Dagur - 09.07.1987, Page 8
8-DAGUR-9. júlí 1987
Pollamót KSI:
JþróttÍL
Völsungur og KA
í úrslitakeppnina
Það verða Völsungar og KA
sem taka þátt í úrslitakeppn-
inni á Pollamóti KSI en um
helgina var leikið í Norður-
4. deild:
UMFS vann Kormák
Á þriðjudagskvöld áttust við
Kormákur og UMFS í E-riðli
4. deildar í knattspyrnu.
Leiknum lauk með sigri Svarf-
dæla, 4:1. Leikmenn Kormáks
sýndu mjög góðan leik og er
þetta þeirra besti leikur til
þessa.
Kormákursmenn áttu mun meira
í leiknum í fyrri hálfleik, en Dal-
víkingar áttu síðan mun meira í
seinni hálfleik. Það var Albert
Jónsson sem skoraði fyrir
Kormák, úr vítaspyrnu en fyrir
Dalvíkinga skoruðu þeir Garðar
Jónsson 3 mörk og Ingvar
Jóhannesson 1 mark. Hvamms-
tangamenn vildu fá annað mark
þegar bjargað var á línu og var
línuvörður á sama máli en dóm-
arinn dæmdi markið af. nj
Stórsigur KA
á Tindastóli
Strákarnir í 5. flokki KA unnu
jafnaldra sína frá Sauðárkróki
með 18 mörkum gegn engu á
sunnudag, er liðin léku á KA
velli í Norðurlandsriðli á
íslandsmótinu í knattspyrnu.
KA-menn höfðu mikla yfir-
burði frá upphafi til enda og
hefði sigur liðsins getað orðið
enn stærri. Þessi félög áttust
einnig í 4. flokki og sigraði KA
einnig í þeim, 3:1.
Brynjólfur Sveinsson og Þór-
leifur Karlsson skoruðu 4 mörk
hvor fyrir KA í 5. flokks leikn-
um. Þeir Þórhallur Hinriksson,
Helgi Þór Arason og Matthías
Stefánsson skoruðu 2 mörk hver
og þeir Gunnlaugur Torfason,
Örvar Arngrímsson og Trausti
Jörundsson skoruðu 1 mark hver
en eitt markið var sjálfsmark.
Leikur liðanna í 4. flokki var
mun jafnari en þó var sigur KA-
manna aldrei í hættu. Úrslitin
urðu 3:1 og skoruðu þeir Hlynur
Konráðsson 2 og ívar Bjarklind
mörk KA en Pétur Vopni
Sigurðsson mark Tindastóls.
Verslunarhúsnæði
Óska eftir u.þ.b. 50 fermetra verslunarhúsnæði á
Akureyri. Vinsamlega leggið inn tilboð á afgreiðslu
Dags fyrir 20. júlí merkt: Verslunarhúsnæði.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður
við framhaldsskóla:
Við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum er laus ein
kennarastaða. Aðalkennslugreinar líffræði og efnafræði.
Við Verkmenntaskólann Akureyri er laus staða
íslenskukennara.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík fyrir 15. júlí.
Menntamáiaráðuneytið.
Útboð
Siglufjarðarvegur, Gangamunni-Ristarhlið
'//wm f Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 700 m, skeringar 7,100 m3, burðarlag 420 m3. Verki skal lokið 1. október 1987. Útboðsgðgn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðal- gjaldkera) frá og með 6. júlí 1987. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 20. júlí 1987.
Vegamálastjóri.
landsriðli mótins. Völsungar
urðu hlutskarpastir í keppni A-
liða en KA-menn í keppni B-
liða.
í keppni A-liða var leikið í
tveimur riðlum. í A riðlinum
léku KA, Þór, Leiftur og UMFS
en í B riðli Völsungar, KS og
Tindastóll og var leikin tvöföld
umferð í þeim riðli þar sem liðin
voru aðeins þrjú. Þórsarar unnu
alla sína leiki í riðlinum og unnu
sér rétt til að þess að leika til úr-
slita við sigurliðið í B riðli um
laust sæti í úrslitakeppninni. Þór
vann KA 5:0, UMFS 5:3 og
Leiftur 7:1.
í B riðli sigruðu Völsungar
mjög örugglega, þeir unnu KS-
inga 9:3 og Tindastól 5:1 í fyrri
umferðinni og í seinni umferð-
inni unnu þeir Tindastól 2:0 og
KS 9:0.
Það voru því Þór og Völsungar
sem léku um lausa sætið í keppni
A liða. Leikurinn var jafn og
spennandi en það voru Völsung-
ar sem unnu leikinn, þeir skor-
uðu eitt mark án þess að Þórsur-
um tækist að svara fyrir sig. Hall-
dór Stefánsson skoraði þetta
mikilvæga mark með skalla þegar
þrjár mín. voru eftir af leiknum.
