Dagur - 09.07.1987, Blaðsíða 9
9. júlí 1987-DAGUR-9
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Mjólkurbikarkeppnin 16 liða úrslit:
Þjálfarinn kom
Leiftri áfram
- í 3:4 sigri yfir Reyni
Það var hart barist í Sandgerði
þegar heimamenn tóku á móti
Leiftri frá Ólafsfirði í 16 liða
úrslitum Mjólkurbikarkeppn-
Öruggur
sigur Hvatar
Hvatarmenn gefa lítið eftir í
baráttunni við UMFS í E-riðli
4. deildar. Liðið fékk Árroð-
ann í heimsókn á Blönduós í
gærkvöld og vann öruggan sig-
ur 4:0.
Páll Leó Jónsson skoraði fyrsta
markið skömmu fyrir leikhlé.
Rúnar Guðmundsson bætti við
öðru marki í byrjun síðari hálf-
leiks. Páll Leó bætti við sínu öðru
marki og þriðja marki heima-
manna úr vítaspyrnu en síðasta
orðið átti Ingvar Magnússon er
hann skoraði fjórða markið
skömmu fyrir leikslok. Leikurinn
var nokkuð harður og fékk einn
leikmanna Árroðans að líta
rauða spjaldið. nj
innar í gærkvöld. Gestirnir
fóru með sigur af hólmi, 3:4,
og skoruðu sigurmarkið tveim-
ur mínútum fyrir lok framleng-
ingar.
Bæði lið áttu fjölmörg færi í
leiknum. Það voru Ólafsfirðingar
sem höfðu yfirhöndina í fyrri
hálfleik og náðu þá að skora þrjú
mörg gegn engu. Á 23. mínútu
skoraði Halldór Guðmundsson
og síðan Steinar Ingimundarson
á þeirri 41. Halldór var svo aftur
á ferðinni rétt fyrir hlé.
í síðari hálfleik snerist leikur-
inn um 180 gráður því Reynis-
mönnum tókst að jafna. Mörkin
komu öll á sex mínútna kafla um
miðbik hálfleiksins og þau gerðu
þeir Grétar Sigurbjörnsson og
Kjartan Einarsson (2).
Það bjuggust flestir við víta-
spyrnukeppni þegar Óskar Ingi-
mundarson þjálfari Leifturs tók
upp á því að skora sigurmarkið á
118. mínútu og fögnuður Leift-
ursmanna að vonum mikill.
Bestir í liði Leifturs voru þeir
Geirhörður Ágústsson, Haf-
steinn Jakobsson og Þorvaldur
Jónsson en hjá Reyni var Kjartan
Einarsson bestur. ET
Baldvin Guömundsson ver vítaspyrnu glæsilega hjá Friðfinni Hermannssyni og dugði
Mjólkurbikarkeppnin 16 liða úrslit:
Þórsarar
það Þórsurum til sigurs.
Mynd: GT
oruggari
i vitunum
- og sigruðu KA 5:6 eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni
Tindastólsmenn dæmda víta-
spyrnu sem Þorsteinn Ólafsson
þjálfari Magna varði með glæsi-
brag. Þorsteinn hafði komið inn á
í byrjun leiksins fyrir ísak, sem
meiddist. Skömmu eftir víta-
spyrnuna náðu gestirnir þó að
jafna og var þar að verki Jón
Gunnar Traustason. Fleiri urðu
mörkin ekki og úrslitin því nokk-
uð sanngjarnt jafntefli.
Knattspyrna 3. deild:
Jafntefli á Grenivík
Það má segja að lið Tindastóls
standi með pálmann í höndun-
um í B-riðli 3. deildar í knatt-
spyrnu, eftir 1:1 jafntefli við
Magna á Grenivík í gærkvöld.
Bæði liðin voru taplaus fyrir
leikinn og eru það því enn.
Tindastólsmenn höfðu ekki
tapað stigi fyrir Ieikinn en
Magnamenn höfðu gert tvö
jafntefli áður. Tindastóll trónir
því enn á toppnum og á enn
fjögur stig á Magna.
Leikurinn í gær einkenndist af
mikilli baráttu og ætluðu bæði
liðin sér greinilega sigur. Hvorugu
liðinu tókst að skora í fyrri hálf-
leik, þrátt fyrir ágæt marktæki-
færi.
