Dagur - 11.06.1987, Blaðsíða 9
Umsjón: Kristján Kristjánsson
11. júní 1987-DAGUR-9
SL-mótið 1. deild:
Glæsimark hjá Tryggva
- tryggði KA-mönnum 2:1 sigur gegn FH
,,Þetta var alveg meiriháttar.
Ég hitti hann vel og fann
hvernig hann flatti út á mér
ristina. Þetta var góður sigur
og sýnir sterkan karakter
hvernig við rifum okkur upp úr
þessari lægð sem fyrri hálfleik-
ur var,“ sagði Tryggvi Gunn-
arsson leikmaður KA eftir að
hafa skorað glæsilegt sigur-
mark liðsins gegn FH í
gærkvöld, úrslitin 2:1 og fyrsti
heimasigur Akureyrarliðs í
sumar staðreynd.
Það var heldur dökkt útlit hjá
KA liðinu eftir mjög slakan fyrri
hálfleik liðsins. FH-ingar réðu
lögum og lofum á vellinum fyrstu
20 mínúturnar og léku oft á tíð-
um ágætlega á meðan KA-menn
gerðu sig margir seka um klaufa-
leg mistök. FH-liðið lék undan
norðan-strekkingi sem m.a. gerði
Hauki Bragasyni, markverði
KA, erfitt fyrir með útspörk.
Mark FH kom á 16. mín. Ólaf-
ur Kristjánsson fékk þá boltann
við fjærstöng eftir horn, skaut í
stöng og þaðan hrökk boltinn í
Steingrím og inn. Óheppnismark
sem ekki er hægt að kenna nein-
um einstökum leikmanni unt.
Fyrsta marktækifæri KA kom
svo skömmu síðar þegar Þorvald-
ur fékk boltann eftir góðan sam-
leik, en ágætur markvörður FH
bjargaði með úthlaupi.
Eftir mjög slakan kafla beggja
liða sótti KA-liðið heldur í sig
veðrið og á 33 ntín. lét Jón
Sveinsson verja frá sér úr ágætu
færi. Á „markamínútunni“ sóttu
FH-ingar stíft og Haukur varði
ágætt skot frá Kristjáni Hilmars-
syni.
KA-liðið byrjaði síðari hálf-
leikinn illa og þurfti Haukur þá
m.a. að taka á honum stóra sín-
um þegar hann varði frá Magnúsi
Pálssyni.
Fyrra mark KA kom svo nokk-
uð óvænt á 10. mín. Steingrímur
Met hjá
Guðrúnu
Guðrún Svanbjörnsdóttir frá
Akureyri setti Eyjafjarðarmet
í 3000 m hlaupi á Meistaramóti
Islands 20 ára og yngri sem
fram fór á Laugardalsvelli um
síðustu helgi.
Guðrún hljóp á tímanum
10:29.5 mín. sem er mjög góður
árangur. Guðrún þykir mjög
efnilegur hlaupari og á örugglega
eftir að gera enn betri hluti á
hlaupabrautinni í náinni framtíð.
Coca Cola-
mót að Jaðri
Coca Cola mótið í golfi fer
fram að Jaðri um helgina.
Þetta er opið mót og verða
leiknar 36 holur með og án for-
gjafar. Keppnin hefst á laugar-
dagsmorgun kl. 9 og verður
fram haldið á sunnudag á sama
tíma.
Skráning fer fram að Jaðri og
lýkur kl. 22 á föstudagskvöld.
Utanbæjarmenn geta tilkynnt
þátttöku í gegnum síma 22974 á
milli kl. 20 og 22 á föstudags-
kvöld.
tók þá aukaspyrnu rétt framan
við miðju. Þorvaldur „nikkaði"
inn á Gauta þar sem hann var
einn og óvaldaður við fjærstöng
og renndi boltanum laglega fram
hjá Halldóri Halldórssyni, staðan
1:1.
Eftir þetta mark fóru KA
menn loks í gang og áttu meira í
leiknum það sem eftir var. Liðið
Ekki var nein breyting á gengi
Þórsara frá síðustu leikjum, er
þeir töpuðu 2:0 fyrir Val á
Hlíðarenda í gærkvöld.
Leikurinn var hinn fjörugasti
og nokkuð vel leikinn, einkan-
lega af hendi Valsmanna.
Þórsarar sýndu mun meiri bar-
áttu og betri leik en gegn ÍBK
á laugardag en allt kom fyrir
ekki gegn hinum sterku Vals-
mönnum. í ofanálag máttu
Þórsarar leika einum færri síð-
ustu 20 mínúturnar, eftir að
Nóa Björnssyni var vikið af
leikvelli.
Leikurinn fór fjörlega af stað
og á 10. mín. missti vörn Þórs
Jón Grétar klaufalega inn fyrir,
en Baldvin bjargaði með góðu
úthlaupi.
Á 13. mín. náðu Þórsarar
góðri sókn en Hlynur skaut laust
framhjá. Baldvin greip svo til
sparihanskanna stuttu síðar er
hann varði gott skot Ámunda frá
vítateigshorni.
Fyrra mark Vals kom á 16.
mín. er Sigurjón Kristjánsson
skaut að marki utan vítateigs, í
fót Einars Arasonar og þaðan í
hornið. Baldvin var kominn úr
jafnvægi.
