Dagur - 19.10.1987, Page 13
19. október 1987 - DAGUR - 13
Erlendur Hermannsson iðnfræðingur.
menn gera slíkt í trausti þess að
bæjarráð muni samþykkja slíkt
eftir á. Þetta fer fram gegnum
nefndir bæjarins oft á tíðum og
bæjarráð eða bæjarstjórn sam-
þykkir framkvæmdirnar þegar
þær eru afstaðnar eða hafnar. Þá
hlýtur þetta að vera vilji bæjar-
yfirvalda og er þeim í sjálfsvald
sett. Þegar þessi leið er farin þarf
ekki að leita samþykkis okkar.
Spurningin er því þessi: Hvernig
vilja menn standa að þessum
málum í framtíðinni?"
- Eruð þið hrifnir af því að
bjóða út hönnun mannvirkja?
Ágúst Berg: „Það er auðvitað
hægt að efna til samkeppni um
hönnun einstakra bygginga en þá
kemur annað til álita: Þeir sem
dæma slíkar samkeppnir þurfa að
vera trúnaðarmenn bæjarins og
vera vel inni í öllu sem snertir
hönnun. Nú hefur verið rætt um
að efna til samkeppni um hönnun
stjórnsýslumiðstöðvar hér í bæn-
um og það ér gott mál. Þó verð-
um við alltaf að gæta þess að fara
ekki úr einni einstefnu yfir í aðra.
Við búum við þrýsting frá stóra
bróður í Reykjavík og verðum
einnig að gæta þess að hér eigum
við ágæta fagmenn á sviði
hönnunar."
Erlendur Hermannsson:
„Sannleikurinn er sá að menn eru
sérhæfðir á ýmsum sviðum og þá
er nauðsynlegt að leita til þeirra
þegar um er að ræða hönnunar-
verkefni sem krefjast sérkunn-
áttu.“
- Hér hafa verið hönnuð ýmis
merkileg mannvirki gegnum árin.
Hafið þið orðið varir við að
Akureyringum hafi ekki verið
treyst til að hanna stór mannvirki
um dagana?
Ágúst Berg: „Það er nú þannig
að grasið er oft grænna í garði
nágrannans. Ég er t.d. alveg
harður á því að við hefðum átt að
teikna Verkmenntaskólann, án
þess að ég vilji á nokkurn hátt
vega að þeim manni sem tók
verkið að sér. Við teiknuðum
Síðuskóla hér en burðarþol og
lagnir voru teiknaðar á öðrum
stöðum. Við teljum okkur ekkert
að vanbúnaði til að teikna skóla
ef við höfum mannskap í það.“
Óheyrilegur kostnaður
- Á síðasta bæjarstjórnarfundi
var talsvert rætt um íþróttahöll-
ina og framúrkeyrslu í hönnunar-
kostnaði við hana. Hvað viltu
segja um það?
„Það má benda á að mjög
rnargt er komið inn í Höllina sem
átti aldrei að vera þar. Þarna er
rekin skólastarfsemi, sýningar
hafa verið fleiri og stærri en ráð
var fyrir gert o.s.frv. Húsnæðinu
hefur verið breytt mikið frá því
sem í upphafi var ætlað. Það er
því ekkert skrýtið að sífellt þurfi
að taka þráðinn upp aftur og
aftur þegar allar þessar breyting-
ar eiga sér stað. Kostnaðaráætl-
anir standast ekki, endurhönnun
fer fram hvað eftir annað og á
endanum verður þetta óheyrilega
dýrt dæmi. Það fer hátt hlutfall af
þeim peningum sem veitt er til
Hallarinnar í þetta þegar alltaf er
verið að byrja upp á nýtt, hvað
eftir annað.“
- Sundlaugin við Glerárskóla
hefur einnig verið talsvert til
umræðu. Er hlutfallslega dýrara
að hanna sundlaug en t.d. fjöl-
býlishús?
„Sundlaug er í hærri vanda-
stuðli, það er vitað mál. Það má
einnig benda á að viðbygging er
viðkvæmari hönnun og dýrari en
sjálfstæð bygging. Það getur vel
verið að mönnum finnist ein-
kennilegt að dýrt sé að hanna
sundlaugar en það er geysimikið
lagt í sundlaugar á íslandi. Auð-
vitað væri hægt að fara hina leið-
ina og hanna ódýra sundlaug með
nauðsynlegum loftræstibúnaði.
