Dagur - 08.09.1987, Page 9

Dagur - 08.09.1987, Page 9
8. september 1987 - DAGUR - 9 íþróttÍL Umsjón: Kristján Kristjánsson - GR sigraði bæði í 1. deild karla og kvenna Sveitakeppni Golfsambands íslands fór fram um helgina. Keppni í 1. deild karla og kvenna og 2. deild kvenna fór fram á Hólmsvelli í Leiru en í 2. deild karla á Nesvelli á Sel- tjarnarnesi. Er skemmst frá því að segja að karlasveit GA féll í 2. deild en liðið vann sig upp í fyrra og kvennasveit GA sem féll í 2. deild í fyrra tókst ekki að vinna sæti sitt í 1. deild á ný. A-sveit GR sigraði í bæði 1. deild karla og kvenna eftir harða keppni við A-sveit Keil- is, sem varð í 2. sæti í báðum flokkum. 1. deild karla: Eins og búist var við fyrirfram börðust A-sveitir GR og GK um sigur í 1. deild karla. í hverri sveit voru fjórir kylfingar og voru leiknar 18 holur á dag. Sveit GR hafði betur í baráttunni við GK og sigraði en sveit GK varð í 2. sæti. A-sveit GS hafnaði í 3. sæti, B-sveit GR í því 4., B-sveit GS í því 5. og sveit GA rak lestina og féll því í 2. deild á ný. 1. deild kvenna: Það voru sömu sveitir sem börðust um sigur í 1. deild kvenna. Þar hafði A-sveit GR einnig betur og sigraði. A-sveit Keilis varð í 2. sæti, B-sveit Keil- is í því 3. og A-sveit GV varð í 4. sæti og féll í 2. deild. í kvenna- flokkunum voru þrír kylfingar í hverri sveit. 2. deild karla: Keppni í 2. deild karla fór fram á Nesvelli og voru 10 sveitir mættar til leiks. Þar var einnig hart barist en þegar upp var stað- ið hafði A-sveit GV staðið sig best og með sigrinum vann liðið sér sæti í 1. deild á ný. B-sveit Keilis hafnaði í 2. sæti, sveit Nes- klúbbsins varð í 3. sæti og'sveit Leynis í því 4. 2. deild kvenna: í 2. deild kvenna börðust A- sveit GA og B-sveit GR um sigur og þær reykvísku höfðu betur og unnu sér sæti í 1. deild að ári. Sveit GA varð að gera sér 2. sæt- ið að góðu. A-sveit GS hafnaði í 3. sæti og sveit GH í 4. sæti. Knattspyrna 3. flokks: Þor bikarmeistari Noröurlands Þórsarar urðu bikarmeistarar Norðurlands árið 1987 er þeir sigruðu KA-menn með einu marki gegn engu í seinni leik liðanna í keppninni. Þórsarar sigruðu einnig í fyrri leik lið- anna fyrr í sumar, með sömu markatölu. Seinni leikurinn fór fram fyrir helgi og það var Axel Vatnsdal drengjalandsliðsmaður Þórs sem skoraði þetta mikilvæga mark. í fyrri leiknum var það Sverrir Ragnarsson sem tryggði Þórsur- um sigur. Það voru aðeins þessi tvö lið sem skráðu sig til þátttöku í bikarkeppni Norðurlands en hún var haldin á vegum KSÍ. Lið KA og Þórs í 3. aldurs- flokki hafa bæði staðið sig vel í sumar og eins og komið hefur fram í blaðinu varð KA í 2. sæti á íslandsmótinu en Þórsarar í því 3. Liðin eiga enn eftir að leika eina tvo leiki innbyrðis, einn í Akureyrarmótinu og annan í haustmótinu. Öðrum leik liðanna í Ak-mótinu er lokið og í leik A- liðanna höfðu KA-menn betur. Óvíst er hvenær þeir leikir sem eftir eru fara fram en það hlýtur að verða nú á allra næstu dögum. Þriðji flokkur Þórs í knattspyrnu ásamt þjálfara sínum Gísla Bjarnasyni. Sveitakeppni GSÍ: Karlasveit GA féll í 2. deild Verðlaunahafar í keppninni um Nafnlausa bikarinn. F.v. Sæbjörn Jónsson, Eiríkur Haraldsson og Konráð Gunnarsson. Mvnd: EHB Þrjú golfmót að Jaðri um helgina: Tvöfalt hjá Ragnari í öldungamótinu ilmnn f/kcn