Dagur - 28.07.1987, Side 1

Dagur - 28.07.1987, Side 1
70. árgangur Akureyri, þriðjudagur 28. júlí 1987 140. tölublað u \ s i < Sumar- fatnaöur HÉRRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 -5- P0 N f : •:«•«:::>!:>» Bj' • •• !«'!_ M ■ • F W* * - Jí" 1 í gær kom Heiðrún EA 28 til heimahafnar á Árskógssandi eftir gagngera endurbyggingu i Noregi. Byggt var yfir bátinn, lestin klædd og einangruð, sett á hann ný brú og skipt um flest á dekki, settir kranar og skutrenna. Heiðrún er 190 tonna bátur og eigandi er Gylfi Baldvinsson. Mynd: gt Félagasamtök á Akureyri: Kaupa íbuðir í Reykjavik Nokkur ár eru síðan félaga- samtök og fyrirtæki af suð- vesturhorninu fóru að kaupa íbúðir á Akureyri fyrir starfs- menn sína sem geta þá dvalið hér í vikutíma eða svo. Tvö félög á Akureyri hafa nú fest kaup á íbúðum í Reykjavík, það eru Eining og Félag versl- unar- og skrifstofufólks. Blað- ið hafði samband við Sævar Frímannsson hjá Einingu og Jónu Steinbergsdóttur hjá Félagi verslunar- og skrifstofu- fólks og spurði þau um þessi íbúðakaup. „Þetta er hugsað sem orlofs- íbúð fyrir félagsfólks. Eignaraðil- ar að íbúðinni eru sjúkrasjóður og orlofssjóður til helminga. Fólki gefst þarna kostur á að leigja sér íbúð á öllum tímum ársins, einnig getur fólk sem þarf að leita sér lækninga í Reykjavík dvalið í íbúðinni. Já, það hefur verið töluverð þörf fyrir það því fóík sem þarf að fara suður til lækninga hefur þurft að dvelja á heimilum hjá ættingjum því hólelkostnaður er svo dýr. Þetta breytir því að fólk þarf ekki að vera upp á aðra komið ef það þarf að fara til Reykjavíkur.“ íbúð Einingar verður ekki tek- in í notkun fyrir félagsmenn fyrr en í október, en Sævar sagðist vita að eftirspurn eftir henni væri mikil. „Það hefur mikið verið spurst fyrir um íbúðina og þessi kaup voru samþykkt samhljóða á aðalfundi.“ Byrjað var að leigja út íbúð Félags verslunar- og skrifstofu- fólks um mánaðamótin apríl-maí og að sögn Jónu Steinbergsdóttur hefur eftirspurnin verið mikil. „íbúðin hefur verið stanslaust í leigu frá því hún var keypt. Þetta er bæði orlofsíbúð og eins fyrir þá sem þurfa að leita sér lækn- inga til Reykjavíkur. Þeir sitja fyrir og tíminn er ekki takmark- aður við viku eins og hjá þeim sem fara í orlof,“ sagði Jóna. Bæði Jóna og Sævar sögðu það mun hagkvæmara fyrir félögin að eiga íbúðir í Reykjavík heldur en að kaupa hús í orlofsbyggðum því þau væru svo illa nýtt auk þess sem rekstur þeirra er dýr. HJS Áhrif mjólkurkvótans: Bændur skilja mjólkina heima „Já, já, við erum búnir að selja sjö skilvindur í þessum mánuði og til samanburðar þá seldum við þrjár allt síðasta ár og þær seldust eftir að bændur voru búnir með mjólkurkvótann,“ sagði Gunnar Gíslason hjá Véladeild KEA í samtali við blaðið. Mjólkurkvótamálin hafa mikið verið í fréttum að undanförnu og nýting mjólkur- innar heima í framhaldi af því. Þótt bændur geti lagt mjólk inn í samlögin eftir að kvótinn er búinn fá þeir ekkert fyrir hana og margir hafa því unnið úr henni heima eins og hægt er. Skilvinda kostar 34-50.000 krónur. „Það fer eftir stærð,“ sagði Gunnar. „Þetta er frá 80- 200 lítrar á klukkustund sem hægt er að vinna með þessum vélum.