Þannig sundlaug sá ég t.d. í
Keflavík hjá varnarliðinu. En
þegar við erum að byggja til
framtíðar verður að vanda heldur
rneira til hlutanna.“
- Getið þið nefnt frekari dæmi
um hvernig búið er að þessari
stofnun?
Erlendur: „Það hlýtur að vera
athyglisvert að við stofnun sem
þessa skuli ekki vera til tölva.
Það væri svo miklu einfaldara
fyrir okkur að hafa tölvu til að
átta okkur á ýmsum liðum, t.d.
fjárhagsáætlunum sem við viljum
ekki fara fram úr, kostnaði við
hin og þessi verk og ótal fleiri
atriði sem kæmi sér vel að geta
fundið á sem fljótvirkastan
máta."
- Hvernig er sambandi ykkar
við yfirstjórn bæjarins háttað?
Sambandsleysi við
yfirstjórn bæjarins
Gylfi Snorrason: „Okkur
finnst vera sambandsleysi við
yfirstjórn bæjarins. Þetta er ekki
gott því hérna eru teknar afdrifa-
ríkar ákvarðanir og yfirstjórn
bæjarins hefur misst trúna á
þessu embætti. Af hvaða orsök-
um það er veit ég ekki, ég tel
ekki að þetta sé okkar sök. Þarna
er annaðhvort á ferðinni skiln-
ingsleysi eða þá að þeir vilja ekki
setja sig inn í málin. Hingað hafa
stundum komið einstakir bæjar-
fulltrúar á fundi sem haldnir hafa
verið vegna einstakra málefna.
Þeir hafa þá oft rekið upp stór
augu og sagt: Á þetta eða hitt að
gerast hér? Er þetta svona
mikið? o.s.frv. Þeir hafa því
greinilega ekki vitað hvað hér fer
fram og álíta margir að þetta
embætti sé e.k. aðskotahlutur úti
í bæ.
Það væri til mikilla bóta ef
bæjarstjóri hefði fundi með sín-
um deildarstjórum t.d. eipu sinni
í mánuði til að fá sem besta vitn-
eskju um hvað væri að gerast í
hverri stofnun.“
- Er hönnunareftirlit mikill
þáttur í starfi ykkar?
„Já, við teljum nauðsynlegt að
hafa ákveðið eftirlit með
hönnun. Það eru gerðir ákveðnir
hönnunarsamningar við hönnuði,
sbr. sundlaugina við Glerárskóla,
þá eru haldnir hönnunarfundir til
að skoða hvernig verkinu miðar,
hvort breytingar koma fram
o.s.frv.
Hönnunareftirlit er ekki erfitt
því ef ákveðnir samningar eru
gerðir og hönnuðir vinna sam-
kvæmt gjaldskrá þá kemur fram í
samningnum að ákveðnir verk-
þættir eru utan við gjaldskrána,
t.d. kostnaðaráætlun, frumathug-
un og útboðsgögn. Kostnaður
getur auðvitað farið fram úr áætl-
un og þá verða hönnuðir að
standa fyrir sínu.“
- Það fylgir þessu embætti því
töluverð ábyrgð?
„Já, en því miður hafa yfir-
menn bæjarins misst tiltrú á því
að við teiknum mannvirki hér í
bænum. Ég hefi heyrt yfirlýsingar
frá þessum ágætu mönnum um að
hér eigi engin hönnun að fara
fram. Þetta er ekki vegna þess að
við getum ekki hannað hlutina
heldur vegna einhvers annars."
Erlendur: „Hvað Síðuskóla
varðar - en hann var hannaður
hér - þá veit ég ekki til þess að
neinn hafi komið og fundið að
þeirri hönnun."
Gylfi: „Gagnvart mér snýr
málið þannig að ýmsum hönnuð-
um öðrum í bænum finnst við
hafa óþarflega stóra köku. Við
erum á föstum launum og bærinn
hlýtur að stórgræða á því að láta
okkur teikna - ef við höfum
möguleika á því vegna mann-
eklu. Það er því einkennilegt
sjónarmið að banna okkur að
hanna byggingar fyrir bæinn.