í síðari hálfleik fóru hlutirnir
að gerast. Heimamenn náðu for-
ystunni þegar um 20 mín. voru
liðnar af hálfleiknum. Það var
Sverrir Heimisson sem skoraði.
Þegar fór að líða á leikinn fengu
HSÞ-c enn
á sigurbraut
HSÞ-c hélt sigurgöngu sinni í
F-riðli 4. deildar í knattspyrnu
áfram í gærkvöld er liðið fékk
Austra frá Raufarhöfn í heim-
sókn. Heimamenn unnu stór-
sigur 8:1 og ætla sér ekkert að
gefa eftir á leiö sinni í úrslita-
keppnina.
FISÞ-c skoraði þrjú mörk í
fyrri hálfleik á móti einu marki
Áustramanna. í síðari hálfleik
bættu heimamenn við fimm
mörkum og úrslitin sem fyrr
sagði 8:1. Þeir Haraldur Jónsson
og nafnarnir Þórarinn Jónsson og
Illugason skoruðu tvö mörk hver,
Einar Jónsson skoraði eitt mark
og eitt rnarkið var sjálfsmark.
Degi er ekki kunnugt um það
hver skoraði mark Austramanna.
Þórsarar fóru með sigur af
hólmi í annarri viðureign sinni
við KA á 5 dögum, að þessu
sinni í 16 liða úrslitum Mjólk-
urbikarkeppninnar. Þórsarar
áttu meira í leiknum og úrslitin
því sanngjörn. Eftir venjuleg-
an leiktíma var staðan 1:1 og í
framlengingu tókst liðunum
ekki að skora. Það voru svo
Þórsarar sem voru öruggari í
vítaspyrnukeppninni, skoruðu
úr öllum fimm en KA misnot-
aði eina spyrnu.
Það endurtók sig sagan frá
fyrri leik liðanna að því leyti að
Þórsarar voru fljótari í gang og
voru sterkari aðilinn í fyrri hálf-
leik. Þeir áttu ágæt skot að marki
en engin hættuleg færi.
Sem fyrr voru það þó KA
menn sem fundu fyrr leiðina að
marki. Á 14. mínútu náði Frið-
finnur boltanum af Sveini Páls-
syni við vítateig KA. Freddi
brunaði upp vinstri kantinn og
sendi síðan yfir á Tryggva sem
var einn og óvaldaður hægra
megin. Baldvin varði frá Tryggva
sem gafst þó ekki upp og skoraði
í annarri tilraun, 1:0.
Þórsarar sóttu nú stíft og fimm
mínútum síðar skoraði Halldór
Áskelsson jöfnunarmarkið upp á
eigin spýtur. Eftir að hafa leikið á
tvo varnarmenn KA renndi hann
undir Hauk í markinu, staðan
1:1.
Fljótlega eftir markið dofnaði
heldur yfir leiknum en liðin áttu
bæði nokkur hætlulítil færi. Hart
var barist um boltann á miðjunni.
Síðari hálfleikur var daufari en
sá fyrri. Það voru Þórsarar sem
áttu fyrsta færið þegar Haukur
varði frá Hlyn með góðu út-
hlaupi.
Mjólkurbikarkeppnin 16 liða úrslit:
Völsungar áfram
- eftir sætan sigur á FH í Hafnarfirði
FH og Völsungar mættust í 16
liða úrslitum Mjólkurbikar-
keppni KSÍ á Kaplakrikavelli í
Hafnarfirði kl. 20 í gærkvöldi.
Fyrirfram bjuggust knatt-
spyrnuspekúlantar ekki við
skemmtilegum leik en þrátt
fyrir hrakspár byrjaði hann vel
fyrir Völsunga.
Hörður Benónýsson skoraði fyrir
Völsung gegn FH.
Á fjórðu mínútu skoraði
Hörður Benónýsson mark sem
fáir sáu vegna þess að fólk var
enn að koma sér fyrir. Áfall fyrir
FH-inga sem ekki voru komnir í
gang. Níu mínútum síðar átti
Henning Henningsson hörkuskot
að eigin marki en rétt framhjá.
Ur því hornspyrna sem ekkert
varð úr. Á 29. mínútu átti Helgi
Helgason hörkuskot að marki
FH-inga en Halldór Halldórsson
markvörður kom vel út á móti og
skotið fór rétt yfir þverslá. Á 43.
mínútu komust Völsungar í
hörkufæri en fáum að óvörum
var dæmd rangstaða. Lauk þar
með tíðindalitlum fyrri hálfleik
og bjuggust fáir við betri sUari
hálfleik.
