Dagur - 19.10.1987, Blaðsíða 10

Dagur - 19.10.1987, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 19. október 1987 Enska knattspyrnan: Liverpool á toppinn! - „Óttast allt lofið,“ segir Bob Paisley fyrrum framkvæmdastjóri félagsins „Það tala allir um hve liðið sé sterkt og leiki frábæra knatt- spyrnu, þetta sé sterkasta lið Liverpool frá upphafí og ekk- ert geti komið í veg fyrir að lið- ið vinni Englandsmeistara- titilinn í ár. Ég óttast hins veg- ar að allt þetta lof geti stigið leikmönnum til höfuðs,“ sagði Bob Paisley fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Liverpool á föstudaginn. John Barnes var frábær í liði Liverpool gegn Q.P.R. og skoraði tvö mörk. Hugarfar leikmanna var þó í góðu lagi á laugardag þegar Liverpool tók á móti efsta liöi 1. deildar, Q.P.R. á Anfield. Q.P.R. hefur vermt efsta sæti deildarinnar undanfarnar vikur. en margir töldu að þessi leikur þeirra gegn Liverpool væri þeirra fyrsta prófraun á það hvort liðið ætti raunhæfa möguleika til sigurs í deildinni. Prátt fyrir ágætan leik Q.P.R. átti liðið ekki möguleika á sigri gegn Liverpool. Craig Johnston skoraði fyrsta markið 4 mín. fyrir lok fyrri hálf- leiks eftir góða sendingu John Barnes utan af kanti og þannig var staðan í hálfleik. Á 65. mín. var dæmd vítaspyrna á Terry Fenwick fyrir hendi og John Aldridge skoraði sitt 12. mark á tímabilinu úr vítaspyrnunni. Fram að þessu hafði Q.P.R. leik- ið vel og staðið nokkuð í heima- mönnum, en nú tók Liverpool öll völd í leiknum og langbesti mað- ur leiksins John Barnes bætti tveim mörkum við á 78. og 85. mín. eftir einleik þar sem hann sýndi hraða sinn og tækni í bæði skiptin. Við þennan sigur skaust Liverpool upp í efsta sæti deild- arinnar með 25 stig eins og Q.P.R., en hefur betra marka- hlutfall, auk þess sem Liverpool hefur leikið tveim leikjum minna, sannarlega sterk staða. Tæplega 40.000 áhorfendur sáu Manchester Utd. sigra Norwich á heimavelli sínurn Old Trafford 2:1. Þrátt fyrir sigurinn lék liðið heldur illa í leiknum, en það hlýtur þó að vera uppörvandi að sigra þrátt fyrir lélegan leik. Norwich hóf leikinn mun betur og allan fyrri hálfleik átti heima- liðið undir högg að sækja, Norwich hafði undirtökin á miðj- unni og tók forystu á 30. mín., Wayne Biggins sendi þá þrumu- skot í markið af löngu færi, og tveim mín. síðar þegar vörn Utd. var enn að jafna sig eftir markið átti Ruel Fox skot í þverslá. í leikhléi gerði Alex Ferguson breytingar á liði Utd. Kevin Moran kom inná í vörnina og Bryan Robson sem leikið hafði sem miðvörður í fyrri hálfleik var færður fram á miðjuna og þá loks tók liðið við sér. Aðeins mín. eft- ir að síðari hálfleikur hófst jafn- aði Peter Davenport fyrir Utd. og liðið náði tökum á leiknum, en þegar Bryan Gunn markvörð- ur Norwich varði vítaspyrnu Brian McClair á 76. mín. fóru menn að efast um að liðinu tækist að sigra. En þegar aðeins 10 mín. voru til leiksloka skoraði fyrirlið- inn Bryan Robson sigurmarkið er hann kastaði sér fram og skallaði glæsilega í mark Norwich eftir sendingu utan af kanti. Norwich átti hættuleg færi eftir þetta, en tókst ekki að skora og leikmenn liðsins óhressir með að ná ekki öðru stiginu úr leiknum. Nigel Clough náði forystu fyrir Nottingham For. í fyrri hálfleik, en Sheffield Wed. barðist mjög vel og gaf ekkert eftir þar til Lee Chapman var rekinn af leikvelli fyrir mótmæli við dómara hálf- tíma