Það hafa einhver öfl unnið að
því leynt og Ijóst að skera þessa
stofnun niður, en hverjir þessir
menn eru vitum við ekki. Það
hefur komið fram í bókunum að
bæjarráð hefur sagt fyrir um það
hvernig eigi að klæða hús að utan
o.s.frv. sbr. sundlaugina við Gler-
árskóla. Þetta er mjög óvenju-
legt, svo ekki sé meira sagt.
Þarna er bæjarráð komið langt út
fyrir sitt verksvið. Þögnin er eina
hrósið sern við fáum."
Erlendur: Ég er sammála
þessu. Þau öfl sem vinna gegn
okkur eru bæði innan og utan
bæjarkerfisins. Öflin innan
bæjarkerfisins skortir þekkingu á
því sem hér fer fram en öflin ..úti
í bæ“ notfæra sér þekkingarskort
manna á vegum bæjarins til að
koma ár sinni betur fyrir borð
og telja þeim trú um að við séum
ekki hæfir til þessa eða hins verks-
ins.“ EHB
Bridds:
Kristjánsmót
á Sauðárkróki
Laugardaginn 24. október n.k.
verður haldið svo nefnt
Kristjánsmót í bridds á Sauð-
árkróki. Mótið er heitið í
höfuðið á þeim kunna bridds-
spilara, Kristjáni Blöndal. Það
er Bridgefélag Sauðárkróks
sem býður til þessa móts og er
gert ráð fyrir að 34 pör af
Norðurlandi mæti til keppni.
Spiluð verða 2 x 28 spil eftir
Michel-fyrirkomulagi. Keppnin
fer fram í Naustinu á Sauðár-
króki og hefst kl. 10 árdegis.
Þátttökugjald er 3500 krónur á
par og er ein máltíð innifalin í
verðinu svo og kaffi meðan
keppnin fer fram. Bókabúð
Brynjars á Sauðárkróki gefur öll
verðlaun til mótsins.
Sem fyrr segir er áætlað að 34
pör taki þátt í keppninni. Bridge-
félagi Akureyrar hefur verið boð-
ið að senda 8 pör til keppni. Þeir
félagar í B.A. sem hafa hug á að
fara vestur n.k. laugardag eru
beðnir að hafa samband við
Tryggva Gunnarsson formann
B.A. fyrir kl. 20.00 á þriðjudag.
BB.
Vísitala
framfærslu-
kostnaöar
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í októberbyrj-
un 1987. Reyndist hún vera
213,85 stig (febrúar 1984 = 100),
eða 1,65% hærri en í september-
byrjun 1987.
Áf þessari 1,65% hækkun stafa
um 0,3% af hækkun á verði mat-
vöru, um 0,4% stafa af hækkun á
verði fatnaðar, og um 1,0% stafar
af hækkun ýmissa vöru og þjón-
ustuiiða.
Siðastliðna tólf mánuði heíur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 21,8%. Hækkun vísi-
tölunnar um 1.65% á einum
mánuði frá september til október
svarar til 21.7% árshækkunar.
Undanfarna þrjá mánuði hefur
vísitalan hækkað unt 5,4% og
jafngildir sú hækkun 23,2% verð-
bólgu á heilu ári.
Bókin um
Macintosh
Mál og menning hefur gefið út
Bókina um Macintosh eftir Jörgen
Pind.
Macintosh-tölvan þykir ein
aðgengilegasta einkatölvan sem
komið hefur á rnarkað og hún er
þegar orðin mjög algeng á ís-
landi. í Bókinni um Macintosh er
búnaði tölvunnar lýst rækilega og
lesendum smátt og smátt kennt
að nýta sér alla eiginleika
hennar. Það er farið í gegnum öll
stig ritvinnslunnar og fjallað um
notkun teikniforrita. í lok bókar-
innar er svo sérstakur kafli fyrir
þá lengra komnu og bókarauki
með svörum við verkefnum og
atriðisorðaskrá.
Höfundurinn, Jörgen Pind, er
deildarstjóri tölvudeildar Orða-
bókar Háskólans. Hann sendi í
fyrra frá sér Bókin um MS-DOS
sem vakti athygli fyrir skýra og
skemmtilega framsetningu. Hún
er nú væntanleg í fjórðu prentun
og fæst auk þess í skólaútgáfu.
Bókin um Macintosh er 205
bls. að stærð, prentuð í Prent-
smiðju Árna Valdemarssonar hf.
Gylfi Snorrason tæknifræðingur.