Lítið markvert gerðist á fyrstu
tveim mínútum seinni hálfleiks
en á 48. mínútu komst Hörður
Benónýsson einn innfyrir vörn
FH-inga, skaut hörkuskoti en
Halldór varði og missti boltann
út og Völsungar skutu himinhátt
yfir. Það er síðan á 58. mínútu
sem FH-ingar jafna lcikinn.
Pálmi Jónsson á skalla í varnar-
mann, boltinn flýtur út í teiginn
og Kristján Gíslason skýtur
hörkuskoti utan úr teig neðst í
bláhornið, óverjandi fyrir Þor-
finn Hjaltason. Staðan orðin 1:1.
FH-ingar sóttu síðan stíft, það
stíft að á 67. mínútu fær Skarp-
héðinn Ivarsson gula spjaldið fyr-
ir leiðindabrot. Gert var út um
leikinn á 83. mínútu. Þá tóku
Völsungar hornspyrnu, boltinn
barst inn í teiginn, Kristján Hil-
marsson reyndi að nikka boltan-
um yfir markið en svo óheppilega
vildi til að boltinn fór öfugu meg-
in við þverslána og sjálfsmark var
orðið staðreynd. 2:1 fyrir Völs-
unga. Síðasta færi leiksins kom
svo á síðustu mínútunni. Guðjón
Guðmundsson átti þá auka-
spyrnu í varnarvegg Völsunga og
Pálrni Jónsson fylgdi vel á eftir og
skallaði boltann rétt yfir markið.
Þar með var leikurinn flautaður
af og Völsungar komnir í 8 liða
úrslit.
Á 67. mínútu fékk Kristján
gott færi til að koma Þór yfir eftir
að Haukur hafði varið frá Jónasi,
en tókst á illskiljanlegan hátt að
skjóta yfir markið af örstuttu
færi.
Tveimur mínútum síðar átti
Árni Freysteinsson varamaður
fyrir Þorvald Örlygsson, gott skot
í þverslá og síðar varði Baldvin
naumlega frá Tryggva Gunnars-
syni.
Undir lok venjulegs leiktíma
skiptust liðin á um að sækja en
ekkert varð úr og staðan enn 1:1.
Þrír KA menn höfðu fengið að
líta gula spjaldið hjá góðum
dómara leiksins, Guðmundi Har-
aldssyni, þeir Erlingur, Tryggvi
og Friðfinnur.
Þórsarar höfðu tögl og hagldir
í framlengingunni. KA menn
björguðu þá m.a. á línu en virtust
setja allt traust sitt á vítaspyrnu-
keppni.
Það hefðu þeir þó ekki átt að
gera því þar reyndust Þórsarar
öruggari sem fyrr segir. Fyrir Þór
skoruðu þeir Jónas, Einar, Guð-
mundur Valur, Valdimar og Sig-
urbjörn en hjá KA þeir Stein-
grímur, Árni, Gauti og Erlingur.
Baldvin varði frá Friðfinni.
Hjá Þór voru það framlínu-
mennirnir Hlynur, Halldór og
Guðmundur Valur sem voru
bestir og einnig var Baldvin
góður. Hjá KA var Haukur
markvörður jafnbestur en
Bjarni, Steingrímur, Hinrik og
Árni stóðu einnig fyrir sínu. ET
Mjólkurbikarkeppnin:
Önnur
úrslit
í kvöld voru sex leikir í Mjólk-
urbikarkeppninni í knatt-
spyrnu. Við vitum allt um úr-
slit í leikjum KA og Þórs, FH
og Völsungs og Reynis og
Leifturs en þrjú norðanlið
unnu sér rétt til að leika í 8 liða
úrslitum eins og kemur fram
hér á síðunni.
En úrslit annarra leikja urðu
Sannarlega góð úrslit fyrir þessi:
Húsvíkinga og að sama skapi ÍR-Fram 0:6
dapurleg fyrir FH-inga sem nú Reynir-Leiftur 3:4
hafa að engu að keppa nema ÍA-ÍBK 1:2
halda sér í fyrstu deild. -SÓL Þróttur N-Víðir 0:2