fyrir leikslok. Hann var varla kominn útaf þegar Franz Carr átti sendingu fyrir markið sem hafnaði í netinu án þess að markvörður Sheffield kæmi vörn- um við. Paul Wilkinson bætti síð- an við þriðja marki Forest rétt fyrir leikslok og góður sigur í höfn, en of stór miðað við gang leiksins. Chelsea sigraði Coventry í London og geta leikmenn Coventry nagað sig í handarbök- in fyrir hvernig fór. Leikmenn Chelsea voru jafn líflausir í leikn- um og dauð tré sem rifnað höfðu upp í óveðrinu í London fyrr í vikunni og lágu fyrir utan leik- vanginn. Sóknarmenn Coventry fóru illa með mörg góð færi í Peter Davenport jafnaði fyrir Man. Utd. gegn Norwich. sek., en markið var dæmt af. Ian Snodin náði síðan forystu fyrir Everton á 9. mín., en „Mira“ jafnaði þrem mín. síðar með glæsilegu skallamarki. Varnar- menn Everton áttu í stöðugum vandræðum með hann í leiknum og misstu hann í gegn undir lokin, en þá brást honum boga- listin. Paul Goddard átti skot í slá Everton marksins, en hinum megin var bjargað á línu frá Snodin. Fjörugur, en harður leik- ur og fjórir leikmenn bókaðir auk þess sem Adrian Heath var rek- inn af leikvelli hjá Everton á 72. mín. fyrir gróft brot. Jafntefli, en Everton vantar enn stöðugleika í leik sinn. Southampton vann sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu gegn Wat- ford á laugardag. Danny Wallace skoraði sigur markið 23 mín. fyrir leikslok eftir glæsilegan ein- leik, en sigur liðsins hefði getað orðið mun stærri, en leikmenn liðsins voru ekki á skotskónum í þessum leik. West Ham vann sinn fyrsta úti- leik gegn Oxford. Tommy Caton skoraði sjálfsmark eftir aðeins 6 mín. og Tony Cottee skoraði annað mark West Ham. Dean Saunders lagaði stöðuna fyrir leikhlé og þar við sat. Charlton er enn á botninum, tapaði heima gegn Derby. Steve Cross skoraði snemma í leiknum fyrir Derby og reyndist það eina mark leiksins. Luton sigraði Wimbledon á heimavelli 2:0. Brian Stein skor- aði á 20. mín. og Danny Wilson gerði út um leikinn með marki í síðari hálfleik. f 2. deild heldur Bradford sínu striki, sigraði Birmingham örugg- lega. Leonard 2, Palin og McCall skoruðu. Hull City gengur einnig mjög vel, er í öðru sæti og sigraði Barnsley á útivelli. Saville, Heard og Askew skoruðu mörk liðsins. Furðuleg úrslit í leik Plymouth gegn Leeds Utd. Clayton og Summerfield náðu forystu fyrir Plymouth eftir 11 mín. leik, en Bob Taylor og Glynn Snodin höfðu jafnað 9 mín. síðar og þannig var staðan í leikhléi. í síðari hálfleik skoruðu Smith, Clayton, Summerfield og Tynan fyrir Plymouth. Snodin gerði annað mark sitt fyrir Leeds Utd. Fjörugur leikur, en hætt við að framkvæmdastjórastóll Billy Bremner hjá Leeds Utd. verði að hálfgerðum ruggustól ef ekki verður breyting til batnaðar hjá liðinu fljótlega. Aston Villa gengur illa að sigra á heimavelli og hefur raunar ekki gert það í haust. Mark Walters náði forystunni fyrir Villa í fyrri hálfleik, en Trevor Aylott jafnaði fyrir Bournemouth í síðari hálf- leik. Þ.L.A. Arsenal sigraði Tottenham Brasilíumaðurínn í liði Newcastle, Mirandinha, var Everton erfíður á laugardaginn. leiknum og David Bennett átti skot í slá. Um miðjan síðari hálf- leik losnaði síðan Kerry Dixon óvænt úr gæslunni og skoraði eina mark leiksins. Coventry setti David Speedie sem keyptur var frá Chelsea í sumar inná, en allt kom fyrir ekk[, Chelsea sigraði þrátt fyrir að Pat Nevin væri eini