Dagur - 01.10.1987, Qupperneq 9
1. október 1987 - DAGUR - 9
oft á sama námskeiðið?
„Það eru til dæmi þess en yfir-
leitt gengur þetta nú klakklaust í
fyrstu tilraun.“
- Hvað um próf á fjórlijól,
snjósleða og þess háttar, sækja
menn námskeið hér fyrir þau
próf?
„Já og menn fá reyndar rétt-
indi til að keyra fjórhjól og
snjósleða þegar þeir taka skelli-
nöðruprófið. Það er hlutur sem
ég er ekki heldur sáttur við því
fjórhjól og snjósleðar eru marg-
falt kraftmeiri en skellinöðrur."
- Hvort eru nú stelpur eða
strákar betri ökumenn?
„Strákarnir eru oft búnir að
keyra miklu meira áður en þeir
byrja að læra og eru þess vegna
yfirleitt með meira sjálfstraust og
eiga léttara með þetta, en stelp-
urnar reynast svo oft betri öku-
menn þegar út í umferðina er
komið, því það verða ekki eins
mörg slys af þeirra völdum, þær
hafa vinninginn.“
- Að lokum Jónas, hvað finnst
þér um umferðarmenningu okkar
Islendinga?
„Ef hún er borin saman við
það sem gerist annars staðar
kemur í ljós að ökumönnum hér
hættir til að sýna allt of mikið
gáleysi í umferðinni. Margir eru
of kærulausir og hlýða ekki
reglum, þetta er algengasta
orsökin fyrir umferðarslysum. Ég
held að það vanti einfaldlega aga
í umferðinni.“
ekki nógu góðan tíma til að pæla
í þessu.“
- Finnst þér þú hafa lært
margt á þeim tíma sem þú hefur
verið í undirbúningi?
„Já, svona eitthvað."
- Hvað finnst þér skemmtileg-
ast af þessu öllu saman?
„Mér finnst náttúrlega
skemmtilegast að keyra.“
- Ætlarðu að vera iðin • við
aksturinn eftir að þú færð prófið.
„Já, ég vona það.“
- Á að stunda rúntinn?
„Ja, maður gerir það kannski
eitthvað, annars er aðalatriðið
hvað maður verður miklu frjáls-
ari en áður.“
Rúnar Friðriksson.
- Hvað finnst þér um kostnað-
inn við að taka bílpróf?
„Það er ekkert svo dýrt en
mætti samt vera ódýrara.“
- Hvaða bíl hefurðu til um-
ráða þegar þar að kemur?
„Ég býst við að vera á pabba
og mömmu bíl, a.m.k. svona
fyrst til að byrja með.“
- Nú þykja unglingar sem eru
nýkomnir með próf oft glanna-
legir í akstri og allt of margir
þeirra lenda í einhverjum óhöpp-
um í umferðinni, hvernig held-
urðu að það verði með þig?
„Ég ætla að reyna að standa
mig vel í að fylgja öllum umferð-
arreglum. Annars hugsa ég að ég
verði kærulausari þegar á líður
eftir að ég hef tekið prófið og
hugsi minna um reglurnar."
Sigrún Margrét
Indriðadóttir
- Finnurðu til prófskrekks
þegar líða tekur að prófi?
„Já maður kvíðir svolítið fyrir
þessu."
- Ertu búin að vera dugleg við
að undirbúa þig við lesturinn?
„Nei ekki mjög. Maður hugsar
svo lítið út í þetta og gefur sér
Rúnar Friðriksson
- Hvað finnst þér um þetta
námskeið sem þú ert á hérma?
„Mér líst bara ágætlega á það
og er bara ánægður með þetta.“
- Ertu búinn að fara í marga
ökutíma?
„Ég er búinn að fara í tvo.“
- Hvernig tilfinning er það að
fá loksins að keyra sjálfur?
„Það er ágætis tilfinning, ann-
ars er ég vanur að keyra, því ég
Myndir og texti:
Helga Kristjánsdóttir.
hef verið í sveit í mörg ár og er
mjög vel undirbúinn þaðan.“
- Hefurðu tekið mótorhjóla-
próf?
„Nei ég hef aldrei tekið mótor-
hjólapróf, þó ég hafi átt mótor-
hjól. Ég er með dráttarvélapróf.“
- Finnst þér þú hafa lært mikið
á þessu námskeiði hér?
„Já, já þetta er búið að vera
ágætis kjaftæði og ég hef lært
mikið af því.“
- Hvað finnst þér um kostnað-
inn við þetta nám?
Gígja Björk Valsdóttir.
„Ég held að hann sé sanngjarn.
Þetta er ekki svo dýrt.“
- Heldurðu að þú þurfir að
fara í marga tíma?
„Nei, ég hugsa að ég þurfi þess
nú ekki.“
Gígja Björk Valsdóttir
- Finnst þér þú ná miklum
áfanga þegar þú færð bílprófið?
„Já, svona að vissu leyti
a.m.k.“
- Býstu við að tilkoma bíl-
prófsins breyti þínu daglega lífi
mikið?
„Nei, ég býst ekki við því. Ég
hef það mikið frjálsræði"
- Ertu farin að safna fyrir bíl?
„Nei en ég hugsa að ég geri
það nú."
- Það má búast við hálku fljót-
lega, heldurðu að þú verðir ekki
smeyk við hálkuna?
„Ég ætla að vona að þetta
verði allt í lagi, því ég verð lík-
lega á góðum bíl og þarf ekkert
að óttast."
- Hámarkshraði hefur víða
verið hækkaður, hvað finnst þér
um það?
„Mér finnst það mikið til
bóta.“
- Ertu farin að læra vel fyrir
prófið?
„Nei, ég er ekki farin að gera
það en ég ætla að fara rækilega í
gegnum þetta þegar þar að
kemur.“
- Varst þú með öll umferðar-
merkin á hreinu þegar þú byrjað-
ir að læra til prófs?
„Nei, en maður var ekki búinn
að gleyma þeim öllum.“
- Hvað hefur komið þér mest
á óvart í þeirri fræðslu sem þú
hefur fengið hér?
„Ætli það sé ekki það sem ég
hef lært um vélina og annað í
þeim dúr.“
Hvernig heldurðu
að KA og Þór muni standa sig
í 1. deildinni í handknattleik?
Kristjan Kristjánsson:
„Ég spái KA íslandsmeistara-
titli. Þórsararnir gætu sloppið
við fall ef allt gengur upp hjá
þeim og þeir verða heppnir, en
KA hefur alveg lið til þess að
vera með í baráttunni um
lslandsmeistaratitilinn.“
Sveindís Benediktsdóttir:
„Ja, KA-menn verða sennilega
í þriðja sæti og Þór í fimmta."
Þorleifur Þór Jónsson: j
„Ja, verða þau ekki einhvers
staðar ofarlega? Það sem ég
veit um þessa drengi er það að
þetta eru víkingar til verka og
hljóta því að lenda ofarlega."
Davíð Björnsson:
„Ja, ætli Þór fái ekki eitt stig.
Þeir fá þetta stig í heimaleik
gegn ÍR.“
Hilmir Svavarsson:
„Ég hef nú lítið fylgst með
handboltanum en ég spái því
þó að hvorugt liðið falli.“
Sigurjón Pálsson:
„Ég spái að Þór verði í fimmta
sæti og KA í fjórða.'1