Silvía Ómarsdóttir, UMF Svarfdæla.
3. Sigríður Hannesd., UMF Framt.
11-12 ára stelpur:
1. Karen Gunnarsdóttir, UMFSvarfdæla.
2. Linda Sveinsdóttir, UMF Reyni.
3. Maríanna Hansen, UMF Æskunni.
13-15 ára stelpur:
1. Harpa Örvarsdóttir, UMF Skriðuhr.
2. Arna Stefánsdóttir, UMF Svarfdæia.
3. Sigríður Gunnarsd., UMFÁrroðanum.
Konur:
1. Guðrún Svanbjörnsd., UMF Dagsbr.
2. Bryndís Brynjarsd., UMF Svarfdæla.
3. Sveindís Benediktsd., UMF Skriðulir.
Næstu leikir í vormótinu fara
fram seinni partinn á morgun, þá
leika KA og Þór í 3. flokki
kvenna, a, b og c lið. Leikið
verður á KA-velli og hefst fyrsti
leikurinn kl. 17.30.
Stigahæsta félag:
1. UMF Svardæla 50 stig.
2. UMF Árroðinn 31 stig.
3. UMF Framtíðin 20'A stig.
íþróttamenn UMSS:
Hjóla um
héraðið
- í fjáröflunarskyni
Nk. laugardag mun íþróttafólk
úr Ungmennasambandi Skaga-
fjarðar hjóla um héraðið í
þeim tilgangi að afla fjár vegna
þátttöku sinnar í Landsmóti
UMFÍ á Húsavík í næsta mán-
uði. Byrjað verður að hjóla
klukkan hálf níu um morgun-
inn frá tveim stöðum, Jölulsá í
Austurdal og Skeiðsfossvirkj-
un í Fljótum. Giskað er á að
vegalengdin sem reiðhjólafólk-
ið mun leggja að baki á laugar-
dag sé samtals vel á 3ja hundr-
að kílómetrar.
Það er frjálsíþróttafólkið og
krakkarnir sem komust í úrslit í
skólahlaupinu á dögunum sem
ætla að fórna sér fyrir málefnið,
en einnig eru allir sem vettlingi
geta valdið hvattir til að hjóla á
sínu félagssvæði og stefnt er að
þátttöku sem flestra. Dagana
fram á laugardag mun áheita-
söfnunin fara fram og vill Björn
Sigurðsson framkvæmdastjóri
UMSS koma á framfæri óskum
þess efnis að fólk taki vel á móti
krökkunum sem safna áheitunum
og styðji þannig vel við bakið á
íþróttafólki héraðsins til keppni á
komandi landsmóti. -þá
Aðalfundur
Sögufélags Eyfirðinga
verður haldinn laugardaginn 13. júní í húsi Tækni-
sviðs VMA (Iðnskólanum) og hefst kl. 15.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Allir áhugamenn eru hvattir til að koma á
fundinn.
Stjórnin.
Hryssu-
eigendur
i. verðlauna stóðhesturinn Vinur953frá Kotlaugum
verður fyrra tímabil í hólfi á Hvassafelli í Eyjafirði.
Þeir sem áhuga hafa á að koma hryssum þangað hafi
samband við Sigmund Sigurjónsson í síma 96-31258 fyrir
laugardagskvöldið 13. júní 1987.
Hrossaræktarsamband Eyfirðinga og Þingeyinga.
Lausar stöður
við grunnskólana
á Akureyri
Hálf staða ritara við Glerárskóla og hálfar
stöður við Barnaskóla Akureyrar, Glerárskóla
og Síðuskóla.
Ráðning í stöðurnar er miðuð við 1. september nk.
Nánari upplýsingar um þessi störf hjá viðkomandi
skólastjórum eða skólafulltrúa bæjarins.
Umsóknarfrestur um störfin er til 26. júní nk.
Bæjarstjórinn á Akureyri.
Bændahlaup UMSE:
UMF Svarfdæla
stigahæst félaga