frnm kvm 1 A_ a a » Um helgina fóru fram þrjú golfmót að Jaðri en senn líður að lokum golfvertíðarinnar að þessu sinni. Á laugardag fóru fram tvö mót, hið fyrra var öldungamót þar sem leiknar voru 18 holur með og án for- gjafar og hið síðara var para- keppni með forgjöf og í því móti voru einnig veitt verðlaun fyrir fæst pútt. Á sunnudag var síðan leikið um Nafnlausa bikarinn en í þeirri keppni var keppt með 3/4 forgjöf. Öldungamót: Ragnar Steinbergsson sigraði nokkuð örugglega í öldungamót- inu bæði í keppni með og án for- gjafar. Ragnar lék á 68 höggum með forgjöf og samtals á 81 höggi. Þrír efstu menn í mótinu urðu þessir: 1. Ragnar Steinbergsson 81-68 2. Guðjón E. Jónsson 85-70 3. Árni B. Árnason 89-73 Parakeppnin: í parakeppninni var keppt með forgjöf og eru leikreglur þær að karlmaðurinn slær inn á grín en konan sér um púttið. Keppnin var jöfn og spennandi en úrslit urðu þessi: 1. Örn Arnarson Mattý Einarsdóttir 2. Pétur Sigurðsson 36 Fjóla Einarsdóttir 3. Rögnvaldur B. Ólafsson 37 María Steinmarsdóttir 4. Guðmundur Lárusson 42 Anna Guðmundsdóttir Það voru einnig veitt verðlaun þeirri konu er notaði fæst pútt í keppninni, þau hlaut Fjóla Ein- arsdóttir en hún notaði 17 pútt, María Steinmarsdóttir notaði 18, Mattý Einarsdóttir 20 og Anna Guðmundsdóttir 22. Nafnlausi bikarinn: Það var Helgi heitinn Skúlason augnlæknir sem gaf bikarinn í þetta mót og var það gert til þess að venja klúbbfélaga á stundvísi. Hann vildi ekki láta nafns síns getið í því sambandi. Hann stóð jafnan við hliðið að Jaðri með klukku sína og þeir sem mættu of seint í mótið fengu ekki að vera með. Þannig hefur það verið síðan, þeir sem ekki eru mættir á svæðið 15 mín. áður en keppnin hefst, fá ekki að vera með. Keppt var að þessu sinni með 3/4 forgjöf og urðu úrslit þessi: 1. Eiríkur Haraldsson 72 2. Sæbjörn Jónsson 73 3. Konráð Gunnarsson 73 Sveinbjöm og Jón hefja leikinn Þá hefst getraunaleikur Dags á ný. Þeir félagar Sveinbjörn Sig- urðsson og Jón Lárusson starfsmenn KEA hefja leikinn að þessu sinni en þeir urðu jafnir í síðustu leikviku getrauna á síð- asta keppnistímabili.Verði þeir jafnir að þessu sinni, verður hlutkesti varpað til þess að fá úr því skorið hvor þeirra heldur áfram. Sveinbjörn er eins og flestir vita, annar af tveimur aðdá- endum Wolves á íslandi en það lið leikur sem kunnugt er í 4. deild ensku knattspymunnar. Jón Lárusson fylgir aðeins stærri klúbbi eða Arsenal sem leikur í 1. deild. Að þessu sinni er síð- asta umferð SL mótsins 1. deild í knattspyrnu á seðlinum og auk þess 7 leikir í 1. deild ensku knattspyrnunnar. Báðir ætla þeir Sveinbjörn og Jón sér sigur í keppninni en það mun skýrast á laugardag hvor hefur betur. En spá þeirra félaga lítur þannig út: Sveinbjörn: Valur-Völsungur 1 Víðir-KR 1 KA-ÍA 1 FH-Þór 2 Fram-ÍBK 1 Liverpool-Oxford 1 Luton-Everton 2 Norwich-Derby x Nott.Forest-Arsenal x Portsmouth-Charlton 1 Sheff.Wed.-Watford x Wimbledon-West Ham 1 Valur-Völsungur 1 Víðir-KR x KA-ÍA 1 FH-Þór 2 Fram-ÍBK 1 Liverpool-Oxford 1 Luton-Everton x Norwich-Derby x Nott.Forest-Arsenal 1 Portsmouth-Charlton x Sheff.Wed.-Watford 2 Wimbledon-West Ham 2 Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fimmtudög- um svo enginn verði nú af vinningi.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.