í keppni B-liðanna var aðeins
einn riðill og í honum léku KA,
Þór, Tindastóll, KS og Völsung-
ar. KA-menn unnu alla sína leiki
og sá árangur dugði þeim til
sigurs í riðlinum og sæti í úrslita-
keppni B liða. KA vann Þór 2:1,
Völsung 5:3, KS 5:0 og Tindastól
6:0.
Sigþór Júlíusson skoraði 4 mörk fyrir Völsung gegn UMFS.
Knattspyrna yngri flokka:
Góð ferð Völs-
Dalvík
unga a
UMFS og Völsungur léku tvo
leiki á Dalvík á laugardag í
Norðurlandsriðli yngri flokka í
knattspyrnu. Völsungar gerðu
góða ferð, því þeir unnu mjög
Knattspyrna 2. flokks:
Möguleikar KA
minnkuðu til muna
- eftir tap gegn Þór
Stelpurnar í 2. flokki Þórs,
unnu nokkuð óvæntan sigur á
KA-stelpunum í fyrrakvöld, er
liðin áttust við á Þórsvelli á
íslandsmótinu í knattspyrnu.
Við þetta tap minnkuðu
möguleikar KA-stelpna á því
að komast í sjálfan úrslitaleik-
inn en þær stóðu nokkuð vel
Eydís Marinósdóttir skoraði fyrir
KA gegn Völsungi.
að vígi fyrir leikinn við Þór.
Leikurinn fór fram á malarvelli
Þórs við nokkuð slæmar aðstæð-
ur. KA lék undan vindi í fyrri
hálfleik og sótti mjög stíft að
marki Þórs. Liðinu tókst aðeins
að skora eitt mark, Linda Her-
steinsdóttir skoraði á síðustu
mínútu fyrri hálfleiks.
í síðari hálfleik náðu Þórs-
stelpurnar að skora tvö mörk og
dugðu þau til sigurs. Sveindís
Benediktsdóttir skoraði fyrra
markið úr vítaspyrnu um miðjan
hálfleikinn en skömmu síðar
skoraði Ellen Óskarsdóttir sigur-
markið.
Völsungur lék fyrir sunnan:
Stelpurnar í 2. flokki Völsungs
léku tvo leiki fyrir sunnan um
helgina á íslandsmótinu. Fyrri
leikurinn var gegn KR og tapað-
ist hann stórt, 0:7. Seinni leikur-
inn var gegn Val og tapaðist hann
einnig, 1:3 en það var Anna íris
Sigurðardóttir sem skoraði mark
Völsungs í þeim leik.
Fyrir skömmu sóttu stelpurnar
í 2. flokki KA, Völsungsstelpurn-
ar heim og var leikurinn liður í
íslandsmótinu. KA fór heim með
sigur, 2:1. Eydís Marinósdóttir
skoraði fyrst fyrir KA en Pálína
Bragadóttir jafnaði fyrir
Völsung. Sigurmark KA var síð-
an sjálfsmark eins af varnar-
mönnum Völsungs.
öruggan sigur í 5. flokki en lið-
in skildu jöfn í 4. flokki.
Völsungar sem hafa á að skipa
mjög öflugu liði í 5. flokki unnu
stórsigur 10:1. Sigþór „Coppel"
Júlíusson skoraði 4 mörk fyrir
liðið en þeir Ágúst Örn Gíslason
og Guðni Rúnar Helgason skor-
uðu 3 mörk hvor.
í leik liðanna í 4. flokki varð
jafntefli, hvort lið skoraði tvö
mörk. Gunnlaugur Gunnlaugs-
son og Emil Einarsson skoruðu
fyrir heimamenn en þeir Jónas
Grani Garðarsson og Matthías
Einarsson fyrir Völsung.
2. deild kvenna:
KS sigraði
Gmndarfjörð
KS sigraði lið Grundarfjarðar
á Siglufirði á sunnudag.
Leikurinn var liður í 2. deild
kvenna og skoruðu KS-stelp-
urnar sex mörk án þess að
gestunum tækist að svara fyrir
sig.
Þetta var annar sigur liðsins í
jafnmörgum leikjum í deildinni
og er liðið til alls líklegt í sumar.
KS skoraði þrjú mörk í hvorum
hálfleik. Linda Gylfadóttir skor-
aði þrjú marka liðsins en þær
Sigurlaug Guðjónsdóttir, Ásta
Katrín Helgadóttir og Rósa
Ómarsdóttir eitt mark hver.
Næsti leikur liðsins er gegn
Skallagrími á sunnudag og fer
hann fram á Siglufirði.
4. flokkur, KS-Leiftur:
Á eftir leik KS og Grundar-
fjarðar, léku KS og Leiftur í 4.
flokki. Leikurinn var liður
Norðurlandsriðli á íslandsmótinu
og sigruðu KS-ingar mjög örugg-
lega 8:1. Gísli Valsson var í
miklu stuði í leiknum og skoraði
5 mörk, Óli Þór Hrafnkelsson
skoraði 2 mörk og Óskar Helga-
son 1. Mark Ólafsfirðinga skor-
aði Júlíus Bjarnason.