Dagur - 19.10.1987, Page 8

Dagur - 19.10.1987, Page 8
8 - DAGUR - 19. október 1987 19. október 1987 - DAGUR - 9 íþróttÍL Handbolti 1. deild: Staða Þórsara allt annað en glæsileg - Liðið hefur enn ekki hiotið stig að loknum 5 umferðum Gamla kenipan Jón Már Héðinsson lék best Þórsara í leiknum gegn Haukum í Hafnarfirði á laugardag. Mynd: Úrvalsdeildin í körfubolta: Haukar sigruðu Þór í tilþrifalitlum leik Þór mætti Haukum í fyrsta leik sín- um í úrvalsdeildinni í Hafnarfirði á laugardaginn og tapaði leiknum með 86 stigum gegn §8. Staðan í leikhléi var 44:29 Hafnfirðingunum í vil. Leikurinn var frekar slakur og tiiþrifalítill þegar á heildina er litið og greinilegt að hvorugt liðið er komið í sitt besta form. Jón Már Héðinsson fyrstu körfu leiks- ins fyrir þá. Þór leiddi framan af fyrri hálfleik. Um miðbik hálfleiksins kom mjög slæmur kafli hjá Þórsurum og Hafnfirðingarnir náðu góðu forskoti fyrir leikhlé. Þetta forskot var of stór biti fyrir Þórsara og áttu þeir á brattann að sækja það sem eftir lifði leiksins sem endaði eins og áður sagði 86:58. Þór byrjaði leikinn vel og skoraði Varnarleikur Þórsara var slakur og Þjálfaramál hjá KA: „Bíðum eftir svari frá Sævari“ - segir Stefán Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar „Við höfum boöið Sævari Jónssyni landsliðsmanni úr Val, til viðræðna um að hann þjálfi og leiki með KA á næsta keppnistímabili. Við bíðum eftir svari frá honum og ég á von á því alveg á næstunni,“ sagði Stefán Gunnlaugsson formaður knatt- spyrnudeildar KA í samtali við Dag í gær. „Það verður ekkert gert í öðrum málum fyrr en við hcyrum frá honum,“ sagði Stefán ennfremur. Þaö yrði mikill fengur fyrir KA aö ná í Sævar sent er einn albcsti varnarmaöur sem til er hér á landi í dag. Öll liðin í 1. deildinni í knattspyrnu hafa gengið frá ráðningu þjálfara nema KA. Það hefur að vísu ekki verið til- kynnt enn að Ásgeir Elíasson þjálfi Fram og það mun nær öruggt. þá hittu leikmenn liðsins illa. Jón Már Héðinsson var bestur Þórsara í leikn- um og sá eini sem lék af eðlilegri getu. í liði Hauka voru þeir ívar Ásgrímsson og Tryggvi Jónsson bestir. Stig Þórs: Jón Héðinsson 15, Eiríkur Sigurðsson 10, Konráð Óskarsson 10, Bjarni Össurarson 7, Ingvar Jóhanns- son 6, Jóhann Sigurðsson 4, Guð- mundur Björnsson 4 og Hrafnkell Túliníus 2. Flest stig Hauka skoruðu ívar Ásgrímsson 21, Tryggvi Jónsson 12, Henning Henningsson 12 og Ólafur Rafnsson 8. „Ég er að sjálfsögðu svekktur yfir því að tapa leiknum en þetta er allt að koma hjá okkur. Þetta var allt annað en verið hefur undanfarið en það þarf meira til. Við munum nota fríið sem framundan er til þess að undirbúa okkur undir lokaátökin í fyrri umferðinni og munum selja okkur dýrt í þeim Ieikjum sem eftir eru,“ sagði Árni Stefánsson leikmaður Þórs í handbolta, eftir leikinn við Stjörnuna í Iþróttahöllinni á Akureyri á laugardag. Leikurinn var jafn og æsispennandi allan tímann en Stjörnumenn reyndust sterkari í lokin og sigruðu 23:22. Þórsarar sýndu á sér allt aðra hlið en gegn ÍR um síðustu helgi enda gátu hlutirnir ekki versnað hjá liðinu. Liðið lék með tvo línumenn í sókninni lengst af og gaf það ágæta raun. