Dagur - 01.10.1987, Blaðsíða 8

Dagur - 01.10.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 1. október 1987 um ökuskólann Það hefur löngum þótt og þykir enn sem töiuverðum áfanga sé náð þegar bílprófi er náð. Bílprófið þýðir í flestum tilfellum aukið sjálfstæði, þá loksins er fólk orðið fullorðið og getur farið allra sinna ferða eins og það kýs. Menn fara gjarnan að sjá miðbæjarlífið í nýju Ijósi, því nú eru þeir ökumenn í stað þess að vera í hópi gangandi vegfarenda eins og áður. Fylgifiskur ökuprófsins er auðvitað oft „að kaupa sér bíl“. Bílaútgerðin getur orðið stór- áhugamál (bíladella), því eftir að hafa safnað fyrir og keypt vagninn þarf sífellt að vera að skrúbba og bóna og svo verða menn að fylgjast með því nýjasta o.s.frv. Reyndar er það svo, eins og fram kemur í eftirfarandi viðtölum, að flestir fá bíl foreldr- anna lánaðan til að byrja með. Eða eins og einhver sagði: „Það er ágætt að vera á bílnum hans pabba svona á meðan maður er að æfa sig.“ Flestir virðast eitthvað hafa gripið í stýri áður en að ökuprófinu kemur um sautján ára aldur. Við litum inn í Ökuskólann við Mýrarveg á Akureyri og ræddum þar við kennara á öku- námskeiði og nokkra nemendur í von um að geta kynnt væntanlegum ökunemum hvern- ig þetta gengur allt fyrir sig. Borgar Freyr Jónasson og Valdimar Tryggvason - Eruð þið búnir að vera dug- legir við að lesa ökubækurnar? „Já. við erum búnir að pæla í gegnum spurningarnar og líta á hitt.“ - Voruð þið búnir að fá góða þjálfun í akstri áður en þið kont- uð hingð í ökuskólann? „Já, já, maður stalst á bíl svona annars lagið.“ - Voruð þið með flest umferð- armerkin á hreinu þegar þið komuð hingað? „Nei, nei, maður var ekkert farinn að pæla í þessu." - Hafið þið átt mótorhjól eða eitthvert hliðstætt tæki? „Ekki mótorhjól, en Valdimar á snjósleða." - Búist þið við að þurfa að fara í marga ökutíma áður en þið farið í prófið? „Ætli við förum ekki í svona um tíu tíma, manni veitir ekkert af því.“ - Nú ert þú frá Dalvík Borgar, til hvaða ökukennara ferðu? „Ég verð að koma hingað til Akureyrar til að sækja tímana því ökukennarinn á Dalvík er hættur. Valdimar er úr Bárðar- dal og verður þess vegna líka að koma hingað til að læra.“ - Hvað finnst ykkur að lokunt um þá hækkun á hámarkshraða sem nýlega hefur orðið? „Við teljum að það sé hiklaust til bóta að hafa hærri hámarks- hraða." Jónas Helgason. Jonas Helgason ökukennari og forstöðumaður ökuskólans „Ökuskólinn hefur verið starf- andi frá því í mars ’84 og hér eru yfirleitt námskeið á hálfsmánað- arfresti. Hingað sækja um 350 nemendur árlega, nemendur frá Akureyri og nágrannabýggðum og einnig frá nágrannabæjum eins og Ólafsfirði og Dalvík," sagði Jónas Helgason þegar við báðum hann að segja okkur aðeins frá ökuskólanum. - En hvernig var þetta áður en ökuskólinn kom til sögunnar? „Nú þá urðu menn bara að lesa enn betur undir prófið og það var alfarið ökukennara að annast bóklega kennslu og yfirferð fyrir prófið. Þetta leiddi til þess að ökuprófið var ntiklu dýrara en það er nú, því hér fá ntenn níu stunda kennslu fyrir 1400 kr. í Sigrún Margrét Indriðadóttir. Valdimar Tryggvason og Borgar F. Jónasson. stað þess að taka þessa bóklegu kennslu hjá einkakennara sem tekur 1113 kr. á klst. Þá er hægt að gera kennsluna hérna mun fjölbreyttari en hjá einkakennara með því að rökræða hlutina, sýna slidesmyndir, vídeómyndir og glærur.“ - Á hvaða dögum eru þessi námskeið? „Þau eru yfirleitt þrjú kvöld í viku, á mánudags-, þriðjudags- og miðvikudagskvöldum frá 20.00 til 22.30.“ - Nú fá flestir umferðar- fræðslu í byrjun grunnskóla. Finnst þér þau búa enn að því námi þegar þau koma hingað? „Þau búa náttúrlega alltaf eitthvað að því námi og sú fræðsla út af fyrir sig er nauðsyn- leg en menn eru fljótir að gleyma og fæstir kunna t.d. öll umferðar- merkin utan að þegar þeir byrja að læra til ökuprófs.“ - Eru margir hingað konmir til að læra á skellinöðrur (létt bifhjól)? „Ja, hingað koma um 50 árlega í ökuskólann til að taka skelli- nöðrupróf en gallinn við það er sá að krakkarnir fá svo lítinn undirbúning fyrir prófið. Þeir fá smáfræðslu og eiga svo að geta tekið þátt í umferðinni eins og fullgildir ökumenn. Þeim er sagt að æfa sig sjálfir sem er alls ekki nógu gott fyrirkomulag þó erfitt sé að breyta því.“ - Eru það bara strákar sem læra á skellinöðrur? „Það má eiginlega segja það, á þeim tveimur árum sem ég hef kennt hérna hefur aðeins ein stelpa komið hingað á námskeið til undirbúnings fyrir þetta próf.“ - Hvað kostar svo að taka bílprófið í dag? „Hjá meðalunglingi sem tæki um 14 ökutíma kostaði það eitthvað á bilinu 15-20 þúsund með myndum, sakavottorði og öllu. Annars er mjög erfitt að segja til um þennan kostnað því fólk er svo misjafnt.“ - Hvað um þá sem eru hingað komnir til að undirbúa sig fyrir ökupróf, eru þetta nánast ein- göngu 17 ára krakkar? „Já, níu af hverjum tíu eru á þeim aldri." - Er eitthvað um að fólk komi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.