tnaður liðsins sem lék vel. Newcastle lék heima gegn Everton og átti tækifæri til að sigra í leiknum. Brasilíumaður- inn „Mira“ sem var áberandi bestur á vellinum skoraði eftir 45 Leikur Lundúnarisanna Tott- enham og Arsenal á White Hart Lane fór fram á sunnudag þar sem honum var sjónvarpað beint. Fyrsta markið í viðureign þess- ara gömlu keppinauta kom strax á fyrstu mín. leiksins, Steve Williams átti þá slæma sendingu aftur til markvarðar síns, en hinn eldfljóti Nico Claesen komst í milli og vippaði laglega yfir John Lukic markvörð Arsenal. Prem mín. síðar hafði Arsenal náð að jafna, með fallegu marki David Rocastle. Ekki liðu nema 10 mín. frá jöfnunarmarki Arsenal þar til liðið hafði náð forystu, bakvörð- urinn Mike Thomas braust upp hægri vænginn og skaut þaðan föstum jarðarbolta fram hjá Tony Parks sem lék í marki Tott- enham í stað Ray Clemence sem er meiddur. Forysta Arsenal í hálfleik var sanngjörn og það var ekki fyrr en síðustu 20 mín. leiks- ins sem leikmenn Tottenham komust í gang og voru raunar mjög óheppnir að jafna ekki í lokin, Gary Mabbutt komst einn í gegn eftir sendingu frá Ardiles og skoraði, en markið var dæmt af þar sem annar leikmaður liðs- ins var rangstæður hinum megin á vellinum. Arsenal er því í hópi efstu liða og liðið til alls líklegt í vetur, en eitthvað virðist vera að hjá Tottenham. Richard Gough farinn heim til Skotlands og bæði Nico Claesen og Steve Hodge eru óánægðir í herbúðum liðsins. Þ.L.A. David Rocastlc jafnaði fyrir Arsenal gegn Tottenham í gær. Knatt- Úrslit leikja í 1. og 2. deild ensku knattspyrnunnar á laug- ardag urðu þessi: 1. deild: Charlton-Derby 0:1 Chelsea-Coventry 1:0 Liverpool-Q.P.R. 4:0 Luton-Wimbledon 2:0 Man.United-Norwich 2:1 Newcastle-Everton 1:1 Nottiu.Forest-SliclT.Wcd. 3:0 Oxford-West Hatn 1:2 Southampton-Watford 1:0 Tottenham-Arsenal 1:2 2. deild: Oldham-C.Palace fr. Aston Villa-Bornemouth 1:1 Barnsley-Hull 1:3 Blackburn-Stokc 2:0 Bradford-Birmingham 4:0 Ipswich-Man.Citv 3:0 Middlesbro-W.B.A. 2:1 Millwall-Shrewsbury 4:1 Plymouth-Leeds 6:3 Reading-Huddersfield 3:2 Sheff. U td. -Leicester 2:1 Getraunaröðin er þessi: 211-11X-121-211 Liverpool Q.P.R. Arsenal Nollm.lo/csl Man.United Chelsea Tottenham Everton Coventry Oxford Derby Portsnioiith Luton Wimbledon West Hani Ncvvcastlc Southampton Norwich Watford ShelT.Wed. Charlton 9 8-1-0 28: 6 25 11 8-1-2 16: 9 25 11 7-2-2 211: 6 23 11 7-2-2 19: 9 23 12 6-5-1 21:12 23 12 7-1-4 22:17 22 12 6-2-4 16:10 20 12 5-4-3 19: 9 19 10 5-14 11:13 16 114-2-5 15:1814 1134-4 18:1213 11 3-4-4 12:23 13 11 3-3-5 14:17 12 11 3-3-5 12:15 12 11 2-5-4 11:14 I I 10 24-4 12:17 10 10 2-44 12:17 II) 12 3-1-8 9:17 10 10 2-2-6 5:12 8 12 1-3-8 11:26 6 11 1-2-8 8:21 5 Bradford Hull Middlesbrough Ipswich C.Palace Swindon Aston Villa Millwall Birminghant Sloke Sheff.United Blackbum Plymouth Man.City Barnslcy Lceds Lcicester W.B.A Shrewsbury Bornemouth Reading Oldhatn Huddcrsficld 13 10-2-1 25: 9 32 13 7-5-1 21:12 26 13 7-24 19:12 23 13 64-3 16:9 22 12 6-3-3 26:16 21 12 6-3-3 19:13 21 14 5-6-3 17:12 21 13 6-34 20:17 21 13 544 15:20 19 14 5-4-5 9:15 19 13 5-3-5 17:17 18 14 4-5-5 17:18 17 14 4-4-6 24:25 16 12 4-3-5 19:18 15 13 4-3-6 11:15 15 14 3-6-5 10:1615 13 4-2-7 18:19 14 14 4-2-8 17:23 14 12 2-7-3 9:11 13 13 34-6 15:19 13 12 3-3-6 12:18 12 12 3-3-6 9:18 12 12 0-5-7 12:26 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.