Dagur - 01.10.1987, Page 5
1. október 1987 - DAGUR - 5
Afgreiðslumenn bensínsölu. Þarna er um auðugan garð að gresja fyrir bifreiðaeigendur.
Félagsmálaskólinn:
Vetrarstarfiö að hefjast
Vetrarstarf Féiagsmálaskóla
alþýðu er að hetjast um þessar
mundir. Fyrsta önn skólans
verður í Ölfusborgum 11.-24.
október n.k. Félagsmálaskól-
inn er rekinn af Menningar- og
fræðslusambandi alþýðu og
eiga allir félagsmenn í aðildar-
félögum ASl rétt á vist í
skólanum. Tvær annir skólans
verða fyrir áramót, sem hvor
um sig stendur í hálfan mánuð,
en eftir áramótin er auk fyrri
anna gert ráð fyrir þriðju önn
skólans.
í Félagsmálaskólanum siija
hagnýtar greinar í fyrirrúmi.
Þátttakendum er leiöbeint um
félags- og fundarstörf, þeir taka
þátt í skemmtilegu og fræðandi
hópstarfi um fjölbreytt efni. Þeir
eiga þess kost að afla sér þekk-
ingar í vinnurétti og hagfræði auk
þess sem fræðsla um verkalýðs-
hreyfinguna, sögu hennar og
stefnumál er ætíð á dagskránni.
Auk fræðslu í helstu greinum,
sem snúa að launa- og kjaramál-
um, er Félagsmálaskólinn dýr-
mætur vettvangur fyrir launþega
innan ASÍ til umræöu um sín mál
og tækifæri gefast til að ræða við
forystumenn í launþegahreyfing-
unni á liverri önn skólans.
A dagskránni eru einnig
menningar- og skemmtikvöld,
heimsóknir í fyrirtæki og stofnan-
ir eftir því sem tími gefst til.
Þeir sem áhuga hafa á skólavist
í Félagsmálaskólanum, eru beðn-
ir um að hafa samband við skrif-
stofu MFA s. 84233 eða verka-
lýðsfélag sitt. Umsóknir um 1.
önn skólans þurfa að berast fyrir
8. október n.k.
HAFNARSTRÆTI96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI
Einingabréf 1 nú 13-14%
umfram verðbólgu.
Einingabréf 2 nú 9-10%
umfram verðbólgu.
Einingabréf 3 nú 35-39% nafn-
vöxtun. Raunvöxtun háð verð-
bólgu.
Aukið öryggi vegna dreifingar áhættu.
Óbundið fé. Einingabréfin eru alltaf laus til
útborgunar.
Allir geta eignast Einingabréf, því hægt er að
kaupa þau fyrir hvaða upphæð sem er.
GENGI BRÉFANNA:
Einingabréf 1 ............. 2.318.-
Einingabréf 2 ............. 1.365.-
Einingabréf 3 ............. 1.433.-
Lífeyrisbréf .............. 1.165.-
Kaupþing Norðurlands hf.
Ráðhústorgi 5 * Pósthólf 914
602 Akureyri • Sími 96-24700.
Vegleg bensín-
stöð við
Leiruveg
- „Miðum allt við að hafa
þjónustuna sem besta“
segir Agúst Karlsson tæknifræðingur
Á laugardaginn var opnuð ný
bensínstöð við Leiruveg.
Akureyringar geta nú státað af
þremur nýjum bensínstöðvum
sem allar hafa verið opnaðar í
sumar og haust. Skeljungur hf.
opnaði nýja bensínstöð við
Hörgárbraut og Olíufélagið hf.
stóð í stórframkvæmdum við
Veganesti, en þar voru reist ný
hús og allt endurnýjað. Ágúst
Karlsson, tæknifræðingur hjá
Olíufélaginu hf., svaraði
nokkrum spurningum um stöð-
ina við Leiruveg.
- Hverjir hönnuöu stöðina?
„Aðalsteinn Júlíusson, arki-
tekt, Birgir Ágústsson, verk-
fræðingur og Jóhann Axelsson
hjá Raftákni voru hönnuðir að
stöðinni. Hvað varðar starfsem-
ina sem þarna fer fram þá er
stöðin samsett þannig að fyrir
utan eldsneytissölu er þetta gegn-
umkevrslustöð fyrir bíla á lang-
ferðum, t.d. rútur og flutninga-
HAFnARSTRÆTI 96 SIMI96-24423 AKUREYRI
Utsala!
á leikföngum,
ullarvörum og lopa.
Opið frá kl. 1-6 e.h.
í kjallaranum,
gengið inn að norðan.
tmmibiirim
Ys og þys við lúgurnar.
Pétur Jones frá Grímsey t.h. var flmmhundraðasti viðskiptavinurinn en þeir
voru á áttunda hundrað fyrsta daginn. Pétur fékk vegleg verðlann.
- Er það stefna Olíufélagsins
að reisa slíkar gegnumkeyrslu-
stöðvar víðar um landið?
„Þetta fer allt eftir staðháttum.
Mönnum fannst vanta stöð af
þessari gerð á Akureyri, helst
rétt utan við bæinn. Á smærri
stöðum úti á landi er Olíufélagið
ekki tilbúið að leggja í slíkan
kostnað nema réttir staðhættir
séu fyrir hendi. Við vitum að
stöðin verður dýr, það var mikið
í hana borið með tilliti til þess að
hafa mannvirkið sem veglegast
og þjónustuna sem besta. En
endanlegur kostnaður liggur ekki
fyrir, reikningarnir eru ennþá að
berast."
- Er ákveðinni upphæð varið
til byggingaframkvæmda á veg-
um félagsins á hverju ári?
„Nei, mér vitanlega er ekki um
að ræða neina fastákveðna
upphæð. Þetta miðast allt við
rekstrarafkomu fyrirtækisins t'rá
ári til árs og þörfina á hverjunt
stað. Staðhættir geta breyst á
hverjum stað og við reynum að
niiða við hvaða þörf er fyrir þjón-
ustuna á hverjum tíma til að
koma sem best til móts við við-
skiptavinina.“
EHB
bíla því þarna er veitingasala. Á
efri hæðinni getur fólk sest niður
við veitingarnar og er pláss fyrir
hóp úr meðalrútu. Þá geta flutn-
ingabílstjórar komið við, tekið
eldsneyti og fengið sér í
svanginn. Sérstakt upplýst
þvottastæði er fyrir þessa stóru
bíla auk hefðbundins þvottaplans
fólksbíla. “