Dagur - 08.09.1987, Qupperneq 1
Dún-
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
70. árgangur Akureyri, þriðjudagur 8. september 1987 169. tölublað
Steingrímur Hermannsson á landsþingi LFK:
„Því miður er sá þverbrestur nú
í stjórnarsamstarfínu að fram-
tíð ríkisstjórnarinnar er óviss
og von að margir spyrji hvort
hún geti tekið á þeim fjöl-
mörgu stóru verkefnum sem
framundan eru. Hér á ég nátt-
úrlega við Útvegsbankamálið
- Framtíð ríkisstjórnarinnar óviss
Starfsfólk í Frystihúsi
KEA á Dalvík:
Mikið virðist vera um að
starfsfólk fyrirtækja taki sig
saman og fari í utanlandsferð-
ir. Nú á haustdögum ætlar
starfsfólk frystihússins á Dal-
vík að fara í eina slíka og í
leiðinni ætlar starfsfólkið að
slá tvær flugur í einu höggi og
efna til árshátíðar frystihúss-
ins á þýskri grundu.
Fariö verður til Trier í Þýska-
landi fimmtudaginn 19.
nóvember og dvaiið þar til
sunnudags. Mikil þátttaka er í
ferðinni, um 110 manns háfa
þegar skráð sig en það er mest-
ur hluti starfsfólks í frystihús-
inu, auk starfsfólks f saltfisk- og
skreiðarverkun. Starfsmanna-
félag frystihússins og fólkið
sjálft mun bera helming kostn-
aðar af ferðinni en frystihúsið
borgar helminginn. JÓH
sem slíkt að mínu mati er í
raun smámál borið saman við
t.d. efnahagsmál þjóðarinnar,
verðbólguna og fleira. I
Útvegsbankamálinu höfum við
lýst okkar skoðun og ég hygg
að flestir muni henni sammála,
að siðferðilega að minnsta
kosti hafí samvinnuhreyfíngin
keypt bankann ef ekki Iagalega
líka,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson formaður Fram-
sóknarflokksins í ræðu sem
hann flutti á landsþingi Lands-
sambands framsóknarkvenna í
Varmahlíð um helgina.
„Langtum alvarlegra heldur en
málið sjálft er hins vegar sú hót-
un sem kom frá flokksráði Sjálf-
stæðisflokksins og forsætisráð-
herra, að færi viðskiptaráðherra
eftir sinni sannfæringu í þessu
máli og léti samvinnuhreyfing-
una fá hlutabréfin sem hún varð
fyrst til að kaupa, þá muni það
þýða stjórnarslit.
Að sjálfsögðu sæmir slík hótun
alls ekki forsætisráðherra og
veldur vitanlega þeim trúnaðar-
bresti sem kann að verða erfitt að
lagfæra þó það sé von mín að það
takist.
Þetta vekur náttúrlega upp
ýmsar spurningar t.d. hvort
fr j álshyggj uliðiö í Sjálfstæðis-
flokknum hafi náð undirtökum
og hvort hér eigi að fara að reka
nýkapitalisma og frjálshyggju og
stofna til langvarandi ófriðar á
milli gróðahyggjunnar og sam-
vinnuhreyfingarinnar. Þetta er
hlutur sem við framsóknarmenn
hljótum að hugleiða mjög en það
er von mín að þetta verði ekki.“
IM
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra flytur ávarp á landsþingi Landsambands framsóknarkvenna í Varma-
hlíð um helgina.
Kjarasamningar Verkamannasambandsins:
„Þýðir ekki að vera með
óraunhæfar kröfur“
- segir Sævar Frímannsson formaður Einingar
„Þetta veikir óneitanlega
stöðu sambandsins út á við,“
sagði Sævar Frímannsson for-
maður Einingar á Akureyri
þegar hann var spurður um
niðurstöðu af fundi formanna
Verkamannasambands íslands
á sunnudag. Sem kunnugt er,
gengu fulltrúar 11 félaga af
fundi ■ lok hans þegar tillaga
sem borin var upp á síðustu
stundu var ekki samþykkt.