Þegar leið á hálfleikinn sóttu
Þórsarar mjög í sig veðrið en
stjörnum prýtt Valsliðið var fast
fékk nokkur ágæt marktækifæri
og m.a. komst Þorvaldur inn fyrir
vörnina. Enn bjargaði Halldór
með úthlaupi. Mfnútu síðar
skallaði Steingrímur í þverslá eft-
ir horn.
Það var svo á 70. mín sem hið
glæsilega sigurmark leit dagsins
ljós. Tryggvi lék þá á tvo FH-inga
rétt framan við miðju og öllum
fyrir og ekkert færi féll Þór í
skaut nema á 32. mín. þegar
Hlynur missti boltann klaufalega
frá sér á markteig eftir fyrirgjöf.
Forystan var því Valsmanna í
hléi.
Þeir byrjuðu síðan með látum
fyrst eftir hlé og Baldvin varði
mjög vel frá Jóni Grétari í dauða-
færi á 53. mín. Rétt á eftir bjarg-
aði Einar Arason snaggaralega á
línu skalla Guðna Bergssonar.
Einar var svo á ferðinni hinum
megin á vellinum 5 mín. síðar og
átti hörkuskot í vörn Vals og
þaðan yfir Guðmund markvörð
og þverslána.
I kvöld kl. 20 fer fram fundur
um framtíð körfuboltans hér á
Akureyri. Fundurinn fer fram í
Þórsherberginu í íþróttahúsi
Glerárskóla og eru allir áhuga-
menn um körfubolta hvattir til
að mæta.
Staða körfuboltans er glæst,
Þórsarar leika í Úrvalsdeild á
næsta ári og stóraukin rækt hefur
að óvörum skaut hann glæsilegu
skoti af 25 metra færi yfir Halldór
sem kominn var of framarlega.
Staðan 2:1 og mikið fagnað.
Eftir þetta má segja að hvort
lið hafi fengið sitt færið. Ágætur
dómari leiksins, Þóroddur
Hjaltalín, dæmdi réttilega af
mark Tryggva Gunnarssonar
vegna rangstöðu og fimm mínút-
Þórsarar lögðu nú allt kapp á
að jafna, en áfallið á 68. mín er
Nói leit rauða spjaldið, létti mjög
á Valsmönnum. Halldór var þó
býsna nærri því að jafna á 70.
mín. er hann stökk upp með
Guðmundi markverði og náði að
skalla en bjargað var á línu.
Heldur lá á Valsmönnum, ein-
um fleiri, næstu mínútur, en á 86.
mín. varði Baldvin vel skot frá
Sigurjóni, boltinn hrökk til Njáls
Eiðssonar sem skoraði af öryggi
og úrslitin voru ráðin, 2:0.
Hlynur brenndi illa af í góðu
færi rétt fyrir leikslok.
Þórsliðið lék þennan leik vel á
verið lögð við yngri flokka félags-
ins. En það bráðvantar menn í
stjórnarstörf og ræðst framtíð
íþróttarinnar í bænum af því að
hægt verði að fá menn til starfa
fyrir körfuknattleiksdeildina.
Þórsarar, höldum góðu starfi
áfram, sýnum málinu áhuga í
verki og mætum á fundinn í
kvöld.
um fyrir leikslok varði Haukur
vel skot frá Guðjóni Guðmunds-
syni.
í báðum liðum voru það mark-
verðirnir sem stóðu upp úr. Hjá
KA má einnig nefna þá Stein-
grím, Þorvald og Gauta, en eins
og aðrir gerðu þeir sín mistök.
Hjá FH voru þeir Pálmi og Guð-
jón ágætir. ET
köflum en mótspyrnan var of
öflug. Það verða ekki mörg lið
sem ná að vinna Val í sumar.
Baldvin markvörður átti mjög
góðan leik og var bestur Þórsara.
Einnig voru Halldór, Hlynur og
Siguróli frískir. Baráttan í liðinu
var góð. Bestir Valsmanna voru
Jón Grétar Jónsson og Guðni
Bergsson.
Dórnar Baldurs Scheving voru
oft furðulegir en þrír Þórsarar
litu gula spjaldið. GÞE
Staðan
1. deild
Úrslit leikja á SL mótinu 1.
deild í knattspyrnu í gærkvöld
og staðan í deildinni er þessi:
KA-FH 2:1
Valur-Þór 2:0
ÍA-ÍBK 4:2
Valur 4 3-1-0 11:2 10>
ÍA 4 3-0-1 8:6 9
KR 3 2-1-0 5:1 7
KA 4 2-0-2 3:3 6
ÍBK 4 2-0-2 9:13 6
Fram 3 1-1-1 5:5 4
Völsungur 3 1-0-2 4:6 3
Þór 4 1-0-3 3:6 3
Víðir 3 0-2-1 1:2 2
FH 4 0-1-3 1:6 1
Jöfnunarmark KA, Boltinn í þann mund að snerta netið eftir skot Gauta og ágæta aðstoð Ian Fleming. Halldór markvörður horfir örvæntingarfullum
augum á._______________________________________________________________________________________________________________________________Mynd: RÞB
SL-mótið 1. deild:
Enn tapa Þórsarar
- nú 2:0 fyrir sterkum Vöisurum á Hlíðarenda
Fundur um fram-
tíð körfuboltans