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var nánast jafnt á öllum tölum. I hálfleik höfðu Stjörnumenn yfir 12:11. Sama jafnræðið var með liðun- um fram í miðjan seinni hálfleik. Á 17. mín. var staðan jöfn 17:17 en þá skoruðu Stjörnumenn þrjú mörk í röð og gerðu nánast út um leikinn. Skömmu síðar var mun- urinn orðinn fjögur mörk 22:18. En Þórsarar voru ekki á því að Árni Stefánsson átti mjög góðan leik með Þór gegn Stjörnunni. Hér skorar hann eitt marka sinna í leikn- Ulll. Mynd: EHB. gefast upp og náðu að minnka muninn niður í eitt mark fyrir leikslok en lokatölurnar urðu 22:23. Árni Stefánsson minnkaði muninn í eitt mark á síðustu mín. leiksins og Þórsarar reyndu að spila maður á mann síðustu sek- úndurnar en það gekk ekki upp. Stjörnumenn voru nær því að bæta við 24. markinu en að Þórs- arar næðu að jafna. Það sem varð Þór að falli í þessum leik, var það að leikmenn liðsins brutu oft klaufalega af sér, sérstaklega í seinni hálfleik og voru reknir útaf fyrir vikið. Auk þess misnotaði liðið þrjú víta- . Gunnar Gunnarsson var útilokaður um miðjan seinni hálf- leik fyrir brot. Axel Stefánsson markvörður og Árni Stefánsson voru bestu menn liðsins en einnig átti Ingólfur Samúelsson ágætan dag. Þórsarar hafa því enn ekki hlotið stig og staða liðsins er allt annað en glæsileg, nú þegar fimm umferðunt er lokið. Stjörnumenn hafa eflaust átt von á auðveldari sigri en raun varð á og leikmenn gerðu sig seka um mörg mistök. Sigmar Þröstur Óskarsson var bestur en einnig áttu þeir Sigurjón Guð- mundsson og Hermundur Sig- mundssor, áaætan dag. Mörk Þórs: Sigurpáll Aðal- steinsson 7/6, Árni Stefánsson 5, Ólafur Hilmarsson 4, Ingólfur Samúelsson 4 og Jóhann Sam- úelsson 2. Mörk Stjörnunnar: Hermund- ur Sigmundsson 8/6, Sigurjón Guðmundsson 6, Hafsteinn Bragason 3, Gylfi Birgisson 3, Skúli Gunnsteinsson 2, Einar Einarsson 1. Leikinn dæmdu þeir Einar Sveinsson og Gunnar Viðarsson og voru þeir sæmilegir. Körfuboltí 1. deild: Haustlitir á Króknum - þegar Tindastóll sigraði ÍA 89:59 Haustlitirnir voru allsráðandi í leik Tindastóls og Skagamanna sem fram fór á Króknum á föstudagskvöldið. Þetta var fyrsti leikur 1. deildar körfu- boltans norðan heiða á þessu Handbolti 3. deild: Naumt tap Völsunga í fyrsta leiknum Völsungar léku sinn fyrsta leik í 3. deild íslandsmótsins í handknattleik á laugardaginn en þá fengu þeir Skagamenn í Verður Sævar Jónsson næsti þjálfari KA í knattspyrnu? Haraldur Haraldsson lcikmaöur Völsungs skoraöi 3 mörk fyrir liö sitt gegn ÍA á laugardag. heimsókn. Leiknum sem fór fram í íþróttahöllinni á Húsa- vík lauk með naumum sigri Skagamanna 20:18. Þetta var jafnframt þriðji sigur þeirra í jafnmörgum leikjum. Leikur liðanna var mjög jafn og spennandi allan tímann. Skagamenn höfðu þó oftast frumkvæðið og þeir leiddu með einu marki í hálfleik 10:9. Sama jafnræðið var með liðunum í síð- ari hálfleik en undir lok leiksins fengu Völsungar nokkur góð tækifæri til þess að ná yfirhönd- inni. En taugar leikmanna voru ekki nægilega sterkar og þeir mis- notuðu m.a. tvö vítaköst og tvö hraðaupphlaup á lokamínútun- um. Skagamenn sigruðu því í leiknum sem fyrr sagði, 20:18. Pálmi Pálmason var atkvæða- mestur í liði Völsungs og skoraði 6 mörk. Ómar Rafnsson, Sigurð- ur Illugason og Haraldur Har- aldsson skoruðu þrjú mörk hver, Gunnar Jóhannsson 2 og Helgi Helgason 1. Helgi fékk að líta rauða spjaldið hjá dómurunum undir lok leiksins. í liði Skaga- manna var Pétur Ingólfsson sem fyrr atkvæðamestur. hausti. Mjög virtist skorta á leikæfingu liðanna og voru Stólarnir t.d. allan fyrri hálf- leikinn „að finna“ hvern annan. Leikurinn var jafn fyrstu mín- úturnar en fjótlega tóku heima- menn af skarið og náðu 11 stiga forystu. Ekki tókst þeim samt að hrista gestina af sér og í hálfleik var staðan 42:34. Stólarnir virtust síðan alveg steinsofandi í upphafi þess síðari þegar ÍA skoraði hverja körfuna á fætur annarri og náði að minnka muninn í 4 stig. En