Aðdragandinn mun vera sá, að
á fundum tíu manna nefndar og
Krossanesverksmiðjan:
Okkar framlag til loönuleitar'
- segir Geir Þórarinn Zoéga, framkvæmdastjóri,
en verksmiðjan býður 3000 kr. fyrir fyrsta loðnufarminn
„Þetta háa verð á tvo fyrstu
farmana er okkar framlag til
loðnuleitar, þannig að þeir
sem fínna loðnu fái eitthvað
fyrir sinn snúð. Þetta er viss
áhætta sem þeir taka,“ sagði
Geir Þórarinn Zoéga, fram-
kvæmdastjóri Krossanesverk-
smiðjunnar, en verksmiðjan
býður nú 3000 kr. á tonnið fyr-
ir fyrsta farminn af loðnu og
2500 fyrir annan farminn.
Eftir annan farminn borgar
verksmiðjan 1800-2000 kr. fyrir
hvert tonn eftir ferskleika hráefn-
isins. „Þetta loðnuverð er þó háð
því að ríkisstjórnin falli frá því að
hætta að endurgreiða verksmiðj-
unni uppsafnaðan söluskatt. Ef
það verður ekki gert lækkar verð-
ið um 150 kr. á hvert tonn,“ sagði
Geir. Tvö skip fóru út fyrir
hálfum mánuði til loðnuveiða en
fundu ekki neitt, bara of heitan
sjó fyrir loðnuna. „Loðnan virð-
Unnið við að landa loðnu.
ist liggja meira Grænlandsmegin,
ekki inni í okkar landhelgi,"
sagði Geir. „Það eru níu færeysk
skip á veiðum og þau eru að
veiða nær Grænlandi, á svæði
sem er í grænlenskri landhelgi
og okkar skip fá ekki að fara
þangað. Loðnan heldur oft til í
skilunum milli kalda og heita
sjávarins og þau eru nær Græn-
landi núna. Það verður þá annað
hvort að reyna að finna hana nær
eða bíða eftir að aðstæður breyt-
ist í sjónum."
Sagði Geir að hafsvæðið væri
stórt og þó tvö skip hefðu ekki
fundið neitt þá segði það ekki
alla söguna. „Með þessu háa
verði viljum við ýta við mönnum
að fara af stað. Við eigum von á
að það fari nokkrir bátar út í
þessari viku.“
Að sögn Geirs er mjög siæmt
fyrir verksmiðjuna að hafa ekki
fengið neina loðnu ennþá til
bræðslu. „Við vinnum fiskúrgang
þannig að verksmiðjan stendur
ekki ónotuð, en við gætum unnið
miklu meira. í fyrra vorum við
búnir að framleiða loðnuafurðir
fyrir 40 millj. kr. á sama tíma.
Það munar um minna í kassann,“
sagði Geir að lokum. HJS
framkvæmdastjórnar Verka-
mannasambandsins á fimmtudag
og föstudag voru lögð drög að
kröfum sem leggja á fyrir VSÍ á
fundi í dag. Sævar sagði að eins
og eðlilegt megi teljast hafi verið
skiptar skoðanir um hversu langt
skyldi gengið. Fundurinn sam-
þykkti þó að lokum kröfur sem
hljóða upp á að skipt verði í
fimm launaflokka. Ekki var
endanlega raðað niður í alla
flokkana nema 3. flokk. í honum
verður fiskvinnslufólk og í 3.
flokk A, sérhæft fiskvinnslufólk,
þ.e. sem hefur sótt námskeið.
Kröfur um byrjunarlaun í þeim
flokki verða 37.521 og eftir 9 ár,
45.025. Þetta er hæsti flokkurinn.
Sævar sagði að það hefði kom-
ið verulega á óvart þegar tiilaga
Björns Grétars Sveinssonar á
Höfn hefði verið borin aftur upp
á síðustu stundu á sunnudag.
Þegar ljóst var að hún fengi ekki
hljómgrunn gengu fulltrúar þess-
ara ellefu félaga, sem höfðu sam-
þykkt áðurnefndar kröfur á
föstudaginn, út. Þetta munu
aðallega hafa verið fulltrúar
smærri félaga á Austur- og
Suðurlandi.
„Það þýðir ekki að koma með
óraunhæfar kröfur nú, þar sem
eingöngu er um endurskoðun
núverandi samnings að ræða,“
sagði Sævar. „Það gæti þýtt það
að þeir myndu alls ekki vilja ræða
við okkur.“ Sævar lagði þó
áherslu á það að leiðrétting næð-
ist nú, því að fiskvinnslufólk væri
komið svo langt á eftir í launum
og nauðsynlegt væri að leiðrétta
það. VG
Þverbrestur í stjórnarsamstarfinu