“ Sagði Gunnar að véla- deildin hefði ekki átt skilvindur til sölu lengi þar til í fyrra þegar farið var að ræða um mjólkur- kvótann. Þá voru pantaðar nokkrar skilvindur og þá seldust Sjö skilvindur hafa selst í júlí strax þrjár. „Síðan seldist ekki neitt þar til núna þegar bændur sáu fram á að kvótinn var að verða búinn, þá kom góður fjör- kippur í söluna. Ég skil þetta vel, það er miklu betra að nýta mjólk- ina en að hella henni niður. Smjörið er mjög gott hjá þeim,“ sagði Gunnar. HJS Farþegafjölgun Flugleiöa: „Greinileg ásókn norður“ - segir Sæmundur Guðvinsson blaðafulltrúi „Það er enginn vafí á því að spár um aukningu ferða- mannastraums í sumar hafa ræst,“ sagði Sæmundur Guð- vinsson blaðafulltrúi Flug- leiða þegar hann var spurður um farþegafjölda milli Reykjavíkur og áætlunar- staða Flugleiða á Norðulandi það sem af er árinu. Farþegum á leiðinni Reykja- vík-Akureyri-Reykjavík hefur fjölgað á tímabilinu janúar til júní úr 47.159 í 53.573. Þetta er fjölgun um 6414 eða 13,6% frá því í fyrra. Til Húsavíkur hefur farþegum fjölgað úr 7534 í fyrra í 7686 og nemur þessi aukning 2%. Til Sauðárkróks er far- þegafjöldi svipaður og var í fyrra. Sæmundur sagði að greinileg ásókn væri norður, og að aukn- ingin væri nokkuð jöfn allan tímann. VG Utgerðarfélag Dalvíkinga: Rúmlega 36 milljóna króna hagnaður á síóasta ári - Veltufé fyrirtækisins jákvætt í fyrsta skipti í langan tíma Afkoma Útgerðarfélags Dal- víkinga var góð á síðasta ári nokkuð betri en árið 1985 og í fyrsta skipti í langan tíma var veltufé fyrirtækisins jákvætt, nú um tæpar 18 milljónir króna. Útgerðarfélag Dalvík- inga gerir út tvo togara, Björgvin og Björgúlf, en stærstu hluthafar í fyrirtækinu eru Dalvíkurbær, Björgvin Jónsson skipstjóri á Dalvík og Kaupfélag Eyfírðinga. Bókfærður hagnaður af rekstri fyrirtækisins árið 1986 er rúmar 36 milljónir en til samanburðar var bókfærður hagnaður ársins 1985 tæpar 10,5 milljónir. Skuldir fyrirtækisins eru nú 106,2 mill- jónir en voru 1985 113,6 milljón- ir. Heildaraflamagn togarans Björgvins á árinu 1986 var 2720 tonn og aflatekjur tæpar 73 mill- jónir. Heildaraflamagn togarans Björgúlfs var 3174 tonn og afla- tekjur hans voru 93,5 milljónir króna. Inni í þessum tölum er út- fluttur ísfiskur í gámum sem var 240 tonn og gaf að skilaverði til útgerðar rúmar 10 milljónir króna. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi Útgerðarfélags Dal- víkinga sem haldinn var nýlega. 'Aðspurður um ástæður fyrir þessari góðu afkomu sagði Vald- imar Bragason, framkvæmda- stjóri félagsins, að góður rekstur togaranna og hækkað fiskverð réði miklu. Hagstætt olíuverð hefði leitt til að rekstur togar- anna hefði gengið vel. Einnig skilaði rækjuveiði togaranna góð- um hagnaði og sama má segja um siglingar þeirra með fisk á Þýska- landsmarkað. JÓH

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.