þá var það sem gestgjafarnir sögðu, hingað og ekki lengra, og með ágætum leik juku þeir forskotið jafnt og þétt allt til leiksloka. Þá var munurinn orðinn 30 stig, 89:59. Eins og áður segir var nokkur haustbragur á leik liðanna og ekki að efa, að það að Tindastóll hefur ekki náð að leika einn ein- asta æfingaleik í haust háði liðinu mikið í leiknum. Eyjólfur Sverris- son skoraði mest að venju, að þessu sinni 31 stig, og var liann og Kári Marísson þjálfari bestu menn Tindastóls í leiknum. Þá lék Sverrir Sverrisson þokkalega og Björn Sigtryggsson vel í fyrri hálfleik, en afleitlega í þeim síð- ari. Björn skoraði 15, Kári 14, Sverrir 8, Karl Jónsson 8 og Ágúst Kárason 7. Flest stig Skagamanna skorðu þeir Jói Guðmundsson 18, Bogi Pétursson 12 og knattspyrnu- kappinn Þrándur Sigurðsson 8. Þeir Indriði Jósafatsson og Hrafnkell Túliníus dæmdu leik- inn nokkuð vel. -þá Umsjón: Krisíján Kristjánsson Friðjón Jónsson og félagar hans í KA hafa aöcins unnið einn leik og á laugardag töpuðu KA-menn fyrir Víkingum. Mynd: Róbert. Handbolti 1. deild: Stórleikur Péturs dugði ekki gegn Víkingum - íslandsmeistararnir sigruðu 28:23 KA veitti íslandsmeisturum Víkings harða keppni í íslands- mótinu í l.deild á laugardag- inn í Laugardalshöllinni en það dugði ekki til. Hið sterka lið Víkings reyndist KA-mönnum ofviða og sigraði Hæðargarðs- liðið með 28 mörkum gegn 23 mörkum KA. Leikurinn var í jafnvægi í fyrri hálfleik og komust KA-menn tvisvar yfir 4:3 og 6:5. Víkingar settu þá í annan gír og náðu að komast yfir með góðum leikkafla undir lok hálfleiksins 16:12. Brynjar Kvaran er nú aftur kom- inn í markið og dreif hann sína menn áfram með góðri mark- Eyjólfur Sverrisson var að venju atkvæðamestur í liði Tindastóls og skoraði 31 Stig gegn ÍA. Mynd: -Þá. vörslu og hvatningarhrópum. Greinilegt er að KA saknar Jakobs Jónssonar í sókninni því of mikið mæðir á Pétri og Erlingi fyrir utan. KA menn neituðu að gefast upp í seinni hálfleik og börðust vel fyrstu mínúturnar og á tíma- bili áttu þeir möguleika að minnka muninn niður í eitt mark en þá var staðan 19:17. Hins veg- ar mistókst hjá þeim hraðaupp- hlaup mjög kíaufalega og í stað- inn fyrir að minnka muninn í eitt mark náðu Víkingar að skora mark og þar að auki bæta við fjórum mörkum í röð. Þar með var draumurinn búinn fyrir KA í þessum leik og endaði leikurinn því 28:23 eins og áður sagði. Þessi leikur var ekki sérstak- lega mikið fyrir augað og voru Víkingarnir langt frá sínu besta . Landsliðsmarkvörðurinn Krist- ján Sigmundsson varði t.d. ein- ungis fjögur skot og fór út af í seinni hálfleik. Þá kom inná Sigurður Jensson og varði eins og berserkur m.a. víti á krítísku augnabliki. Bestu menn Víkings auk Sigurðar voru Karl Þráinsson og Árni Friðleifsson. Hjá KA nrönnum var Pétur Bjarnason allt í öllu í sókninni og skoraði 9 mörk. Guðmundur Guðmunds- son var sterkur í vörninni og var hreyfanlegur á línunni. Undir lok leiksins brugðust taugar KA- manna og var þremur þeirra vís- að af leikvelli, að vísu voru tveir útafrekstrarnir mjög vafasamir hjá mistækum dómurunt leiksins Guðmundi Kolbeinssyni og Þor- geiri Pálssyni. Mörk KA í leiknum gerðu: Pétur Bjarnason 9/1, Guðmund- ur Guðmundsson 3, Friðjón Jónsson 3, Erlingur Kristjánsson 3, Eggert Tryggvason 3, Hafþór Heimisson 1 og Axel Björnsson 1. Mörk Víkings: Sigurður Gunn- arsson 6/1, Árni Friðleifsson 5, Karl Þráinsson 5, Hilmar Sigur- gíslason 3, Guðmundur Guð- mundsson 3, Siggeir Magnússon 3 og Bjarki Sigurðsson 3. AP

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.